Morgunblaðið - 13.10.1991, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. OKTOBER 1991
Ót
11
Að neðan sést hversu mikil útlán til húsnæðiskaupa hafa verið á síðastliðnum 4 árum og hvaðan þau
koma, auk áætlunar fyrir árið í ár. Allar tölur eru á föstu verðlagi ársins 1991 og eru í milljónum. Rauða
línan sýnir fjölda kaupsamninga þessi sömu ár og miðast hún við kvarðann til hægri við myndina.
Innlánsstofnanir
20 þúsundir
50.000
40.000
30.000
20.000
10.000
5.000 15
Húsbréfadeild
Byggingarsjóður ríkisins
Húsnæðisstofnun
4.000
3.000
10
2.000
^Erlendis
f'Suðurland
S*Austurland
J,Nb eystra
'>«NI. vestra
>Vestfirðir
>Vesturland
T'Reykjanes
'Reykjavík
1.000
’87
’88
’89
’90
’91
Umsóknir Umsækjendur
Að ofan má sjá hvernig skiptingin ^
er milli kjördæma, bæði milli umsókna og?k
r*
<u.
umsækjenda. Til samanburðar er skipting
þjóðarinnar sýnd á bak við hvora súlu um sig.
Til hægri sést pda þeirra, sem fengu greiðslu-
erfiðleikalán, miðað við mánaðartekjur og hreina eign.
þegar húsbréfakerfíð komst á í upp-
hafi.
Ekki hækkað fasteigmaverð
Frá því að húsbréfakerfíð komst
á laggimar hefur alls verið veitt úr
því tæplega 5.800 lánum, þar af
2.272 lánum á síðasta ári og rúmlega
3.600 á þessu ári. Þeir sem Morgun-
blaðið ræddi við um málið voru al-
mennt á þeirri skoðun að þetta kerfi
hefði ekki leitt til hækkunar á fast-
eignaverði nema síður væri. í grein-
argerð starfshópsins sem vinnur að
endurskoðun á kerfinu kemur þetta
m.a. fram og er byggt á upplýsingum
frá Fasteignamati ríkisins.
í bráðabirgðaáliti starfshópsins
kemur fram að hann hafí kannað
ýmsar leiðir til að breyta framkvæmd
fasteignaviðskipta og þeirri af-
greiðslu sem fram fer hjá húsbréfa-
deild Húsnæðisstofnunar ríkisins.
Sérstaklega þurfi að liggja skýrt fyr-
ir hvemig húsbréf em meðhöndluð
í fasteignaviðskiptum og hver ber
kostnað sem e.t.v. kemur upp. Einn-
ig þurfi að stytta afgreiðslutímann
frá því sem nú er en tillögur um
þessi atriði muni liggja fyrir hjá
hópnum síðar.
Starfshópurinn bendir einnig á að
ríkisskattstjóri hafi nú til athugunar
möguieika á að afföll á húsbréfum
til kaupa á notuðum íbúðum geti
veitt skattaafslátt. I greinargerðinni
segir: „Fram hefur komið að þegar
nýbyggingar eiga í hlut er hægt skv.
skattalögum að fá vaxtabætur vegna
affalla sem koma fram við sölu hús-
bréfa á markaði en ekki þegar um
notaðar íbúðir er að ræða. Þess ber
að geta að ríkisskattstjóri hefur til
athugunar möguleika á að afföll telj-
ist til vaxtagjalda vegna vaxtabóta
þegar um notaðar íbúðir er að ræða
... Starfshópurinn væntir þess að fá
skýrslu frá ríkisskattstjóra varðandi
ofangreint atriði til skoðunar fljót-
lega.”
Lítið reynt að svindla í kerfinu
Það sem af er hefur lítið verið
reynt að svindla á húsbréfakerfinu
þótt þess fínnist vissulega dæmi.
