Morgunblaðið - 12.10.1991, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991
23
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
Glæsilegnr árangnr
Þegar íslenzka landsliðið í
brids kleif topp Esjunn-
ar, sem var hluti af þrek- og
úthaldsþjálfun þess, datt
fáum í hug, ef nokkrum, að
það myndi einnig klífa þrítug-
an hamar heimsmeistara-
mótsins í Yokohama í Japan
og ná tindinum, heimsmeist-
aratitlinum. En nú hafa þessi
undur og stórmerki gerzt.
Með glæsilegum sigri á Pól-
verjum á endaspretti heims-
meistaramótsins í brids hefur
landslið íslands, fulltrúar
einnar fámennustu þjóðar
heims, borið hærri hlut í við-
ureign við umheiminn. ís-
lendingar hafa eignast sína
fyrstu heimsmeistara, heims-
meistara í brids.
Það orkar ekki tvímælis
að sigurinn í Yokohama er
ómetanleg auglýsing fyrir ís-
land; landkynning, sem hefur
mikið gildi og á eftir að skila
sér með margvíslegum hætti.
Drengileg og háttvís fram-
koma íslenzku spilaranna á
heimsmeistaramótinu, sem
rómuð er í erlendum fjölmiðl-
um, gerir og sigurinn þyngri
á metum sem landkynningu.
Leiðin að heimsmeistara-
titli sem þessum er bæði löng
og ströng. Hinir nýbökuðu
heimsmeistarar eiga allir að
baki langan og glæsilegan
feril sem áhugamenn í íþrótt
sinni. Það er og vitað að und-
irbúningur landsliðssveitar-
innar fyrir heimsmeistara-
mótið var með sérstökum
ágætum. Landsliðsfyrirliðinn
og landsliðið tóku verkefni
sitt föstum tökum. Ströng
æfingamót fóru fram og fjöl-
margir fundir voru haldnir
um baráttuaðferðir og sagn-
kerfi, auk þess sem rík
áherzla var lögð á þrek- og
úthaldsþjálfun. Sigurinn var
því verðskuldaður, þótt hann
kæmi skemmtilega á óvart.
Bakgrunnur hans felst í per-
sónubundinni hæfni og vel
hugsuðum og vel heppnuðum
undirbúningi. Hann er þvi
vegvísir um það, hvern veg
staðið skal að undirbúningi
móta af þessu tagi.
Arangur landsliðsins í
brids er ekki aðeins ómetan-
leg landkynning út á við.
Ilann hefur og mikil áhrif hér
heima. Áhuginn á heims-
meistaramótinu fór eins og
eldur í sinu um byggðir lands-
ins. Brids-vakning sagði til
sín í samfélaginu. Vörur
tengdar brids runnu út í
verzlunum eins og heitar
lummur. Fólk reif sig upp um
miðjar nætur til að fylgjast
með sjónvarpssendingum frá
mótinu. Vinna var sums stað-
ar í lágmarki þar sem fólki
gafst kostur á að fylgjast
með lokalotunum á skjánum.
Peningagjafir streyma til
Bridssambandsins, sem
stendur í ströngu við að fjár-
magna íslenzka þátttöku í
heimsmeistaramótinu. Og
það fer vel á því að sveitarfé-
lög, fyrirtæki og einstakling-
ar sýni hug sinn til hinna
nýbökuðu heimsmeistara með
því styrkja Bridssambandið
ijárhagslega á þessum tíma-
mótum.
Það er ekki á hveijum degi
sem Davíð sigrar Golíat á
vettvangi sem þessum. Og
það er vissulega saga til
næsta bæjar þegar dverg-
þjóð, eins og Islendingar,
sækir heimsmeistaratitil í
flokkaíþrótt, eins og brids-
íþróttin er, í hendur milljóna-
þjóða með jafn glæsilegum
hætti og raun ber vitni. Hinir
nýbökuðu heimsmeistarar í
brids hafa fært okkur og öðr-
um heim sanninn um það, að
fjölmenni þjóðar skiptir ekki
öllu máli, þótt þungt sé að
jafnaði á vogarskálum tilver-
unnar. Hæfnin, menntunin,
þekkingin, undirbúningurinn,
úthaldið, hugarfarið og
vinnulagið ráða oftar en ekki
úrslitum og lyktum mála.
