Morgunblaðið - 12.10.1991, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991
Verðmyndun sjávarfangs:
Yfirnefnd lögð niður og*
fiskverð fijálst í áföngum
Talsmenn hagsmunaaðila í sjávarútvegi styðja breytingarnar
í FRUMVARPI sem sjávarútvegsráðherra leggur fram á Alþingi í
haust verður yfimefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins lögð niður og
verðlagsráðinu heimilað að ákveða fijálst fiskverð með meirihluta-
ákvörðun í stað einróma samkomulags eins gilt hefur. Araar
Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva, segir að sam-
tökin séu sammála þeirri stefnu sjávarútvegsráðherra að boða frjálst
fiskverð í áföngum og að fella niður vald yfimefndarinnar og styðji
því þessa breytingu.
Stjórn Samtaka fískvinnsiu-
stöðva hefur haft frumvarpið til
skoðunar og segir Amar að breyt-
ingin geri ráð fyrir að yfirnefnd,
með ríkisfulltrúa sem oddamann,
geti ekki ákveðið frjálst fiskverð.
Eftir 1. janúar 1993 verði fijálst
fískverð meginreglan en meirihluti
Verðlagsráðs geti þó áfram ákveðið
verð en vægi þess verði mun minna.
„Fiskverð er að nokkra leyti
frjálst í dag. Það má reikna með
að að um 20% botnfiskaflans fari
um fískmarkað og um 80% í gegn-
um bein viðskipti. -Fiskverðin era
mjög misjöfn þannig að með því
að gefa sér rúmlega ár til að þrepa
sig út úr gamla kerfínu sé eðlilegur
aðlögunartími. Auðvitða myndast
verð á þessum tíma. Við styðjum
það að Verðlagsráð starfí áfram í
bréyttri mynd en að áhrif þess
minnki smám saman og verði orðin
mun minni eftir árið,” sagði Amar.
LÍÚ styður breytingarnar
„Við teljum að verðmyndun á
sjávarfangi hafí tekið miklum
breytingum í fijálsræðisátt á und-
anfömum áram. Verðlagsráðsverð-
ið hefur orðið ómarkvisst við þær
breytingar sem orðið hafa og er nú
svo komið að verð á botnfíski, sem
er ákveðið af Verlagsráði, er hvergi
nothæft,” sagði Kristján Ragnars-
son formaður LÍÚ.
„Það er liðin tíð að halda í sama
fískverð því aðstæður era breytiieg-
ar frá einum stað til annars, sem
valda því að það sé eðlilegt að fís-
kverð geti verið breytilegt. Ég
fagna því þessum breytingum og
held að það sé verkefni hvers fyrir-
tækis fyrir sig að leysa þessi mál.
Þau verða ekki leyst á landsvísu
eins og gert hefur verið með Verð-
lagsráðsfyrirkomulaginu.”
Kristján sagði að fískmarkaðimir
væru hluti af verðmyndúnarkerfínu
og þar með breytt forsendum. „Nú
sér maður ákveðna aukningu á físk-
mörkuðunum og þróun þó maður
sjái ekki enn að þeir muni ná til
alls landsins þar sem er kannski
eitt skip og ein vinnsla. Jafnframt
tel ég fráleitt að gera mönnum skylt
að setja físk á markað því það er
engin ástæða til að slita veiðar og
vinnslu þannig í sundur. Fyrirtækin
eiga að geta haft eigin veiðar fyrir
eigin vinnslu og verði ekki gert
skylt að setja fisk á markað eins
og hugmyndir hafa verið uppi um.
