Morgunblaðið - 13.10.1991, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 13.10.1991, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1991 31 unni. Þetta er ómetanlegur stuðning- ur og kemur á besta tíma,” sagði Árni Tómas. Framlög systranna hafa komið í góðar þarfir, fyrir þau höfum við getað haldið áfram að gera nauð- synlegar endurbætur á húsnæði Operunnar.” Og Árni Tómas heldur áfram: „Þessi stórhugur og rausnar- skapur Wathnesystra í garð íslensku óperunnar er þó ekki einsdæmi. Sjálfar hafa þær sagst vera að fylgja fordæmi Helgu og Sigurliða Jónsson- ar kaupmanns, en þeim á íslenska fóperan einmitt tilveru sína að þakka Jmeð því að það var fyrir dánargjöf . þeirra sem _hús íslensku óperunnar var keypt. Á liðnum árum hafa svo fjölmargir einstaklingar og fyrirtæki styrkt Operuna með reglubundnum fjárframlögum. Alls eru styrktarfé- |agar nú um 1100 talsins og styrktar- fyrirtæki eru rösklega 50. Á hverju ári nema framlög þessara aðila háum fjárhæðum sem renna í Framtíðar- sjóð íslensku óperunnar. Rekstur sjóðsins er í höndum stjórnar Styrkt- arfélags íslensku óperunnar sem veitir fé úr honum til afmarkaðra verkefna fyrir Óperuna. Meðal ann- ars hafa verið lagfærðir stólar í sal og endurbætt loftræsting svo eitt- hvað sé tínt til,” segir Árni En hver eru önnur hlutverk Styrktar- félagsins? „Þótt megintilgangur þess sé að styðja fjárhagslega við bak Óperunn- ar þá lifir Styrktatfélagið einig sínu eigin lífi. Á vegum þess eru haldnir tónleikar á hverjum vetri auk þess sem óperur eru sýndar af mynd- bandi. Um þessar mundir er svo til dæmis í gangi sýning um líf og starf Mozarts í íslensku óperunni, en sýn- fngin er á vegum félagsins. Þá má nefna að félagið gefur út Óperublað- ið tvisvar á ári og það hefur einnig gefið út nokkrar sýningar Óperunnar á myndbandi,” svarar Árni Tómas. fin hvað með rekstur Óperunnar? Er hætta á að ÍÓ verði gjaldþrota? Árni Tómas segir enga hættu á að ÍÓ verði gjaldþrota. „Það verður að skilja á milli þess sem kallað er fjár- Árni Tómas Ragnarsson. hagsvandi annars vegar og rekstrar- vandi hins vegar. Óperan á.hús sitt skuldlítið og eignir eru miklu meiri en skuldimar. Hins vegar hefur Óp- eran fengið allt of lítið fé til starf- semi sinnar. Við fengum 25 milljónir frá Ríkinu í fyrra, en stjórnskipuð nefnd fann það út að við þyrftum minnst 40 milljónir á ári til að geta haldið úti óbreyttri starfsemi. Óperan fær sömu uppíiæð í ár, en það dugar auðvitað ekki. Heildarupphæðin sem Óperan þarf er ekki há. Til dæmis má líta til Þjóðleikhúsins sem fer fram á 300 milljónir til starfsemi sinnar. Erlendis er óperan talin dý- rasta listgreinin, meðal annars vegna þess að sýningar hennar kreíjast stórrar hljómsveitar og kórs auk ein- söngvara. í íslensku óperunni er þessu öfugt farið. Fjárskortur hefur neytt stjórn Óperunnar til ýtrasta aðhalds, en það hefur ekki dugað til. Sýningar hennar eru tiltölulega svo ódýrar í uppsetningu að vanir leikhúsmenn trúa vart þeim kostnað- artölum. En hvað með opinbera styrki? Árni svarar: „Það hefur verið lenska í gegn um árin að skammta ÍO litlu í byijun, en bjarga svo málum fyrir horn með aukafjárveitingum. En 1989 brást það að við fengjum við- bótarframlag frá ríkinu og þá kom strax skuldahali upp á einar tíu millj- ónir. í fyrra kom svo upp deilur meðal stjórnmálamanna um það hvort réttara væri að ríki eða borg hlypi undir bagga. Að lokum gleymdu þeir málum Óperunnar í kosningabaráttunni og hún sat uppi með fyrirheitin ein, en viðbótarfjár- veitingin hefur ekki komið enn og þá bættist enn við rekstrarvanda Óperunnar. Hins vegar erum við vongóð, því núverandi forsætisráð- herra lýsti því yfir í vor, meðan hann var borgarstjóri, að það væri hlut- verk ríkis að leysa mál Óperunnar og bætti því við að um svo litlar upphæðir væri að ræða að það gæti ekki verið mikið mál. Við sjáum því hvað setur, en framtíð Óperunnar ræðst af því hvort að opinber aðstoð verður aukin.” „En þó það hafi reynst Óperunni erfitt að fá nægilegt fé hjá opinberum aðilum í gegn um árin þá hefur stuðningur almennings og fyrirtækja verið Óperunni ómetanlegur,” bætir Árni Tómas við. „Bæði hefur það veitt þeim sem starfa í Óperunni mikinn móralskan stuðning og ýmsar nauðsynlegar framkvæmdir hefðu reynst Óperunni ofviða án framlaga þeirra. Á síðast liðnu ári námu þessi framlög 10 