Morgunblaðið - 18.09.1991, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 18.09.1991, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1991 , J .. . r,v«íi<<. Vifwvfiíto Plni.o ,":?‘OÍÍ Reuter Betrumbættur bryndreki Myndin sýnir sovéskan bryndreka sem breytt hefur verið þannig að hann er nýtilegur til annarra hluta en hernaðar. Þetta faratæki var til sýnis á sýningunni „Conversia ’91“, sem stendur nú yfir í Bologna á Italíu. Þar gefur að líta sovésk tæki sem upphaflega voru smíðuð til hernaðamota en hefur verið breytt þannig að þau nýtist á öðrum sviðum. Finnland: Áform stj ór narinnar um ferðaskatt valda deilum Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins. FÉLAGAR í stéttarfélagi finnskra flugstarfsmanna efndu til mótmæla- verkfalls sem stóð í átta klukkustundir í gær. Ástæðan fyrir mótmæl- unum eru áform finnsku ríkisstjórnarinnar um að leggja 200 marka (2.800 ísl. kr.) ferðaskatt á allt utanlandsflug. Telja starfsmenn finn- skra flugfélaga að skattur þessi geti orðið til þess að 600 til 1.000 manns missi vinnuna. Þar að auki komi svo samdráttur hjá ferðaskrif- stofum og öðrum aðilum. Verkfallið varð til þess að milli- landaflug með finnskum flugvélum stöðvaðist frá klukkan 6 að morgni til 2 eftir hádegi. Sum erlend flugfé- lög reyndu að halda uppi ferðum en nokkur félög tilkynntu þegar á mánudag að flug þeirra myndi stöðvast þangað til að verkfallinu lyki. Þegar verkfallið hófst var ekki vitað hvenær því myndi ljúka. Þann- ig kom það mörgum á óvart að starfsmannafélagið skyldi boða til blaðamannafundar strax eftir há- degi og skýra frá því að aftur yrði flogið upp úr klukkan tvö. Skýring starfsmannafélagsins var sú að það vildi ekki tefja fyrir ferðum manna og lengi því velgengni flugfélag- anna væri hagur starfsmanna, enda hefði þessu verkfalli ekki verið beint gegn vinnuveitendum. I fjárlagafrumvarpi fínnsku ríkis- stjórnarinnar er búist við að ferða- skatturinn skili 800 milljónum finnskra marka (rúmlega 11 millj- arða ísl. króna) í ríkissjóð. Þetta eru að vísu smámunir miðað við að fjárlagahallinn verður milli 43 og 53 milljarðar marka eftir því hvort ríkisstjórninni tekst að knýja 40 mismunandi lagafrumvörp um sparnað í lögbundnum útgjöldum í gegnum þingið. Ferðaskatturinn hefur hins vegar orðið mikið hita- mál þar sem fyrirtækjum og starfs- mönnum í flug- og skipaútgerð hefur hitnað mjög í hamsi þegar þessi áform ríkisstjórnarinnar voru gerð opinber. -♦ ♦ ♦ Carl Bildt fær umboð til stjórnarmyndunar: Þingmenn úr Þjóðarflokknum vilja að flokkurinn fari í stjórn Stokkhólmi. Frá Erik Lidén, fréttaritara Morgunblaðsins. CARL Bildt, formanni Hægri- flokksins, var veitt umboð til myndunar borgaralegrar ríkis- sljórnar sem hefur breiðan stuðning í sænska þinginu á fundi sem hann átti með Thage G. Peterson þingforseta í liádeginu í gær. Bildt sagði að loknum fundinum að honum hefði ekki verið falið að mynda minnihlutastjórn Hægri- flokksins eins heldur tveggja, þriggja eða fjögurra flokka stjórn undir hans forystu. Hann vildi ekki tjá sig um líkurnar á því að Bengt Westerberg, formaður Þjóðar- flokksins, myndi samþykkja að eiga aðild að ríkisstjórn en Westerberg hefur margsinnis lýst því yfir að hann hafi ekki hug á að sitja í stjórn sem sé háð stuðningi flokksins Nýs