Morgunblaðið - 18.09.1991, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1991
29
ARNAÐ HEILLA
Ljósm. Sigr. Bachmann.
HJÓNABAND. 24. ágúst sl. voru gefin
saman.í hjónaband í Lágafellskirkju, af
séra Birgi Ágústssyni, Guðrún Grímsdótt-
ir og Gunnar Jónasson. Heimili þeirra er
á Valhúsabraut 37, Seltjarnamesi.
Ljósm. Sigr. Bachmann.
HJÓNABAND. 24. ágúst sl. voru gefin
saman í hjónaband í Háteigskirkju, af
séra Amgrími Jónssyni, Heiðveig Péturs-
dóttir og Þorleifur Eiríksson. Heimili
þeirra er í Brussel.
saman í hjónaband í Háteigskirkju, af
séra Vigfúsi Þór Árnasyni, Þorbjörg
Bjarnadóttir og Óskar Páll Sveinsson.
Heimili þeirra er í Garðabæ.
Ljósm. Sigr. Bachmann.
HJÓNABAND. 17. ágúst sl. voru gefin
saman í hjónaband í Fríkirkjunni, af séra
Úlfari Guðmundssyni, Gréta Svanlaug
Svavarsdóttir og Guðmundur Gunnlaugs-
son. Heimili þeirra er í írabakka 30,
Reykjavík.
ÚR DAGBÓK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVIK:
helgina 13.-15. september
Að venju safnaðist nokkur fjöldi
fólks í miðborginni. Fyrri hluta
föstudagskvölds giskuðu lögreglu-
menn á, að 2.500 til 3.000 manns
væm þar og flest unglingar. Lög-
reglumenn gengu ötullega fram í
því að taka áfengi af unglingunum
og hella því niður. Ekki er vafi á
að þetta og vitneskjan um að áfengi
verði hellt niður, sjáist til ungling-
anna með það, hefur haft þau áhrif
að ölvun var mun minni. í raun
má segja að fyrst fór að bera á
ölvun að ráði, þegar eldra fólkið fór
að streyrna út af öldurhúsum borg-
arinnar. Upp úr kl. 03 var mann-
fjöldi í miðbænum orðinn um 6.000
manns, en vel gekk að nálgast
leigubifreiðar og um kl. 4.30 var
aðeins lítill hópur fólks eftir.
Sex ölvaðir unglingar voru færð-
ir í athvarfið, en þaðan var síðan
haft samband heim til viðkomandi
og þeir sóttir af aðstandendum.
Þetta kvöld var aðeins einu sinni
tilkynnt um skemmdarverk í mið-
borginni, en það var aðili sem
skemmdi bifreið og gisti hann
fangageymslur lögreglu. Eitt rúðu-
brot var vitað um í miðborginni, en
þrjár aðrar voru brotnar í næsta
nágrenni, við Vesturgötu og Lauga-
veg. Þrír voru fluttir á slysadeild
eftir pústra eða fall, en aðeins í
einu tilfelli þurfti að vista aðila í
fangageymslu til frekari yfirheyrslu
að morgni.
Laugardagsnóttin var rólegri og
fyrri hluta kvölds voru um 1.500
manns í miðbænum, mest ungling-
ar. Lögregla hellti sem fyrr niður
talsverðu af áfengi sem tekið var
af fólki, sem ekki hafði aldur til
að vera með það. Um kl. 3 fjölgaði
fólkinu í um 3.000, en upp úr kl. 5
var miðbærinn nánast tómur.
Aðeins var vitað um eitt rúðubrot
í miðborginni og var sá sem það
framkvæmdi handtekinn og vistað-
ur í fangageymslu. Tvö mál vegna
líkamsmeiðinga komu upp og átti
annað sér stað á bjórkrá en í hinu
tilfellinu leitaði maður á miðborgar-
stöð, eftir að hafa orðið fyrir höggi,
án þess að vita hver það gerði og
var hann fluttur á slysadeildina.
Engin tilkynning um skemmdar-
verk í miðborginni barst til lögreglu
þessa nótt.
Þessa daga gistu alls 72 fanga-
geymslur lögreglu, langflestir
vegna ölvunar.
Samtals voru 12 aðilar færðir
fyrir dómara þessa helgi, vegna
óspekta, óláta, neitunar að hlíða
fyrirmælum lögreglu og minnihátt-
ar skemmdarverka. Sektir voru allt
að 10.000 kr.
Á þessum tíma var tilkynnt um
14 innbrot, nokkur þeirra í öku-
tæki, þar sem skilin höfðu verið
eftir verðmæti. í einu tilfelli reynd-
ist um að ræða húsráðanda sjálfan,
sem hafði týnt lyklum og komst
ekki inn til sín á eðlilegan hátt.
Aldrei virðist vera nægilega endur-
tekin sú ábending til þeirra sem
fara með ökutæki að skilja aldrei
eftir verðmæti í þeim, en verulegum
verðmætum er allt of oft stolið úr
mannlausum bifreiðum.
