Morgunblaðið - 12.10.1991, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 12.10.1991, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991 Á bláþræði . -w __________Leiklist______________ Súsanna Svavarsdóttir Borgarleikhúsið ÞÉTTING Höfundur: Sveinbjörn I. Bald- vinsson Leikstjóri: Hallmar Sigurðsson Leikmynd: Jón Þórisson Búningar: Jón Þórisson og Aðal- heiður Alfreðsdóttir Lýsing: Ogmundur Þór Jóhann- esson Tónlist: Stefán S. Stefánsson Lag Sigurjóns: Sveinbjörn I. Baldvinsson Það er líf að fjara út, smá- slokkna. Ekki bara líf einnar konu, heldur líftími fjöiskyldu. Ólöf er móðirin, Ásgeir er faðirinn og börn- in þeirra, Sigurjón og Dísa, eru fullorðið fólk, hann um þrítugt, hún aðeins yngri. Ólöf er haldin illkynja sjúkdómi. Leikritið hefst á því að hún fær að fara heim af sjúkrahúsi á meðan beðið er eftir niðurstöðum úr rann- sóknum. Sigurjón kemur í heimsókn með konu sína Maríu, Dísa býr er- lendis. Á meðan engar niðurstöður berast, halda feðgarnir, Ásgeir og Siguijón í vonina, en Ólöfu er ljóst að hún er ekki lengur þátttakandi. Fjölskylda hennar er að nálgast endalok og af henni er að vakna ný fjölskylda, nýtt líf. Og hvað er fjölskylda? Til hvers er hún? Siguijón talar um það á einum stað að móðir hans, Ólöf, hafi hald- ið fjölskyldunni saman. Ög það eru orð að sönnu, því eiginmaðurinn og bæði börnin ná sambandi við hana, en ekki hvert við annað. Þau virð- ast alltaf hafa verið í baráttu um athygli hennar og tilfinningar. Feðgarnir eru andstæðingar, systk- inin eru andstæðingar og feðginin virðast þekkjast fremur lítið. Þau sameinast í einu atriði gegn Sigur- jóni — þegar Dísa kemur heim vegna veikinda móður sinnar að því er virðist — en að öðru leyti er ekki sýnt inn í samskipti þeirra. Hún tilheyrir öðrum heimi, öðrum hugsunarhætti — og þótt henni sé velkomið að gista í gamla herberg- inu sínu, er hún í rauninni löngu hætt í þessari fjölskyldu. Atburða- rásin er einföld, átökin augljós, verkið virðist fremur einfalt á með- an á því stendur og persónurnar fremur grunnar. En það er tvennt til í því. Faðirinn og börnin hans taka ekki sameiginlega á sorginni. í stað þess að hlúa hvert að öðru, standa saman og gera sér grein fyrir því að dauðinn er óhjákvæmi- legur, reyna þau að finna sökudólg. Feðginin grípa í það hálmstrá að það sé undir Siguijóni komið hvort Ólöf lifir lengur og afneita því að dauðinn kemur til hennar, hvort sem það er á morgunn eða hinn daginn. Siguijón á í baráttu milli þess að halda áfram sínu lífi, eða fylgja móður sinni að dyrum dauð- ans. Alls staðar eru gerðar kröfur til hans og hann verður að velja. Þegar feðginin ráðast á hann með ásökunum, ræðst hann á þau á móti. Samskiptin eru vítahringur sem þau kunna ekki að_ íjúfa. Það er augljóst að með Ólöfu mun hverfa von þeirra þriggja um að ná saman. Verkið gengur að mestu leyti út frá sambandi Siguijóns og móður hans. Siguijón hefur mikla mýkt. Hann ertónlistarmaður, fremur við- kvæmur og í hjónabandinu með Maríu, virðist hann veikari aðilinn. Hann stendur frammi fyrir því að sanna sig meðal karlmanna, á með- an móðir hans liggur fyrir dauðan- um. í hjarta sínu er hann litli dreng- urinn hennar, það er hann líka í hennar hjarta. Það val sem hann stendur frammi fyrir er ekki val milli móður annarsvegar og samfé- lags og frama hinsvegar, eins og faðir hans og systir vilja meina, heldur val um að verða fullorðinn maður, einstaklingur sem vill bera ábyrgð á framtíð sinni og fjölskyldu sinnar. Undir mýktinni er hann sterkur og sjálfum sér samkvæmur. Hann tekur ákvörðun og stendur við hana, þótt aðrir reyni að ala á sektarkennd hans. Það er Kristján Franklín Magnús sem fer með hlutverk Siguijóns. Til að byija með er Siguijón kátur og ástleitinn við konu sína, Maríu, en það liggur meira í textanum en leiknum. Kristján er of stirður og framsögnin flöt og blæbrigðalaus í þessum senum, hann er jafnvel þvoglumæltur á köflum. Hann vinn- ur þó á, eftir því sem líður á sýning- una og bestu spre'ttir hans eru í þeim atriðum þar