lýðræðis. Óánægjuflokkurinn Nýtt lýðræði hlaut 400 þúsund atkvæði í kosningunum og 25 þingsæti. Margir þingmanna Þjóðarflokks- ins hafa hins vegar sagt að þeir hyggist freista þess að fá Wester- berg til að skipta um skoðun. Þann- ig sagði þingmaðurinn Daniel Bengt Westerberg Tarchy, sem einnig er prófessor í austurevrópskri sögu, að ekki mætti klúðra stærsta sigri borgaralegra afla í sögu Svíþjóðar. Nú yrðu „all- ir góðir menn“ að taka höndum saman um myndun öflugrar ríkis- stjórnar. Síðdegis í gær átti Bildt fund með Westerberg auk þeirra Olofs Johanssons, formanns Miðflokks- ins, og Alfs Svenssons, formanns Kristilega demókrataflokksins. Ekki er vitað með vissu hvort hann hafi einnig verið í sambandi við Ian Wachtmeister frá Nýju Iýðræði. Talið er að Bildt muni reyna að fá Wachtmeister til að samþykkja að Nýtt lýðræði sitji hjá þegar kemur að því að þingið samþykki hann sem forsætisráðherra. Ef Nýtt lýðræði fellst á slíka skipun mála muni borgaralegu flokkarnir fjórir hafa hreinan meirihluta í þinginu, 170 atkvæði á móti 154 atkvæðum jafn- aðarmanna og kommúnista. Talið er að ný ríkisstjórn líti dagsins í ljós í fyrsta lagi 4. októ- ber. Það gæti þó dregist allt til 11. október. Ef stjórnarmyndunin dregst gæti það orðið til þess að þriðja einkarekna sjónvarpsstöðin í Svíþjóð sem byggir á auglýsinga- tekjum, M3, getur ekki hafið út- sendingar fyrir 1. desember, sem er forsenda þess að ná jólaauglýs- ingaflóðinu. Nýi menntamálaráð- herrann verður að hafa samráð við útvarpsréttarnefnd en einnig á eftir að skipta um formann í þeirri nefnd. Núverandi formaður nefndarinnar er Sverker Gustafsson, sem situr á þingi fyrir Jafnaðarmannaflokkinn. ■ SYDNEY - Ástralskir vísind- amenn sögðu í gær að brýnt væri að Bandaríkjamenn eyðilegðu efnavopn sín á Kyrrahafseyjunni Johnston sem fyrst, annars væri hætta á mengun af völdum leka. Bandaríkjamenn hafa reist ofn á eyjunni til að brenna vopnin en íbú- ar Kyrrahafseyja hafa óttast að það kunni að valda mengun. Vísinda- mennirnir sögðu hins vegar að sá ótti væri ástæðulaus. ■ BARCELONA - Starfsmenn pósthúss í einu af úthverfum Barc- elona, höfuðborgar Katalóníu, fóru í verkfall í gær vegna þess að þeir hafa ekki fengið flóafrið fyrir flóm í nokkra daga. Talsmenn þeirra sögðu að einn þeirra hefði orðið fyrir svo alvarlegu biti að hann hefði þurft að leita til læknis. Eystrasaltsríkin: Aðild að Evrópuráðinu háð rétti þjóðarbrota Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. CATHERINE Lalumiére, framkvæmdastjóri Evrópuráðsins, segir að svo fremi sem Eystrasaltsríkin tryggi rétt minnihlutahópa innan landamæra sinna fái þau fulla aðild að ráðinu fyrir lok þessa árs. Hún sagðist jafnframt telja að ekki væri tímabært að ræða fulla aðild Rússlands og sovésku lýðveld- anna, en hins vegar væri nauðsyn- legt að styrkja tengslin við þau þannig að ekkert þeirra einangrað- ist. Lalumiére gaf þessar yfirlýsingar þegar hún sneri til baka frá setn- ingu mannréttindafundar aðild- arríkja Ráðstefnunnar um öryggi og samvinnu í Evrópu (RÖSE) sem haldin er í Moskvu. Reiknað er með því að þingmannafundur Evrópu- ráðsins bjóði fulltrúum Eystrasalts- ríkjanna í dag að sitja samkomuna sem sérstakir gestir, en þingmanna- fundurinn stendur yfir í Srassbourg þessa viku. ■■»■■♦■♦ Sjö ríki bætast