Morgunblaðið - 12.10.1991, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 12.10.1991, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991 35 ft'lk í fréttum LÖGREGLAN Hættur eft- ir 48 ár í lögreglunni Páll Eiríksson yfirlögregluþjónn, sem ber ekki með sér að vera nýorðinn sjötugur, lét formlega af störfum á miðvikudag eftir að hafa starfað við lögregluna í Reykjavík allt frá árinu 1943, eða í 48 ár. Eins og við mátti búast hélt Böðvar Bragason lögreglustjóri Páli sam- sæti af þessu tilefni, og færði hon- um gjöf sem þakklætisvott fyrir Iangan og farsælan feril í starfi. Ljósmyndari Morgunblaðsins tók myndina við það tækifæri. Morgunblaðið/Ingibjörg. Hraustlegir vaxtarræktarmenn tóku á móti kvenþjóðinni og buðu upp á fordrykk. * Kynnir kvöldins, Rósa Ingólfsdóttir, hafði hann Lúðvík ræstitækni Aðalstöðvarinnar til aðstoðar og fór hann á kostum. SKEMMTANIR 2.000 konur á dömu- kvöldi Aðalstöðvarinnar eftir sig sem hann nefnir Eintal Adams við Drottin og verður í vænt- anlegri ljóðabók sem hann ætlar að senda frá sér. Dansarar frá Dansskóla Auðar Haralds sýndu og því næst kom vaxtarrækt armaðu ri nn Kri stján Óskarsson úr GYM 80 fram og pósaði. Hann sýndi jafnframt ótrú- iega fimi við góðar undirtektir úr salnum. Óhætt er að segja að al- gjör andstæða Kristjáns hafi stigið næst á sviðið en það var söngvarinn Páll Óskar Hjálmtýsson í kvenhlut- verkinu Heidi frá Amsterdam og sýndi hann góða takta í tveimur lögum. Á eftir tískusýningu og söngat- riðum þeirra Rósu Ingólfs, Þuríðar og Hrafnhildar og Bjarna Ara, kom svo rúsínan í pylsuendanum. Það var andfætlingurinn og karlfatafell- an Naughty Nicky, ágætis tilbreyt- ing fyrir kvenþjóðina frá öllum kvenfatafellunum sem komið hafa hingað til lands. Kvöldinu lauk svo með almennum dansleik til kl. 2 og spilaði hljóm- sveitin Upplyfting undir. HÚSFYLLIR var á dömukvöldi Aðalstöðvarinnar á Hótel ís- landi fimmtudaginn 3. október sl. en það voru morgunhænur stöðvar- innar, þær Þuríður Sigurðardóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir, sem stóðu að þessu kvöldi og að sögn Þuríðar var tilgangurinn að kynna Aðalstöðina og að ná til hlustenda KAPELLA S JUKRAHU S SINSIKEFLAVÍK: Sjúkraliðar gáfu altaristöflu stöðvarinnar með nýjum hætti. Bein útsending Aðalstöðvarinnar hófst svo um tíuleytið og var kynn- ir kvöldsins Rósa Ingólfsdóttir. Að loknum söng átta Fóstbræðra og hárgreiðslusýningar sté á sviðið óperusöngvarinn Bergþór Pálsson og söng þijú lög og er óhætt að segja að hann hafi slegið í gegn á dægurlagasviðinu því mikill fögn- uður braust út við lok atriðisins og rigndi yfir hann rósum. Því næst var röðin komin að Ingólfi Guð- brandssyni að flytja minni kvenna og flutti hann m.a. frumsamið ljóð Undirfatasýning karla var einn þáttur í sýningunni. Keflavík. SJÚKRALIÐAR á Suðurnesjum gáfu nýlega altaristöflu ásamt þrem steindum gluggum til kapellu Sjúkrahússins í Keflavík og eru myndirnar eftir Höllu Haraldsdótt- ur gler- og myndlistarkonu í Kefla- vík. Á 10 ára afmæli Sjúkraliðafé- lags Suðumesja fyrir tveimur árum var ákveðið að gefa altarismynd til kapellunnar og var Halla Haralds- dóttir fengin til að vinna verkið. Að sögn Ingveldar Guðmunds- dóttur sjúkraliða var leitað til sókn- arnefnda og safnaða á Suðurnesjum með fjármagnsaðstoð og einnig var staðið fyrir útgáfu jólakorta. Þau voru prentuð í prentsmiðjunni Grágás í Keflavík og stuðningur þeirra Grágásarmanna vó einnig þungt. Kapella sjúkrahússins er mikið notuð; þar fara fram bænastundir og þar eru 80-90 börn skírð á ári. Nýja altaristaflan er unnin í mósaík og uppsetningu önnuðust Þjóðveij- arnir sem settu upp mósaíkmyndina á sundmiðstöðinni og gáfu þeir alla vinnu sínu við verkið. -BB Morgunblaðið/Björn Blöndal Ingveldur Guðmundsdóttir sjúkraliði, til vinstri, afhenti altaristöfl- una fyrir hönd Sjúkraliðafélags Suðurnesja. Til hægri er Valgerður Halldórsdóttir sem tók við gjöfinni fyrir hönd eiginmanns síns Kristjáns Sigurðssonar yfirlæknis. LAUGAVEGUR 26 FYRIR 15 ÁRUM OPNUÐUM VIÐ FYRSTU HUÓMPLÖTUVERSLUN SKÍFUNNAR... NÚ HÖFUM VIÐ OPNAÐ STÆRSTU HLJÓMPLÖTUVERSLUN LANDSINS... MEIRIHÁTTAR OPNUNARTILBOÐ ALLA HELGINA ÓVÆNTAR UPPÁKOMUR OPIO ALLA HELGINA LAUGARDAGA KL. 10-16 SUNNUDAGAKL. 11-17 S AQA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.