Morgunblaðið - 18.09.1991, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1991
31
Úlfur hét maður
eftirHarald
Jóhannsson
„Egill var mikilleitur, ennibreiður,
brúnamikill, nefið ekki langt, en
ákaflega digurt, granstæðið vítt og
langt, hakan breið furðulega og svo
allt um kjálkana, hálsdigur og herði-
mikill... úlfgrátt hárið og þykkt og
varð snemma sköllóttur ...“
Egils saga, 55. kap.
„Það sé ég á skalla þeim hinum
mikla, að hann er fullur upp úlfúð-
ar...“
Egils saga, 25. kap.
Frásögn af Agli í sögu hans hefst
svo: „Enn áttu þau Skalla-Grímur
son ... og kallaður Egill... En þá
er hann var þrévetur, þá var hann
mikill og sterkur, svo sem þeir svein-
ar aðrir, er voru sex vetra eða sjö ...
Það vor (sem Egill var þrévetur) fór
Yngvar til Borgar, og... bauð
Skalla-Grími til boðs út þangað til
sín. .. Skalla-Grímur hét för
sinni... er Skalla-Grímur skyldi til
boðsins fara og þau Bera, þá bjóst
Þórólfur til ferðar með þeim .. .
Egill ræddi um við föður sinn, að
hann vildi fara. .. „Ekki skaltu
fara,“ segir Skalla-Grímur, „því að
þú kannt ekki fyrir þér að vera í fjöl-
menni, þar er drykkjur eru miklar,
er þú þykir ekki góður viðskiptis, að
þú sért ódrukkinn." ... Egill undi
illa við sinn hlut. Hann gekk úr garði
og hitti eykhest einn... fór á bak
og reið eftir þeim Skalla-Grími. ..
síð um kveldið kom hann á Álfta-
nes ... Yngvar setti Egil hjá sér...
Það var þar haft ölteiti, að menn
kváðu vísur; þá kvað Egill vísu:
„Kominn emk enn ti! ama Yngv-
ars..." ... Vel lagði Egill í þökk
skáldskap sinn við marga menn.“
(31. kap.)
Bráðger var Egill, en af honum
segir ekki frekar, fyrr en kominn var
á sjöunda vetur. „Egill bað Þórð að
fara með honum tii leiks; þá var
hann á sjöunda vetur ... Egill hlaut
að leika við svein þann, er Grímur
hét. . . ellefu vetra eða tíu og sterk-
ur að jöfnum aldri... var Egill
ósterkari. Þá reiddist Egill og hóf
upp knatttréð og laust Grím, en
Grímur tók hann höndum og keyrði
hann niður fail mikið .. . Egill komst
á fætur . .. gekk ... til fundar við
Þórð Granason . .. Hann seldi honum
í hendur skeggöxi eina . .. Þá hljóp
Egill að Grími og rak öxina í höfuð
honum, svo að þegar stóð í heila . ..
En er Egill kom heim, lét Skalla-
Grímur sér fátt um finnast, en Bera
kvað Egil vera víkingsefni... Egili
kvað vísu: „Það mælti mín móð-
ir ...“ (40. kap.)
Af Borg á uppvaxtarárum Egils
segir enn: „Þá er Egill var tólf vetra
gamall, var hann svo mikill vexti,
að fáir voru menn svo stórir og að
afli búnir. .. Það var oft, er leið á
veturinn, að þeim Agli og Þórði
tveimur var skipt í móti Skalla-
Grími. Það var eitt sinn um vetur-
inn.. . að knattleikur var að
Borg. . . og mæddist (Skalla-Grím-
ur) fyrir þeim... En um kveldið
eftir sólarfall, þá tók þeim Agli verr
að ganga; gerðist Grímur þá svo
sterkur, að hann greip Þórð upp og
keyrði niður svo hart, að hann lamað-
ist allur, o'g fékk hann þegar bana;
síðan greip hann til Egils. Þorgerður
brák ... mælti: „Hamast þú nú,
Skalla-Grímur, að syni þínum.“
Skalla-Grímur lét þá lausan Egil, en
þreif til hennar. Ilún ... rann undan,
en Skalla-Grímur eftir . . . Þá hljóp
hún út af bjarginu á sund. Skalla-
Grímur kastaði eftir henni steini
miklum og setti milli herða henni og
kom hvortki upp síðan... En er
Skalla-Grímur hafði sest undir
borð ... þá var Egill eigi kominn í
sæti sitt; þá gekk hann inn í eldhús
og að þeim manni, er þar hafði þá
verkstjórn ... Egill hjó hann bana-
högg og gekk síðan til sætis síns.