Af þeim sökum er íslenzk-
ur heimsmeistaratitill í brids
ekki aðeins ómetanleg aug-
lýsing og landkynning út á
við. Hann er jafnframt og
ekkert síður vegvísir inn á
við. Ekki aðeins fyrir íþrótta-
fólk, sem keppir fyrir Islands
hönd á hinum ýmsu leikvöng-
um heimsbyggðarinnar. Ekk-
ert síður fyrir landsfeður og
landsmenn almennt, sem nú
stríða við stærri þjóðmála-
vanda en nokkru sinni fyrr í
sögu lýveldisins. Þar skipta
hæfnin, þekkingin, sam-
heldnin, úthaldið og vinnu-
lagið einnig meginmáli.
Morgunblaðið þakkar hin-
um nýju íslenzku heimsmeist-
urum stórglæsilega frammi-
stöðu og árnar þeim og Brids-
sambandi íslands allra heilla
í framtíðinni. ’
ISLENDINGAR HEIMSMEISTARAR I BRIDS
Jón Baldursson og Guðlaugur R. Jóhannsson fagna heimsmeistaratigninni.
Allur bridsheimurinn
fagnar þessum úrslitum
- sagði Ernesto d’Orsi, forseti Alþjóðabridssambandsins,
þegar hann afhenti íslensku bridsmönnunum Bermúdaskálina
Yokohama, Japan. Frá Guðmundi Sv. Hermannssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
ÍSLENDINGAR eru heimsmeistarar í brids og handhafar Bermúdaskál-
arinnar, eftirsóttustu verðlauna bridsíþróttarinnar, eftir að hafa unn-
ið Pólverja í úrslitaleika heimsmeistaramótsins I Yokohama í Japan í
gær. Þrátt fyrir að Pólverjarnir reyndu sitt ýtrasta í síðustu lotu leiks-
ins, til að snúa honum sér í hag, tókst íslenska liðinu að verja foryst-
una sem það tók strax í fyrsta spili úrslitaleiksins, og vinna með 415
stigum gegn 376. Islendingar eru aðeins sjötta þjóðin í 40 ára sögu
Heimsmeistaramótsins til að vinna það.
„Þetta var ótrúleg tilfínning,”
sagði Bjöm Eysteinsson, fyrirliði
íslenska liðsins, eftir að hafa tekið
við Bermúdaskálinni fyrir hönd ís-
lenska liðsins úr hendi Emesto
d’Orsi, forseta Alþjóðasambandsins,
við hátíðlega athöfn í gærkvöldi.
íslendingunum var ákaft fagnað
þegar þeir tóku við verðlaununum,
og margir töldu, að þeir væru vin-
sælustu sigurvegarar í sögu heims-
meistaramótsins.
Emesto d’Orsi var mjög ánægður
með sigur íslendinga á Heimsmeist-
aramótinu. „Allur bridsheimurinn
fagnar þessum úrslitum. íslensku
Sænskur bridsfræðingur:
Sigur íslendinga er
íþróttafrétt aldarinnar
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
SÆNSKIR bridsfræðingar segja að sigur íslendinga í heimsmeist-
aramótinu í brids í Japan sé heimsviðburður sem eigi sér engan
sinn líka.
„Þetta er einsdæmi, ég hef aldr-
ei upplifað nokkuð þessu líkt,”
sagði Tommy Guldberg, sérfræð-
ingur Svenska Dagbladet í síma-
samtali frá Jápan. Hann sagði að
aðeins nokkur hundmð manns spil-
uðu brids á íslandi en næstum því
ein milljón í Svíþjóð. í jafnri viður-
eign í undanúrslitum hefði sænska
landsliðið tapað óvænt fyrir ís-
lenska liðinu.