Hins vegar verða þessir aðilar jafn-
framt að fínna leið til að ákveða
fískverð vegna þess að sjómennim-
ir eru upp á hlutaskipti og þau
standa á móti verðmæti físksins upp
úr sjó. Þetta er annað vandamál sem
hefur því miður leitt til alvarlegra
Árni Guðjónsson hrl:
Athugasemd við
athugasemd VIS
Árni Guðjónsson hæstaréttarlög-
maður hefur beðið Morgunblaðið að
birta eftirfarandi athugasemd:
„Ingi R. Helgason hrl. forstjóri
Branabótafélags íslands og stjóm-
arformaður Vátryggingafélags ís-
lands hf., segir réttilega í Morgun-
blaðinu 8. þ.m. að það sé óviðeig-
andi fyrir lögmenn að flytja mál, sem
era rekin fyrir dómstólum, jafnframt
í dagblöðum. Þetta tel ég hárétt.
Þegar blaðamaður Morgunblaðs-
ins bar undir mig viðtal, sem hann
hafði átt við eiganda Skíðaskálans,
Carl Jónas Johansen, leiðrétti ég
nokkur atriði í símtali sem blaða-
maður átti við mig og þó ekki nægi-
lega til þess að frásögnin yrði skýr
og greinileg.
Nú hefur Ingi. R. Helgason, for-
stjóri Brunabótafélags Islands og
stjórnarformaður Vátryggingafé-
lags Islands hf., kosið að flytja mál
sitt í Morgunblaðnu, þess vegna vil
ég skýra fra'staðreyndum málsins í
hnotskurn.
Skíðaskálinn hf., sem brann hinn
20. janúar 1991; var í skuld við
Branabótafélag Islands vegna ið-
gjalds af branatryggingu hússins.
Það iðgjald var í innheimtu í upp-
boðsrétti Árnessýslu, ásamt öðram
skuldum og hafði þar forgang skv.
lögum. VÍS hf. er nú smátt og smátt
að greiða hústrygginguna.
Eigandi rekstursins í Skíðaskálan-
um, Carl Jónas Johansen, keypti
tryggingu fyrir innbú, vöralager,
rekstrarstöðvun o.fl. hjá Vátrygg-
ingafélagi Islands hf. Trygging þessi
var keypt frá 1. október 1990. Carl
Jónas gat ekki greitt fyrir þessa
tryggingu í úppháfí, kr. 92:123, áém
var iðgjaldið, en með samningi við
umboðsmann VÍS hf. greiddi hann
í nóvember kr. 100 þúsund fyrir
þessa tryggingu með tékkaávísun,
sem stíluð var á Vátryggingafélag
íslands hf. og mátti innleysa hinn
5. desember 1990. Svo vargert. VÍS
hf. notaði hinsvegar ekki greiðsluna
eins og stílað var, heldur lét þessa
greiðslu ganga til Branabótafélags
Islands upp í skuld vegna Skíða-
skálahússins, sem var í innheimtu-
meðferð í uppboðsrétti ÁmessýslU á
Selfossi, eins og áður segir. Vá-
tryggingafélag íslands hf. telur skv.
framansögðu að Carl Jónas hafi
aldrei borgað eina krónu í iðgjald
af innbústryggingunni. Vátrygg-
ingafélag íslands hf. lét Carl aldrei
vita með einu orði eða bréfí að félag-
ið teldi hann enga vátryggingu hafa
fyrir innbúi, vöralager, rekstrar-
stöðvun o.fl. Carl var því í góðri trú
að tryggingar hans væra í gildi, uns
Vátryggingafélagíslands hf. greiddi
honum rothöggið með því að synja
um greiðslu vátryggingabótanna,
sem nema 20-30 milljónum króna.
— Svona einfaldar era staðreyndir
málsins.
Hér lýkur blaðaskrifum mínum
um vátryggingamál Skíðaskálans.
Um lögmæti, þess að Brunabóta-
félag íslands, sem starfar skv. sér-
stökum lögum, raglaði saman reyt-
um við Samvinnutryggingar Gt. og
8 einstaklinga, og lagði um 100
milljónir í púkkið, svo úr varð Vá-
tryggingafélag íslands hf., án þess
að til kasta Alþingis kæmi, ræði ég
ekki að sinni. Skýring á því stendur
í fleirum en mér.
' Þökk fyrir birtinguna.”