En Skalla-Grímur ræddi þá ekki um,
og var það mál þaðan af kyrrt, en
þeir feðgar ræddust þá ekki við,
hvorki gott né illt, og fór svo fram
þann vetur.“ (40. kap.)
Voru þeir feðgar að nokkru
ómennskir? Úlfi, föður Skalla-Gríms,
er svo lýst, að „dag hvern, er að
kveldi leið, þá gerðist hann styggur,
svo að fáir menn máttu við hann
orðum koma; var hann kveldsvæf-
ur. . . hann var kallaður Kveid-Úlf-
ur ...“ (Egils saga, 1. kap.) í útgáfu
sinni lætur Sigurður Nordal skýringu
fylgja: „Það hefur verið hald manna,
að Kveld-Úlfur væri úlfur á kveldum,
hugur hans færi í úlfsham á meðan
líkaminn svæfi. Trúin á menn í úlfs-
líkjum (þý. Werwolf, dö. varulv, þ.e.
verúlfur, mannúlfur) hefur gengið
með mörgum þjóðum, m.a. Grikkjum.
Hjá íslendingum kemur hún skýrast
fram í Völsungasögu.“_
í Egils-sögu og Úlfuin tveim
(Mímir, Reykjavík, 1990) tekur Einar
Pálsson upp þennan þráð, en þá í
leit að minjum um heiðinn dóm:
„Fyrsta orð Eglu er Úlfur; hugsan-
legt er þannig, að því orði sé ætlað
að vera eins konar lykill að Egils-
sögu í heild." (Bls. 48.)
II
Vígaferlum Egils lauk í Verma-
landsför hans. „Fyrir þá för er Egill
ófyrirleitinn víkingur og ofstopamað-
ur, drýgir margs kyns ódáðir og vinn-
ur fjölda óhæfuverka; eftir Verma-
landsförina virðist hann vera orðinn
stilltur, óhlutdeilinn um annarra hag,
sáttur við menn.“ (Bls. 136.) Og
enn: „í lokabardaga á hann í höggi
við þrjátíu manna flokk undir stjóm
tveggja bræðra_ „er hvortveggi hét
Úlfur". Skipta Úlfarnir liði sínu „og
var þar einstigi yfir að fara, og sátu
fimmtán á hvorum stað“. Maður
vanur goðsögnum opnar augun
þama; mjög hljómar slík frásögn í
anda táknmáls ... Agli verður sem
sagt eigi tregt vopn að hræra á þessu
einstigi.. . Egill hleður með öðmm
orðum ellefu vermskum af hvorum
Úlfinum, tuttugu og tveim sam-
tals... enn féllu þrír, hugsanlega
fyrir förunautum Egils ... en fimm
komust undan... svara þeir:
....eigi sáum við annað en þeir
Egill væru þá spánnýir". (Bls. 13-14)
„ ... bræður tvo, er hvortveggi hét
Þórólfur, eiga þeir Skallagrímur og
Egill. Býr þar tafl undir?“ (Bls. 40.)
Og enn: „Flest... bendir til, að
Egils saga hafi eigi einasta verið
sagnaskemmtun ... heldur bein
kennslustund í lífsvisku: hvers ofsi,
úlfúð og stærilæti mega sín gegn
æðri máttarvöldum.“ (Bls. 140.)
Rifjar Einar Pálsson upp stöðu
úlfa í goðsögnum: „Úlfar tveir sam-
stæðir em mikilvæg goðmynd í Eddu
Snorra ... í 12. kafla Gylfaginning-
ar ...: Þá mælti Gangleri: „Skjótt
fer sólin og nær svo sem hún sé
hrædd . ..“ Hárr segir: „Það eru tveir
úlfar, og heitir sá, er eftir henni fer,
Skoll. Hann hræðist hún, og hann
mun taka hana. En sá heitir Hati
Hróðvitnisson, er fyrir henni hleyp-
ur, og vill hann taka tunglið, og svo
mun verða.“ (Bls. 116.) Áfram held-
ur Einar Pálsson: „Fáum mun vænt-
anlega blandast hugur um það, að
Úlfarnir tveir í Egils sögu séu þeir
sömu og Úlfarnir tveir, Skolli og
Hati, í Eddu. Og búast má við, að
tvær ellefu manna sveitir, er Egill
hleður við einstígin, standi beinlínis
KARLAKÓRINN Stefnir, Mos-
fellsbæ, byrjar nýtt starfsár þann
1. október nk. Kórinn hefur starf-
að í liðlega 50 ár og leggur áherslu
á söngva úr ýmsum áttum, einkum
íslensk og erlend lög af lcttara
taginu en einnig verk eftir klass-
íska höfunda.
