Morgunblaðið - 12.10.1991, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991
Meðal verka á sýningu íslensks heimilisiðnaðar verður
veggteppið „Þat mælti mín móðir” eftir Kristrúnu Bene-
diktsson frá árinu 1944. Sigríður Haraldsdóttir og Gerð-
ur Hjörleifsdóttir verslunarstjóri, til hægri, halda á tepp-
inu.
íslenskur heimilis-
iðnaður 40 ára
ÍSLENSKUR heimilisiðn-
aður á fjörutíu ára starfs-
afmæli í dag, laugardag-
inn 12. október. I tilefni
afmælsisins verður opnuð
sýning á afurðum fyrir-
tækisins í húsakynnum
verslunarinnar að Hafn-
^ arstræti 3.
Meðal þeirra muna sem
verða á sýningunni má
nefna útsaumuð og ofín
veggteppi og myndir en
einnig verða sýndar alls
konar sessur sem gerðar
hafa verið frá aldamótum
og fram til dagsins í dag.
Sýningin verður opin frá
klukkan 16-18 í dag, 14-18
á morgun en síðan á venju-
legum verslunartíma.
(Fréttatilkynníng.)
INCÓLFS CAFÉ
OPIÐ FRÁ KL 23.00
INGÓLFSSTRÆTI, SÍMI 1 4 9 4 4
E
LU
DANSLEIKUR
Ath. Snyrtilegur klæðnaður
NILLABAR
JÓN FORSETI og f élagar
Sambandsþing nor-
rænu félaganna
SAMBANDSÞING norrænu félaganna á Islandi verður
haldið að Holiday Inn í Reykjavík dagana 12. og 13
.október nk. Rétt til setu á þinginu hafa yfir 70 fulltrú-
ar frá 43 félagsdeildum auk sambandsstjórnar Norr-
æna félagsins en núverandi formaður þess er dr. Gylfi
Þ. Gíslason, fyrrv. menntamálaráðherra.
Norræna félagið á íslandi
á sér langa sögu, en félagið
verður 70 ára á næsta ári,
stofnfundur þess var hald-
inn 29. september 1922.
Markmið félagsins er að efla
samstarf norrænna þjóða,
einkum í félags- og
menningarmálum. Félagið
vinnur að því að kynna þær
þjóðir, m.a. með því að
stuðla að samskiptum milli
einstaklinga, félagsdeilda
og byggðarlaga á Norður-
löndum.
Norræna félagið er aðili
að Sambandi norrænu
félaganna á Norðurlöndum
og verður eitt megin við-
fangsefni þessa þings að
fjalla um félagsstarf ís-
lensku deildanna í tengslum
við nýja stefnuskrá og
starfsáætlun Sambands
norrænu félaganna sem
samþykkt var á fundi þess
í Finnlandi sl. sumar.
Þær breytingar sem átt
hafa og eiga sér nú stað í
Evrópu hafa eðlilega sett
svip sinn á umræðuna um
norræna samvinnu innan
Sambands norrænu félag-
anna. Mun þingið án efa
fjalla um stöðu Norðurland-
annna sem heildar í þeirri
Evrópu, sem nú er í mótun.
Sambandsþing norrænu
félaganna er haldið annað
hvert ár.
(Fréttatilkynning)
Strassborg:
Sigurður Arni Sig-
urðsson á samsýningu
SIGURÐUR Árni Sigurðs-
son myndlistarmaður tekur
þátt í tveimur sýningum í
Frakklandi.
í júní síðastliðnum tók
Sigurður Ámi þátt í sýning-
unni „Moules Moules”, Skelj-
ar, skeljar, í Miðjarðarhafs-
bænum Sete í Suður Frakk-
landi. Hann sýndi þar ásamt
J.M. Alberola, R. Combas, E.
Dietman, B. Lavier, D. Roth,
G. Friedman og fleirum. Það
var franski listfræðingurinn
Bernard Marcadé sem sá um
að velja verkin á þessa sýn-
ingu.
7. október sl. var opnuð
önnur samsýningin í Strass-
borg, „Entre les Autres” eða
„Meðal annarra”, þar sem
Sigurður sýnir einnig ásamt
8 öðrum myndlistarsmönnum
frá 4 löndum.
