Morgunblaðið - 22.09.1991, Blaðsíða 25
MORGUNBEAÐIÐ
towttiwowwm
qigajoh:jojiom
^5
Þórður Guðnason
Stokkseyri - Minning
Fyrir átta áram kom tyítug lítil
stelpa til Stokkseyrar. Á stefnu-
skránni var að hafa þar vetursetu
og starfa sem leiðbeinandi við
grannskóla staðarins. Sem ívera-
stað hafði hún fengið heilt einbýl-
ishús. Það reyndist vera í réttu
hlutfalli við stærð nýja kennarans,
og bar nafnið Götuhús. I næsta
húsi, Sunnutúni, bjuggu eigendur
hússins, sómahjónin Þórður og
Valgerður ásamt syni sínum Jóa.
Þórður og Valgerður reyndust mé
eins og bestu afi og amma. Enda
komst ég fljótt á bragðið og var
brátt oðin daglegur gestur á heim-
ilinu. Alltaf var boðið upp á kaffi
og góða meðlætið hennar Valgerð-
ar. Inn á milli kaffibollanna reyndi
ég að auka á jafnréttishugmynd-
um mínum við þá feðga Þórð og
Jóa. Að sjálfsögðu var dræmt tek-
ið undir og Þórður var vanur að
svara með því að ekkert væri nú
að marka svona stelputrippi eins
og mig, um leið og hann glotti
góðlátlega til mín. í þau skipti sem
ég hef hitt hann síðan hefur hann
jafnan sagt: „Jæja hvað segir nú
stelputrippið." Ég rifja þetta upp
núna vegna þess að með fárra
mánaða millibili hafa þeir feðgar
kvatt þennan heim. Af sitt hvorri
kynslóðinni en þó'báðir tilheyrandi
ört fækkandi hóp manna, þ.e.
þeirra sem hafa að leiðarljósi
vinnusemi, heiðarleika ogtryggð.
í minningu þessara góðu manna
sendi ég þér, elsku Valgerður,
Kveðjuorð:
Grétar Axelsson
Fæddur 2. desember 1943
Dáinn 15. september 1991
Nú kveðjum við elskulegan
frænda okkar, Grétar Axelsson,
sem síðustu árin barðist af dugnaði
við illkynja sjúkdóm. í hugum okk-
ar lifir minningin um lífsglaðan og
jákvæðan dreng. Við munum hann
fyrst sem litlar stelpuhnátur þegar
Grétar var að vinna í versluninni
Fons í Keflavík, þar sem áhugi
hans og tilfinning naut sín vel í
mannlegum samskiptum. Hann
hafði hlýlegt og glaðlegt viðmót
sem heillaði okkar litlu barnssálir
ekki síður en hina eldri.
Þegar við systurnar hugsum til
baka munum við sérstaklega eftir
sunnudögunum þegar mamma
klæddi okkur í fínu fötin og Grétar
átti það þá oft til að benda henni
á hvað betur mætti fara. Hann
fylgdist nefnilega vel með tískunni
og hafði næmt auga fyrir því hvað
hverjum og einum passaði best.
Hann var sá maður sem gat alltaf
séð skoplegu hliðarnar á tilverunni
og honum fylgdi gáski og fjör.
Grétar flutti til Danmerkur og
dvaldi þar í rúman áratug. Við héld-
um þó alltaf góðu sambandi við
Grétar frænda. Líf hans var ekki
alltaf dans á rósum en þrátt fyrir
veikindi og erfiðleika bar hann höf-
uðið hátt. Því höfum við best feng-
ið að kynnast síðustu mánuði.
Þó svo að þetta síðasta ár eftir
að hann kom heim hafí verið þol-
raun fyrir okkur öll þá erum við
þakklátar fyrir þær samverustund-
ir. Við biðjum góðan guð að gefa
ömmu okkar og öðrum aðstandend-
um styrk á sorgprstundu.
Kolla, Kæja og Sveindís
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningárgreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð i Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek-
in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta til-
vitnanir í ljóð, tvö erindi, eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar
getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minning-
argreinar birtist undir fullu nafni höfundar.
Minningarkort
Minningarsjóðs íþróttamanna
eru afgreidd á skrifstofu ÍSÍ,
íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Iþróttasamband íslands,
simar 813377 -813366
813259-813402
Elfari og fjölskyldu mínar innileg-
ustu kveðjur og þakka fyrir liðna
tíma.
Hella
Ég vil þakka Þórði vináttuna
sem hann sýndi mér og alla hjálp
sem hann veitti mér.
Drjúgur tollur hefur verið tek-
inn af sömu fjölskyldunni þar sem
Jóhann sonur Þórðar og Völu lést
fyrr á árinu, en svona er lífið.