Helstu viðburðir í starfi kórsins
eru tónleikar á jólaaðventu og vor-
tónleikar. Á síðasta vori hélt kórinn
vortónleika í Mosfellsbæ, Reykjavík,
Hvammstanga og Blönduósi. Tengsl
við erlenda kóra eru fastur þáttur í
starfi kórsins og hefur hann farið í
söngferðalög til Noregs og fleiri
landa. Næsta sumar er von á þekkt-
um þýskum kór í heimsókn hingað
til tónleikahalds og mun Stefnir end-
í sambandi við náttúrufyrirbæri:
sveiflur í orku sólar, kuldaskeið og
birtuhvörf er stafa af sólgosum" (ath.
á víxlskeiðum, er vara 11 ár). (Bls.
124.)
III
„ .. .„Það mælti nhn móðir“; sú
vísa verður aldrei talin táknræn fyr-
ir Egil, þá er vér sjáum vísu stúlkunn-
ar 10-11 ára, er hjálpar honum og
flytur við það tækifæri 44. vísuna:
„Því sendi mín móðir“ ... En orti
Egill vísu þá, er stúlkan flutti honum
sjálfum, vísu, sem í voru fólgi skila-
boð frá móður hennar?“ (Bls. 194.)
Þessari athugasemd fylgir Einar
Pálsson ekki eftir. Kveður hann ekki
sitt „hlutverk að leysa úr áhugamál-
um, er varða höfund vísna Egils
Skallagrímssonar". (Bls. 194.) En
hann bætir við, um vísur og kvæði
sögunnar: „Jón Helgason gekk árið
1969 þá slóð, sem hér er fetuð . ..“
(Bls. 195.)
Að vanda leggur Einar Pálsson
sig eftir því, sem að baki atburða
býr, en eitt þess dró Sigurður Nor-
dal fram í íslenskri menningu
(„Uppreisn einstaklingsins“), hug
Egils til Ásgerðar, fóstursystur sinn-
ar, síðar mágkonu og loks eiginkonu.
„Það er einkennilegt við (ath. telp-
una, sem yrkir „Því sendi mín móð-
ir“), að hún er „tíu vetra eða ell-
efu“. Engu er líkara en þetta orðalag
sé stef í Eglu. Þeir Kveld-Úlfur og
Skallagrímur drepa... tvo syni
Guttorms Sigurðssonar hjartar. „Þá
var annar þeirra tólf vetra en annar
tíu ...“ ... en Grímur sá, sem Eg-
ill myrðir barn „var ellefu vetra eða
tíu“ ... Þorgerður brák . .. forðar
Agli (ath. þá á tólfta vetri) frá bana
og geldur fyrir með lífi sínu .. . Eg-
ill drepur Rögnvald, son þeirra Eiríks
blóðaxar og Gunnhildar; „hann var
þá vetra tíu eða ellefu"... í lok
Egils sögu... fer Grímur, sonur
Þorsteins, með föður sínum áleiðis
til Álftaness að haustboði. Steinar
Sjónason ríður eftir Þorsteini og slær
í bardaga ... og drepa hvor annan,
tíu vetra gamall sonur Steinars og
Grímur, 'sonur Þorsteins, tíu vetra.“
(Bls. 148-149.)
Við nafnið Grímur staldrar síðan
Einar Pálsson: „Barnið Grím, tíu
vetra eða ellefu, drepur Egill; sonar-
son Egils, Grím, drepur tíu ára sonur
Steinars tíu vetra gamlan ... Grímur
er sonur Bárðar þess, er arfleiðir
Þórólf Kveld-Úlfsson ... Sá Grímur
er einungis nefndur til sögunnar —
hverfur síðan ... Grímur Eglu kynni
beinlínis að vera stef: vaxtarsproti
ættarinnar er sviftur arfi, lífi, rétti,
og framtíð. Grímur háleyski tekur
við skipstjórn af Kveld-Ulfi, þá er
hann fer í kistuna; stjórnendur
tveggja skipa, er land taka vestra
nefnast því Grímur... Og hjá Grími
að Mosfelli endar Egill vegferð sína.“
(Bls. 150-151.)
