Morgunblaðið - 14.08.1991, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1991
39
IÞROTTIR FATLAÐRA
ísland stefnir að
verðlaunasæti
Þátttakendur sem taka þátt í Evrópumeistaramóti fatlaðra í sundi í Barcelona ásamt fararstjórum.
Rut og Sverrir með
gull í Barcelona
íslendingar hafa fengið sjö verðlaunapeninga og Lilja María
Snorradóttir setti Evrópumet í undanrásum í 100 m flugsundi í gær
SJO keppendur frá Iþróttasambandi fatlaðra taka þátt í Evrópu-
meistaramótinu í sundi sem stendur yfir f Barcelona á Spáni.
íslensku keppendurnir hafa fengið gullverðlaun ítveimur greinum
- Rut Sverrisdóttir, Óðni, í 100 m flugsundi í sínum flokki, 1:20.06
mín. og Geir Sverrisson í 100 m bringusundi f sínum flokki -
1:21,41 mín. Lilja María Snorradóttir setti einnig Evrópumet í
sínum flokki í undanrásum í 100 metra flugsundi í gærmorgun.
Rut fékk brons í 50 m skrið-
sundi, en hún setti nýtt ís-
landsmet, 32,24 sek. Ólafur Eiríks-
son, ÍFR, hefur fengið silfurverð-
laun í sínum flokki í 400 m skrið-
sundi, 4:45,01 mín. og þá varð hann
íjórði í 100 m baksundi. Kristín Rós
URSLIT
Loftorkumótið
Loftorkumótið var haldið í Borgarnesi
um helgina. 'Efstir urðu:
Sturla Omarsson, GR................71
Kristinn G. Bjamason, GL...........76
Stefán Haraldsson, GB..............77
Með forgjöf:
Ingvi Ámason, GB...................64
Sturla Ómarsson, GR................65
Stefán Haraldsson, GB..............65
Baldur Brjánsson, Þórhallur Sigurðsson
og Birgir Viðar Halldórsson léku einnig
sjóðsleik og rann ágóði þeirra til vistheimil-
isins að Sólheimum.
Citizen á Selfossi
Kjartan Gunnarsson, GOS............72
Ómar Kristjánsson, GR..............72
Þorsteinn Þorsteinsson, GR.........74
Með forgjöf:
SigurðurÞráinsson, GOS.............61
Hannes Guðnason, GR................63
Þorsteinn Þorsteinsson, GR.........63
iohn Letters
Opið unglingamót var haldið á Garða-
velli á laugardaginn. Efstir urðu:
Þórður Ágústsson, NK...............69
Birgir Leifur Hafþórsson, GL.......71
Helgi Dan Steinsson, GL............73
Með forgjöf:
Þórður Ágústsson, NK...............59
Helgi Dan Steinsson, GL............66
Birgir Leifur Hafþórsson, GL.......67
Límtrésmótið
Opið mót sem fram fór Selsvelli við Flúðir
á sunnudaginn. Úrslit vora sem hér segir.
Karlar, án forgjafar:
Óskar Friðbjömsson, NK...73 (vallarmet)
Reynir Guðmundsson, GF.............82
Jónas Ragnarsson, GK...............82
Sigurður Runólfsson, NK............82
Karlar með forgjöf:
Emil Gunnlaugsson, GF..............64
Óskar Friðbjömsson, NK.............66
Reynir Guðmundsson, GF.............68
Halldór Guðnason, GF...............68
Konur:
Hrafnhildur Eysteinsdóttir, GK.....90
Amheiður Jónsdóttir, GL...........104
Hákonardóttir, ÍFR, fékk brons í
100 m baksundi (1:35,01 mín.) og
í 100 rh bringusundi í sínum flokki
(1:50,45 mín.). Lilja María Snorra-
dóttir, SH, fékk silgurverðlaun í 100
m baksundi, er hún syndi á nýju
íslandsmeti 1:20,70 mín.
Lilja María setti Evrópumet í
undanrásum í 100 m flugsundi í
gærmorgun.
Halldór Guðbergsson, ÍFR, varð
fjórði í 100 m bringusundi í sínum
flokki, sjötti í 100 m flugsundi og
sjöundi í 400 m fjórsundi. Sóley
Axelsdóttir, ÍFR, varð tíunda í 100
m baksundi í sínum flokki.
Þessir einstaklingar eru hreyfl-
hamlaðir og sjónskertir.
Mótið er liður í undirbúningi fyr-
ir heimsleika fatlaðra sem fara fram
í Barcelona í september 1992.
