Morgunblaðið - 22.09.1991, Page 18
m $
MQRGUfrJRLAPIÐ MENNINGARSliRÆMW'ARA&IÍfllMÍfflÍHlflSBPTEMBBRllOTil/
X
Ferskur blær Sveit-
armenn slappa flestir
af í keilu á meðan Jón
Ólafsson þrælar í
hljóðblöndun.
MJÚKU MENNIRNIR
NÝDÖNSK sendi frá sér í vor skífu með tveimur
hljóðverslögum og fimm af tónleikum. Sveitarmenn
lýstu þá þeim vilja sínum að gera aðra breiðskífu
fyrir jól og luku einmitt fyrir skemmstu þeirri plötu.
Nýdanskir ákváðu
snemma að vinna
plötuna á skömmum tíma.
Þeir fóru því í tveggja
vikna æfingabúðir og tóku
síðan upp plötuna á sex
dögum. Hljóðblöndun tók
líka skamman tíma, því
platan var hljóðblönduð á
fjórum dögum. í stuttu
spjalli sögðu sveitarmenn
að þeir hafi viljað taka upp
plötuna á skömmum tíma
og án alls stafræns- dóts,
til að ná betur anda sveit-
arinnar. „Þetta er unnið
það hratt að fyrstu hug-
myndir fá yfirleitt að
standa, sem gefur píötunni
ferskan blæ. Við spiluðum
allt inn „læf“; þ.e. allir
samtímis, og söngurinn er
yfirleitt bara ein taka.“
Sveitin tók upp ellefu
lög, „allt glænýja tónlist
og allt eins einfalt og hægt
var. Þetta verður fyrsta
platan sveitarinnar sem
hljómar einmitt e'ins og
sveitin er þegar hún kemur
út,“ segja þeir og Danni
söngspira bætir við: „Við
erum mjúku mennirnir, því
stafræna vinnslan gerir
tónlist harða og kalda.“
DÆGURTÓNLIST
Hver er hœttulegasta hljómsveit í heimi?
ÓBILANDITRÚ
FÁUM rokksveitum hefur verið eins hampað austan hafs og vestan eins og banda-
risku rokksveitinni Guns n’ Roses. hún sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu fyrir
fjórum árum og sýndu fáir áhuga. Nokkrum mánuðum síðar vaknaði áhugi
manna á sveitinni og rokkþyrstir unglingar fengu æði; plata sveitarinnar rauk
upp í efsta sæti vinsældalista og á eftir fylgdi tætingsleg tónleika/afgangaplata,
en sveitin er ein örfárra sem hafa átt tvær breiðskífur samtímis á topp fimm
Billboard-listans bandaríska. Síðan hafa heyrst margar ljótar sögur af sveitinni,
en ekki bólað á nýrri plötu, þar til í siðustu viku að hún sendi frá sér tvær plöt-
ur. Þegar plötuverslun Skífunnar í Kringlunni opnaði á mánudag, var biðröð
ungmenna fyrir utan sem öll vildu plöturnar Use Your Illusion I og II.
Eins og fram kemur hér
að framan hefur mikið
verið látið með Guns n’ Ro-
ses. Þar ræður líklega mestu
að sveitarmenn hafa verið
einkar iðnir
við að
halda sér í
sviðsljósinu
og vekja
ýmist óhug
eða ótta.
Sem rokk-
sveit er
Guns n’
Roses kraftmikil og fyrir at-
beina gítarleikara sveitarinn-
ar er tónlist sveitarinnar
hugmyndarík og all fjöl-
breytt. Mesta athygli vekur
þó söngvarinn Axl og fram-
koma hans utan sviðs og inn-
an. Frægt varð fyrir stuttu
þegar honum lenti saman við
öryggisverði og áhorfanda á
tónleikum í Bandaríkjunum,
sem kom af stað óeirðum og
lögðu tónleikastaðinn í rúst.
Axl hefur einnig verið óspar
á glannalegar yfirlýsingar
um aðra tónlistarmenn sem
honum þykir lítið til koma,
aukinheldur sem textar hans
hafa vakið reiði minnihluta-
hópa. Það hefur því gert sitt
til að halda sveitinni í sviðs-
ljósinu þegar við bætist heró-
ínfíkn og fyllerí í góðu sam-
ræmi við þá gömlu þumal-
puttareglu að illt umtal sé
betra en ekkert. Þetta styrk-
ir-og þá ímynd sveitarinnar
að þar fari „hættulegasta"
rokksveit heims.
Á tvennum tónleikum í
Maracaná-leikvanginum í
Ríó snemma á árinu komu
vel fram andstæðurnar í
sveitinni. Fyrra kvöldið voru
á staðnum um 140.000
manns, sem biðu óþreyjufull
eftir Guns n’ Roses. Sveitin
lét líka bíða eftir sér, en þeg-
ar hún byrjaði leik sinn kom
fátt fram sem benti tii að þar
færi ein frægasta rokksveit
heims; sveitin óþétt og Axl
óöruggur. Seinna kvöldið var
aftur á móti annað upp á
teningnum, því þá var sveitin
geysiþétt fyrir framan um
160.000 áheyrendur. Þá bar
mjög á öxlinum Axl/Slash,
þar sem Axl bar uppi sviðs-
framkomu sveitarinnar og
Slash tónlistina. Fyrra kvöld-
eftir Árna
Matthíasson
Hættuleg? Guns n’ Roses í upphafr tónleikaferðar
sveitarinnar um heiminn.
ið tróðust nokkrir undir t'
æsingnum (þrír látnir), en
seinna kvöldið hélt sveitin
öllum í skéfjum með framúr-
skarandi frammistöðu.
