Morgunblaðið - 12.10.1991, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
LAUGARDAGUR 12. OKTOBER 1991
ÍÞRÓntR
FOLK
■ JÚLÍUS Jónasson, landsliðs-
maður hjá Bidasoa, getur ekki tek-
ið þátt í leikjunum gegn Tékkum.
„Hann kemur aftur á móti heim í
önnur verkefni í vetur,” sagði Þor-
bergur Aðalsteinsson, landsliðs-
þjálfari.
■ KONRÁÐ Olavson hjá Dort-
mund er vinstri hornamaður lands-
liðsliðsins númer eitt, eftir að Jakob
Signrðsson meiddist.
■ MIKLAR líkur eru á að lands-
lið Hvíta-Rússlands komi hingað
til lands á milli jóla og nýárs. HSI
boðið landsliðinu til landsins.
■ FJÖRIR nýliðar eru í landsliðs-
hópnum, sem mætir Tékkum. Sig-
urpáll Aðalsteinsson, KA, Björg-
vin Rúnarsson, Víkingi og Fram-
ararnir Gunnar Andrésson og
Jason Ólafsson.
■ JASON er sonur Ólafs Jóns-
sonar, fýrrum fyrirliða landsliðsins
úr Víkingi.
■ GUNNAR Andrésson var
unglingalandsliðsmaður í knatt-
spyrnu fyrir nokkrum árum. Hann
valdi handknattleikinn frekar en
t knattspyrnuna.
M LEIKIRNIR gegn Tékkum
fara fram í Laugardalshölíinni á
þriðjudag og miðvikudag kl. 20.
■ TVEIR leikmenn Tékkósló-
1 vakíu leika hér á landi. Petr
Baumruk hjá Haukum og Michal
Tonar hjá HK.
■ ÍSLENSKA landsliðið leikur
leiki sína í riðlakeppninni í B-keppn-
inni í Austurríki í Linz. Hollend-
ingar verða fyrstu mótherjar Is-
lands - 19. mars, en síðan verður
leikið gegn Belgíu 21. mars og
'”*Noregi 22. mars.
■ EF íslenska liðið kemst í milli-
riðil verður leikið í Innsbriick 24.,
26. og 27. mars. Leikir um sæti
/ fara fram 29. og 30. mars.
1 ■ MAGNÚS Jónatansson hefur
varið ráðinn þjálfari 2. deildarliðs
Fylkis í knattspyrnu.
■ JÓN Stefánsson úr UFA bætti
sig um tæpar tvær mín. í maraþon-
hlaupi í St. Paul í Minneopolis í
Bandaíkjunum. Hann hljóp á
2:35,01 klst. og varð í 76. sæti.
■ ANDREAS Limpar, landsliðs-
maður Svíþjóðar, sem leikur með
| Arsenai, sagði í gær að hann hafi
| gert mistök þegar hann fór til að
í leika vináttuleik með Svíum í Sviss
í stað þess að leika með Arsenal
gegn Leicester á miðvikudaginn.
„Eg hef beðið Graham afsökunar
að ég fór. Þessi ákvörðun getur
skipt máli fyrir mig í baráttunni
að halda sæti mínu hjá' Arsenal,”
sagði Limpar.
■ LIMPAR óttast nú greinilega
samkeppni frá Jimmy Carter, sem
Arsenal keypti frá Liverpool á 500
þús. pund í vikunni, en þeir leika í
sömu stöðu - sem vængmenn á
miðjunni.
■ TERRY Yorath, landsliðsþjálf-
ari Wales, valdi í gær hinn 17 ára
leikmann Manchester United -
'vRyan Griggs, í landsliðshóp sinn
fyrir Evrópuleik gegn Þýskalandi
á miðvikudaginn. Griggs er sagður
nýr George Best.
■ LIVERPOOL gerði í gær fimm
ára samning við hinn 19 ára Steve
McManaman.
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
„Eg fer með
alla sterk-
ustu menn-
inatil
Austurríkis”
- segir Þorbergur Aðalsteinsson. „Þýðingar-
mikið að við tryggjum okkur sæti í HM í Svíþjóð”
„ÉG er ákveðinn að fara með
aila sterkustu handknattleiks-
menn okkar í B-keppnina í
Austurríki. Það verður ekki
spurt um aldur þegar ég vel
hópinn sem fer þangað, heldur
um styrk,” sagði Þorbergur
Aðalsteinsson, iandsliðsþjálf-
ari í handknattleik. „B-keppnin
hefur geysilega þýðingu fyrir
okkur. Þar verður Ijóst hvort
að við náum að tryggja okkur
farseðilinn til HM í Svíþjóð
1993. Við verðum að komast
þangað.”
Þorbergur sagði að það væri
mikill styrkur fyrir liðið að
Sigurður Sveinsson hafi ákveðið að
gefa aftur kost á sér í landsliðið.
„Það eiga fleiri gamalkunnir refir
eftir að koma. Ég stefni að því að
fá einn í hveijum mánuði í hópinn
fram að B-keppninni,” sagði Þor-
bergur og menn vita hvaða leik-
mann hann á við; Einar Þorvarðar-
son, markvörð og skytturnar Kristj-
án Arason og Alfreð Gíslason.
