Morgunblaðið - 18.09.1991, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1991
17
eftir Ragnar
Halldórsson
„Vei þeim dómara, er veit og
sér, víst hvað um málið réttast er.
Vinnur það þó fyrir vinskap manns,
að víkja af götu sannleikans." Svo
mælti Hallgrímur Pétursson.
Tilvitnun þessi kom mér í hug,
er ég hafði lesið grein eftir Brynleif
H. Steingrímsson lækni á Selfossi
þann 4. september. Ein kaflafyrir-
sögnin hljóðar svo: „Hver hefur sagt
að þér eigi að líða vel?“ Læknirinn
tekur undir orð heilbrigðisráðherra,
sem ráðherrann mælti svo snotur-
lega í áheyrn alþjóðar. Og læknirinn
bætir við: „Þessi orð eru höfð eftir
Sighvati Bjöt'gvinssyni ráðherra.
Ekki heyrði ég hann mæla svo en
hafi hann gert það, vil ég taka und-
ir með honum. Þessi orð bera vitni
um heimspekilegt innsæi." Heim-
spekilega séð á mönnum alls ekki
að líða vel!
Danir segja: Læge er velvære. Á
sú skoðun ekki hljómgrunn á Sel-
fossi? Grein læknisins er í algerri
andstöðu við reynslu mína af ís-
lenskum læknum, er ég hef leitað
til á lífsleiðinni, sem nú eru að verða
áttatíu ár. Þessi undantekning hlýt-
ur að heyra undir lögmál erfðafræð-
innar. Einstaklingur fæðist með al-
gerlega ólíka eiginleika, sem annars
ættu að vera í stofninum, ef allt
væri eðlilegt. í erfðafræðum er þetta
kallað á fagmáli — mutation — á
íslensku stökkbreyting. í náttúrunni
er þetta afar sjaldgæft, svo að sam-
kvæmt höfðatölu ættu varla að
finnast meir en eitt til tvö tilfelli
hér á landi. Auðvitað getur ekki
öllum alltaf liðið vel, en að hafa það
fyrir lífsmottó bendir til þess að
maðurinn hefði fremur átt að nema
heimspeki en læknisfræði.
Við hjónin, mjög á gamals aldri
„I5 ar hef eg vaknað
hress og glaður til nýs
dags. Engar aukaverk-
anir. Ein tafla að kveldi
allt og sumt.“
og sem betur fer ekki þurft að
íþyngja heilbrigðiskerfínu um
ævina. Svo bar við fyrir 15 árum
að kona mín fór að þjást af svefn-
leysi. Bæði vorum við íhaldssöm og
fordómafull gagnvart svefnlyfjum,
því tröllasögur gengu að slík lyf
væru stórhættuleg. Því frestaðist
of lengi að bregðast við þar til ekki
varð undan vikist lengur.
Einhver göfugsti maður sem ég
hef kynnst var Bjarni Snæbjömsson
læknir í Hafnarfírði. Honum brá
þegar hann sá hve illa svefnleysið
hafði leikið konuna, sem að öðru
leyti væri full hraust. Hún fékk
svefnlyf. Kraftaverk gjörðist. Sætur
svefn í hæfílegan tíma, 6-7 klst.
Ekki minnstu aukaverkanir í 15 ár.
Síðar kom að mér þegar ég var
74 ára, fyrir 5 árum. Ég fékk svefn-
töflur, því svefnleysi þjáði mig mjög.
Engar utanaðkomandi ástæður ollu
mér neinskonar truflunum. Svefn-
inn vildi ekki koma, hvorki að nóttu
né degi. Svefntöflur og aftur gerðist
kraftaverk. í 5 ár hef ég vaknað
hress og glaður til nýs dags. Engar
aukaverkanir. Ein tafla að kveldi
allt og sumt.
Var það heimspekin eða læknis-
dómurinn sem var að verki?
1930 dvaldi ég í framhaldsskóla
norðanlands. Gáfaður og hraustur
nemandi missti svefn. Ekki er mér
kunnugt að neitt hafi verið gert
enda ekki liklegt að þá hafí verið
til svefnlyf. Hann sofnaði ekki í 3
vikur. Missti þá vitið og dó innan 5
vikna.
Læknirinn á Selfossi segir: „En
vellíðan veður aldrei með lyfjum
veitt til lengri tíma.“ Reynið að
hugleiða hvort það er heimspeking-
ur eða læknir sem hér talar.