árekstra þar sem sjómenn hafa far-
ið offari og gerst ósanngjamir í
kröfum sínum. Ekki hefur verið
fundin lausn á þessu vandamáli við
þær breyttu aðstæður sem nú
ríkja,” sagði Kristján.
Samræmist óskum sjómanna
Óskar Vigfússon formaður Sjó-
mannasambands íslands, sagði að
þessi ákvörðun ríkisstjómarinnar
væri í samræmi við óskir sjómanna
á undanfömum fjóram áram. „Við
höfum lagt til að almennt fískverð
verði gefíð fijálst en okkur hefur
fundist það ganga hægt. Þó held
ég að þetta sé skref í áttina,”
Óskar sagðist eiga frekar von á
að þýðing fiskmarkaða myndi auk-
ast við þessar breytingar. „Það sem
mér er efst í huga í þeim efnum
er að þá er öllum Islendingum gef-
ið tækifæri á að taka þátt í sjávarút-
veginum með fijálsum aðgangi að
aflanum,” sagði hann.
Staðfestir orðinn hlut
Sigurður Garðarsson, formaður
Félags kaupenda á fískmörkuðum,
sagði að með þessari ákvörðun rík-
isstjómarinnar væri verið að stað-
festa orðinn hlut. „Það er fijálst
fískverð á íslandi,” sagði hann.
Sigurður sagðist telja að þetta
gæti valdið vandræðum hjá þeim
sem kaupa fískinn beint í vinnslu-
hús af skipunum. „Þeir sem kaupa
físk á mörkuðum þekkja ekkert
annað en fijálst fískverð.”
Kvaðst Sigurður telja að fijálst
fiskverð myndi reka þá sem ættu
stóra togara og hefðu aðstöðu til,
að vinna fískinn út á sjó í stað þess
að láta vinna hann í landi, því þar
væra engin vandamál með fískverð-
ið gagnvart sjómönnunum. „Svo er
spuming hvemig fer með útflutning
á óunnum físki því þar er sam-
keppnisstaða íslensku fískvinnsl-
unnar ójöfn og ekkert að marka
fijálst fískverð fyrir bragðið. Er-
lendu fískkaupendumir hafa for-
skot á okkur upp á 10-13%, vegna
þess að þeir hafa yfírvikt sem okk-
ur leyfist ekki. Umboðsmönnunum
erlendis leyfist að svindla á uppgjör-
unum með því að taka 1,6% af vikt-
inni í uppgjöri. Auk þess er ber
okkur að standa skil í Verðjöfnunar-
sjóð hér heima sem gerir okkur
ennfrekar ósamkeppnishæfa við
erlendu fískvinnsluna. Það bendir
því allt til að þetta fari í sitt hvora
áttina, framhjá fiskvinnslunni á ís-
landi. Ég veit því ekki hvort þeir
eru að hugsa þetta fyrir fiskvinnsl-
una eða útgerðarmenn sem era með
fijálst fírskverð hvort sem er. Það
er hvergi á landinu farið eftir Verð-
lagsráðsverðinu í dag,” sagði Sig-
urður.
Morgunblaðið/Sverrir
Brynjólfur Jónsson, framkvæmda-
stjóri Skógræktarfélags íslands, Pálmi
Gíslason, formaður Ungmennafélags
íslands, og Sigurður Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri Ungmennafélags
íslands.
Samvinna ungmennafélaga
og skógræktarfólks:
Gengið í hús með
Skógræktarbókina
Samstarfsverkefni Ungmennafélags íslands og Skógræktarfélags
íslands um bóksölu hefst nú um helgina. Félagsmenn ungmennafélag-
anna munu ganga í hús og bjóða Skógræktarbókina til kaups. Tilgang-
ur samvinnunnar er að styrkja starf félaganna með ágóða af sölunni
en einnig að örva áhuga íandsmanna á tijárækt og stuðla þannig að
bættum og markvissari vinnubrögðum í þeim efnum.
