Morgunblaðið - 22.09.1991, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1991
C <7
jafnvel smávægilegar en þó óheppi-
legar aukaverkanir. Útbreiðsla á
„andvísindalegum hugsunarhætti“
sé einnig alltaf til skaða.
Dr. Mary-Margaret Richardson
er fulltrúi bandaríska fæðu- og lyfja-
málaráðuneytisins í neytendamál-
efnum. Hún er mjög hneyksluð eftir
lestur á nýútkominni bók, „Greindar-
töflur og næringarefni", þar sem
töflunum er hælt á hvert reipi. Hún
segir meðal annars: „Hugsunarhátt-
urinn á bak við þessa bók er bókstaf-
lega viðbjóðslegur . .. Neyzla á lyfj-
um án lyfseðils getur haft skaðlegar
aukaverkanir í för með sér.“
Annar tveggja höfunda bókarinn-
ar, Ward Dean, læknir í Pensacola
í Flórída, hafnar aðfinnslum ráðu-
neytisins og segir þær hlægilegar.
„Hvað á þessi kona við? Er hún
að halda því fram, að engar skaðleg-
ar aukaverkanir komi til greina séu
lyf tekin samkvæmt lyfseðli? Hvílíkt
rugl!“
Hann heldur áfram: „Við John
Morgenthaler, höfundar bókarinnar,
gefum hvergi í skyn, að hver sem
er geti farið að taka inn greindartöfl-
ur án eftirlits læknis."
Dr. Ward Dean er fyrrverandi
bardagamaður úr skyndiárásarsveit
Bandaríkjahers í Vítetnam. Hann
hlaut heiðursmerki fyrir framgöngu
á vígveili. Þegar hann dvaldist í hin-
um fjarlægu Austurlöndum skildist
honum, að í lyfjafræði eru enn fleiri
leyndardómar en vísindamenn geta
svarað. Hann hefur átt þátt í út-
breiðslu á notkun greindartaflna,
síðan þær fóru að koma á markað
fyrir um það bil einum tugi ára.
egar hann fékkst við líf- og lækn-
isfræðileg öldrunarfræði í Los
Angeles var það honum undrunar-
efni hve margt tiltölulega ungt fólk,
sem hafði náð góðum árangri í líf-
inu, kvartaði undan minnisleysi og
öðrum einkennum of bráðrar öld-
runar. Ellimörkin komu of snemma,
og Dean ákvað að beijast gegn þeim.
Dean hafði fyrst heyrt getið um
greindartöflurnar, þegar hann var
að búa sig undir nám í læknisfræði
í Kóreu í kringum 1975. Hann komst
að því, að meðalið „hydergine“, sem
notað var í Bandaríkjunum gegn
Alzheimersveiki, var notað þarna
eystra við heilablóðfalli, vegna þess
að það flutti meira súrefni til heilans.
Dean fór að taka inn „hydergine"
— fyrstu greindartöflurnar — og
innan skamms hafði hann næstum
öðlast nákvæmt minni ljósmyndavél-
arinnar.
Dean er alinn upp í Kalifórníu.
Hann lauk prófi úr herskólanum í
West Point og gegndi herþjónustu í
tíu ár. Hann endaði sem ráðgjafi
skyndiárásarsveitar í Víetnam og
var sæmdur bronz-stjörnunni fyrir
frækilega frammistöðu í orrustu,
hugrekki og útsjónarsemi. Nú var
hann í Kóreu, orðinn 32 ára gamall
og um það bil að hefja nám í læknis-
fræði, styrktur greindartöflum á sál
og líkama. Áhugi hans á töflunum
og skyldum efnum var vaknaður
fyrir alvöru.