Talsverður erill var hjá íögreglu
í umferðarmálum. Ellefu voru tekn-
ir vegna gruns um ölvun við akst-
ur, um 50 vegna of hraðs aksturs,
21 vegna brots á stöðvunarskyldu
og aksturs á móti rauðu ljósi, auk
talsverðs hóps vegna þess að þeir
notuðu ekki ökuljós eða bflbeltin.
Þá hefur lögregla talsvert fylgst
með gatnamótum, þar sem öku-
menn eiga það til að taka vinstri
beygju af hægri akrein, þegar um-
ferð er mikil, sérstaklega á mótum
Miklubrautar og Grensásvegar og
mótum Miklubrautar og Skeiðar-
vogs.
Vikuna frá 8. til 15. september
hefur verið talsvert um umferðar-
óhöpp, eða samtals 107. í þessum
slysum hefur einn lálist. Meðal
þessara óhappa hafa verið árekstrar
þar sem fleiri en tvö ökutæki hafa
lent saman og það eru um 125
ökutæki sem hafa skemmst mis-
munandi mikið, aðeins þessa einu
viku og má gera ráð fyrir að muna-
tjón sé verulegt, að ekki sé minnst
á þá sem slösuðust.
Þjóðverjar í París
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Glerhimininn („Der glaserne
himmel“). Sýnd í Regnboganum
á þýskri kvikmyndhátíð. Leik-
stjórn og handrit: Nina Grosse.
Aðalhlutverk: Helmut Berger,
Sylvie Orcier, Agnes Finck og
Tobias Engel. 87. mín. V-Þýska-
land. 1987.
Hin dularfulla ástarsaga Gler-
himininn eftir Nine Grosse er á
þýsku en gerist í París, sem ruglar
mann strax nokkuð í ríminu. Mynd-
in segir frá Júlíusi, ungum manni
sem haldinn er órum vegna erótísks
draums sem hann dreymir.
Morðingi gengur laus í París.
Hann kyrkir ungar stúlkur og Jú-
líus sér hann í draumi fremja einn
verknaðinn. Þegar hann er á leið í
vinnuna daginn eftir sér hann fórn-
arlambið, dökkklædda glæsilega
konu, og eltir hana. Hún hverfur
sjónum í heldur vafasömu hverfi
og Júlíus er þar með kominn í kynni
við mellur og undirmálsfólk París-
arborgar. Hann tekur að vera með
einni mellunni til að nálgast draum-
inn betur en það vill svo til að hún
er í slagtogi við kyrkjarann úr
draumnum.
Nafn myndarinnar er fengið af
Parísarstrætunum sem byggt hefur
verið yfír með hvolfþökum úr gleri
en undir þessum glerhimnum fer
mestur hluti myndarinnar fram.
Þetta er greinilega veröld lasta
og myrkraverka, en hvað allir Þjóð-
veijar eru að gera í París fær mað-
ur aldrei að vita og hinn einkar
dauflegi Júlíus, leiðinlega leikinn
af Helmut Berger, er sama ráðgát-
an í lokin og hann var í bytjun.
Einstaka aukapersónur lyfta manni
uppúr drunga sem hleðst upp u
spennulausri og lítt athyglisverðri
frásögninni.
28 beljur
Stuttmyndin Svart og marglitt
æfintýri var sýnd á undan Gler-
himninum og sessunautur minn
sagðist aldrei hafa vitað nokkra
mynd lofa eins góðu. Hann hafði
lesið í leikskrá að hún væri um 28
asnalegar kýr. Höfundur er Detlev
Buck, fyrrum bóndi sem stundaði
nám í Kvikmynda- og sjónvarpsskó-
lanum í Berlín, grínari af guðs náð.
Myndin hans er uppfull af skondn-
um sjónarhomum á beljur og þær
leika hlutverk sín með mestri prýði
enda sannar myndin fyrst og fremst
það sem allir ættu að vita að engar
skepnur jarðar eru meira friðel-
skandi eða fallegri en beljur. Leik-
aralistinn sem fylgdi var punktur-
inn yfir i-ið: Skjaída, Mjöll, Hyma...
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 8 = 1739188'A =
I.O.O.F. 9 = 173918872 =
I.O.O.F. 7=1 739187 = Bh. e.f.
REGLA MUSTERLSRIDDARA
KENNSLA
Vélritunarkennsla
Vélritunarskólinn, s. 28040.
Skyggnilýsingarfundur
með miðlinum Joan Lambert
verður haldinn á Sogavegi 69
nk. föstudag 20. sept. kl. 20.30.
Húsið opnað kl. 19.30.
FERÐAFELAG
ÍSIANDS
Miðillinn Joan Lambert
verður með einkatima næstu
viku.
