Morgunblaðið - 22.09.1991, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 22.09.1991, Blaðsíða 32
N • Á • M • A - N Landsbanki islands • Banki allra landsmanna FORGANGSPÓSTUfí UPPLÝSIIIBASÍMI 63 71 90 MORGUNBLADID, ADALSTRÆTl 6. 101 REYKJAVÍK TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKVREYRl: llAFNARSTRÆTl 85 SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR. Morgunblaðið/Árni Sæberg HAUST í SVEITINNI Grútarmengun á fjörum frá Sauðanesi til Haganesvíkur Sigrlufírði. GRUTUR mengar nú fjörur á svæðinu frá frá Sauðanesi, vestur af Siglufirði, til Haganesvíkur, að sögn Trausta Magnússonar vitavarð- ar á Sauðanesvita. Að sögn Trausta líkist mengunin grútarmengun- inni á Ströndum í sumar eins og henni var þá lýst. Dómari sekt- aði 13 manns ELLEFU karlar og tvær konur sem gistu fangageymslur lögregl- unnar aðfaranótt laugardagsins voru færð fyrir dómara í gær- morgun og gert að greiða 6-9 þúsund króna sektir. Ýmist var fólkið sektað fyrir ölv- un, óspektir eða að fylgja ekki fyrir- mælum lögreglu. Að sögn Jónasar Hallssonar aðal- varðstjóra voru flest þeirra handtek- in í miðbænum. Fólkið var á aldrin- um 18-47 ára, þorri þess 24 - 32 ára. ------M-l------- Mælingar á sjávarstöðu að hefjast við Island VEGNA aukins magns koltvísýr- ings í lofthjúpi jarðar er búist við að loftslagsbreytingar muni hafa áhrif á sjávarstöðu. Til þess að fylgjast með hækkun sjávarmáls við Island eru á þessu hausti að fara í gang mælingar. Er verið að koma fyrir tölvutengdum mæli í Reykjavíkurhöfn, en í framhaldi eru áform um að koma fyrir 10 mælum kring um landið. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur stendur fyrir þessum mælingum í samvinnu við Hafnamálastofnun. Sjávarborð virðist hækka mjög hægt víða um heim og heldur meira hér við Reykjanesskagann. Getgátur eru um að það stafi af landsigi vegna eldvirkni. Þar kemur einnig fram að reglu- gerð frá umhverfisráðuneyti um að frá næstu áramótum skuli nýir bílar hafa hreinsitæki til að draga úr kol- sýringsmengun hefur verið frestað. Komið hefur í ljós að tvær reglugerð- ir stangast þar á og er málið í skoð- un í nefnd. Þá kemur fram að til landsins er flutt tæki sem tengja á bílvélum og dregur þá verulega úr bensínnotkun og um leið úr mengun frá útblæstri. Annars eru uppi radd- ir um að besta vörnin, sem í senn sparar bensín og dregur úr mengun, sé að aka ekki á yfir 60 km hraða. Sjá grein um gróðurhúsaáhrif- in á blaðsíðu 14-15. Engin tilkynning hafði komið til Siglingamálastofnunar á laugar- dagsmorguninn og ekki náðist aftur samband við Sauðanesvita eða aðra bæi á Siglufjarðarsvæðinu vegna símabilunar. Grútarmengun olli miklu tjóni á lífríki á Ströndum í júlí í sumar. Mengunin var þá talin stafa af dauðri rauðátu en ekki var ljóst hvað olli því að rauðátan drapst í stórum stíl. Var getum leitt að þör- ungablóma, sjúkdómum eða hlýind- um. Grútarmengunar varð síðan vart allt frá Hornbjargi að Langa- nesi, Þá varð einnig vart mengunar- flekkja í sjónum úti fyrir öllu Norð- urlandi, allt frá Hornbjargi að Langanesi. Eyjólfur Magnússon yfirmaður mengunarmála á Siglingamála- stofnun sagði við Morgunblaðið, að í septembermánuði fyrir fimm áram hefði hann ásamt fleirum verið að skoða birgðastöðvar við Húnaflóa og norður á Strandir. Þá hefðu þeir séð grútarmengun fyrir utan Veiðileysuijörð sem líktist