„Það er mikið áfall fyrir okkur
að missa fyrirliðann Jakob Sigurðs-
son. Hann fer í uppskurð og verður
frá í fimm mánuði. Bjarki Sigurðs-
son verður ekki tilbúinn í salginn
fyrr en eftir mánuð,” sagði Þorberg-
ur.
Þorbergur hefur kallað á marga
unga leikmenn til æfmga fyrir tvo
leiki gegn Tékkóslóvakíu í næstu
viku, eins og Axel Björnsson, Sigur-
páll Aðalsteinsson, Björgvin Rúna-
rsson, Jason Ólafsson og Gunnar
Andrésson. „Gunnar er mjög sterk-
ur leikmaður. Hann var einn albesti
leikmaðurinn á heimsmeistaramót-
inu í Grikklandi á dögunum,” sagði
Þorbergur.
„Framtíðin er björt fyrir heims-
meistaramótið á íslandi 1995. Við
eignumst ekki aftur þijá sterka
árganga í röð eins og við eigum nú.”
Landsliðs-
hópurinn
Leikmennirnir sem Þorbergur
Aðalsteinsson hefur kallað saman
fyrir leikina gegn Tékkum:
Guðmundur Hrafnkelsson, Val
Sigmar Þ. Óskarsson, ÍBV
Bergsveinn Bergsveinsson, FH
Axel Björnsson, Stjörnunni
Konráð Olavson, Dortmund
Birgir Sigurðsson, Víkingi
Gústaf Bjarnason, Selfossi
Sigurður Sveinsson, FH
Björgvin Rúnarsson, Víkingi
Héðinn Gilsson, Diisseldorf
Einar Sigurðsson, Selfossi
Sigurður Bjarnason, Grossw.
Óskar Armannsson, Ossweil
Gunnar Andrésson, Fram
Patrekur Jóhanness., Stjörnunni
Sigurður Sveinsson, Selfossi
Júlíus Gunnarsson, Val
Jason Olafsson, Fram
BLAK / ISLANDSMOTIÐ
Guðmundur
Helgi
Þorsteinsson
skrifar
Langt er síðan margfalt meist-
aralið Þróttar hefur byijð jafn
illa í íslandsmótinu í blakiTtarla og
núna. í miðviku-
dagskvöld mátti lið-
ið sætta sig við ann-
að tapið á tímabil-
inu, þegar lið HK
skeilti Þrótturum með þremur hrin-
um gegn einni (15-2, 15-13, 12-15,
15-9). HK-liðið var mun betra og
til að byija með yfirspilaði það lið
Þróttar, sem átti í hinu mesta basli
og réð ekkert við mótheijana.
Leifur Harðarson, uppspilari
Þróttar, lék aðeins fyrstu hrinuna,
en hann á við bakmeiðsl að stríða.
Einar Ásgeirsson var einnig frá
vegna meiðsla. Karl Sigurðsson og
Vignir Hlöðversson voru bestir hjá
HK.
Hindrun úr vegi
íslandsmeistarar Víkings í
kvennaflokki sigruðu Blikastúlkur,
helstu keppinautana á undanförn-
um árum, í þremur hrinum gegn
engri (15-4, 16-14, 15-7). Víkings-
liðið, sem var án Sigrúnar Jóhanns-
dóttur, lék skipulega og nær
hnökralaust, en stúlkurnar í UBK
voru þungar.
URSLIT
Skokknámskeið
Sigurðar Péturs
Vetrarskokk
Námskeið fyrir alla sem áhuga hafa á skokki og al-
mennri hreyfingu fyrir byrjendur jafnt sem lengra
komna.
20. Okt. Reykjavík íþróttamiðstöð ÍSÍ, Lougardal kl. 10.00-17.30.
17. Qkt. Hafnartjörður, íþróttahúsið Kaplakrika kl. 10.00-17.30.
Aðalleiðbeinamii: Sigurður Pétur Sigmundsson, maraþonhlaupari
Þátttökugjald: 2 .500 kr. Innifalin gögn, kaffí og léttur hódegisverður
Skráning: í seinasta lagi 3 dögum fyrir nómskeið í sima 91-626380
(dagur) og 91-657635 (kvöld). ‘
Handknattleikur
1. DEILD KVENIMA:
ÍBV-KR......................22:22
Judith Estergal 9, Helga Kristjánsdóttir 8,
Sara Ólafsdóttir 4, Ragna Jenný Friðriks-
dóttir 1 - Sigurlaug Benediktsdóttir 7, Sig-
ríður Pálsdóttir 6, Layfey Kristjánsdóttir
3, Anna Steinsen 2, Áslaug Friðriksdóttir
2, Sara Smart 2.