Þórður og Vala aðstoðuðu mig
mikið þegar ég hafði rakarastofu
í Götuhúsum. Kann ég þeim bestu
þakkir fyrir. Ég læt öðrum eftir
að greina frá lífsskeiði hans þar
eð ég þekki ekki nema síðustu 6-7
árin en mín kynni af honum voru
á þá lund að þar fór, ábyggilegur
og mjög traustur maður.
Samspili Þórðar og Völu í hjóna-
bandinu er erfitt að lýsa en þar
ríkti trúnaður, traust og virðing.
Verulega hefur reynt á fjölskyldu-
böndin á þessu herrans ári þá
ekki síst á Völu sem staðið hefur
eins og klettur með stuðningi að-
standenda.
Ég og fjölskylda mín vottum
Völu og fjölskyldu innilega samúð
og megi þau Guðs blessun hljóta.
Guð blessi minningu Þórðar og
Jóa.
Kjartan Björnsson
BLOM
SEGJA ALiT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
UömcMKi
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími 689070.
BUmmsíofa
Friðftnns
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík, Sími 31099
Opið öli kvöW
tii kl. 22,- einnig um hekjar.
Skreytingar við öli tilefní.
Gjafavörur.
t
Jarðarför mannsins mín, föður, tengdaföður og afa,
BJARNA GUÐJÓNSSONAR,
Kleppsvegi 14,
fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 24. september kl. 15.00.
Steinunn Sigurðardóttir,
börn, tengdabörn og bamaböm.
t
Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÞURÍÐAR INGIBJARGAR ÁMUNDADÓTTUR,
síðast til heimilis í Stigahlíð 8,
verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 24. septem-
ber kl. 15.00.
Lauf ey Guðbrandsdóttir, Berent Th. Sveinsson,
Inga Þuríður Guðbrandsdóttir, Jón Ó. Hjörleifsson,
Auðbjörg Lilja Guðbrandsdóttir Steinbach,
Jóhanna Guðbjörg Guðbrandsdóttir, Sigurður Þorkelsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
EGILLJÓNSSON
glerslipunar- og speglagerðarmeistari,
Reykjavíkurvegi 16,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 24. sept-
ember kl. 15.00.
Birna Guðbjörnsdóttir,
Guðbjörn Egilsson, Sigurjón Egilsson,
Rúnar Þór Egilsson, Svanhildur M. Bergsdóttir,
Egill Fannar, Bergdís Mjöll, Heiðrún Birna.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
HERMANN KARLGUÐMUNDSSON,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. septemb-
er kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á hjúkrunarheimilið
Sunnuhlíð.
Kristjana Hallgrímsdóttir,
Edda Karlsdóttir,
Sverrir Karlsson.
K-
t
Kveðjuathöfn um
RAGNHEIÐI EIRÍKSDÓTTUR
frá Sólbakka í Önundarfirði
fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 24. þ.m. kl. 13.30.
Jarðarförin verður gerð frá Flateyrarkirkju miðvikudaginn 25. þ.m.
María Ásgeirsdóttii, Hanna Ásgeirsdóttir,
Torfi Ásgeirsson, Valgerður Vilmundardóttir,
Haraldur Ásgeirsson, Halldóra Einarsdóttir,
Önundur Ásgeirsson, Eva Ragnarsdóttir
og aðrir vandamenn.
t
Þökkum af alhug auðsýnda samúð við fráfall móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
SIGRI'ÐAR B. TÓMASDÓTTUR.
Ingibjörg Símonardóttir, Þorbergur Sveinsson,
Hilmar Símonarson, Pálína Imsland,
Tómas Símonarson, Anna Sigurbergsdóttir,
bamabörn og barnabarnabörn.
t
Guð blessi alla.þá fjölmörgu, sem auð-
sýndu okkur samúð, hlýhug og mikla
hjálp í sárri sorg vegna fráfalls elsku-
legs eiginmanns, föður, tengdaföður,
afa, bróður, sonar og tengdasonar,
SAMÚELS JÓNS ÓLAFSSONAR
viðskiptafræðings.
Ingibjörg Helga Júlíusdóttir
Ólaf ur Helgi Samúelsson, Elín Ragnhildur Jónsdóttir,
Þóra Guðrún Samúelsdóttir, Stefán Jónsson,
Kolbrún Gyða Samúelsdóttir,
Samúel Jón Samúelsson,
Samúel Ingi Stefánsson,
Ingibjörg Anna Ólafsdóttir,
Guðrún Samúelsdóttir,
Þóra Kolbeinsdóttir.