Morgunblaðið - 12.10.1991, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTOBER 1991
41
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
891282 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Hvað er BLUP?
Á hveijum morgni les ég Mogg-
ann meðan ég skola niður uppáhalds
komflexina mínu með íslenskri kúa-
mjólk. Þetta er holl athöfn að fæða
andann með Moggalestrinu um leið
og maður nærir holdið. Að loknum
svona heilsusamlegum morgunverði
er maður auðvitað í toppformi og
tilbúinn að takast á við verkefni
dagsins.
En stundum verður eitthvað til
að trufla þessa vanabundnu athöfn.
í þetta skiptið var það blessður
Mogginn, en á síðu 46 voru tvær
óskiljanlegar fréttir um sama efni.
Önnur var með fyrirsögninni: „Út-
tekt á BLUP:” og hin; „Dr. Þorvald-
ur Árnason um niðurstöðu úttektar-
nefndarinnar:” Hmm? hugsaði ég
og renndi augunum yfir textann.
Þá rak ég augun í orð eins og „Bún-
aðarfélag íslands” og „hrossarækt”
og áhugi minn var vakinn.
Hvað skyldi þetta BLUP vera,
hugsaði ég og las greinarnar með
athygli. Og komflexið missti allan
sinn sjarma og mjólkin volgnaði á
diskinum fyrir framan mig meðan
ég leitaði að svarinu. En eftir lestur-
inn var ég engu nær um hvað þetta
BLUP væri, enda fjölluðu greinam-
ar mest um persónulegt skítkast
þeirra sem deildu um notagildi mis-
BLUP-ískra aðferða við hrossarækt
beggja vegna Atlandsála.
Nei, ég hlýt bara að hafa misskil-
ið þetta, hugsaði ég og las báðar
greinarnar aftur. Það hlýtur að leyn-
ast einhver útskýring á þessu BLUP
þama einhvers staðar. Greinamar
ijölluðu um ótilgreindar aðferðir við
hrossarækt, svo mikið var ljóst.
Samt var ekki einu orði eytt á hvað
þetta BLUP hefði með hrossarækt
að gera, — en BLUP-ið var samt
þungamiðja þess sem báðar grein-
amar fjölluðu um. Þetta var greini-
lega hið dularfyllsta mál.
Þá rak ég augun í fáein orð sem
hefðu getað varpað ljósi á málið. í
annarri greininni var vitnað í eldri
grein í „hestaþætti Morgunblaðsins
á íaugardag”. Aha! hugsaði ég og
Góður stjórn-
andi á Bylgjunni
Oft er verið að senda stjómend-
um á frjálsu útvarpsstöðvunum
kaldar kveðjur fyrir óvandað máifar
og fíflalæti í útsendingu. Ég tek
undir þetta að mörgu leyti en þó
er einn að mínu mati sem skarar
fram úr hvað varðar gott málfar,
skemmtilegar frásagnir og' góð lög.
Þetta er Snorri Sturluson á Bylgj-
unni sem fær frá mér góðar kveðj-
ur fyrir öll hans þægilegheit.
Kona úr Árbænum.
leitaði í blaðagrindinni að laugar-
dagsblaðinu, en án árangurs. Það
var víst komið í búrið undir páfa-
gaukinn.
Jæja, en hvað um það — dagurinn
var eyðilagður. Fyrir hugskotssjón-
um mínum svifu óútskýrð hugtök
eins og „BLUP-aðferðir” og „BLUP-
spár” með tilheyrandi „margfeld-
isstuðlum” og „skekkjuvöldum”, svo
ekki sé minnst á möguleikann að
ganga „framhjá Mendelslögmálinu”
þegar menn pæla í þessu
öllu saman.
Mér fannst ég vera svikinn.
Mogginn sem hafði útskýrt fyrir
mér flóknustu fyrirbæri mannlífs-
ins, eins og fjárlagafrumvarpið og
Persaflóastríðið, hafði nú gersam-
lega brugðist hlutverki sínu. Það
sem eftir lifði dagsins vafraði ég
um á vinnustaðnum eins og hug-
sjúkur maður og hugsaði um BLUP
og aftur BLUP. Og það var sama
hvem ég spurði, lesendur Moggans
jafnt sem aðra — enginn hafði hug-
mynd um hvað BLUP gæti verið.
ht.ipkt á BLUP:
f.Nefndin vék sér hjá a<
[ivara gagnrýnisatriðum
sccii- sé.*a Halklór Gu.marsson í llol
«*• rP* ’Íu.W-KSrta™. .
•: .rri.1 * fjrslul'
Þess vegna spyr ég nú Moggann
sjálfan: Hvað er þetta BLUP? Og
ef Mogginn veit það ekki, (sem mig
grunar að sé tilfellið) hver veit það
þá? Því ef sá sem skrifaði greinam-
ar vissi það, þá hlyti hann að hafa
komið þeirri vitneskju einhvers stað-
ar fyrir í annarri hvorri greininni
eða báðum. Nema, svo ég vitni í
greinina sjálfa, að sá hinn sami
skríbent hafi leitað til „garðyrkju-
manna eða kjúklingaræktenda um
ráðgjöf, fremur en til þeirra hrossa-
ræktarráðunauta, sem starfa í dag”.