„Fyrst varð ég að læra að tala,
lesa og skrifa kóresku. Síðan þurfti
ég að standa mig í skóla í sam-
keppni við hina ljóngáfuðu og stál-
greindu hugi ungra Asíumanna. Án
greindartaflnanna hefði verið vita
vonlaust fyrir mig að keppa við hina
tvítugu skólabræður mína í Han-
jang-háskólanum í Seúl.“
Að prófi loknu gekk Dean aftur
í Bandaríkjaher. Hann sérhæfði sig
í læknisaðgerðum um borð í skipum
og flugvélum. Hann segist hafa ver-
ið orðinn yfirlæknir í hinni leynilegu
gagnhryðjuverkasveit, „The Delta
Force“, og hafa tekið þátt í mörgum
leynilegum aðgerðum, meðal annars
í samvinnu við brezku öryggisdeild-
ina SAS.
Hann er einn starfsamasti og at-
kvæðamesti félaginn í „Banda-
ríska lyfja- og lækningaframfarafé-
laginu", og tekur sjálfur inn
skammta af ýmsum tegundum
greindartaflna dag hvern. Töfluátið
hefur haft mjög djúpstæð áhrif á
Dean, hina kóresku eiginkonu hans,
Kumja Chae, og syni þeirra tvo,
þriggja og fjögurra vetra gamla.
„Konan tók greindartöflurnar,
þegar hún gekk með eldri dreng-
inn“, segir Dean. „Því miður láðist
henni að taka inn greindartöflur,
þegar hún gekk með hinn yngri. Við
iðrumst þess sárlega, að hún skyldi
vanrækja það, og tökum það bæði
ákaflega nærri okkur.
Fjölskylduvinir, kennarar og upp-
eldisfræðingar álíta eldri drenginn
okkar, Paul, vera algeran snilling,
gæddan undragreind. Þótt hann sé
ekki nema fjögurra ára gamall
stjórnar hann stóreflis tölvukerfi.
Hann hjálpar mér við að ráða í töl-
urnar í stjórnkerfisborði myndbands-
tækisins, en því hefur hann stjórnað
frá því að hann var aðeins tvævetur.
Til allrar óhamingju er litli bróðir
hans, Kenton, aðeins venjulegur en
ástríkur og elskulegur drengur. Illu
heilli átti hann ekki móður, eins og
stóri bróðir, sem tók reglulega inn
greindartöflur, meðan hún bar hann
í móðurkviði. Sami faðir og sama
móðir, en engar greindartöflur á
meðgöngutímanum. Við foreldrarnir
erum þrúguð af sektarkennd, af því
að hann mun aldrei fá sömu tæki-
færi í lífinu -og eldri bróðirinn. And-
legir hæfileikar hans verða ekki hin-
ir sömu, greindarmunur er of mikill.“
Dean er orðinn 49 ára gamall, en
hann lítur út fyrir að standa á þrít-
ugu. Hann tekur inn fimm tegundir
af greindartöflum á hveijum degi.
Hann álítur, að sérhver fullorðinn
maður geti haft mjög gott af því
að taka þær inn. Hann ráðleggur
fólki þetta í starfi sínu, en hann er
nú lyflækningastjóri í „miðstöð lí-
földrunarfræða“ í Pensacola í
Flórída.
Við gleypum í okkur fjörefni," seg-
ir hann, „reynum að borða hæfi-
lega mikið og aðeins hollan mat,
þjálfum skrokkinn og forðumst
skaðleg efni á borð við alkóhól, tób-
ak og önnur eiturefni. Allt þetta
gerum við til þess að efla starfsemi
líkamans. Hví skyldum við þá ekki
einnig gera allt, sem við getum, til
þess að efla starfsemi hugarins?
Greindartöflur hafa éngin alvarleg,
óholl aukaáhrif og þær eru ekki
ávanabindandi."
Bandaríska lyfjafræðingafélagið
telur líklegt, að um þessar mundir
séu allt að 140 mismunandi tegund-
ir af greindartöflum á ýmsum stigum
tilraunaframleiðslu víðs vegar í
heiminum.
„Þarna gæti geysilega mikill
markaður verið í augsýn, sem allir
lyfjagerðarmenn hljóta að taka eft-
Flestir segjast vera
minnisbetri en áður.
Þeir hugsi skýrar, gleymi
sjaldnar og líði
almennt betur.