Yeðmangari í Bretlandi taldi fyr-
irfram ekki meiri líkur en 1 á móti
50 að íslendingar lékju til úrslita í
Yokohama. Veðmangarastofunni
þótti bandarísku sveitirnar sigur-
stranglegastar, möguleikar þeirra
voru taldir 1 á móti þremur og 1
á móti 4. Möguleikar Pólveija á
úrslitasæti vom taldi 1-7, Brasilíu-
manna 1-9, Svía 1-9 og Breta 1-10.
Að sögn Tommy Guldbergs er sig-
ur íslands enn merkilegri í ljósi
þess að íslenska liðið hefði tapað
fyrir sænskum félagsliðum á mót-
um í Svíþjóð.
Annar sænskur bridsfræðingur,
Lars Philipsson, hikar ekki við að
segja að sigur Islendinga á heims-
meistaramótinu í brids sé íþrótta-
frétt aldarinnar, ekkert í sögu
bridsins jafnist á við þennan at-
burð. Fastlega má búast við því
að íslensku spilurunum verði boðið
á stærri bridsmót í Svíþjóð í vetur.
spilaranir komu vel fyrir, spiluðu
stórvel og hegðuðu sér á allan hátt
eins og góðum íþróttamönnum
sæmir. Og eins og þeir spiluðu í
úrslitaleiknum hefði ekkert lið getað
unnið þá,” sagði d’Orsi.
Spilaramir voru famir að átta sig
á að þeir væm orðnir heimsmeistar-
ar í brids í gærkvöldi. „Ég veit satt
að segja ekki hvort ég trúi þessu
enn,” sagði Guðlaugur R. Jóhanns-
son. „Þetta er ótrúlegt en satt,”
sagði Jón Baldursson. Og Aðal-
steinn Jörgensen sagðist varla vita
hvemig hann ætti að bregðast við
sigrinum .
Þorlákur Jónsson sagði, að á
seinni stigum mótsins hefði liðs-
mennimir verið orðnir afslappaðir.
„Við hefðum alveg getað sætt okk-
ur við að tapa einhverjum úrslita-
leiknum. Og um leið settum við
meiri pressu á andstæðingana.”
Örn Arnþórsson sagðist halda,
að ísland hefði átt sigurinn skilið.
„Pólska liðið sem við spiluðum úr-
slitaleikinn við, var ekki af þeim
styrkleika sem virtist í fyrstu. Að
auki vora Pólveijarnir þarna að spila
við þjóð, sem allir héldu með, auk
þess sem þeir voru búnir að lenda
í ýmsum viðkvæmum deilumálum,”
sagði hann.
Jón Baldursson sagði að íslenska
liðið hefði lagt sig fram um að reyna
að skapa vingjamlegt andrúmsloft
við borðið í úrslitaleiknum, eins og
yfírleitt ríkir á bridsmótum á ís-
landi. „Pólveijarnir nærast á bar-
daga og þeir eru alltaf að keppa
við óvini sína. En við brostum bara
til þeirra og þeir eru óvanir að spila
undir þannig kringumstæðum,”
sagði Jón.
Fáir, og varla heldur liðsmennirn-
ir sjálfír, áttu von á að ísland næði
þessum árangri í Yokohama. En
Aðalsteinn Jörgensen sagði að við
undirbúning liðsins fyrir mótið hefði
Gunnar Einarsson íþróttakennari
reynt að byggja upp sigurvilja hjá
liðinu með því að hugsa um mótið
fyrirfram, spil fyrir spil, og reynt
að sjá sig fyrir sér á verðlaunapallin-
um. „Þetta reyndum við að gera,
hvort sem það hefur gengið eða
ekki,” sagði Aðalsteinn.