Skógræktarbókin er gefin út í maður Ungmennafélags íslands,
fyrravetur í tilefni af 60 ára afmæli lögðu áherslu á að félögin hefði átt
Skógræktarfélags Islands og í minn-
ingu Hákonar Bjamasonar fyrrum
skógræktarstjóra. Hún er fræðslu-
og leiðbeiningabók en ekki ætluð
sérstaklega til kennslu. Engu að síð-
ur sagði Brynjólfur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags ís-
lands, á kynningarfundi félaganna
tveggja að eftirspum hefði verið eft-
ir henni í einstaka skólum þar sem
áhersla væri lögð á tijárækt enda
mætti nota hluta hennar sem
kennslubók. Hins vegar sagði hann
að í bígerð væri að gefa út bækling
um skógrækt til kennslu í grannskól-
um. Bæklingurinn væri almennt orð-
aður og mætti nota í tengslum við
ýmis verkefni.
Brynjólfur og Pálmi Gíslason, for-
gott samstarf á undanfömum áram
til dæmis hvað varðaði þriggja ára
verkefni Ungmennafélaganna sem
hlotið hefur nafnið Fósturbörn. Verk-
efnið er fólgið í því að ungmennafé-
lög velja sem fósturböm sem geta
verið fjara sem hreinsuð er reglu-
lega, vegarkafli sem hreinsað er
meðfram, land til uppgræðslu,
gróðursetning í ákveðið landssvæði
eða hefting foks. Verkefnið hófst í
fyrra en af þeim 212 félögum sem
tóku þátt í verkefninu völdu 87 félög
verkefni á svið skógræktar.
Skógræktarbókin er 247 blaðsíð-
ur, prýdd fjölda ljósmynda og teikn-
inga. Ritstjóri bókarinnar er Haukur
Ragnarsson.
Samstarfsnefnd námsmannahreyfinganna:
Mótmælir fyrirhuguð-
um breytingum á LIN
S AMSTARFSNEFND námsmannahreyfinganna lýsir yfir andstöðu sinni
við fyrirhugaðar breytingar stjórnvalda á námslánakerfinu sem fram
koma í skýrslu nefndar sem hefur endurskoðað lög um Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna.
I fréttatilkynningu frá nefndinni
segir að Lánasjóðurinn hafi hingað
til verið jöfnunartæki sem hafi gert
öllum kleift að fara í nám. Nái hug-
myndir stjómvalda hins vegar fram
að ganga, sé beinlínis verið að koma
í veg fyrir að -ungt fólk í landinu
leiti sér menntunar. Samstarfsnefnd-
in segist hafa marglýst yfir vilja sín-
um til að ræða við stjómvöld um
Lánasjóðinn. Hún hafi átt von á til-
lögum um lagfæringar á núverandi
kerfí en hafí fengið í hendumar hug-
myndir að nýju kerfi sem gangi þvert
á þær jafnréttishugmyndir sem nú-
verandi kerfí byggist á.
(Fréttatilkynning.)
15 listamenn opna Sneglu
LISTHÚSIÐ Snegla, Grettisgötu
7, Reykjavík, opnar laugardag-
inn 12. október.
Þar verða listmunir til sýnis og
sölu, unnar af 15 listakonum sem
vinna í textfl, keramík og skúlptúr.
Listhúsið Snegla verður opið mánu'-
daga til föstudaga kl. 12-18 og
laugardaga kl. 10-14.
Þær sem að listhúsinu standa
eru: Amfríður Lára Guðnadóttir,
Björk Magnúsdóttir, Elísabet Þor-
steinsdóttir, Erna Guðmarsdóttir,
Guðrún J. Kolbeins, Helga Pálína
Brynjólfsdóttir, Herdís Tómasdótt-
ir, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Ingi-
ríður Óðinsdóttir, Ingunn Ema
Stefánsdóttir, Jóna S. Jónsdóttir,
Sigríður Kristinsdóttir, Sonja Hak-
ansson, Vilborg Guðjónsdóttir og
Þuríður Dati Jónsdóttir.