Fyrstu viðtökur við plöt-
unum tveimur hér á landi
bera því vitni að íslenskir
rokkvinir hafi óbilandi trú á
sveitinni og ekki er að ætla
annað en að svo sé um heim
allan. Hvort það nægir til að
halda henni á toppnum er
ekki gott að segja, en víst
að á góðum degi standa fáar
sveitir Guns n’ Roses á
sporði.
Morgunblaðið/Þorkell
Heilsteypt Ásgeir Sæ-
mundsson, alias Geiri Sæm.
HEIL-
STEYPT
Ásgeir Sæmundsson, sem
þekkastur er sem Geiri
Sæm, er um þessar mund-
ir að leggja síðustu hönd
á þriðju breiðskífu sína,
sem Skífan gefur út.
Hann hefur jafnt og þétt
unnið sér sess á íslenskum
rokkmarkaði og farið um
Ieið sínar eigin leiðir.
Geiri sagði plötuna nýju
stefna í að verða heil-
steyptari en oft áður, á
fyrstu plötunum tveimur
hafí hann verið að reyna
meira fyrir sér, en nú stefni
í samfellda plötu. „Mér
finnst ég búinn að finna mig
vel í tónlist og ég hef trú á
að þetta verði góð plata.“
Hann sagði áberandi á
plötunni léttleika, en þó með
alvarlegu ívafí. Fimm lög
plötunnar vinnur hann með
Þorvaldi B. Þorvaldssyni, en
fimm lög með Styrmi Sig-
urðssyni félaga sínum.
Það er fleira á dagskránni
en plötugerð, því Geiri er
einnig búinn að setja saman
hljómsveit til að kynna plöt-
una áður og eftir að hún
kemúr út. „Æfingar hefjast
innan skamms, en með mér
í sveitinni eru Kristján Edel-
stein, Bjarni Bragi bassa-
leikari, Sigurður Gröndal á
hljómborð og Sigfús Hall-
dórsson trommuleikari. Það
er óráðið hvað sú sveit kem-
ur til með að heita, en við
ætlum að vinna saman fram
að áramótum og meta svo
framhaldið eftir stöðunni
þá.“
Sigur Stone Roses.
MSTONE Roses var efni-
legasta poppsveit Bretlands
árið 1889 og fram á 1990,
enmálaferli við útgáfu sveit-
arinnar, Silvertone, varð til
þess að sveitin sendi ekkert
frá sér og kom hvergi fram
í rúmt ár. Fyrir stuttu vann
sveitin sigur þegar dómari
lýsti samninginn við Silver-
tone ómanneskjulegan og
óraunhæfan, en meðal þess
sem hann nefndi var að í
honum var klausa þar sem
Silvertone hafði einkarétt á
sveitinni í „öllum sólkerfum"
og klásúla tryggði fyrirtæk-
inu eilífan rétt, ef það kærði
sig um. Geffcn-útgáfan
bandaríska (Guns ’n’ Roses
m.a.) gerði við sveitina samn-
ing um leið og þetta lá fyrir
og greiddi fyrir um 250 millj.
ísl. kr. Sveitarmenn segjast
eiga í fórum sínum á annað
hundrað laga, en plata er
ekki væntanleg fyrr en eftir
áramót.
HEILLEG MYND
AF VILHJÁLMI
VILHJÁLMUR Vilhjálmsson var harmdauði öllum tón-
listarunnendum, þegar hann lést í bíslysi í Lúxemborg
1978. Hann lét eftir sig mikið safn tónlistar og liklega
verður þorri þess verði endurútgefinn þessu ári.
Fyrr í sumar kom út safn
laga frá árunum 1965
til 1976 með Vilhjálmi í ser-
íunni Gullnar glæður frá
Steinum hf. Diskurinn, sem
ber heitið Við eigum sam-
leið, er fyrri af tveimur, sem
ætlað er að gefa sem heil-
legasta mynd af ferli Vil-
hjálms. Seinni diskurinn, I
tíma og rúmi, kemur svo út
í haust. Skífan hefur einnig
sent frá sér Vilhjálm á disk,
því platan Hana nú frá 1977
kom út fyrir skemmstu.
Að sögn Jónatans Garð-
arssonar, sem annaðist út-
gáfuna á safnplötunni,
hljóðritaði Vilhjálmur hátt í
hundrað lög og því af nógu
að taka. Því hefði snemma
verið ákveðið að gefa út tvo
diska. „Þegar ég var búinn
að fara yfir það sem til var
stóð ég uppi með yfir fimm-
tíu lög sem ég hafði áhuga
á að gefa út. Ur þessu völd-
um við Magnús Kjartansson
á tvo diska og-miðuðum við
að hvor diskur spannaði
Söngvaramynd Vilhjálmur Vilhjálmsson
nánast ferilinn og hefði
sæmilega breidd.“ í þessa
útgáfusyrpu Steina vantar
þó upptökur frá því Hana-
nú var tekin upp, en eins
og fram hefur komið hefur
Skífan endurútgefið þá
plötu á geisladisk. Þegar
allt er talið kemúr því á
sjötta tug laga Vilhjálms út
á árinu og er það vel.