Upplýsingar í síma 91-688704.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Vakningar- og
kristniboðssamkoma
í Kristniboössalnum Háaleitis-
braut 58 í kvöld kl. 20.30. Ræðu-
maöur: Helgi Hrjóbjartsson.
Þú ert velkominn.
Kristniboðssambandið, KFUM,
KFUK.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Biblíulestur í kvöld kl. 20.30.
Ræöumaður Hafliði Kristinsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
Seltjarnarneskirkja
Samkoma í kvöld
kl. 20.30
Sönghópurinn Án skilyröa sér
um tónlist undir stjórn Þorvaldar
Halldórssonar. Predikun og fyr-
irbænir.
Haustlita- og grillferð í
Bása
20.-22. september
Nú er komið að hinni vinsælu
haustlita- og grillferð Útivistar í
Bása, sem er árlegur viöburður
hjá félaginu. Boðið verður upp á
gönguferðir í öllum þyngdar-
gráðum, fjallgöngur svo og lág-
lendisgöngur fyrir þá sem vilja
taka það rólega. Sameiginleg
grillmáltíð á laugardagskvöld. Þá
verður kveiktur varðeldur og
slegið á létta strengi. Fararstjór-
ar: Hákon J. Hákonarson og Sig-
urður Einarsson. Pantanir ósk-
ast sóttar fyrir lokun skrifstofu
á miðvikudag 18. sept. Eftir
þann tíma verða þær seldar
öðrum.
Ath.: Skrifstofa Útivistar er flutt
í Iðnaðarmannahúsið við Hall-
veigarstíg 1. Óbreytt símanúm-
er: 14606 og 23732.
Sjáumst!
Útivist.
FERÐAFELAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU3S11798 1953?
Laugardagur 21. sept.
kl. 09
Gönguferð um gos-
beltið 12. ferð
Nú er komið að lokaáfanga rað-
göngunnar vinsælu um gosbelt-
ið Suðvestanlands frá Reykja-
nestá að Skjaldbreið. Þrír mögu-
leikar eru í boði á laugardaginn:
1. Víðiker - Skjaldbreiður. Þar
er nokkuð drjúg leið frá Víöi-
skeri upp á fjallið, en auðvelt
norður af niður á Línuveginn
(sbr. möguleika 2). Ganga fyrir
vant göngufólk.
2. Línuvegurinn - Skjaldbreið-
ur. Gengið að norðanverðu, þ.e.
frá Linuveginum, en þaðan er
styst á fjallið.
3. Línuvegurinn - Hlöðuvellir.
Ferð fyrir þá, sem vilja sleppa
gönguferðum en njóta tilkomu-
mikils fjallalandslags i rólegheit-
um.
I lokin verður ekið frá Skjald-
breið að skála Ferðafélagsins á
Hlöðuvöllum, þar sem lokaá-
fanga gosbeltisgöngunnar verð-
ur fagnað. Kaffiveitingar. Til að
auðvelda undirbúning er naiið-
synlegt að panta far á skrifstof-
unni, Öldugötu 3. Verð 1.800.-
kr. Brottför frá Umferðarmið-
stöðinni, austanmegin, kl. 09.
Spurning ferðagetraunar 12.
ferðar: Hvað er fjalliö Skjald-
breiður talið gamalt?
Dagur fjallsins er á sunnudaginn
22. sept. Kl. 09 Stóra-Björnsfell
og kl. 13 Esja að sunnan: Þver-
fellshorn.
Munið Landmannalaugar - Jök-
ulgil 27.-29. okt. og haustlitaferð
og uppskeruhátíð í Þórsmörk
4. -6. okt. Veriö með.
Ferðafélag Islands,
ferðir fyrir alla.
ÖCOUGÖTU3 S11798 19537
Helgarferðir F.í.
21.-22. sept.:
1) Þórsmörk - haustlita-
ferð (2 dagar)
Margir vilja ekki missa af haust-
litaferðum til Þórsmerkur. Nú er
tækifærið um helgina að vera
með í 2ja daga ferð F.í. til Þórs-
merkur. Gist í Skagfjörðs-
skála/Langadal. Gönguferðir um
Mörkina. Njótið haustsins í
Þórsmörk með Ferðafélagi (s-
lands.
2) Hlöðuvellir - Hlöðufell
(gosbeltið 12. ferð)
Ekið að Hlöðuvöllum (Línuveg-
inn) og gist þar. Gengið á Hlöðu- <« k
fell. Takmarkaður fjöldi - tryggið
ykkur far.
Brottför f ferðirnar er kl. 08.00
laugardag.
Á laugardag lýkur 12. göngu-
ferðinni um gosbeltið að Skjald-
breið og kemur sá hópur einnig
til Hlöðuvalla.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu Ferðafélagsins. Ferð-
ist með Ferðafélaginu - hringið
til okkar og leitið upplýsinga.
Ferðafélag islands.
Qútivist
GHÓFIHUII • UYKJAVÍK • SÍMIAUtSVUI 14M6