sem hann sýnir mýkt, í atriðunum á móti móður- inni. Sverrir Örn Arnarson leikur Siguijón lítinn dreng, drenginn sem lifir í hjarta móðurinnar. Nærvera hans er kyrr og notaleg og við- kvæmnin ekki 'ofgerð. Soffía Jakobsdóttir leikur Ólöfu, móðurina sem allt snýst um. Hún er fárveik, ber sig vel, tekur þátt í blekkingu fjölskyldunnar um að allt verði í lagi um leið og hún reynir að segja þeim að dauðinn sé óhjá- kvæmilegur innan skamms með því að lýsa yfir að hún vonist til að fá að lifa það að sjá barnabarn sitt. Hlutverk Ólafar er ákaflega fallega unnið af Soffiu. íjáning hennar er skýr en tempruð, mildi hennar sterk, nærvera hennar ríkjandi í þessu iengstum þögla hlutverki. Ásgeir, föðurinn, leikur Pétur Einarsson og systurina, Dísu, leikur Sigrún Waage. Þessi tvö hlutverk finnst mér vera veikleiki verksins. Þau eru eintóna og hafa óþarflega litla dýpt. Þau eru of veigamiklar persónur til að það sé réttlætan- legt. Ásgeir er stöðugt að koma úr heimsókn til konu sinnar, eða fara í heimsókn. Því virðast fylgja ótrú- lega lítil átök fyrir hann. Það er gefið í skyn á tveimur stöðum að þetta sé honum erfitt; í annað skipt- ið hellir hann sér í glas úr viskí- flösku, á öðrum stað ræða systkinin það. En áhorfandinn nær engu sam- bandi við sorg hans, kvíða eða ein- semd. Pétur skilar hlutverkinu eins og tilefni er til, en varla var von á meiru. Dísa er alger andstæða bróð- ur síns. Hún er sjálfselskur eigin- hagsmunaseggur sem er kominn í tilfinningavanda. Hún hefur alltaf logið að foreldrum sínum og er í stöðugri spennu nálægt þeim — hún er hrædd um að þau komist að því. Eg skal ekki segja til um hvort til séu svona einhliða „egóistar,” sem dauðinn fær ekki snert, en hvað sem því líður þá var hlutverk- ið það eina sem var illa unnið, í ofanálag. Sigrún Waage var stíf og yfirspennt án þess að ná sambandi við þessa persónu sem átti að því er virtist að vera stíf og yfirspennt. Sigrún var of klemmd í öllum hreyf- ingum til að persónan, Dísa, lifnaði á sviðinu. Það var erfítt að trúa því að hún ætti að vera falleg tískusýn- ingardama á toppnum, því andlits- hreyfingar Sigrúnar voru heftar, andlitið hálf afmyndað. Ekki voru hárgreiðslan og búningarnir til að bæta það. Það var hreint ótrúlegt hvað hægt var að gera þessa fal- legu stúlku ömurlega. Þegar tveimur veigamiklum per- sónum í verkinu er einhliða stillt upp sem andstæðum við Siguijón, á þennan hátt, vantar mótvægi við reiði og spennu, sérstaklega þar sem átök þeirra hvíla ekki einu sinni í návist móðurinnar. Verkið gerir of mikla kröfu til þjáningar og sýn- ingin er því dálítið yfirspennt, hana vantar jafnvægi, sem 'kannski hefði fundist, ef samkennd föðurins og systkinanna andspænis dauðanum, væri einhvers staðar að fínna. Það er of mikil reiði og of lítil sorg. Framan af er atburðarásin fremur hæg og slitrótt, en spennan kemur inn strax í öðru atriði, þegar feðg- arnir mætast — þó ekki spenna í framvindu verksins, heldur tauga- spenna milli tveggja einstaklinga. Maríú, hina konuna í lífí Sigur- jóns; eiginkonuna, leikur Sigrún Edda Björnsdóttir. Sterka konu, sem virðir vinnu, frelsi og athafnir eiginmannsins, stendur með honum á meðan hann stendur við það sem hann segir, og krefst þess sama af honum. Hún er einnig fremur ein- hliða, kannski meira eins og draum- ur um hvernig eiginkona á að vera, en Sigrún Edda skilaði henni að mestu leyti vel, þótt hún mætti fylgja mjög fínni textameðferð sinni aðeins betur eftir með svipbrigðum. Andlitsdrættir voru á köflum of spenntir til að hún næði að fylgja eftir því sem hún var að segja. Hlutverk Ernu hjúkrunarkonu, Gests verkalýsforingja og vinar Sig- uijóns, og Haraldar læknis erú öll smá, en vel unnin, af þeim Ásu Hlín Svavarsdóttur, Theodór Júlíus- syni og Jóni Júlíussyni, sérstaklega hlutverk Haraldar. Leikmyndin er skemmtilega hönnuð og plássið á litla sviðinu vel nýtt. Leikritið gerist á mörgum stöðum og hver staður hefur sitt andrúm með einföldum lausnum og gerir áhorfandanum auðvelt að setja sig inn í