Morgunblaðið - 18.09.1991, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1991
43
KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNI BIKARHAFA
Lánleysi Valsmanna
Morgunblaðið/Bjarni Eiriksson
Antony Karl Gregory reynir hér að ná til knattarins en Stephan Lehmann,
markvörður Sion, hafði betur. Jean-Paul Brigger leggur hendina yfír öxl An-
tony Karls til að tryggja að hann nái ekki boltanum úr fangi markvarðarins.
VALSMENN eiga erfiðan róður
framundan eftir að liðið beið
lægri hlut í viðureign sinni gegn
svissneska liðinu Sion, 0:1, í
fyrri leik liðanna í Evrópu-
keppni bikarhafa á Laugardals-
velli ígærkvöldi. Sigurmark
Svisslendinga kom þvert á
gang leiksins og gerði vara-
maðurinn Alexandere Rey það
með sinni fyrstu snertingu í
leiknum. Valsmenn voru betri
í annars tilþrifalitlum leik þar
sem lítið var um marktækifæri.
Möguleikar Vals verða að telj-
ast litlir í síðari leik liðanna sem
fer fram í Sviss eftir hálfan
mánuð.
Liðin léku rólega í fyrri hálfleik
og tóku Jitla sem enga áhættu,
léku af varkámi og þreifuðu fyrir
sér. Sion byrjaði betur og fékk
sannkallað dauða-
ValurB. færi á 5. mínútu
Jónatansson leiksins er Reto
skrífar Gertscher átti
hörkuskot úr víta-
teignum sem small í þverslá niður
og út. Eftir það fengu Valsmenn
sjálfstraustið og léku yfírvegað.
Besta færi þeirra kom á síðustu
mínútu fyrri hálfleiks er Jón Grétar
Jónsson átti skot úr þröngri stöðu
sem Brigger varnarmaður bjargaði
á marklínu. Áður háfði Baldur
Bragason átt lúmskt skot af 30
metra færi sem smaug yfír mark-
homið.
Valsmenn komu enn ákveðnari
til leiks í síðari hálfleik og voru
meira með boltann og léku þá oft
vel út á vellinum en komust lítið
áleiðis gegn sterkri vörn Svisslend-
inga. Það var helst að aukaspyrnur
Sævars Væm hættulegar og úr einni
þeirra varð markvörður Sion, Leh-
mann, að taka á öllu sínu er hann
bjargaði með því að slá boltann
yfir. Gunnlaugur Einarsson átti
einnig gott skot af löngu færi sem
fór rétt yfir.
Rothögg
Rothöggið fyrir Val kom svo
undir lok leiksins þegar allt virtist
stefna í markalaust jafntefli, sem
bæði liðin hefðu hugsanlega getað
sætt sig við. Það var Svisslending-
urinn Rey, sem kom inná sem vara-
maður einni mínútu áður, sem skor-
aði sigurmarkið og var það jafn-
framt fyrsta snerting hans við bolt-
ann í leiknum. Sannarlega mikilvæg
INGI Björn Albertsson, þjálfari
Vals, var að mörgu leyti sáttur
við leik Valsmanna. „Strákarnir
gerðu það sem fyrir þá var lagt.
Við vissum að við þyrftum um
20 mínútur til að sigrast á
þessari andlegu baráttu, sem
er alltaf til staðar í svona leikj-
um, og það tókst. Eftir því sem
leið á fyrri hálfleikinn komumst
við æ meira inn í leikinn og
fórum í seinni hálfleikinn með
það í huga. Þá réðum við við
þá, við það varð sjálfstraustið
meira og spilið gekk betur. En
það verður að skora til að
sigra.“
Fyrir leikinn bjóst Ingi Bjöm
við því að Svisslendingarnir
kæmu sigurvissir til leiks og það
ætluðu Valsmenn að notfæra sér.
„Við vorum örugglega ekki eins
auðveld bráð og þeir héldu, en
innáskipting. Eftir markið færðu
leikmenn Sion sig aftar og héldu
fengnum hlut.
