Morgunblaðið - 22.09.1991, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.09.1991, Blaðsíða 12
£ r12 r A'MORGUNBLAÐIÐ 'SUNNU'DAGUR’22.1 'SBPTEMBER 1'991 ALBANIR FLÝJA HUNGURVOFUNA Þeir sem heima sitja hróþa á hjálþ s Hið erfiða efnahagsástand er helsta umræðuefnið þegar þúsundir Albana safnast saman, dag hvern, á aðaltorginu í miðborg Tirana. eftir Sören Rossmussen TIRANA í ágiistlok 1991. Hermennirnir hnappast þétt saman, þar sem þeir standa í hvirfingum við varðstöðv- ar sínar í hafnarbænum Durres á strönd Albaníu við Adríahaf. Þeir eru í brúnum hermannabúningum, hálf- gerðum lörfum, vopnaðir gömlum Kalisnikoff-rifflum. Varðstöðvar þeirra eru með stuttu millibili í kringum allt hafnarsvæðið, landmegin, en ríkisstjórnin í Tirana hefur lýst höfnina hernaðarlegt bannsvæði. Sama fyrir- komulag er haft við þrjár aðrar hafnir á ströndinni. Durrés sýnist allt rólegt og hálf- sofandi í kæfandi hitamollunni. Kyrrð og friður virðist yfír öllu. Fáir eru á ferli á strætum inni í bænum og á strandveginum fyrir norðan og sunnan hið lokaða hafn- arsvæði. Ekki er þó allt sem sýn- ist. Þögnin og friðsældin er blekk- ing ein. Þúsundir manna hafast við í húsum, görðum og fyrir ofan fjörukambinn utan víggirta bann- svæðisins. Að mestu leyti er þetta ungt fólk. Það lætur fara lítið fyr- ir sér, meðan það bíður. Eftir hveiju? Það bíður allt eftir hentugu tækifæri til að ryðja sér braut með snöggu áhlaupi yfir girðingar her- . mannanna, hrúgast einhvern veg- inn um borð í skip í höfninni og knýja skipstjóra til þess að sigla vestur til austurstrandar Ítalíu, 150-200 kílómetra siglingarleið. Hugmyndir flóttafólksins um tækifærin, sem biða þess í Ítalíu, eru sannast sagna afar óljósar, en himinháar eru þær þó allar. Send- ingar frá mörgum ítölskum sjón- varpsstöðvum nást vel í Albaníu, ekki sízt eftir að ítalskt fyrirtæki setti endurvarpsstöð upp á fjalls- tindi nálægt höfuðborginni Tirana. Ungir Albanir eru ráðvilltir og örvæntingarfullir. Þeim líður illa í landi sínu, búast við að ástandið versni enn og vilja koma sér burtu áður. Hugmyndir þeirra um landið handan hafsins, hina áður svo óra- fjarlægu Ítalíu, eru að langmestu leyti mótaðar af ítölskum sjón- varpsauglýsingum. Þó að ítölum hafí reynzt örðugt að hjálpa þeim, sem yfir hafa komizt, hafa þó herskarar félagsfræðinga gengið með spumingalista sína um flótta- mannabúðirnar og komizt að þess- ari niðurstöðu. Allir þessir ungu og vonsviknu flóttamenn eru alveg vissir um eitt; Albanía hefur ekkert að bjóða þeim, ekkert. Atvinnuleysið nær til fleiri og fleiri með miklum hraða. Verzlanir, sem hafa verið hálftómar af vörum hingað til, eru nú að verða galtómar. Fulltrúar Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna í landinu segja, að „of- boðsleg hræðsla um framtíðina" hafi gripið um sig meðal allra landsmanna. Naumt er skammtað Enn geta flestir Albanir orðið sér úti um einhvem mat á degi hveijum, en með hverri viku sem líður verður erfíðara fyrir fólk að ná í nóg til að metta alla fjölskyld- una. Skömmtun hefur verið tekin upp á sykri, eggjum, hrísgijónum, fljótandi viðsmjöri, sápu, kaffi og mörgu fleiru. Brauðmatur og ann- ar undirstöðumatur verður skammtaður fljótlega. í verzlunum eru nákvæmar skrár yfir alla, sem þar eiga að kaupa inn til heimilis- ins. Hver verzlun hefur sitt verzl- unarsvæði, svo að þar eru íbúarn- ir í héraðinu eða bæjarhverfinu skrásettir. Við nöfn þeirra er skráður útmældur skammtur þeirra af hverri vöru á hveijum tíma. Allt er þrautskipulagt. Það er ekki heiglum hent að útvega mjólk í höfuðborginni. Gamlir menn koma á kvöldin og h

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.