milljónum króna og var þeim varið í slíkar framkvæmdir.” Að lokum sagði Ámi að sér væri efst í huga þakklæti, ekki aðeins til þeirra Wathnesystra fyrir rausnarlegan stuðning, heldur til ailra þeirra sem lagt hafa Óperunni lið í gegn um tíðina. Hann sagðist vona að mál ÍÓ yrðu leidd í örugga höfn áður en langt um liði.. Það gilti einu hvort að aukin fjárstuðningur kæmi frá ríki eða borg. Aðalmálið væri að Óperan fengi þann stuðning sem henni væri nauðsynlegur til að halda áfram starfsemi sinni. f lok hátíðarfundar í íþróttahöllinni fengu forystumenn björgunarsveitarinnar að gjöf frá nýja landssambandinu skjöld með merki sambandsins. Hér sjást fulltrúar nokkurra sveita með skildina, sem í framtíðinni munu prýða björgunarstöðvar sveitanna um land allt. LANDSBJÖRG 800 manns á hátíðarfundi LANDSBJÖRG, landssamband björgunarsveita, var stofnað á Akureyri 28. september sl. Af því til- efni var efnt til hátíðar- fundar í íþróttahöllinni á Akureyri, og sóttu um 800 manns samkom- una. Meðal gesta var forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, biskup- ar íslands, hr. Ólafur Skúlason og hr. Pétur Sigurgeirsson, ráðherr- arnir Þorsteinn Páls- son, Eiður Guðnason og Halldór Blöndal, al- þingismenn, fjöldi emb- ættismana, forystu- menn annarra félaga- samtaka og nokkrir er- lendir gestir sem komu sérstaklega til landsins af þessu tilefni. , Morgunblaðið/Kristinn Ólafsson Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, er verndari Landsbjargar, lands- sambands björgunarsveita. Af því tilefni smíðaði Þorbergur Halldórsson gullsmiður pening úr gulli, með ígreyptu emeleruðu merki Landsbjargar. Hér sést formaður Landsbjargar, dr. Ólafur Proppé, afhenda forseta ís- lands þennan pening. Vigdís Finnbogadóttir ávarpaði síðan fundinn og árnaði nýja félaginu heilla. Barnafataverslun Óskum eftir verslunum um land allt til að taka að sér MEXX barna- og unglingafatnað. Aðeins góðar verslanir koma til greina. Upplýsingar í síma 624244 milli kl. 8-18 alla virka daga. Árni Mathiesen stjómar þættinum í fyrra- þjóðarinnar málið kl. 7—9 UTVARP REYKJAVÍK ÚTVARP REYKJAVÍK FM 90.91 FM 108.2 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir stjómar þættinum á þriðjudags- morgun kl. 7—9 AÐALSTÖÐIN AÐALSTRÆTI 16 »101 REYKJAVÍK • SÍMI62 15 20 I I I I I YUCCA G U L L l I l ÞETTA FRABÆRA 100% NÁTTÚRULEGA FÆÐUBÓTAEFNIHEFUR ÞEGAR REYNST MÖRGUM LANDANUM VEL. KOSTIR YUCCA GULLS KOMA BEST FRAM í EFTIRFARANDITILVITNUNUM í RANNSÓKNIR SEM VORU UNNAR MEÐ YUCCA í BANDARÍKJUNUM. RANNSÓNIR: Árið 1973 fór fram 12 mánaða rannsókn á 149 einstaklingum með liðagigt. Rannsóknin var framkvæmd af Dr. Robert Bingham, for- stöðumanni National Arthritis Medical Clinic og Dr. John W. Yale, Ph.D. grasafræðingi og lífeðlisfræöingi. Rannsóknin var byggð á þeirri niðurstöðu Dr. Yale, að „steroid saponin” (yfirborðsvirkt efni) sem er í yucca plöntunni myndi nýtast vel í meðhöndlun liðagigtar- sjuklinga. Dr. Yale byggði þetta á kenningunni um að margar tegund- ir liðagigtar mætti rekja til eiturefna og skaðlegra sýkla í ristlinum. NIÐURSTÖÐUR: Niðurstöður rannsóknarinnar 1973 voru þær að 60% af sjúklingunum losnuöu að mestu við verki, stirðleika og bólgur, án nokkurra aukaverkana. Frekari rannsóknir á sama stað, árin 1978-79 leiddu í ijós sömu niðurstöður, en jafnframt að yucca meðhöndlun dragi verulega úr mikilli streitu og óeðlilega háu kólesteróli og þríglýseriði í blóðinu. FLEIRI TILVITNANIR: Joseph VanSeters, höfundur „Know Your Herbs - Yucca“ segir eftirfarandi:... megingildi Yucca Plön- tunnar er lækningargildi hennar. Hún hefur verið notuð tii að vinna bug á liðagigt, þvagsýrugigt, hús- og hársvörðsvandamálum, meltingavandamálum, ristilvandamálum og krabbameini. Yucca plantan er líka góð til að jafna ph (sýrustig) gildi húðarinnar. Marga sjúkdóma má rekja til „eitraðs ristils" - okkar eigin litlu rotþrór. Yucca hjálpartil að brjóta niður lífreinan úrgang og er þess vegna meiriháttar mótefni við eiturefnum í líkamanum. V ÞETTA ERU TILVITNANIRNAR - SEM VIÐ- ^ SKIPTAVINUR ER VALIÐ ÞITT VILT ÞÚ LÁTA YUCCA GULL VINNA FYRIR ÞIG? Glas af YUCCA GULLI með 30 daga skammti kost- | ar aðeins 490,- GREIÐSLUKORT £INKAUMIiOD A ISLANUI: PÓSTKROFUÞIONUSTA ^ becR^ip ^ LAUGAVEGI 66, 101 R.VÍK. SÍMAR: 623336, 626265 I V.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.