2. DEILD KARLA:
ÍR-KR.................... 20:18
Jóhann Ásgeirsson 6, Magnús Ólafsson 5,
Sigfús Orri Bollason 3, Ólafur Gylfason 3,
Matthías Matthíasson 1, Frosti Guðlaugsson
1, Róbert Rafnsson 1 - Magnús A. Magús-
son 6, Ingvar Valsson 4, Páll Beek 4, Bjarni
Ólafsson 1, Hilmar Þórlindsson 1, Gísli Ein-
arsson 1.
Völsungur - Þór A........ 20:27
Ögri-ÍII...................17:30
Morgunblaðið/Sverrir
Einar Þorvarðarson, aðstoðarmaður Þorbergs Aðalsteinssonar. Svarar hann
kalli Þorbergs fyrir B-keppnina í Austurríki?
Annað tap Þróttar
BRUIN
Stórglæsilegur árangur
bridsmanna ísiands hefur
glatt hjörtu okkar íslendinga.
Hugur okkar hefur verið í Yoko-
hama í Japan síðustu daga, þar
sem sex snjallir spilarar undir
stjóm fyrirliðans
Björns Eysteinsson-
ar hafa unnið þrek-
virki dag eftir dag
án þess að kvarta
yfir miklu álagi.
Sjömenningarnir
í Japan hafa sýnt
okkur að til að ná
sem lengst í íþrótt sinni, verða
menn að hafa það hugfast út á
hvað hún gengur og það sé
nauðsynlegt að kunna tækni
íþróttarinnar - nýta sér þá
tækni sem þeir hafa yfir að ráða,
til að árangur náist. Þetta verða
íþróttamenn að hafa hugfast.
Leikmenn vérða að læra að
hugsa t.d. knattspymu eða
handknattleik. Menn nota fætur
til að spyrna knettinum og hend-
ur tii að kasta honum, en leikur-
inn er leikinn með höfðinu.
Um leið og íþróttamenn fara
að hugsa um annað en það sem
ræður mestu máli myndast veik-
ir hlekkir í flokkaíþróttaliði.
Hlekkir sem skemma liðsheild-
ina og um leið tilgang listarinn-
ar að leika.
Það er svo hér á landi að liðs-
menn í flokkaíþóttum vantar oft
sjálfsaga og sjálfsgagnrýni. Að
leikmenn sem gera mistök taki
það upp hjá sjálfum sér að æfa
betur og leggja harðar að sér -
ákveðnir að þau mistök endur-
taki sig ekki aftur. Það vill oft
brenna við að margir íþrótta-
menn þoli ekki gagnrýni, stökki
upp á nef sér og kasti sökinni
á aðra. Segja að hinir og þessir
fjalli ekki „fagmannlega” um
það sem þeir eru að gera. Að
þeirra mati skortir alla aðra en
þá dómgreind til að sjá hvað
þeir eru að gera. Þannig hugs-
andi íþróttamenn eru komnir á
villigötur.
Sem betur fer hugsa ekki all-
ir þannig. Besta dæmið um það
eru bridsspilararnir snjöllu, sem
hafa ekki verið að kvarta þó að
þeirra íþrótt hafi ekki verið mik-
ið í sviðsljósinu undanfarin ár,
heldur látið verkin tala. Til að
ná langt þarf mikinn sjálfsaga
og sjálfsgagnrýni.
Knattspyma er einföld íþrótt
Sjálfsagi og sjálfsgagn-
rýni eru nauðsynleg hjá
íþróttamönnum
og það er hægt að ná langt í
henni ef hugsað er rétt út á
hvað leikurinn gengur. Það
sýndi Ásgeir Elíasson, landsliðs-
þjálfari í knattspyrnu, þegar
hinn frækilegi sigur vannst á
Spánveijum. Brids er einnig ein-
falt, en eins og aðrar íþróttir
krefst íþróttin hugsunar og ein-
beitningar.
Bridsmennirnir lögðu mikið á
sig í undirbúningi fyrir átökin í
Japan. Gáfu allan frítíma sem
þeir áttu í þann undirbúning,
án þess að kvarta eða heimta
laun fyrir það sem þeir voru að
fást við. Þeirra mottó er; hvað
get ég gert til að verða betri
og ná árangri. Ekki hvað aðrir
geta gert fyrir þá. Þeir hafa nú
lagt spilin á borðið og uppskorið
ríkulega fyrir hvert skref sem
þeir hafa gengið í þeirri íþrótt
sem hefur veitt þeim mesta lífs-
ánægju. Þeir hafa tekið íþrótt
sína_ alvarlega og gengið yfir
BRÚ - sjálfsaga og sjálfsgagn-
rýni, til að ná árangri.
Hetjurnar við spilaborðið í
Japan vöruðu við of mikilli bjart-
sýni fram á síðustu stundu
sögðust taka hvern slag fyrir
sig. Þegar upp er staðið frá
spilaborðinu er ljóst að bridsspil-
ararnir eru í hópi síðustu áhuga-
manna íslands í íþrótt.um. Þeir
hafa fómað miklu og verðskulda
það svo sannarlega að fá laun
erfiðisins. íslendingar eiga að
vera stoltir yfír að eiga þannig
hugsandi íþróttamenn.
Sigmundur Ó.
Steinarsson