Sumum finnst eitthvað
athugavert eða jafnvel
rangt við það að ætla
sér að bæta minnið og
efla greindina með því
að taka inn töflur.
ir,“ segir Larry Eisner, taugafræð-
ingur í Flórída. Hann vinnur hjá
fyrirtækinu „Neuro Medical research
Associates". Þar er verið að rannska
áhrif sjö tegunda greindartaflna á
Alzheimersveiki og skylda sjúk-
dóma. Rannsóknin er gerð í sam-
vinnu við lyfjagerðir og með vel-
þóknun bandarískra yfirvalda.
„Takist okkur að setja saman lyf,
sem geti bætt veikan heila, end-
urnýjað eða auðveldað starfsemi
hans, er í sjálfu sér ekkert, sem
mælir gegn því fyrirfram, að slíkt
lyf geti einnig hugsanlega örvað
heilastarfsemi hjá heilbrigðum
manni. Það yrði þó undir ýmsu kom-
ið og of snemmt að spá nokkru um
slíkt. Svo mikið er þó víst, að upp-
götvun slíks örvunarefnis hlyti að
byggjast á vandlegum, vísindalegum
aðferðum, þar sem ströng rökhyggja
og heilbrigð skynsemi ræður ferð-
inni, en ekki á eftiröpun á frum-
stæðri og fornaldarlegri hjátrú, inn-
fluttri frá þeim hlutum heims, þar
sem fáfræði, hræðileg fátækt, land-
lægir og banvænir sjúkdómar, lágur
meðalaldur og almennur menntun-
arskortur hefur um aldir heijað á
mannfólkið, sem hefur ekki meiri
greind til að bera en annað fólk í
heiminum."
Ymisleg efni er nú verið að kanna
í Bandaríkjunum og sum þeira
fást þegar til kaups í öðrum löndum.
Nefna má efnablöndur, sem herða á
blóðstreymi til heila, hraða efna-
skiptum í heilafrumum, endurnýja
viss efni í heila, er eyðast eða rýrna
með aldri eða í veikindum og við-
halda lífi og hæfni heilafrumna leng-
ur en ella.
Dean segir: „„Hydergine" er sú
tegund greindartaflna sem mest
hefur verið athuguð og mest er not-
uð. Hún er hin eina, sem fæðu- og
lyfjamálaráðurneytið hefur sam-
þykkt.
Önnur tegund, sem okkur finnst
lofa góðu, er „nootropil". Hún er
fremstí flokki nýrrar undirtegundar
greindartaflna, sem kallast „noo-
tropics". Sú tegund fæst nú,“ heldur
hann áfram, „næstum í öllum lönd-
um nema Bandaríkjunum. Af ein-
hveijum ástæðum er ráðuneytið
óhemju tregt að viðurkenna lyf, sem
auka greind manna og gæði lífs
þeirra. Ráðuneytisfólkið segir, að lyf
eigi aðeins að nota við sjúkdómum."
Meðal þess, sem Dean tekur sjálfur
inn í daglegum skömmtum eru 3-6
milligrömm af „hydergine", 40
milligrömm af DMÁE (di-methyl-
amino-ethanol), 3 grömm af „chól-
ine“ og 5 milligrömm af „deprenyl".
DMAE eyðir einnig ljótum blett-
um og skellum, sem lýta stundum
húðina á gömlu fólki eða svo segir
Dean. „Það, sem sumir læknar og
vísindamenn virðast ekki gera sér
ljóst,“ segir hann, „er að sama efnið
(lipofuscin), sem otsakar elliskelli á
handarbökum, hleðst einnig saman
og safnast fyrir í hjarta og heila.
DMAE-meðferð hreinsar burt elli-
bletti, bæði utan á líkamanum og
innan í honum. „Deprenyl" er önnur
tegund af greindartöflum, sem ég
neyti reglulega. Menn hafa viður-
kennt stórkostlegt gildi hennar í
nýrri meðhöndlun á Parkinsonsveiki.