Valsmenn eiga hrós skilið fyrir
góða baráttu en vom óheppnir að
fá á sig þetta mark. Þeir léku skyn-
samlega lengst af, létu boltann
ganga vel milli manna en það var
eins og neistann vantaði til að klára
dæmið. Svissneska liðið er ekki það.
gott að Valur hefði átt að geta náð
hagstæðari úrslitum á heimavelli -
ef ekki á heimavelli hvar þá? Það
þeir höfðu heppnina með sér og
eins var dómarinn ekki sannfær-
andi. Seinni leikurinn verður geysi-
lega erfíður, en við förum í hann
með því hugarfari að komast áfram
— þetta er ekki búið.“
Viö á uppleið
Sævar Jónsson, fyrirliði Vals,
var svekktur. „Við vorum of lengi
í gang og fyrstu 10 mínútumar
var ég hræddur um að við ætluðum
ekki í gang, en svo kom það. Mót-
heijinn leikur aldrei betur en and-
stæðingurinn leyfír og að þessu
sinni réðum við ferðinni. Fyrir vik-
ið gátu þeir ekkert, ekki af því
þeir eru lélegir heldur vegna þess
að við vorum betri. Fótboltinn hjá
okkur var mjög góður. Við spiluð-
um vel úti á vellinum og áttum
ágætis skot, en það vantaði punkt-
inn yfír i-ið. Ég er ekki að segja
að við hefðum átt að bursta þá,.
verður við ramman reip að etja fyr-
ir þá í síðari leiknum með 0:1 á
bakinu.
Bestu leikmenn Vals voru vam-
armennimir Einar Páll, sem var
mjög yfírvegaður í öftustu víglínu,
Sævar og Arnaldur. Steinar Adolfs-
son og Baldur Bragason léku vel á
miðjunni og Jón Grétar var ógnandi
frammi. Lítið reyndi á Bjama í
markinu, en spuming er hvort hann
hefði ekki átt að fara út í fyrirgjöf-
ina þegar markið kom.
en að tapa var ósanngjarnt. En
það eru mörkin, sem telja.“
Sævar var hvergi hræddur við
seinni leikinn. „Við vorum í lægð
á miðju tímabili, en síðan hefur
verið stígandi í þessu hjá okkur
og við erum enn á uppleið. Því er
ég óhræddur við seinni leikinn og
það er aldrei að vita hvað gerist.“
Úrslitin ósanngjöm
„Þessi leikur var ekki eins erfið-
ur og ég bjóst við. Þeir voru ails
ekki betri og því úrslitin ósann-
gjöm,“ sagði Einar Páll Tómasson.
„Markið kom á sama tíma og við
vorum að skapa eitthvað i leiknum
og kom á versta tíma. Þeir verða
erfiðir heima að sækja, en við ætl-
um að gera okkar besta. Ég hlakka
til síðari leiksins."
Svekktur
„Ég er mjög svekktur yfir því
að tapa þessu leik,“ sagði Baldur
Laugardalsvöllur, Evrópukeppni bikar-
hafa - fyrri leikur, 1. umferð, þriðjudag-
inn 17. september 1991.
Mark Sion:Alexandre Rey (80.).
Gult spjald: Michel Sautier (51.).
Dómari: Svend Eric Christensen. Var
frekar slakur.
Áhorfendur: 761 greiddi aðgangseyri.
Lið Vals: Bjami Sigurðsson, Gunnlaug-
ur Einarsson, Amaldur Loftsson, Þórður
Bogason, (Davíð Garðarsson vm. 75.),
Einar Páll Tómasson, Sævar Jónsson,
Jón Helgason, Steinar Adólfsson, An-
tony Karl Gregory, Jón Grétar Jónsson,
Baldur Bragason.
Lið Sion: Stephan Lehmann, Foumier
Sébastian, Sautier Michel, Jean-Paul
Brigger, Geiger Alain, Patrice Schulter,
Lopez Alvaro, Gertscher Reto, Manfredo
Guiseppe, (Oliveier Biaggi vm. á 87.),
Orlando David, (Alexandre Rey vm. á
79.), Baljic Mirsad.