Aðallega hefur fólk reynt þrjár að-
ferðir til þessa. í fyrsta lagi að selja
íbúð og kaupa hana strax aftur, í
öðru lagi að selja íbúð en rifta síðan
kaupsamningi þegar húsbréfalánið
er komið í gegn og í þriðja lagi að
tveir aðilar taka sig saman um að
selja hvor öðrum íbúð sína og hirða
síðan lánin sem þeir fá hvor í sínu
lagi. Sigurður Geirsson segir að fyr-
ir utan þetta sé síðan til að fólk reyni
ýmsar aðferðir til að ná í stærra lán
en viðkomandi hefur í raun greiðslu-
getu til, einkum með að segja ekki
frá öllum skuldum sínum.
í máli Sigurðar kemur fram að
það hefur verið tiltölulega auðvelt
fyrir Húsnæðisstofnun að sjá við
þessu svindli. Hvað varðar tvo síð-
asttöldu möguleikana þurfa viðkom-
andi að fá nöfnum breytt á skulda-
bréfunum og stofnunin einfaldlega
neitar að verða við þeim óskum. Sem
dæmi má taka dæmið þar sem tveir
aðilar selja hvor öðrum íbúð sína.
Eftir að kaupin hafa gengið um garð
reyna þeir að rifta þeim og sækja
um að fá að yfírtaka skuldabréfín
hjá hvor öðrum. Stofnunin neitar því
og sitja viðkomandi þá uppi með að
á eignum þeirra eru áhvílandi skuld-
ir sem annar aðili er greiðandi að.
VETUR
DORM!
Verð fyrir fullorðinn í 3 vikurfrá
8000 kr. barnaafs
Vetrarferðir Samvinnuferða- Landsýnar til
Benidorm undanfarin ár hafa notið mikiila
vinsælda og enn gefum við fólki kost á að ná
úr sér vetrarhrollinum á hinni notalegu strönd
Costa Blanca. Ekki dregur úr þægilegheitunum
að verðið er það langbesta sem í boði er!
VIÐ BYRJUM AJ0LAFERÐ
í DESEMBER
Það er samdóma álit allra sem farið hafa í þessar ferðir að þær
eru afskaplega skemmtileg tilbreyting frá hinu hefðbundna
jólahaldi og margar fjölskyldur hafa tekið sig saman og dvalið á
Benidorm yfir jól og áramót.
í janúar höldum við áfram og bjóðum ferðir á þriggja vikna
fresti út veturinn. Á þeim árstíma er afar notalegt veður á
Benidorm.
ENGIRTVEIR DAGAR EINS
Það er hægt að hafa nóg fyrir stafni á Benidorm. Bærinn iðar af
lífi allan ársins hring með fjölda veitingastaða, verslana og
skemmtistaða. íslensku fararstjórarnir sjá um að engum leiðist
og halda lauflétt íþróttamót og kvöldvökur með íslensku sniði.
Hægt er að fara í góðar gönguferðir, taka þátt í félagsvist, skák,
bingói, keilu og svo auðvitað golfinu.
GLÆSILEGARIBUÐIR
Gist er á íbúðarhótelinu Residencia el Paraiso. íbúðirnar eru
með einu svefnherbergi, stofu og eldhúsi. Sími er í íbúðunum
og hægt er að fá sjónvarp. Þar er úpphitun og loftkæling og á
hótelinu er margháttuð sameiginleg þjónusta.
.EKKERT VERÐ"
Verðið er mjög hagstætt. Þannig er staðgreiðsluverð í
þriggja vikna ferð fyrir hvern fullorðinn miðað við 4 í íbúð
aðeins 41.135 kr! Sé miðað við 2 í íbúð er staðgreiðslu-
verðið 47.595 kr. Barnaafsláttur fyrir börn á aldrinum
2-12 ára er 8.000 kr!
Þetta verð er miðað við gengi 1/10 1991 og er án flugvallarskatts og
forfallatryggingar.
\wsssmm
Samvlnniilerðir-Laiiilsj/ii
Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 91 - 69 10 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70 • Símbréf 91 - 2 77 96 • Telex 2241 •
Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Símbréf 91 - 62 39 80 Akureyri: Skipagötu 14 • S. 96 - 27 200 • Símbréf 96 - 2 75 88 • Telex 2195
f-?' " - r*~’ gjgt,J ' ' -Jm