KNATTSPYRNA
Kæra Fylkis bíður
KÆRA Fylkis á hendur ÍA er
enn fyrir dómi á Akranesi.ÍA
kann að tapa þremur stigum
í toppbaráttu 2. deildarinnar
en beðið er eftir að héraðs-
dómur felli dóm í málinu en
félögin skiluðu greinargerð-
um sínum til dómsins 23. júlí.
Fylkir kærði sem kunnugt er
LA vegna aískipta þjálfarans,
Guðjóns Þórðarssonar, af leik lið-
anna 25. júní en þá bar Guðjóni
að taka ut leikbann vegna rauðs
spjalds, sem hann fékk í bikarleik
sömu liða nokkrum dögum áður.
Knattspyrnudeild Fylkis byggir
mál sitt á því að Guðjón hafi stað-
sett sig við handrið rétt við völlinn
og hrópað fyrirskipanir til leik-
manna. Þá hafi hann farið inn í
búningsherbergi liðsins í leikhléi.
Eftir því sem næst verður kom-
ist hafa Akurnesingar ekki mót-
mælt atvikalýsingu Fylkis í kær-
unni en telja að héraðsdómstóllinn
sé ekki bær um að fjalla um mál-
ið. Telja þeir að Fylkir hefði átt
að höfða málið hjá Dómstóli KSÍ.
Jósef Þorgeirsson lögfræðingur
sem á sæti í dóminum vildi ekki
tjá sig neitt um málið né heldur
þeir forráðamenn Fylkis sem
Morgunblaðið ræddi við í gær-
kvöldi.
KNATTSPYRNA / DANMORK
EVRÓPUMEISTARAMÓT öld-
unga hefst hér á landi í dag.
Um Evrópumeistaratitilinn er
leikið í Grafarholti en um Evr-
ópubikarinn, keppni með forg-
jöf, er leikið í Leirunni.
Þetta er í 10. sinn sem slíkt mót
er haldið og í fyrsta sinn sem
það fer fram á íslandi. Núverandi
Evrópumeistarar eru ítalir en sveit
þeirra skipa frábærir kylfíngar og
líklegt er að Svíar komi næstir þeim.
íslenska sveitin sem leikur í Graf-
arhotlinu er skipuð þeim Þorbirni
Kjærbo, Sigurðí Albertssyni, Gunn-
ari Júlíussyni, Pétri Antonssyni,
Gísla Sigurðssyni og Karli Hólm. I
B-sveitinni, sem leikur í Leirunni
eru Alfreð Viktorsson, Jóhann
Benediktsson, Ólafur Gunnarsson,
Sveinbjörnsson, Rangar J. Jónsson
og Birgir Björnsson.
„Við eigum ekki neina möguleika
á að sigra, það verða ítalir og Svíar
sem verða í efstu sætunum," sagði
Þorbjörn Kjærbo fyrirliði A-sveitar
íslands í gær. „Við höfum sjö sinn-
um verið með og sveitin okkar er
alltaf að verða sterkari og sterkari.
Við urðum í 8. sæti í fyrra og er
það besti árangur okkar. Þetta eru
frábærir íþróttamenn og kylfingar
þó svo fæturnir séu farnir að gefa
sig hjá sumum þá leika þeir frá-
bært golf og það er frábært að fá
að vera með í þessu og véra ekki
dæmdur úr leik þó maður sé orðinn
55 ára“, sagði Þorbjörn.
„Við ættum alveg eins að geta
komist í verðlaunasæti og stefnufrr
að sjálfsögðu að því. Við erum á
heimavelli og það ætti að nýtast
okkur eitthvað," sagði Alfreð Vikt-
orsson fyrirliði B-sveitar íslands.
„Við höfum ekki verið langt undan
efstu þjóðum undanfarin ár, en
þetta eru mest menn sem hafa ver-
ið í golfi frá barnæsku en við byrjuð-
um flestir seint og það hefur tals-
vert að segja,“ sagði Alfreð.
Setningarathöfnin tókst mjög vel
í Perlunni í gær og voru hinir er-
lendu gestir ánægðir með hvernig
til tókst og fannst greinilega mikið
til Perlunnar koma.
Ræst verður út frá klukkan 8
árdegis í Grafarholtinu en í Leir^
unni fara fyrstu menn á teig klukl^
an 8.30. Þess má til gamans geta
að tveir íslendingar leika með sveit
Luxemborg. Það eru þeir Þorsteinn
Jónsson og Jóhannes Einarsson, en
þeir eru báðir búsettir ytra.
KNATTSPYRNA / 3. DEILD
Geysileg spenna
Mikil spenna er nú á toppi 3.
deildar um þau tvö sæti sem
losna í 2. deild að ári. Efsta liðið
er með 26 stig en liðið í sjöunda
sæti hefur 17 stig og einn leik til
góða þannig að svo gæti farið að
aðeins muni 6 stigum á efsta og
sjöunda liði.