En einhver hlýtur að vita hvað
þetta BLUP er, þótt almennir les-
endur Morgunblaðsins viti það ekki.
Við bíðum öll í ofvæni eftir ítarleg-
um útskýringum.
Fyrir hönd lesenda Mbl.
J.Á. Steinsson
Ofríki Efnahagsbandalags
bandalagsins í Belgíu.
Reynir tekur upp nokkrar setn-
ingar úr Morgunblaðsgrein minni
24. ágúst. Málið er það að við eigum
rétt á tollfríðindum, ef við látum
þau ganga fyrir um kaup á þeim.
Það er þeirra eigin hagur, því að
án íslensks fískjar myndi verðið
hækka á meginlandinu. EB krefst
hins vegar annars tveggja: Milljarða
króna tollgreiðslna ellegar afnota
af auðlindum okkar. Slíkt er ofríkið.
Magni Guðmundsson.
Velvakandi
Reynir Guðmundsson skrifaði
Velvakanda bréf, sem birt var 5.
október. Það var út af dr. Joseph
Curren, sem ritaði grein í Morgun-
blaðið 24. ágúst sl. Höfundarkynn-
ing blaðsins var ónákvæm. Sjálfur
segir Reynir ranglega að dr. Curren
sé „Ameríkubúi”. Hann er að vísu
fæddur í Bandaríkjunum, en býr
hér í Reykjavík og er að eigin sögn
starfandi prestur við kaþólsku kirkj-
una Landakoti. Hann varði doktors-
ritgerð um innri markað Evrópu-
Þessir hringdu ...
Tópas horfinn
Gulbröndóttur köttur kallaður
Tópas, hvarf úr Safamýrinni, 2.
október. Hann er 1 og hálfs árs,
eymamerktur R-0136 en er líka
með ómerkta hálsól. Þegar talað
er um eyrnamerkingar þá er átt
við að númerin séu tattóveruð inn
í eyra kattarins. Þeir sem hafa
orðið varir við Tópas eru vinsam-
legast beðnir að hringja í síma
687114 eða 606746 sem er vinn-
usími.
Myndavél tapaðist
Um síðustu helgi glataðist
myndavél í brúnu leðurhulstri.
Þrír staðir koma til greina:
Þingvellir, við Laugarvatn eða
Brekkuskógur. Finnandi
vinsamlegast hringi í síma
53305.
Gleraugu týnd
Ólafur tapaði gleraugunum
sínum 3. október sl. Gleraugun
eru með silfurlitaðar stálspangir
og á vinstra gleri er örlítil
sprunga. Finnandi vinsamlegast
hafí samband við Ólaf í síma
38534.
IKOLAPORTINU
FÆRÐU MEIRA FYRIR
KRÓNURNAR ÞÍIMAR!
120 seljendur
meö allt milli himins og jarðar, t.d.:
- 40 Ijósa útiljósasería m/spenni 1190 kr.
- Barbie dót á hálfvirði
- ilmvötn frá 600 kr.
- hræódýr handverkfæri
- sokkar frá 100 kr.
- leikfimisett (bolur og buxur) á 1500 kr.
- pottaplöntur á gjafverði
- 3 Ijósaperur á 100 kr.
- gullkeðjur í metratali
- Apple varalitir og naglalökk, aðeins 200 kr.
- 4 herðatré á 100 kr.
- 75% afsláttur á serivéttum, 4 pakkar á 200 kr.
- bílskúrstjakkar á 3600 kr.
og ótrúlegasta góðgæti fyrir sælkera.
OPIÐ laugardag kl.10-16 og sunnudag kl.11-17.
AF.GEFNU TILEFNI: Vinsamlegast athugið að gestir
fá ekki aðgang fyrir auglýstan opnunartíma.
KOIAPORTIÐ
'
MrfR KaÐStORr
SÉRTILBI 3Ð UIVI HEL GINA:
SVARTI SAUÐURINN - SR. GUNNAR BJÖRNSSON • KR. 350.
JÓIKONN OG SÖNG VINIR HANS • KR. 300.-
ÁSTVINAMISSIR• KR. 500.-
STJÖRNUMERKIN OG ÁHRIF ÞEIRRA * KR. 750.-
BÓKAPAKKAR - 5 BÆKUR í PAKKA • VERÐ FRÁ KR. 350.-
Opiö:
Laugardaga kl. 10-16
Sunnudagakl. 13-17
Virka daga kl. 9-18
HUNDRUB
BQKATITLA
• Barnabækur
• Unglingabækur
• íslenskur fróöleikur
- Æviminningar - Viötaisbækur - Ljóöabækur
- Þýddar skáldsögur - Ástarsögur
• Sakamálasögur o. m. fl.
ERINN
Skjaldborgarhúsinu
Ármúla 23 ,