Morgunblaðið - 13.10.1991, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 13.10.1991, Blaðsíða 21
2! MORGtlNBLAfiÖ) 'SUN^?jbAbl!ft513;''cœTÖfeJr: 1991 Vatnslitamyiidir eftir Sigurþór Jakobsson SEXTÁN nýjar myndir eftir Sigurþór Jakobsson myndlistarmann hafa verið gefnar út fyrir árið 1991. Myndirnar eru endurprent af vatnslitamyndum Sigurþórs og eru gefnar út í takmörkuðu upplagi. Þetta er fjórða útgáfa Sigurþórs á eigin myndum á jafnmörgum árum. Að sögn listamannsins hefur hann valið að prenta myndir sínar til þess að gefa sem flestum kost á að njóta þeirra. Margir vilji hafa myndlistarverk uppi á vegg hjá sér án þess að fjárfesta í dýrum mál- verkum og með slíkri endurprentun sé slíkt gert mögulegt. Sérstakir ljósþolnir litir eru notaðir í prentun- ina til þess að myndirnar þoli dags- birtu lengur en venjulegir litir. Myndirnar eru til sýnis og sölu í galleríi og vinnustofu listamanns- ins að Víðimel 61 og er opið alla daga frá klukkan eitt til sex e.h. (Fréttatilkynning.) Sigurþór Jakobsson við hillur með nokkrum mynda hans.. Gríma fundin á Stóru-Borg, lík- lega frá 17. eða 18. öld. ■ NÚ STENDUR yfir í Bogasal Þjóðminjasafns íslands sýning sem ber yfirskriftina Stóra Borg Forn- leifarannsókn 1978-1990. Stóra- Borg er bær undir Eyjafjöllum sem hvað þekktastur hefur orðið fyrir skáldsögu Jóns Trausta um Önnu á Stóru-Borg. Fornleifarannsókn hef- ur leitt í ljós að bær hefur staðið öldum saman á hólnum niður við sjóinn þar sem fornleifafræðingar unnu að einum viðamesta uppgreftri á íslandi á árunum 1978-1990. Þar eru varðveisluskilyrði í jarðveginum afar góð og því'er ákaflega margt muna sem jörðin hefur varðveitt í gegnum aldirnar. Það var Þjóðminja- safn íslands em stóð að rannsóknun- um en Þjóðhátíðarsjóður veitti til þeirra fé. Mjöll Snæsdóttir fornleifa- fræðingur hefur frá upphafi stýrt verki á Stóru-Borg en þar hafa margir lagt hönd á plóg undir henn- ar stjórn. Á sýningunni í Þjóðminja- safninu er merkustu gripimir til sýn- is ásamt teikningum og Ijósmyndum sem varpa ljósi á rannsóknirnar. Sunnudaginn 13. október kl.14.00 verður Mjöll Snæsdóttir fornleifa- fræðingur á staðnum og fylgir gest- um um sýninguna og skýrir hana. (Fréttatilkynning) BOX1464 121 REYKJAVIK SÍMÍ: 91/27644 Handmenntaskóli fslands hetur kennt yfir 1800 Islendingum bæði heima og erlendis á síðastliðnum tíu árum. Hjá okkur getur þú lært Teikningu, Lita- meðferð, Skrautskrift, Innanhússarkitektúrog Garðhúsagerð-fyrirfull- orðna - og Föndur og Teikningu fyrir börn í bréfaskólaformi. Þú færð send verkefni frá okkur, sendir okkur úrlausnir þinar og þær eru sendar leið- réttar til baka. - Biddu um kynningu skólans með því að senda nafn og heimilisfang tiljakkar eða hringdu í sima 27644 núna strax, símsvari tekur við pöntun þinni á nóttu sem degi. -Timalengd námskeiðanna stjórnar þú sjálf(ur) og getur því hafið nám þitt, hvenær sem er, og verið viss um fram- haldið. Hér er tækifærið, sem þú hefur beðið eftirtil þess aö læra þitt áhuga- svið á auðveldan og skemmtilegan hátt. - Nýtt hjá okkur: Híbýiafræði. ÉG ÓSKA EFTIR AÐ FA SENT KYNNINGARRIT HMÍ MÉR AD KOSTNADARLAUSU NAFN. I HEIMIUISF. óhjákvæmilega leiða til verulegrar skerðingar í þjónustu við íbúana skora því á yfirvöld fjármála og heilbrigðismála að tryggja spítalan- um þann .rekstrargrundvöll sem geri honum kleift að sinna svipuðu hlutverki áfram og verið hefur und- anfarin ár. (Fréttatilkynning) Leiðrétting I forsíðumyndatexta í Morgunblað- inu í gær urðu þau mistök að niður féll nafn Aðalsteins Jörgensen eins af heimsmeisturum íslands í brids. Eru hlutaðeigandi beðnir velvirð- ingar á þessum mistökum. ■ SAMEIGINLEGUR fundur í læknaráðum heilsugæslustöðvanna í Hafnarfirði og Garðabæ mótmælir harðlega áformum um að skerða verulega starfsemi St. Jósefsspítaia í Hafnarfirði. St. Jósefsspítali hefur verið byggður upp undanfarin ár sem deiídaskipt sjúkrahús og gegnt slíku hlutverki mjög vel. Spítalinn hefur veitt íbúum nágrannabyggð- anna mjög víðtæka þjónustu og verið ómissandi hlekkur í eðlilegri heilbrigðisþjónustu á svæðinu, ekki síst öldrunarþjónustu. Einnig skal bent á að heilsugæslustöðvarnar treysta á þjónustu stoðdeilda spítal- ans, s.s. röntgen og rannsókna- stofu. Læknaráðin telja að áform um stórfelldan samdrátt í starfsemi St. Jósefsspítala í Hafnarfirði muni Kanaríeyjar eru sumarparadís á veturna. Þess vegna bjóðum við í vetur fleiri ferðir í sólina á Kanarí- eyjum en nokkru sinni fyrr. llmjólin: Tvær ferðir: 19. des.-2.jan. 2 vikur. Verð frá 74.600 kr. á mann m.v. tvo í íbúð á Broncemar. 19. des.-9. jan. 3 vikur. Verð frá 84.000 kr. á mann m.v. tvo í íbúð á Broncemar. Aðrar 23. jan. - 13.feb. 3 vikur. brottfarir: 30. jan. - 20. feb. 3 vikur. 13. feb. - 5.mars 3 vikur. 20. feb. - 12.mars 3vikur. 5. mars - 26.mars 3 vikur. 26. mars - lO.apr. 2 vikur. 12.. mars - 2. apr. 2 vikur. IImpáskana: 2. apr. - 23. apr. 3 vikur. 10. apr. - 24. apr. 2 vikur. Brottför 2. og 9. jan. í3 vikur á sérlega hagstaeðu verði, frá 59.300 m.v. 2 í íbúð, frá 43.940 m.v. 3 í íbúð (hjón með 1 barn 2-11 ára á Los Tunos). 393 sæti seld. Bráðum uppselt í margar ferðir. Hafðu strax samband við þína ferðaskrif- stofu, söluskrifstofur okkar og umboðsmenn um allt land eða í síma 690300 (svarað alla 7 daga vikunnar). M ÚRVAL-ÚTSÝN Sími 60 30 60 í Mjódd. 2 69 00 við Austutvöll FLUGLEIÐIR Allt vcrð m.v. staðgrciðslu ferðakostnaðar og gengi 26. sept. 1991. Flugvallarskattur og forfallatrygging ckki innifalin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.