mengun- inni á Ströndum í sumar, svo grút- armengun af þessu tagi væri greini- lega ekki bundin við sumarmánuði. Matthías. ---------------- Mikill sam- dráttur í lyfjaveltu LYFJAVELTA hefur dregist saman um 39% í tveimur apótek- um í júlí og ágúst miðað við með- altal mánaðanna á undan. Um leið hefur meðalverð lyfjaávísana lækkað um 12,4%. Þetta kom fram í máli Sighvats Björgvins- sonar heilbrigðisráðherra á mál- þingi Læknafélags íslands sem haldið var í tengslum við aðal- fund þess í Garðabæ í gær. Að sögn heilbrigðisráðherra eru áhrif lyfjaverðsbreytingarinnar í sumar að koma æ betur í ljós. Á vegum ráðuneytisins hafa verið teknar saman upplýsingar úr tveim- ur apótekum og lyfjasala í þeim, fyrir og eftir breytinguna, bcrnar saman. Ráðherrann tekur sérstak- lega fram að hamstur á lyfjum hafi ekki verið sérstaklega áberandi síð- ustu vikurnar áður en breytingin var gerð. Séu júlí og ágúst bornir saman við mánuðina á undan komi til dæm- is fram að lyfjavelta í þessum apó- tekum hafi dregist saman um 39% og meðalverð lyfjaávísana hafi lækkað úr 2.329 krónum í 2.040. Friðrik Sophusson fjármálaráðherra: Dregið úr styrkjum til blaða- útgáfu í fjárlagafrumvarpinu FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra segir að samkomulag hafi orðið á milli forystumanna stjórnarflokkanna að draga nokkuð úr framlagi fjármálaráðuneytisins til blaðaútgáfu í fjárlagafrum- varpinu sem lagt verður fyrir Alþingi í haust. Friðrik vill ekki upplýsa um hversu mikinn niðurskurð sé að ræða en hann kemur til viðbótar ákvörðun ráðherra í sumar að fella niður heimild ríkis- ins til að kaupa 500 eintök af hverju blaði til þjónustustofnana ríkisins. Tíminn, Þjóðviljinn og Alþýðublaðið eiga nú í miklum fjárhagserfiðleikum og er farið að ræða hugmyndir um möguleika á stofnun nýs sameiginlegs blaðs í stað Tímans og Þjóðviljans upp úr áramótum, skv. heimildum Morgunblaðsins. Útgáfustyrkir ríkissjóðs til aðgerðirnar að þeim liðum frum- blaða og þingflokka eru undir varpsins sem heyra beint undir nokkrum liðum í fjárlagafrum- varpinu en skv. upplýsingum fjár- málaráðherra beinast spamaðar- fjármálaráðuneytið. Þar er um að ræða styrk til blaðaútgáfu skv. tillögum stjórnskipaðrar nefndar _________________________________________:______________________ og framlag til útgáfumála skv. ákvörðun þingflokkanna. Guðmundur Oddsson formaður framkvæmdastjórnar Alþýðu- flokksins, sem sæti á í útgáfu- stjórn Alþýðublaðsins og Press- unnar, segir að gengið verði frá fullum rekstrarlegum aðskilnaði þessara blaða fyrir næstu mánaða- mót. Hann segir að Alþýðuflokk- urinn hafi nýlega lagt þtjár millj. kr. til útgáfunnar en útgáfustjórn- in hefur farið fram á fímm millj. framlag til viðbótar. Sú beiðni hefur verið lögð fyrir fram- kvæmdastjórn flokksins sem frest- aði umræðu um hana fram í næstu viku á fundi sínum sl. fimmtudag. Nokkrir menn sem starfa i við- skiptum hafa að undanförnu kann- að grundvöll fyrir útgáfu viku- blaðs og sýnt áhuga á að kaupa meirihluta í Pressunni eða allan útgáfurétt hennar. Einn þessara aðila er Friðrik Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Skrifstofuvéla- Sunda hf., sem staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið en vildi ekki greina frekar frá málinu. Sjá „Umrót á fjöhniðlamark- aði“ á bls. 10-11.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.