Liðsmennirnir töldu allir, að
Björn Eysteinsson, og það hvernig
hann skipulagði æfíngar liðsins,
hefði haft mest að segja um þennan
árangur, en æfíngarnar byggðust
að miklu leyti á líkamsrækt og fjall-
göngum. „Bjöm reyndi að innprenta
í okkur þann hugsunarhátt, að við
yrðum að ljúka þessu verki. Hvort
sem við vomm að hlaupa, klifra á
fjöll eða spila urðum við að pína
okkur áfram þar til markinu var
náð. Og þetta mót var ekki ósvipað
því að klífa Esjuna,” sagði
Guðmundur Páll Arnarson. „Undir-
búningur fyrir svona mót er yfír-
leitt leiðinlegur og erfiður en Birni
tókst að gera hann skemmtilegan
og við vitum allir og metum hvað
hann lagði á sig við það verk,” sagði
Jón Baldursson. Og Örn Arnþórsson
sagði að það hefði sýnt sig, að út-
hald liðsins hefði verið í góðu lagi,
og enginn liðsmannanna hefði gefið
eftir líkamlega. Liðið hefði einnig
spilað af meiri leikgleði en hann
hefði átt að venjast til þessa og liðs-
heildin verið sterk.
Björn sagði að þetta væri aðeins
hógværð hjá liðsmönnum. „Auðvit-
að var það spilamennska liðsins sem
vann mótið. Ég reyndi aðeins að
hjálpa þeim að spila sinn besta brids
sem lengst. íslenskir spilarar eru
margir mjög góðir, en þeir eru það
ekki alltaf. Auðvitað á undirbúning-
urinn þátt í þessum árangri en einn-
ig stuðningur frá stjórn Bridssam-
bandsins og framkvæmdastjóra
þess,” sagði Björn.
Helgi Jóhannsson, forseti Brids-
sambands íslands, ságði, að hann
væri mjög stoltur af liðinu og því
hvernig liðsmennirnir hefðu komið
fram. „Þeir hlutu velvild allra, og
vöktu eftirtekt fyrir skemmtilega
framkomu og hugmyndaauðgi við
bridsborðið. Við voram búnir að
vinna þetta mót fyrir úrslitaleikinn,
sama hvernig hann hefði farið,”
sagði Helgi.
I úrslitaleiknum tóku íslendingar
snemma góða forystu og juku hana
jafnt og þétt. Fyrir síðustu 32 spilin
af 160 var munurinn 80 stig, og í
keppnisbrids af þessum styrkleika
er nánast útilokað að vinna upp slík-
an mun í 32 spilum. Það var fyrirsjá-
anlegt að Pólveijarnir myndu spila
upp á sveiflur síðasta daginn. Jón
Baldursson taldi að best væri að
svara í sömu mynt, og þá væri
tryggt að sveiflurnar myndu lenda
nokkurn veginn jafnt til hvorrar
hliðar. í fyrri 16 spila lotunni á
föstudaginn spilaði Jón eins og hann
væri 80 stigum undir, og þótt áhorf-
endur væra á nálum í sýningarsaln-
um, reyndist Jón hafa rétt fyrir sér
og lotan endaði 44-37 fyrir Pólveija.
En leikurinn var alls ekki búinn.
Pólveijarnir fengu sérstaka skipun
frá fyrirliða sínum að reyna að nota
eins mikið af blekkisögnum í síð-
ustu lotunni og þeir gætu, og reyna
að búa til sveiflur. Og strax í þriðja
spili byijuðu lætin:
Norður
♦ 9732
¥109863
♦ 94
♦ 98
Vestur
♦ ÁG8
♦ K
♦ ÁG1073
♦ ÁDG7
Austur
♦ 4
♦ G754
♦ K32
♦ K10652
Suður
♦ KD1065
¥ÁD2
♦ D86
♦ 43
Vestur Norður Austur Suður
Zmudz Jón Balicki Aðalst. 1 spaði
Dobl 2 spaðar Dobl Pass
3 tíglar Pass 3 spaðar Pass
4 lauf 6 lauf Pass a. pass 5 lauf Pass
Vestur Norður Austur Suður
Guðm. Szym Þorl. Martens 1 spaði
Dobl 6 tíglar 3 spaðar 4 hjörtu a. pass Pass
Sagnir Guðmundar og Þorláks
voru hálftilviljanakenndar en það
var erfítt að eiga við spilið eftir
hindrunarsagnir Pólveijanna. Guð-
mundur fékk út spaða ög svínaði
fyrir drottninguna í suður, enda var
líklegra að hún væri þar eftir opn-
unina, 1.370 til fslands.
