Morgunblaðið - 18.09.1991, Side 1

Morgunblaðið - 18.09.1991, Side 1
56 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 211. tbl. 79. árg. MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Israelskir njósnarar yfirheyrðu fyrrum PLO-menn í Noregi Ósló. Frá Jaii Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaösins. Reuter. NORÐMENN hafa leyft útsendurum ísraelsku leyniþjónustunnar Mossad að yfirheyra Palestínumenn sem sótt hafa um pólitískt hæli í Noregi, að sögn norska blaðsins Aftenposten í gær. Málið hefur vakið mikla athygli í Noregi og telja sérfræðingar í mannréttindamál- um að yfirheyrslurnar séu brot gegn þeim alþjóðasáttmálum sem Norðmenn eiga aðild að. Króatískir þjóðvarðliðar fara yfir brú sem hefur verið eyðilögð í þorpinu Petrinja. IJmmæli forseta Króatíu og Serbíu eftir að samið var um vopnahlé: Síðasta tækifærið til að binda enda á blóðbaðið Harðir bardagar í Zagreb í gærkvöld Igalo, Zagreb. Reuter. FORSETAR Serbíu og Króatíu og varnarmálaráðherra Júgó- slavíu undirrituðu í gær samning um að reyna á ný að binda enda á bardaga, sem hafa geisað í Króatíu í tæpa þijá mánuði. Sam- komulagið náðist fyrir milli- göng^u Carringtons lávarðar, fyrrverandi utanríkisráðherra Bretlands, og var að mörgu leyti svipað fyrri vopnahléssamning- um, sem gerðir hafa verið í Júgó- slavíu á undanförnum vikum og hafa ekki nægt til að stöðva blóðs- úthellingarnar. Forsetarnir sögðu þó að með samningnum gæfist siðasta tækifærið til að koma á friði i Júgóslavíu. Miklir skotbardagar voru í Zagreb, höf- uðborg Króatíu, í gærkvöld, sprengingar kváðu við og loft- varnaflautur vældu. Virtust átök- in einkum bundin við herstöðvar sambandshersins í úthverfum borgarinnar. Franjo Tudjman, forseti Króatíu, Slobodan Milosevic, forseti Serbíu, og Veljko Kadijevic, varnarmálaráð- herra Júgóslavíu, undirrituðu samn- inginn eftir fjögurra stunda viðræð- ur við Carrington lávarð í hafnar- bænum Igalo í Svartfjallalandi. Að sögn ónafngreinds heimildarmanns Reuters-fréttastofunnar stóð Carr- ington í þeirri trú að vopnahléið ætti að taka strax gildi en forsetarn- ir hittust á sérfundi síðar og sömdu um að það yrði ekki fyrr en kl. 10.00 í dag. Carrington lávarður stjórnar ráð- stefnu um frið í Júgóslavíu, sem fer frafn á vegum Evrópubandalagsins Allsherjar- þing SÞ sett FERTUGASTA og sjötta allsherj- arþing Sameinuðu þjóðanna (SÞ) var sett í gær. Þar gerðust sjö ný ríki fullgildir aðilar að SÞ, þ. á m. Eystrasaltsríkin þrjú, og eru aðildarríki SÞ nú 166. Þetta allsheijarþing verður að öll- um líkindum sögulegt, ekki síst vegna þess að þar mun eftirmaður Perezar de Cuellars, framkvæmda- stjóra samtakanna, verða valinn. Þingið hófst á því að Samir Shihabi frá Saudi-Arabíu var kosinn forseti þess. Sjá „Sjö ríki...“ á bls. 20. Blaðið segir að Palestínumennirn- ir hafi ekki vitað að þegar norska lögreglan yfirheyrði þá hafi ísra- elskir njósnarar einnig lagt fram spurningar. Lögregluyfirvöld vildu ekki tjá sig um fregnina en sögðu eðlilegt að hafa samvinnu við ísra- elsku leyniþjónustuna á vissum svið- um. Um 130 Palestínumenn komu í Haag. Bandalagið hefur áður haft milligöngu um svipaða friðarsamn- inga og svo virtist í gær sem þau vandamál, sem urðu til þess að þeir voru brotnir, hefðu ekki verið leyst í Igalo. Allir aðilarnir hétu því enn að flytja ailar sveitir sínar taf- arlaust frá átakasvæðunum, auk þess sem Króatar og Serbar lofuðu að leysa upp allar varaliðs- og skæruliðasveitir sínar. Ekki var þó minnst á