Bragason. Við vorum taugaóstyrk-
Ir fyrstu 20 mínúturnar, en síðan
vorum við með þá í vasanum. Það
var sorglegt að fá þetta mark á
okkur í lokin. Vörnin opnaðist illa
og hann var aleinn og gat því ekki
annað en skorað." Um síðari leik-
inn sagði Baldur: „Við ætlum okk-
ur að vinna þá 1:0 úti og vinna
síðan í vítaspyrnukeppni og kom-
ast í 2. umferð.“
Ósáttur við tapið
„Ég er mjög ósáttur með að
tapa þessu. Það var aðeins fyrstu
mínúturnar sem við vorum í vand-
ræðum eftir það gekk spilið vel
upp hjá okkur,“ sagði Steinar
Adolfsson. „Það er alltaf slæmt
að fá á sig mark á heimavelli og
það verður erfitt að sækja Sion
heim. En við erum staðráðnir í
standa okkur vel.“
Om 4 Aiexandre Rey,
■ I varamaður, skoraði
sigurmark Sion með fyrstu*
snertingu sinn í leiknum á 80.
mínútu. Manfredo gaf há send-
ingu inn í vttateig Vals frá hægri
og þar var Rey mættur og skall-
aði framhjá Bjama Sigurðssyni
í netið.
Valsmenn
voru betri
- sagðiTrossero,
þjálfari Sion
Enzo Trossero, þjálfari Sion,
þakkaði mönnum sínum_ fyrir
sigurinn, en annað ekki. „Ég er
ánægður með sigurinn, en þetta var
ekki okkar dagur. Valsmenn komu
mér á óvart og þeir voru betri,“
sagði Trossero við Morgunblaðið.
Hann sagði að sigur á útivelli í
Evrópukeppni skipti samt öllu máli
og nú fyrst væri raunhæft að ætla
að Sion færi í 2. umferð.
Þjálfarinn neitaði því að hafa
vanmetið Valsmenn. „Valur sigraði
Nantes 1985 og Mónakó 1988 og
það er ekki hægt að vanmeta slíkt
lið. Reyndar getur enginn leyft sér
að vanmeta mótheijana og allra
síst á útivelli í Evrópukeppni. Því
átti ég von á erfiðum leik, ekki síst
þar sem ég var án þriggja lykil-
manna, en satt best að segja voru
Valsmenn sterkari í seinni hálfleik
en ég átti von á.“
Trossero sagði að Jón Grétar
Jónsson og Anthony Karl Gregory
hefðu verið ógnandi frammi og Ein-
ar Páll Tómasson öruggur í vör-ar,-
inni. „Eins sýndi Sævar Jónsson að
aldur skiptir engu máli í knatt-
spymu — hann er á fertugsaldri
og var mjög traustur.“
Eigandinn óánægður
André Luisier, eigandi og fram-
kvæmdastjóri Sion, var ekki sáttur.
„Ég kom hingað fyrir 12 ámm í
laxveiði og þá gekk vel, en ég var
óánægður með frammistöðu Sion
að þessu sinni. Það er engin afsök-
un, þó við höfum verið án þriggja
manna, því maður kemur í manns
stað og við eigum að geta gert mun
betur. En sigur er áfangi og tak-
markið er að komast í undanúrslit
í keppninni. Við emm að reyna aA
byggja upp sterkt lið og við höfúnr
mannskap til að eiga raunhæfa
möguleika á titlinum í Sviss.“
ÍÞRÓmR
FOLK
■ VALSMENN léku með sorgar-
bönd í leiknum í gær til minningar
um Svein Björnsson, forseta
íþróttasambands íslands, sem lést
á mánudag.
H / Evrópuleikjunum er í gildi
áherslubreyting hjá FIFA varðandi
markverði. „Markvörður telst héðan
í frá hafa náð valdi á knettinum
þegar hann hefur lagt hann fyrir
sig með hendi og má því ekki taka
hann upp að nýju fyrr en samheiji
hefur snert hann utan vitateigs."
■ STEPHAN Lehnmnn, mark-
vörður Sion, gerðist brotlegur við
þessi nýju ákvæði í leiknum er hann
stoppaði boltann með höndum og
tók hann síðan upp aftur. Dómarinn
sá ekkert athugavert og fór Stein^j^
Adolfsson til hans og benti á brot-
ið. „Dómarinn viðurkenndi að hafa
Ífirsést þetta atvik,“ sagði Steinar.
I LEIKMENN SION áttu von á
að Valsmenn fengju mun meiri
hvatningu frá áhorfendum, en raun
bar vitni. „Við höfum aldrei kynnst
svona daufum áhorfendum," sagði
Walter, stjórnarmaður. „Á heima*r
velli okkar erum við alltaf með fullt
hús — um 15.000 áhorfendur, sem
hvetja okkur óspart."
Þetta er ekki búið
- sagði Ingi Bjöm Albertsson þjálfari Vals eftir leikinn