Við hitt borðið ákvað Zmudzinski
að spila upp á sveifluna, þ.e. að
svína fyrir tíguldrottninguna í
norðri, til að vera viss um að spila
ekki eins og gert yrði við hitt borð-
ið. En nú fór spilið einn niður. ís-
land græddi 16 stig, en hefði tapað
16 ef norður hefði átt tíguldrottn-
inguna.
„Þetta var erfíðasta spilið í lot-
unni,” sagði Guðmundur Páll á eft-
ir. „Það var vont að þurfa að opnun-
ardobla og þegar Þorlákur sagði 4
hjörtu var ég kominn upp að vegg.
Ég sagði þá bara 6 tígla og lenti á
löppunum og eftir það trúði ég þvi
ekki að við myndum tapa þessum
leik.”
ísland fékk einnig sveiflu í næsta
spili þegar Pólveijarnir reyndu
þunna slemmu sem tapaðist. Nú
héldu allir að titillinn væri öraggur
en skyndilega fóru Pólveijar að
skora látlaust. Fárveikar opnunar-
sagnir fældu íslendingana úr nokkr-
um geimum sem Pólveijarnir sögðu
við hitt borðið. Þeir náðu að dobla
Jón í 1 hjarta og hirtu 500. Og
Aðalsteinn passaði út 1 grand
rebodlað, sem Pólveijarnir sögðu,
eftir lengstu mínútur á sýningartöfl-
unni í sögu þessa móts, því þeir sáu
allir að hægt var að vinna samning-
inn með yfirslag. Þetta kostaði 15
stig. Og loks fann Guðmundur Páll
ekki réttu leiðina til að hnekkja
dobluðu geimi og þar fónj 14 stig.
Skyndilega munað aðeins 36 stigum
og 4 spil eftir. En þá var öryggi
Pólveijanna þrotið. Síðustu spilin
féllu flest og lotunni lauk með sigr-
aði Pólveija, 74—40 en ísland vann
leikinn.
„Þetta var erfitt,” sagði Guð-
mundur Páll. „Lokin á þessum leik
voru svipuð og í leiknum við Svía.
í báðum leikjunum höfðum við gott
forskot að veija, og það setti á okk-
ur neikvæða pressu. Það er tvíeggj-
að að reyna að taka ekki áhættu,
sérstaklega þar sem Pólvetjarnir
voru bijálaðir og lítið að marka
sagnimar þeirra,” sagði hann.
Og Helgi Jóhannsson var ör-
magna eftir að hafa horft á síðustu
lotuna. „Ég vildi ekki þurfa að upp-
lifa síðustu sextán spilin aftur,”
sagði hann.
Við verðlaunaafhendinguna
fengu íslendingarnir sérlega góðar
viðtökur. Fjöldi fólks bað um eigin-
handaráritanir, þar á meðal and-
stæðingar þeirra úr úrslitaleiknum.
Omar Sharif kom til Jóns og óskaðá,
honum til hamingju. „Það er gott
að sjá að þú hefur lært eitthvað af
að spila við mig,” sagði hann en
eins og menn muna spiluðu þeir Jón
saman á Bridshátíð. „Eina spilið
sem var gott á því móti var þegar
ég spilaði við forsætisráðherrann,”
sagði Omar og hló.
Islendingar eru skyndilega orðnir
stórstjörnur í bridsheiminum og því
fylgja ábyrgð og ýmsar skyldur.