króatíska þjóðvarðliða og vopnaða lögreglumenn, sem hafa neitað að fara af átakasvæðunum og eru sagðir hafa þannig torveldað brottflutning júgóslavneskra her- manna þaðan. Imra Agotic, talsmaður króatíska varnarmálaráðuneytisins, sagði í gær að sex júgóslavneskar herþotur hefðu gert árásir á eitt af úthverfum Zagreb og sjónvarpsturn í grennd- inni eftir að samningurinn var undir- ritaður. Einnig hefði verið skotið af skriðdrekum frá herbúðum í Zagreb á hús í nágrenninu. til Noregs til að sækja þar um pólit- ískt hæli frá nóvember í fyrra til febrúar í ár. Þ. á m. voru um tíu sem að eigin sögn höfðu snúið baki við Frelsissamtökum Palestínumanna (PLO). Svo virðist sem Mossad hafi einkum haft áhuga á þeim hópi. Norska blaðið nefndi ekki heim- ildarmenn sína, en sagði að Palestín- umönnunum hefði verið talin trú um að Mossad-mennirnir væru norskir lögregiumenn sem yfirheyrðu þá á arabísku. „Að öðrum kosti hefðu þeir ekki sagt aukatekið orð,“ hafði blaðið eftir einum heimildarmanni. Norska leynilögreglan hefur reglulega sent Mossad nafnalista með nöfnum þeirra Palestínumanna og annarra araba sem sótt hafa um hæli í Noregi. Málið þykir afar neyðarlegt fyrir norsku leyniþjónustuna, sérstaklega ef haft er í huga að Mossad stóð að baki eina pólitíska morðinu sem vitað er til að framið hafi verið í Noregi. Það var í Lillehammer árið 1973, þegar Marokkómaður var skotinn til bana á miðri götu í mis- gripum fyrir palestínskan skæruliða sem bar sama nafn. Solzhenítsyn: Vill snúa aftur heim New York. Reuter. SOVÉSKI rithöfundurinn Alexander Solzhenítsyn, sem verið hefur í útlegð frá heimalandi sínu frá árinu 1974, kvaðst í gær reiðubúinn að snúa aftur til Sovétríkj- anna. Saksóknari sovéska ríkisins, Nikolaj Trúbín, sagði í gær að engar sannanir styddu þær sak- ir sem á Solzhenítsyn voru born- ar, að sögn TASS-fréttastof- unnar. „Málið hefur því verið látið niður falla,“ sagði Trúbín. Georgía: Stj órnarandstöðu- leiðtogar handteknir Tbilisi. Reuter. FORYSTUMENN ýmissa stjórnarandstöðuflokka í Georgíu hvöttu í gær almenning til að efna til útifunda gegn Zviad Gamsakhurdia forseta sem aðfaranótt þriðjudags lét handtaka þrjá andstöðuleiðtoga. Margt benti til þess að einn hina hand- teknu yrði ákærður fyrir meint samsærisáform. Flugvél, sem mennirnir þrír verkamaður Gamsakhurdia for- voru farþegar í og var á leið frá höfuðborginni Tbilisi til Moskvu, var stöðvuð og henni skipað að lenda aftur í borginni. Georgy Chanturia, leiðtogi Þjóðlega lýð- ræðisflokksins, og eiginkona hans eru enn í haldi en einum mann- anna var sleppt. Háttsettur emb- ættismaður sagði að Chanturia hefði gert áætlun um valdarán í samvinnu við Edúard Shev- ardnadze, fyrrverandi utanríkis- ráðherra Sovétríkjanna, sem er Georgíumaður, og leiðtoga kommúnista í lýðveldinu en flokk- ur þeirra hefur verið bannaður. Chanturia var áður náinn sam- seta. Georgíska sjónvarpið rauf út- sendingu sína í gær og birti ásamt nokkrum útvarpsstöðvum í stað- inn yfirlýsingar andstöðuleiðtoga sem saka Gamsakhurdia um ein- ræðishneigð og lögleysur auk þess sem óbilgirni hans í garð þjóða- brota Osseta og Abkhaza er gagn- rýnd. Hörð átök urðu í Kákasus milli Azera og Armena í grennd við héraðið umdeilda, Nagorno-Kara- bak, um síðustu helgi að sögn óháðu fréttastofunnar Interfax. 16 féllu og 30 særðust. Reuter Fulltrúai' á allsherjarþinginu standa upp nieðan á stuttri bæna- og hugleiðslustund stóð við upphaf þingsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.