Leiftur hefur tapað síðustu þrem-
ur leikjum en eru enn í efsta sæti.
ísfirðingar, Dalvíkingar og Skall-
agrímur fylgja fast á eftir og síðan
koma ÍK og Þróttur.
ÍK vann 11:0 í gær og það er
ekki oft sem svoleiðis tölur sjást í
3. deild. Þróttarar voru aðeins með
fimm stig eftir fyrri umferðina en
eru nú með 20 þannig að þeir eru
á góðri siglingu. Eysteinn Kristins-
son, sem var aftastur hjá þeim er
nú kominn fremst og hefur skorað
12 mörk í þeim fimm leikjum sem
hann hefur leikið frammi.
Úrslit í gær urðu:
ÍK-Reynir 11:0
Hörður Magnússon 3, Ómar Jóhannsson
2, Reynir Bjömsson 2, Úlfar Óttarsson 2,
Leifur Garðarsson 1, Óli Már Sævarsson 1.
Þróttur - Dalvík 5:3
Eysteinn Kristinsson 4 (eilt úr vítaspymu),
Ólafur Viggósson 1 - Örvar Eiríksson 2,
Jónas Baldvinsson í.
BÍ - Leiftur 3:2
Stefán Tryggvason, Kristimann Krist-
mannsson, Elvar Viðarsson - Friðrik Einars-
son, Stefán Aðalsteinsson.
4. deild
Austri - KSH 0:2
- Jón Ingi Hilmarsson og Vilberg Jónasson.
Staðan
Fj. leikja U J T Mörk Stig
LEIFTUR 14 8 2 4 33: 16 26
Bí 14 7 3 4 23: 15 24
DALVÍK 14 7 3 4 30: 24 24
SKALLAGR. 13 6 4 3 32: 30 22
ÍK 14 5 5 4 33: 23 20
ÞRÓTTURN. 14 5 5 4 32: 25 20
VÖLSUNGUR 13 4 5 4 13: 19 17
REYNIRÁ. 14 3 3 8 18: 45 12
MAGNI 13 3 2 8 30: 41 11
KS 13 2 4 7 12: 18 10
Einn þjálfari í bann
Aganefnd úrskurðaði fjóra leik-
menn úr 1. deild í leikbann í
gær og þijá úr 2. deild auk eins
þjálfara og einnig fara nokkrir úr
nerðri deildum í bann. Izudin Dervic
úr FH og Pavel Vandas úr KA fara
í bann vegna fjögurra gulra spjalda
og síðan voru þeir Björn Vilhelms-
son og Sigurður Magnússon úr Víði
dæmdir í eins leiks bann begna
brottrekstrar, en þeir hafa þegar
tekið út refsingu sína.
Dragan Manojlovic úr Þrótti fékk
einn leik í bann vegna sex gulra
spjalda og Einar Daníelsson ú*-
Grindavík, Hlynur Birgisson og
Lárus Orri Sigurðsson úr Þór fengu
einn leik í bann vegna fjögurra
gulra spjalda og Kjartan Másson,
þjálfari IBK fékk einn leik í bann
vegna brottvísunar.
Bjargar Hafþór OB?
Hafjiór Sveinjónsson, fyrrum
leikmaður Fram, mun leika
sinn fyrsta leik með dönsku bikar-
meisturunum OB frá Óðinsvé um
næstu helgi, en hann hefur gengið
til liðs við félagið eftir að hafa ver-
ið hjá því til reynslu í viku. Blöð í
Danmörku hafa sagt frá þessu og
eitt undir fyrirsögninni; „Bjargar
Hafþór OB?“
Bikarmeistararnir hafa gengið
illa að undanförnu og var útlitið
ekki bjart þegar bestu maður þeirra,
hinn 25 ára sóknarleikmaður Jo-
hnny Hansen var seldur til Ajax.
OB hefur fengið Per Steffensen frá
Twente i Hollandi og íslenska
landsliðsmanninn Sveinjónsson
(1.90 m varnarmann), eins og Poli-
tiken orðaði það. Hafþór á að
styrkja vörn OB, sem hefur verið
götótt.
Blöð í Danmörku segja að Haf-
þór hafi leikið átt landsleiki fyrir
Island, en hið rétta er að hann hef-
ur leikið þijá leiki gegn Færeying-
um 1982.
Hafþór hefur undanfarin ár verið
í Svíþjóð og var það síðast í herbúð-
um Kalmar FF.
Hafþór Sveinjónsson
GOLF / EM OLDUNGA