Morgunblaðið - 12.10.1991, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991
21
S AS vildi nota einka-
leyfi á Norðurlöndum
- til að ná yfirburðum á Islandi
eftir Pétur J.
Eiríksson
Scandinavian Airlines System hef-
ur boðið til fjölmiðlaveislu á íslandi.
Margir hafa komið og tekið til máls
og sumt hefur verið sagt af viti og
sumt af minna viti eins og gengur
og gerist.
Aðalatriði málsins er þetta:
Hér á að ríkja frjáls samkeppni
milli fyrirtækja, innlendra og er-
lendra, og íslensk fyrirtæki eiga ekki
að njóta sérstakrar verndar yfírvalda
nema með einni undantekningu: Yfir-
völd eiga að tryggja að íslensk fyri-
tæki njóti sömu samkeppnisaðstöðu
á erlendum mörkuðum og erlend fyr-
irtæki njóta hér.
SAS nýtur einakleyfis á mörgum
flugleiðum milli landa Skandinavíu.
Þetta einkaleyfí getur félagið notað
eða misnotað til að styrkja sam-
keppnisaðstöðu sína.
Nýlega fengu Flugleiðir sam-
þykkta lækkun helgarfargjalda til
þeirra borga í Skandinavíu sem fé-
lagið flýgur tii. SAS ákvað að bjóða
sama gjald en að útvíkka skilmála
þess og láta það gilda til níu annarra
staða í Skandinavíu sem Flugleiðir
fljúga ekki til. Látið var í veðri vaka
að þótt Fiugleiðir tækju upp þá skii-
mála sem SAS óskaði samþykktar
á, myndi SAS ekki taka við farþegum
Flugleiða til framhaldsflugs til þess-
ara níu staða nema á hærri gjöldum.
Þannig átti að nota einkaleyfi SAS
í Skandinavíu til að ná samkeppnis-
yfirburðum á íslandi. Á þetta gátu
íslensk yfirvöld að sjálfsögðu ekki
fallist.
Morgunblaðið spyr í leiðara sl.
þriðjudag hvort banna eigi erlendum
bönkum eða tryggingafélögum að
starfa á íslandi ef þau bjóða betri
kjör en íslensk.
Auðvitað er svarið nei. Erlendir
bankar og tryggingafélög og flug-
félög eiga að fá að starfa hér og
keppa við íslensk fyrirtæki á meðan
íslenskir bankar og tryggingafélög
og flugfélög njóta sömu réttinda til
samkeppni erlendis. Sama á að gilda
um flugfélög.
Pétur J. Eiríksson
„Látið var í veðri vaka
að þótt Flugleiðir tækju
upp þá skilmála sem
SAS óskaði samþykktar
á, myndi SAS ekki taka
við farþegum Flugleiða
til framhaldsflugs til
þessara níu staða nema
á hærri gjöldum. Þann-
ig átti að nota einka-
leyfi S AS í Skandinavíu
til að ná samkeppnisyf-
irburðum á Islandi.
Samgönguráðherra, Halldór
Blöndal, tók djarfa ákvörðun í þessu
máli. Eg tel að sagan muni dæma
þessa ákvörðun rétta.
Ef við ætlum að búa áfram í þessu
landi verðum við að láta tilfinninga-
pólitík víkja fyrir raunsæispólitík.
Það verða bæði Heimdellingar og
Neytendasamtökin að skilja.
Höfundur er framkvæmdastjóri
markaössviðs Flugleiða.
*
Friðsælla í Irak
Svo virðist sem ró sé að færast yfir norðurhluta íraks á ný en harðir bardag-
ar hafa geisað þar á undanförnum dögum milli Kúrda og íraskra stjórnarher-
manna. Talsmaður Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna í Genf sagði
í gær að 70 vörubílar hlaðnir birgðum til að undirbúa flóttamenn undir
veturinn hefðu komist yfir landamærin frá Tyrklandi til Norður-íraks án
nokkurra vandræða. írakar og Kúrdar undirrituðu vopnahléssamkomulag
síðastliðinn þriðjudag eftir harða bardaga. Á myndinni má sjá Kúrda grýta
lík stjórnarhermanna sem teknir voru af lífi í borginni Suiamaniyah.
Parket er gólfefni frá náttúr-
unnar hendi, -endingargott,
-auðvelt í þrifum og hentugt á
allar tegundir gólfa. Við hjá
Parketgólf bjóðum nú "Upofloor
borðaparket á sérstöku haust-
tilboðsverði meðan að birgðir
endast. "Upofloor" parketið er
finnskt borðaparket í
hœsta gœðaflokki,
þurrkað eins og
o - '6-
1
þarf fyrir okkar aðstœður, með
þykkum harðviðar slitfleti.
"Upofloor" parketið er auðvelt
að leggja og það þarf ekki að
lakka eftir lögn. Innbrennd
lakkáferð gerir "Upofloor" að
sterku og ertdingargóðu parketi
sem auðvelt er að þrífa.
Iifeas-
PARKETgólf hf.
Skútuvogi 11, 104 Reykjavík, sími: 91-67 17 17