IV
í inngangi að útgáfu sinni á Egils
sögu reit Sigurður Nordal: „Þegar
þar (ath. í kafla sögunnar um landn-
ám Ketils hængs) er gert meira úr
urgjalda þá heimsókn síðar.
Kórinn hefur ágæta æfingaað-
stöðu í Varmárskóla í Mosfellsbæ og
eru æfingar einu sinni til tvisvar í
viku. Söngmenn sem áhuga hafa á
skemmtilegum söng í léttum og góð-
um félagsskap eru velkomnir til liðs
við kórinn og hafí samband við söng-
stjórann. Það skal tekið fram að
búseta í Mosfellsbæ er ekki skilyrði
fyrir þátttöku í kórnum.
Söngstjóri kórsins undanfarin ár
hefur verið Lárus Sveinsson trompet-
leikari. Undirleikari er Guðrún Guð-
mundsdóttir píanóleikari og radd-
þjálfari Margrét Pálmadóttir söng-
kona. Formaður kórstjórnar er Gunn-
ar Böðvarsson.
(Fréttatilkynning)
Haraldur Jóhannsson
landnámi Hængs en rétt er, þá er
það ekki söguhöfundarins sök heldur
heimildarinnar ... En ekki get ég
fundið þess dæmi í öðrum íslendinga-
sögum, að svo langt sé seilst út fyr-
ir efnið til þess að lýsa nákvæmlega
landnámi í öðrum fjórðungi." (Bls.
ÍXXXV.) Þessi orð eru upp tekin (og
við mætti bæta tengsium fyrstu lög-
sögumanna) sakir þess, að þau lúta
að meginályktun Einars Pálssonar
af athugunum sínum: „ .. . sam-
kvæmt landmælingum, margprófuð-
um, benda líkur til þess, að Skalla-
grímur hafi markað landnám sitt
tveim meginsjónlínum: frá Álftarósi
að viðmiðunardepli á Þingvöllum og
frá Álftarósi að geira Höskuldsstaðar
og Hjarðarholts í Dölum. Hvor
tveggja línan var 216.000 fet á
iengd. Öll línan frá Álftarósi að
Steinkrossi á Rangárvöllum var
432.000 fet á lengd og tengd margs
konar aukalínum og kvörðum til
landmælinga, svo sem líta getur í
fyrri bókum þessa ritsafns (Úr 3.
43).“ (Bls. 196.)
V
Að baki hvers kyns talna í sög-
’unni leitar Einar Pálsson dulinnar
merkingar, einkum ef _ bindast
Freys-dýrkun, Osíris og ísis telur
hann frummynd Vanaguðanna,
systkinanna Freys og Freyju, en í
lokrekkjunni sagði Þorgerður hátt:
„Engan hef ég náttverð haft og eng-
anynun ég, fyrr en að Freyju .. .“
í þessum efnum er Einar Pálsson
á óvarðaðri leið og ekki ávallt auð-
sætt, hvort áttum nær. Á meðal
viðmiðana hans er tarot-speki, sem
hann ræður af dulspeki á miðöldum,
og nemur hann staðar við átjándu
regingátu þeirrar speki, mynd henn-
ar í riti A.E. Whaite; en við borgar-
hlið (?) sýnir hún „Hund og Úlf, er
standa við þröngan stíg. Sá liggur á
milli tveggja steina, er Whaite kallar
Turna. Krabbi (crayfish) er að reyna
að skríða á land upp úr vatni eða
sævi. (Bls. 53.) ....Það flögrar að
manni, hvort krabba þessum sé jafn-
að tii Kveld-Úlfs dauðs, er hann kem-
ur að landi á íslandi. . .“ (Bls. 55.)
Hér er djarflega ályktað.
Höfundur er hagfrædingur.
CORAL
LTSALA
Stórkostleg útsala ó vinsælu,
íslensku bómullarpeysunum
er hafin ó Utsölumarkaðinum,
Bíldshöfða, og einnig
í eftirfarandi verslunum:
Rammagerðin, Hafnarstræti 19 og Kringlunni,
íslenskur heimilisiðnaður, Hafnarstræti 3,
Álafossbúðin, Vesturgötu 2,
París, Hafnarstræti 96, Akureyri.
Karlakórinn Stefnir
upphefur sönginn