Hún hefur líka reynzt vel við Alzhei-
mersveiki. Þetta lyf hefur einnig
lengt hámarkslífdaga hjá rottum um
40%. Þetta er fyrsta lyfið í sögu
mannsins, sem hægt er að láta
lengja ævidaga annarrar dýrateg-
undar. Lengd ævinnar fer saman við
hæfileika hugarins." Dean vill leggja
áherslu á eftirfarandi: „Margar af
þessum greindartöflum, sem ég tek
daglega, eru aðeins og einfaldlega
hrein næringarefni, sem auka nær-
inguna, er berst til heilans.
að má vel vera, að einhveijum
kunni að finnast það fyndið að
heyra eða lesa um allar þessar
greindartöflur, sem ég og mínir líkar
tökum inn,“ segir Dean, „en sért þú,
sem heyrir eða lest þetta, kominn
yfir þrítugt, ertu þegar haldinn hin-
um banvæna sjúkdómi, sem nefnist
öldrun, og ert kominn með forstig-
seinkenni ellinnar. Það er ekkert
fyndið. Smávægilegt minnistap,
hrörnandi ástand minnisgeymslunn-
ar í heila þínum, er meðal fyrstu
einkenna þessarar farsóttar sem
gengur yfir allt mannkyn og drepur
að lokum hvern einstakling. Þú ætt-
ir að hafa mjög mikinn áhuga á
þessu. Við erum að fást við hin brýn-
ustu efni, líf og dauða, árangnr og
misheppnun. Tími er til kominn, að
þú og allir aðrir vaknið upp af sljó-
leikaværð. lærið að láta ykkur skilj-
ast mikilvægi þessarar uppgötvunar,
greindartaflnanna, og veitið þeim
þá athygli sem þær eiga skilið. Hug-
sið ykkur hvílíka blessun greind-
artöflurnar geta fært einstaklingum,
þjóðum og gervöllu mannkyni! Hvers
yrði maðurinn ekki megnugur,
kæmu þjóðir heims hugarfari sínu í
lag? Elliheimili tæmdust, grafreitir
fylltust á mun lengri tíma [svo]!
Framfarir í tækni og vísindum
myndu haldast í hendur við fulla
notkun á öflugasta verkfæri manns-
ins, eigin heila.“
Bókin, sem um er talað, heitir
„Smart Drugs and Nutrients" og er
eftir Ward Dean og John Morgent-
haler. Útgefandi er Compendium
Bookshop, 234, Camden High Stre-
et, London, NWl 8QS, England.
Samtök bandarískra lyfjagerðar-
manna segja, að lyf, sem eigi að
efla heilastarfsemi og nú sé verið
að rannsaka, eigi að verka með
ýmsum hætti samkvæmt hugmynd-
um áhugamanna og annarra:
1) Endurnýja efni í heilanum, sem
smám saman gengur á með aldri
eða við vissa sjúkdóma.
2) Auka blóðstreymi til heila.
3) Varðveita hæfni heilafrumna og
lengja líf þeirra.
Grein þessi er að mestu leyti þýð-
ing á grein eftir Ron Laytner, „Edit
Internationa, Inc.“, en einnig er
stuðzt við fréttir og greinar í nýleg-
um, bandarískum blöðum ogtímarit-
um.
RAUTT EÐAL
GINSENG
- þegar reynir á athygli og þol
VASKUR
0G VAKANDI
„STÓRMÓT í skák eru mjög
krefjandi. Þess vegna nota ég
Rautt eöal-ginseng. Þannig
kemst ég í andlegt jafn-
vægi, skerpi athyglina
og eyk úthaldið."
Helgi ólafsson,
stórmeistari í skák.
Hvert
hylki
inniheldur
300 mg af
hreinu rauöu
eöal-ginsengi.
■ í ,j *
i ■',
Dr. Ward Dean er einn starfsamasti og atkvæðamesti félaginn í
„Bandariska lyfja- og lækningaframfarafélaginu" og tekur sjálfur
inn skammta af ýmsum tegundum greindartaflna dag hvern.