Morgunblaðið - 13.10.1991, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 13.10.1991, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1991 KASPAROV ER L YÐSKRUMARI „Ég þekki Janajev fyrrverandi varaforseta frá því hann starfaði í Komsomol. Honum þótti gott í staupinu þannig að mér finnst ekki fjar- stæðukennt að hann hafi verið drukkinn mest allan tímann. ” eftir Pól Þórhollsson Myndir: Arni Sæberg Anatólíj Karpov er staðráðinn í að endurheimta heimsmeistaratit- ilinn í skák sem hann missti árið 1985 í hendurnar á Garrí Kasparov, eftir að hafa haldið honum í tíu ár. Þeir höfðu ekki einungis gerólíkan skákstíl heldur þótti og sem þar tækjust á fulltrú- ar nýja og gamla tímans í Sovét- ríkjunum, kommúnistinn og um- bótasinninn. Það er því ekki ein- ungis metnaðurinn sem rekur Karpov áfram heldur og viljinn til að jafna metin í ævilöngu ein- vígi þessara tveggja mestu skák- snillinga okkar daga. Tafl- mennska Karpovs á Heimsbikar- mótinu í Reykjavik hefur sýnt hvers hann er megnugur. „Ka- sparov er á niðurleið,” segir hann. Karpov stendur á fertugu, hann er hagfræðingur að mennt og skrifaði doktorsritgerð um mikil: vægi frístunda í sósíal- ísku hagkerfi. Hann var spurður hvemig hann sjálfur verði frítíma sín- um. „Áhugamálum mín- um sinni ég einkum þegar ég er heima í Moskvu,” svarar Karpov á góðri ensku. „Því miður get ég ekki spilað tennis héma á undan hverri skák eins og ég er vanur. Auk þess hafa margar skákir mínar farið í bið þannig að ég hef ekki átt marga frídaga. Ég safna frímerkjum og ég er með eitthvað af þeim meðferðis því ég kom hingað frá New York þar sem ég keypti athyglisverð merki á uppboði. Venjulega geng ég mikið en hér er svo vindasamt að fyrir skákirnar sit ég mestallan tímann uppi á herbergi við skákrannsóknir. Eins og venjulega bý ég mig undir hverja skák en þar fyrir utan skýri ég skákir mínar fyrir Informator. Hér á íslandi hef ég skýrt tíu nýleg- ar skákir mínar fyrir tímaritið.” In- formator er eitt virtasta skáktímarit heims og er gefið út tvisvar á ári í Júgóslavíu. Þar em birtar merkustu skákirnar sem tefldar hafa verið undanfarna sex mánuði með skýring- um fræðimanna og skákmannanna sjálfra. Karpov í^egist eiga gott safn ís- lenskra frímerkja. „Fyrir fímm eða sex árum keypti ég gott íslenskt safn í Sovétríkjunum og hef verið að bæta við það síðan. Núna á ég næstum öll íslensku frímerkin en mig vantar enn nokkrar gamlar yfir- prentanir. Annars einbeiti ég mér að Rússlandi fyrir byltingu, Sovét- ríkjunum, Evrópuríkjum, Bandaríkj- unum, Japan og Kanada.” Karpov segist ekki veija miklum tíma til skákrannsókna heima fyrir vegna opinberra starfa sinna. Hann er þingmaður á fulltrúaþingi Sovét- ríkjanna, forseti Sovéska friðarsjóðs- ins og formaður alþjóðlegrar nefndar til aðstoðar fómariömbum Tsjemó- byl-slyssins. „Þegar ég er að heiman get ég lítið sinnt þessum störfum nema f gegnum síma þannig að heima fer mikill tími í þau.” En hvernig fer næststerkasti skákmaður heims þá að því að halda sér við í fræðunum? Hefur hann aðstoðar- menn sem safna skákum og vinna úr þeim? „Söfnun upplýsinga er ekki vandamálið. Nú fær maður mikil- vægustu skákimar á gagnadiski. Undanfarin ár hefur Moskvuháskóli unnið að gagnaforritinu Karpov-soft fyrir skákmenn og var ég faglegur yfirmaður hönnunarinnar. Gagna- grunnurinn er yfírleitt sá sami en okkar kerfí er þrefalt hraðvirkara en gömlu forritin.” Annars segist Karpov einkum rannsaka byijanir en síður endatöfl enda hefur hann þegar afburðaþekkingu og skilning á því sviði þótt ekki vilji hann viðurkenna að þar eigi hann fátt ólært. Talið berst nú að heimsmeistaran- um Kasparov. „Ég reyni að komast hjá því að eiga nokkur samskipti við hann,” segir Karpov. „Ég virði hann sem skákmann en ég ber enga virð- ingu fyrir honum sem manneskju.” - Áður fyrr var þvf haldið fram að þú værir holdgervingur gamla tímans í Sovétríkjunum en hann fullrúi breyttra tíma, perestrojku og glasnosts. „Þegar