aðstæður á hveijum stað. Leikmyndin segir manni meira um einsemd Ásgeirs en handritið, undirstrikar framtíð hinnar nýju Ijölskyldu Siguijóns og er trú verk- inu í því hversu yfirþyrmandi tilvon- andi dauðsfall er í hverri fjölskyldu. Lýsingin var vel hugsuð og í sýning- unni eru margar fallegar myndir, þar sem mætast ljós, litir og glitr- andi þræðir, sem í senn geta verið bláþræðir lífsins og fyrirboði um himneska hörpuhljóma þegar von fjölskyldunnar verður að engu og þjáningum Ólafar lýkur. Tónlistin er eins fíngerð og viðkvæm og þræðirnir, maður bíður allan tímann eftir að hvorutveggja bresti. Bún- ingamir fannst mér ekki sérlega smekklegir, óþarflega litlausir, verstir þó á Dísu; ódýr dragt á moldríkri konunni og fötin fóru illa á Ásgeiri. Allt of síðar buxurnar gerðu hann kauðskann. Leikstjórnin vinnur ekki nóg gegn spennu persónanna, heldur undirstrikar hana. Það er eins og hefði þurft að fínpússa sýninguna, tempra ofsann og skapa meiri kyrrð í kringum dauðann, gera nærveru annarra persóna eins sterka og móðurinnar í stað þess að þröngva þeim upp á áhorfandann. Ég hef það á tilfinningunni að þannig hefðu leikararnir hvílt betur í hlutverkum sínum. --------MH---------- ■ í VETUR mun Taflfélag Reykjavíkur standa fyrir öflugu unglingastarfi. Á hveijum laugar- degi kl. 14.00 verða unglingaæfing- ar fyrir 14 ára og yngri. Æfingum þessum verður skipt upp í tvo þætti, annars vegar skákskýringar og hins vegar skákmót. I skákmótinu eru tefldar 7 umferðir og umhugsunar- tími á hveija skák er 10 mínútur á mann. Einnig verða próf í endatafls- þrautum fyrir þá sem vilja. Verð- laun verða veitt fyrir þijú efstu sætin í hverju móti. Allir eru vel- komnir og aðgangur verður ókeyp- is. Haustmót unglinga hefst laugar- daginn 26. október nk. kl. 14.00 og verður framhaldið þann 2. nóv- ember og lýkur laugardaginn 9. nóvember. Tefldar verðá 9 umferðir (3 hvern laugardag). Umhugsunar- tími er 40 mínútur á mann. Vegleg verðlaun verða veitt fyrir fímm efstu sætin. Þátttökugjald er kr. 700. Skrifstofa Taflfélagsins er opin alla morgna frá kl. 9.00 til kl. 12.00 og mánudaga frá kl. 13.00 til 17.00. Vandaðir ítalskir dömuskór Stærðir 36-41 Teg. 538: 8 cm hælar, leðursólar Gerð: Svart leður Rúskinn: Svart, rautt og dökk-drapp Verö kr. 5.300,- Teg. 667: 7 cm hælar, leðursólar Gerð: Leður, svart og blótt Rúskinn: Svart, grótt, grænblótt og vínrautt. Verð kr. 5.300,- Teg. 585: 4,5 cm hælar, leðursólar Gerð: Leður, svart og blótt Rúskinn: Svart og rautt Lakk: Svart og vínrautt Verö kr. 5.400,- Póstsendum KfílNOLAM B-ia Slm 600345 MILANO LAUGAVEQI61S. 10655 Svissneskur hótel- og ferðamálaskóli 1 árs nám í hótelrekstri. Lýkur með prófskírteini. 2 ára nám í hótelstjórnun. Lýkur með prófskírteini. Námið er viðurkennt af HCIMA. I Námið fæst metið í bandarískum og evrópskum há- ; skólum. 1 árs nám íferðamálafræði. Lýkur með prófskírteini. Námskeið í almennum ferðaskrifstofustörfum. IATA réttindi. Skrifíð til: HOSTA HOTEL AND TOURISM SCHOOL, 1854 D Leysin, Switzerland. Sími: 9041-25-342611 - Fax: 9041-25-341821. Leið til MARKVISSARI ÁKVÖRÐUNARTÖKU * Vefjast ókvorðanir fyrir þér? Áttu erfitt með oð ofmorko vandomólið? * Læturðu aðra toko ókvorðonir fyrir þig? * Viltu öðlgjt betri "skilning ó ókvörðunarferlinu? * Viltu að ókvorðanir þínar verði að jafnaði markvissari? * Viltu þjólfa þig þannig, að þú eigir auðveldara með að taka ókvarðanir? í vetur verða haldin námskeið þar sem kennd verður leið sem stuölar aö markvissari ákvörðunartöku. Á námskeiðinu er farið yfir helstu gildrur, sem flestir ákvörðunartakar lenda í og kynntar leiðir framhjá þeim. Næstu námskeiö hefjast þriðjudaginn 15. október kl. 20.30. og mánudaginn 21. október kl. 16.00. Upplýsingar og innritun í síma 612026. Einnig á kvöld- in og um helgar. Simsvari þegar enginn er við. BETRI ÁKVÖRÐUN Ráðgjafaþjónusta Marínós G. Njálssonar, ________Skipholti 50C, 2. hæð.___ Leiðbeinandi: Marinó G. Njálsson 32 ára reynsla SEH réttindi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.