„Það er erfitt að gera sér grein
fyrir því nú í hve miklum mæli, en
nú munu væntanlega streyma inn
tilboð til íslenskra spilara að keppa
í mótum um allan heim, og við því
þarf Bridssambandið að bregðast.
Það er einnig spuming hvort ekki
eigi að gefa bestu spilurunum okkar
tækifæri til að stunda íþróttina af
krafti, á svipaðan hátt og skák-
mönnunum,” sagði Helgi Jóhanns-
son. <
En er þessi sigur einstakur í sinni
röð, eða eiga íslendingar möguleika
á að endurtaka þetta afrek? „Þessi
árangur hér í Yokohama er ekki
heppni og með gott lið er hæglega
hægt að leika hann eftir,” sagði
Björn Eysteinsson.
Alla ævina að læra brids
SAGT hefur verið um brids að hægt sé að vera alla æfina að læra
spilið, alltaf megi finna eitthvað nýtt í því. En til að öðlast lágmarks-
kunnáttu í spilinu þarf ekki að leggja mikið meir á sig en sem svarar
því að læra mannganginn og algengustu byrjanir í skák. Hér verður
reynt að útskýra á einfaldan hátt hvað brids er fyrir þá sem enga
þekkingu hafa á spilinu.
Fjóra þarf til að spila brids, að
vísu eru til þriggja- og tveggjamanna
útgáfur en þær hafa aldrei notið
vinsælda að ráði. Tveir og tveir spila
saman og öll 52 spilin era notuð,
gefíð eitt I einu á Ijórar hendur. Lit-
ir hafa mismunandi vægi í röðinni
spaði, hjarta, tígull og lauf sem hef-
ur minnsta vægið. Háspil hafa einn-
ig mismunandi vægi og eru til nokk-
ur kerfi til að meta styrk gosa,
drottningar, kóngs og áss. Einfald-
asta kerfið kallast Milton-punkta-
kerfið. í því gildir gosinn 1, drottn-
ingin 2, kóngurinn 3 og ásinn 4.
Spilinu má skipta í tvennt, sagnir
og úrspil. Sagnir eru litur/grand,
pass, dobl og redobl. Með sögn seg-
ist sagnhafi ætla að fá ákveðinn
fjölda af slögum, og jafnframt að
sá litur sem hann segir verði tromp.
Þannig segir sögnin eitt hjarta að
hann ætlar að fá sjö siagi með hjarta
sem tromp, eða sögnin eitt grand
að hann ætlar að fá sjö slagi í grand-
samning. Hæsta mögulega sögn er
sjö í einhveiju en með henni ætlar
sagnhafí að fá alla 13 slagina. Sagn-
ir ganga hringinn í kringum borðið
með þann sem situr til vinstri við
gjafara í forhönd. Hver sögn sem
sögð er verður að vera hærri en sú
sem sögð var á undan. Sem dæmi
má nefna að ef forhöndin segir eitt
hjarta verður næsti spilari að segja
einn spaða, eitt grand, tvö lauf
o.s.frv. Sagnir geta ekki gengið eitt
hjarta-einn tígull-eitt lauf sökum
mismunandi vægis litanna sem
greint var frá hér að ofan en grand-
ið hefur hæsta gildið. Þar sem tveir
spila saman hafa sagnir það megin-
markmið að lýsa höndum hvors ann-
ars svo hægt sé að meta hver sé
besti samningurinn á hendur þeirra,
til dæmis trompsamningur ef þeir
eiga saman meirihluta spila í ein-
hveijum lit eða grandsamningur ef
þeir eiga jafnskiptar hendur með
miklu af háspilum. Hvað háspilin
varðar er almennt talið að til að eiga
fyrir sögn á fyrsta sagnstigi, þ.e.
einum í einhveiju, þurfi a.m.k. 12
háspilapunkta. Sögnin pass lýsir litl-
um eða engum háspilum og sögnin
dobl segir að viðkomandi telji að
sagnhafí geti ekki fengið jafnmarga
slagi og hann segist ætla að fá.