bylting verður í þjóðfélagi, hvort sem hún er friðsamleg eins og nú eður ei, þá spretta upp lýðskmm- arar og Kasparov er einn af þeim. Því miður er hann líka heimsmeist- ari og þess vegna á hann hægara með að ná eyrum fólks.” Beijist þið um völd í sovésku skák- hreyfingunni? „Engan veginn. Kasparov hefur unnið sovésku skákhreyfíngunni mikið tjón. Hann hefur reynt að inn- Viðtal við skákmanninn, hagfræðing- inn, þing- manninn og frímerkjasafn- arann Anatólíj Karpov leiða hætti atvinnuskákmennsku f daglegt skáklíf í Sovétríkjunum. Hann hefur reynt að sýna fram á að skák geti staðið undir sér. Ég, Kasparov og um tuttugu aðrir sov- éskir stórmeistarar geta lifað af skák. En ekki þúsundir og milljónir skákmanna sem hingað til hafa not- ið stuðnings verkalýðsfélaga, fyrir- tækja eða ríkisins. Hugmyndir Kasp- arovs eru því skaðlegar. Fyrir ári ákváðu verkalýðsfélögin að hætta fjárhagsstuðningi við taflfélög. En ég held að fólk eigi eftir að sjá að sér og vil ekki skipta mér af þessu.” Karpov segir að Kasparov hafí reynt að leggja stein í götu sína. „Eftir einvígið 1985 hélt hann að hann þyrfti aldrei aftur að mæta mér í einvígi. Hann flutti opinbera fyrir- lestra í Moskvu þar sem hann sagði að ég væri ekki lengur í fremstu röð og væri tímabært að ég yrði sviptur opinberum embættum mínum. En 1988 þegar ég var kjörinn til setu á fulltrúaþinginu gafst hann upp.” - Þegar Kasparov var hér á heimsbikarmótinu fyrir þremur árum sagði hann í viðtali við Morgunblaðið að hann væri svo önnum kafinn og þyrfti að leggja svo mikið á sig til að vinna það mót að hann væri bók- staflega farinn að ganga á orkuforða framtíðarinnar. Sérðu einhver merki þess að Kasparov sé að brenna upp sem skákmaður í fremstu röð? „Það þarf vart frekari vitna við. En hver veit nema hann taki sig á. En núna fer honum aftur, það er engin spuming. Ég minni á að fyrir einvígin í New York og Lyon á síð- asta ári sagði ég að hann væri á niðurleið. Þvi miður gat ég ekki sann- að þessa fullyrðingu vegna þess að ég glútraði niður tækifærum mínum. í Sevilla 1987 hafði ég forystu allt þar til í síðustu skákinni.” - En komist þú áfram að þessu sinni og mætir Kasparov hveijir eru möguleikar þínir á að leggja hann að velli? „Þeir sömu og áður. En höfuð- vandi minn er undirbúningurinn. Fræðilega var hann mun betur undir síðustu einvígi búinn. Þar á ég ekki einungis við að ég standi lakar að vígi í byijunum heldur þurfti ég að eyða. of mikilli orku í fyrstu skákir einvígjanna til að halda mínum hlut. Þetta útheimtir mikið þrek og kemur niður á seinni skákum einvígjanna. Einnig má nefna að Kasparov hefur í undanförnum einvígjum haft mun öflugri menn sér til aðstoðar.” - Getur þú ekki snúið þeirri stöðu við fyrir næsta einvígi? „E.t.v., en hann hefur lag á því að fá fólk til að leggja harðar að sér en ég. Hann er sterkari persónuleiki og getur þvingað fólk til að leggja allt í sölumar en það get ég ekki.” Nú hefur þú þegar staðið á tindinum í skákheiminum. Er það ennþá þitt æðsta markmið í lífinu að verða heimsmeistari? „Vissulega er mun erfiðara að snúa aftur heldur en að komast á tindinn í fyrsta sinn. En ég hef enn- þá fullan hug á því.” - Eru aðrir skákmenn í sjónmáli sem gætu lagt Kasparov í heims- meistaraeinvígi? „Ekki sem stendur. En ívantsjúk getur reynst honum skeinuhættur í framtíðinni. Kasparov hlýtur að vera feginn að hann hefur þegar verið sleginn út.” Eins og nærri má geta hefur and- rúmsloftið í sovésku skáksveitinn ekki verið upp á það besta þegar Kasparov og Karpov hafa teflt þar hlið við hlið. En eftir hrun Sovétrikj- anna eru líkur á að þetta vandamál sé úr sögunni: „Ég efast um að Ka- sparov muni tefla fyrir Rússland,” segir Karpov. Kasparov er fæddur í Baku í Ázerbajdzhan en hraktist þaðan vegna þess að Armenar og þ. á m. fjölskylda hans sættu ofsókn- um. Karpov efast um að Kasparov muni tefla fyrir Armeníu. „E.t.v.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.