Fyrir nokkru var fjallað um svefn-
lyf í útvarpinu. Læknir taldi að þau
væru náðargjöf fyrir þá sem nauð-
synlega þyrftu á þeim að halda og
að ótímabærir fordómar réðu of
miklu. Við sama tækifæri sagði
landlæknir orðrétt, ef ég man rétt:
„Ef gamalt fólk getur ekki sofíð,
fer því að leiðast og líða illa.“ Mig
minnir að hann teldi að gamla fólk-
ið ætti að fá svefnmeðal í nauðsyn.
Mér er sagt að hann hafí talað
máli ellilífeyrisþega varðandi þessi
mál. Líklega hafa þessir læknar
ekki numið heimspeki. Er það bætt-
ur skaði.
Ekki skrifa ég þessar línur vegna
persónulegra aðstæðna heldur sök-
um þess að ég veiet að þúsundir
aldraðra líða vegna svefntruflana
og svefnleysis. Ekki mun ég fara
fram á undanþágu fyrir mig. Heil-
brigðisráðherra Alþýðuflokksins
mun vafalaust halda sig við heim-
spekina.
Þetta er ekki skattur, sei sei nei.
Þetta er ekki nema tvö hundruð og
fímmtíu kall. Hvað er fólkið að röfla?
Viðfangsefnið má nálgast frá
öðru sjónarhorni. Ekki skattur, þá
það. Hvað varðar gömul hjón (þau
eru mörg) sem þurfa svefnlyf. Þá
nemur hækkun Sighvats rúmum 12
þúsund kr. á ári. Getum við þá ekki
sæst á að láta vera að kalla þetta
skatt, í staðinn nemur þetta rýrnum
á ellilífeyri sem þessu nemur, aðeins
fyrir svefnlyfín. Hvað getur rýrnun-
in orðið ef fleira kemur til?
Listamaðurinn Sigmund teiknaði
úr heilbrigðisráðuneyti ágæta mynd
sem fræg hefur orðið um land allt.
Myndina ætti að innramma og festa
á vegg á hveiju heimili líkt og drott-
inn blessi heimilið. Ráðherra segir,
engin hægðalyf, bara súrmjólk.
Sjúklingar á Selfossi þurfa ekki
að kvíða hægðatregðu. Þar er nóg
af súrmjólkinni.
Höfuildur er ellilífeyrisþegi,
fyrrum opinber starfsmaður.
Svefnlyf
ZUMCH HÁBORQM
á hreint frábæru verði, 23.900,- krónur*
FERÐAMIÐS TÖÐIN VERÖLD
býður nú þriggja daga ferð til
þessarar heillandi borgar í Sviss
27.- 29. september nk. Dvalið
verður á hinu stórgóða hóteli
Senator í miðborginni, skammt
frá hinu fræga verslunarhverfi
við Bahnhofstrasse.
Zurich-borg er af mörgum talin ein fallegasta borg heims svo það er vel þess virði
að hoppa með fyrir þær sakir einar.
Njótið ferðar með okkur undir íslenskri fararstjórn, þar sem boðið verður upp á
fjölmargt skemmtilegt. Nægir þar að nefna siglingu um hið ægifagra Zurich-vatn, þar
sem hópurinn getur notið svissneskrar matargerðalystar í ferðinni. Þá verður
kvöldverður með hátíðarmat. Boðið verður upp á skoðunarferð um ægifögur
fjallahéruð mið-Sviss, auk margs annars.
Zurich er mjög lifandi og skemmtileg borg fyrir sælkera, auk þess sem margar af
frægustu verslunum heimsins er þar að finna.
Láttu dekra við þig í þessari háborg
Mið-Evrópu. Það verður enginn
svikinn af því að skella sér með í
þessa frábæru ferð með okkur og á
þessu nánasta hlægilega verði.
"Innifaliö í verði er flug til og frá Zurich, flutningur til og
frá flugvelli ytra, gisting á Senatorhótelinu og íslensk
fararstjórn.
FEflflAMIflSTDDIN
nm>
AUSTURSTRÆTI17, SIMi 62 22 00
V* *UVÖMSV<>V\
SKOLA
OSTUR
ÍKÍLÓPAKKNINGUM
MEÐ15% AFSLÆTTI
0(3 FU SPARAR
VAR: 7Ö7.- KR./KG
VERÐUR: 667.- KR./KG
'arui'