við í Sameinuðu þjóðirnar SJÖ ríki gengu í Sameinuðu þjóðirnar á fundi allsherjarþingsins í gær og eru aðildarríkin þá orðin 166. .V ð VsN ' « C v“ /•* Eistland • $ v ^y/Lettland ^ Litháen > An*>rra--W | / San Marínó—' Vatíkanið—* \ N — yS ***** ' N-Kórea / ji ' i /S v ; S-Kórea / Marshall-eyjar / V. ;; £ ^ y V Sambandsrfki CSþ. ikrónesfu^' 'J^/iribati o Tonga-eyjar v y 7 nýir meðlimir Sameinuðu þjóðanna Smáríki (m. færri en 250 þús. íbúar) sem ekki eiga aðild að Sameinuðu þjóðunum Innganga fimm af þessum sjö ríkjum endurspeglar breyting- arnar sem hafa orðið í Sovétríkj- unum að undanförnu og breytt samskipti ríkja heims. A meðal þeirra eru Eystrasaltslöndin - Eistland, Lettland og Litháen — sem voru innlimuð í Sovétríkin 1940 en fá nú sjálfstæði sitt stað- fest með formlegum hætti. For- setar þeirra voru á fundi allsheij- arþingsins er innganga þeirra var samþykkt í gær. Suður-Kórea fékk einnig aðild að samtökunum en Sovétmenn höfðu áður beitt neitunarvaldi til að koma í veg fyrir inngöngu þeirra. Fimmta landið er komm- únistaríkið Norður-Kórea, sem hafði lengi hafnað því að Kóreu- ríkin fengju bæði aðild. Hin löndin tvö eru eyríki á Kyrrahafi, Sambandsríki Míkró- nesíu og Marshalleyjar. Þau voru áður verndarsvæði Sameinuðu þjóðanna og lutu stjórn Banda- ríkjanna. Marshalleyjar eru í norðausturhluta Míkrónesíu, íbú- ar þeirra eru um 35.000 og þau hlutu sjálfstæði 1982. Ríkjasam- band Míkrónesíu var myndað úr austanverðum Karólínueyjum árið 1979 og fékk takmarkaða sjálfstjórn 1986 en lýtur enn Bandaríkjunum í öryggis- og varnarmálum. íbúar eru um 156.000. Af 166 aðildarríkjum Samein- uðu þjóðanna eru sautján með færri íbúa- en ísland. Þau eru, auk Ríkjasambands Míkrónesíu og Marshalleyja: Antigua og Barbuda, Bahamaeyjar, Belize, Brunei, Dominica, Grenada, Liechtenstein, Maldíveyjar, Saint Kitts og Nevis, Saint Lucia, Saint Vincent, Sao Tomé og Principe, Seychelleyjar, Samóaeyjar og Vanuatu. Fimm sjálfstæð ríki með færri en 250.000 íbúa eru ekki enn aðilar að Sameinuðu þjóðunum; Andorra, Kiribati, San Marínó, Tongaeyjar og Vatikanið. Auk þess hafa nokkrar smáþjóðir fengið heimastjórn; Bermúda, Bresku jómfrúreyjarnar, Færeyj- ar, Grænland, Hollensku Antilla- eyjar og Mön (sem hefur eigið þing). Bresku jómfrúareyjarnar eru fámennasta landið (fyrir utan Vatikanið) sem hlotið hefur sjálf- stjóm en íbúar þeirra eru um 12.000. Landsberg- is gagnrýn- ir Walesa Varsjá. Reuter. VYTAUTAS Landsbergis, forseti Litháens, gagnrýndi Lech Wa- lesa Póllandsforseta í gær fyrir ummæli hans um réttindi pólska minnihlutans í Litháen. I bréfí sem Walesa sendi Lands- bergis síðastliðinn sunnudag lýstj hann því yfir að honum væri um- hugað um réttindi þeirra Pólveija sem byggju í Litháen og sagði hann að tryggja ætti þau í samræmi við reglur þjóðaréttar. Fyrir hálfum mánuði lögðu yfir- völd í Litháen tvær sveitarstjórnir niður þar sem Pólveijar voru í meiri- hluta. Yfirvöld sögðu þær hafa stutt valdaránstilraun sovéskra harðlínu- manna í ágústmánuði og ákvörðun- in væri eingöngu tekin þess vegna. Þessi ákvörðun stjórnvalda hefur valdið uppþotum á litháíska þinginu meðal pólskumælandi þingmanna. Þeir og pólsk yfirvöld vilja að efnt verði til kosninga í umræddum hér- uðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.