Yfirskrift sýningarinnar
þýðir tvennt: Annars vegar
var lögð áhersla á að velja
unga myndlistarmenn sem
taldir eru efnilegir og hins
vegar er verið að stuðla að
því að Strassborg komist á
„myndlistarkort” sameinaðr-
ar Evrópu.
Sýningin stendur til 27.
október í Strassborg en síðan
verður farið með hana til
Þýskalands, Englands og
Portúgals. Sýningarskrá var
MOULIN ROUGE
STAÐUR FYRIR ALLA !
Morgunblaðið/Þorkell
Sigurður Eyþórsson við nokkur verka sinna.
Gallerí einn einn:
Málverkasýning Sig-
urðar Eyþórssonar
MÁLVERKASÝNING Sig-
urðar Eyþórssonar í Gallerí
einn einn, Skólavörðustíg
4, stendur nú yfir.
Sigurður er fæddur í
Reykjavík 29. júlí 1948. Hann
útskrifaðist frá Myndlista- og
Sigurður Árni Sigurðsson
gefín út í tengslum við sýn-
inguna.
Einnig má geta þess að í
Gallerí Ganginum í Reykjavík
hanga nú uppi nokkur verk
eftir Sigurð Árna og Hugues
Reip (Frakkland). Sú sýning
stendur út október.
handíðaskóla íslands 1971 og
var síðan í tvö ár við grafík-
nám við Konunglegu listaaka-
demíuna í Stokkhólmi og við
almennt myndlistarnám þar.
Við nám í Reichenau í Austur-
ríki í málunaraðferðum gömlu
meistaranna 1976 og aftur
’79 og ’82. Sigurður hefur
sýnt í Stokkhólmi og í Austur-
ríki, haldið 6 einkasýningar
og tekið þátt í samsýningum.
Árin 1982-83 var hann með
myndlistarnámskeið á vinnu-
stofu sinni sem þá var í Borg-
artúni 19 í Reykjavík en er
nú í Súðarvogi 7.
Á sýningunni er 21 verk,
unnin á síðastliðnum þremur
árum, málverk og teikningar
unnin eftir strang fígúratíf-
um, ftjálslegum og hefð-
bundnum aðferðum.
Sýningin er opin frá kl. 12
til 19 daglega. Henni lýkur
24. október.
--------*-*-*-------
■ K VENNA DEILD Barð-
strendingafélagsins heldur
basar og kaffisölu sunnu-
daginn 13. október kl. 15.00
í Safnaðarheimili Lang-
holtssafnaðar. Þar verður
margt góðra muna, tilvaldir
í jólagjafir, og einnig happ-
drætti, en eingöngu verður
dregið úr seldum miðum.
•KARAOKE*
VI\SÆLDAIJSTI-\i\
EBH
5 < LAGAHEITI
cn >
1 0 Don't You.
2 0 Born to be wild.
3 0 Long train running.
4 0 Wild Thing.
5 0 Yesterday.
6 0 My way.
7 0 Summer nights.
8 1 The house of the rising sun.
9 0 Take me home.
10 0 New York, New York.
ÖLVER
G l Æ S I B Æ
VITASTIG 3
SÍM1623137
Laugard. 12. okt. Opiö kl. 20-3
í tilefni af 1 árs afmæli Púlsins:
Fram koma:
STÖÐ 2 TÓK ÁSKORUN DV OG SENDIR:
8 MANNA BLÚSSVEIT STARFSMANNA.
STÖÐ 2 SKORAR Á SJÓNVARPIÐ AÐ
SENDA SINN FULLTRÚA TIL ÞÁTT-
TÖKU NÆSTU HELGI í FJÖLMIÐLA-
BLÚSARA-UPPÁKOMUNNI
SÉRSTAKUR GLAÐNINGUR Í TILEFNI
DAGSINS'.
í KVÖLD KOMAST FÆRRI AÐ EN VILJA
- OG ÞVI BORGAR SIG AÐ MÆTA
SNEMMA!
Þökkum qestum, tónlistarmönnum og
velunnurum liöið tónlistarár.
VERKSMIÐJAN VÍFILFELL HF.
SÉRSTAKAR ÞAKKIR!
Sunnudagskvöld:
Hefst kl. 13.30___________ |
Aðalvinningur að verðmæti_________ ?|
;________100 þús. kr._____________ If
Heildarverðmæti vinninqa um — TEMPLARAHOLLIN
_________ 300 þújL kr. Eiríksgötu 5 — S. 20010