Sagnhafí eða félagi hans geta svo
redoblað og segja með því; jú víst,
við fáum þetta marga slagi. Dobl
og redobl hafa áhrif á stigagjöfína
fyrir spilið.
Sagnirnar þijú grönd (9 slagir í
grandsamning), fjögur hjörtu/spað-
ar (10 slagir með þessa liti sem
tromp) og fimm tíglar/lauf kallast
úttektarsagnir eða „game” og gefnir
eru sérstakir bónusar í stigagjöfínni
fyrir að standa þær sagnir. Sögnin
sex í einhveiju er kölluð hálfslemma
og sjö í einhveiju alslemma og einn-
ig era gefnir sérstakir bónusar fyrir
þær sagnir.
Markmiðið með spilinu er að fá
sem flesta slagi. Þegar sögnum er
lokið á sá út sem situr til vinstri við
sagnhafa. Um leið og hann setifr
fyrsta spilið út leggur næsti maður
sín spil upp í loft við borðið og kall-
ast blindur. Sagnhafí spilar með
blindan á móti hinum tveimur sem
spila þá vörn gegn lokasamningnum.
Stigagjöfín í brids virðist nokkuð
flókin við fyrstu sýn en fólk er yfír-
leitt fljótt að komast upp á lagið
með hana. Ef spaði/hjarta era tromp
era gefin 30 stig fyrir hvern slag,
fyrir tígul/lauf 20 stig og fyrir grand
eru gefin 40 stig fyrir fyrsta slaginn
en 30 fyrir hvern hinna næstu. Ef
samningur hefur verið doblaður tvö-
faldast þessar tölur, redobl fjórfaldar
þær. Ef vörnin nær að setja samning
niður, þ.e. sagnhafí fær færri slagi
en hann sagðist ætla að fá, fær vörn-
in 50 stig fyrir hvern slíkan slag.
Ef samningurinn hefur verið doblað-
ur eru stigin hins vegar talin 100
fyrir fyrsta slaginn, 300 fyrir næsta,
500 fyrir þriðja o.s.frv. Redobl tvö-
faldar þessar tölur. Sem dæmi má
nefna að sagnhafi spilar 4 hjörtu sem
eru dobluð. Hann fær ekki nema 8
slagi, þ.e. vantar tvo til að standa
samninginn. Vörnin skráir þá 300
stig til sín fyrir þessa tvo slagi.
Febrúar1991
Björn ráðinn
landsliðsþjálfari
AÐ TITLINUM
í byrjun mars, í kjölfar íslandsmótsins, valdi Björn þrjú pör í landsliðið
Evrópukeppnin
KILLARNEY - ÍRLANDI
15.-29. júní 1991
Fjórar efstu þjóðirnar
komast áfram í heims-
meistarakeppnina í Japan
Heimsmeistarakeppnin 30. sept. -11. okt.
J A P
Stíf líkamsþjálfun
og sagnakerfi æfð.
Spilamennska
bönnuð.
A M A
ÍSLAND 415
Pólland 376
1991
A N
ÍSLAND
Svíþjóð
211
199
Pólland
Brasilía
261
209
Guðlaugur
Aðalsteinn
Guðmundur Þorlákur
1. Bretland impar 546,5
2. Sviþjóð 527
3. Pólland 504
4. ÍSLAND 503
5. ítalia 479
6. Holland 478
7. Sovétrikin 463
8. Frakkland 455
ÍSLAND 271 Argentína 198 Bretland 195 BandarikinA 180
Bandarikin B 184 Svíþjóð 224 Pólland 282 Brasilía 188
W-RIÐILL impar E-RIÐILL: impar
1. ISLAND 254,25 1. Brasilía 254
2. Bretland 241 2. Svíþjóð 252
3. Argentína 217,5 3. Pólland 241,35
4. Bandarikin A 213,25 4. Bandarikin B 223