Morgunblaðið - 13.10.1991, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 13.10.1991, Blaðsíða 36
varða i i Landsbanki íslands Banki allra landsmanna MORGUNBLADIfí, ADALSTRÆTI 6. 101 REYKJAVÍK TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKI AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 SUNNUDAGUR 13. OKTOBER 1991 VERÐ I LAUSASOLU 110 KR. Karpov safn- ar íslenskum frímerkjum ANATÓLÍJ Karpov fyrrum heims- meistari í skák er mjkill áhuga- maður um frímerki. í viðtali við Morgunblaðið segist hann eiga nær öll íslensk frímerki sem gefin hafa verið út. Karpov segist hafa komist yfir gott safn íslenskra frímerkja í Sov- étríkjunum fyrir nokkrum árum. Síð- an hefur hann bætt við safnið og vantar núna einungis nokkur gömul yfirprentuð frímerki. Skákmeistarinn segist lítið hafa gengið um í borg- inni á meðan mótið stóð yfír eins og hann er vanur þegar hann er erlend- is, til þess hafi vindurinn verið of mikill. Á daginn hefur hann því und- irbúið sig fyrir skák kvöldsins, skýrt skákir fyrir tímarit og nostrað við frímerki sem hann keypti á uppboði i New York fyrir skemmstu. Sjá „Kasparov er lýðskrumari” á bls. 16. Morgunblaðið/KGA Markús Orn Antonsson borgar- stjóri og Karpov skoða frímerki í boði í Höfða s.l. föstudag. Islensku heims- meistaramir í brids: Fellibylur flýtir brott- för frá hóteli Yokohama. Frá Guðmundi Sv. Hermanns- syni, blaðamanni Morgunblaðsins. ISLENSKA bridssveitin sem vann til heimsmeistaratitilisins í Japan verður að flýta brottför sinni frá hótelinu sem hún dvelur á vegna fellibyls sem geisar á Kyrrahafi og fer væntanlega yfir klukkan 9 á sunnudagsmorgni að staðar- tíma. Leggja á upp frá hótelinu klukkan 7 til flugvallarins, en þangað er um tveggja tíma ferð. Flugvélin fer þó ekki í loftið fyrr en hálf eitt, en vegna veðursins er talið tryggast að vera komin til flugvallarins áður en veðrið skellur á. Islenska sveitin er vætanleg heim í kvöld, sunnudagskvöld, en flogið er um Kaupmannahöfn til íslands. Meðlimir sveitarinnar hafa þegar fengið tilboð um að spila á sterkum mótum í kjölfar titilsins. Þannig hef- ur tveimur pörum verið boðið að spila á móti í Póllandi um áramót og áhugi er fyrir að fá Jón Baldurs- son og Aðalsteinn Jörgensen til að spila á Sunday Times mótinu, en á því spila aðeins 16 pör. Þá barst íslensku sveitinni heiila- óskaskeyti frá bidsspilaranum heims- fræga Zia Mahmoud. Þar segir: „All- ur heimurinn er stoltur af frábærri frammistöðu ykkar.” íslensku sveit- inni þykir afarvænt um þessar heilla- óskir, en Zia Mahmoud undirbjó þá fyrir úrslitakepppninni eftir riðla- keppnina. Segist íslenska sveitin hafa farið í einu og öllu eftir ráðlegg- ingum hans. Dansflokkur Helga Tómassonar: Slær í gegn í New York San Francisco-ballettinn sýndi í fyrsta sinn í New York í síð- ustu viku undir stjórn Helga Tómassonar og sló rækilega í gegn. 011 helstu stórblöð borgar- innar luku lofsorði á árangur dansflokksins og töldu hann vera á heimsmælikvarða. Helgi Tómasson kom í stutta heimsókn til íslands fyrir helgi og sagði í samtali við Morgunblaðið, að takmark sitt hefði ætíð verið, að flokkurinn sýndi í New York, en hann hefði þó aidrei búist við því lofi sem hann hlaut sjálfur sem dansahöfundur. Hann sagði að dansflokkurinn væri frábær og það hefði hann alltaf vitað. I ljósi þeirra átaka sem urðu inn- an dansflokksins um það leyti sem Helgi tók við honum fyrir sex árum, má telja þetta nokkuð góðan árang- ur. Sjá nánar bls. 12. ------------- Hornafjarðardjúp: Smásíld í aflanum UM tíu bátar voru á síldarmiðum í Hornafjarðardjúpi í fyrrinótt. Síldin sem veiðst hefur er tölu- vert blönduð en hluta miðanna hefur verið lokað vegna smásíld- ar. Einar Guðmundsson á Keflvíkingi KE sem landaði á Seyðisfirði og Fáskrúðsfirði í gærmorgun sagði að hægt væri að hitta á þokkalega síld en hún væri ekki orðin virkilega góð ennþá. Mest sagði hann að hefði veiðst í Hornafjarðardjúpi en einn bátur hefði fengið 20-25 tonn í Beru- fjarðarál. Hábergið GK landaði 500 tonnum af síld í Grindavík í fyrri- nótt en að sögn Gunnars Sigurðsson- ar, 2. stýrimanns, er 10-15% aflans smásíld. Hann sagði að hluta mið- anna hefði verið lokað vegna smá- síldar í afla. Húsbréfakerfið: Um 1,5 milljarðar króna til neyslu en ekki í íbúðir VARLEGA áætlað munu um 1,5 milljarðar króna af 15 milljarða króna lánum húsbréfakerfisins í ár fara í neyslu en ekki til íbúða- kaupa. Samkvæmt upplýsingum frá Húsnæðisstofnun og verðbréfa- mörkuðum kemur um helmingur húsbréfa á markað en helmingur er notaður í áframhaldandi íbúðakaup eða sem sparnaðarleið. Af þeim 7,5 milljörðum króna sem fara á verðbréfamarkað í ár og er seldur þar með 23% afföllum eru um 2,7 milljarðar vegna greiðsluerfiðleikalána og annað eins vegna nýbyggingarlána. Það sem eftir er, 1,5 milljarðar, er því notað í annað en íbúðakaup. Félagsmálaráðherra gaf í síð- ustu viku út reglugerð um breýt- ingar á húsbréfakerfinu. Er þess- um breytingum ætlað að draga úr umfangi þess en stjórnvöld telja að vaxandi umfang kerfisins sé þáttur í að halda uppi háum raun- vöxtum hérlendis. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var ákvörðun félagsmálaráðherra tek- in vegna mikils þrýstings frá fjár- málaráðuneytinu sem neitaði að samþykkja nýjan húsbréfaflokk nema gripið yrði til aðgerða. í heild mun Húsnæðisstofnun lána út á þriggja ára tímabili, 1990-1992, um 60 milljarða króna. Af þessari upphæð eru húsbréf- alánin 33 milljarðar. Félagsmála- ráðherra áætlar að aðgerðir sínar skili um 4-5 milljarða króna sparn- aði í kerfinu á næstu 15 mánuðum. Það er hins vegar spurning hvort sú tala fái staðist þegar haft er í huga að reglugerðin felur aðallega í sér að hámarkslán eru lækkuð úr 9,7 milljónum króna í 5-6 millj- ónir og þak sett á greiðsiuerfið- leikalán við 2,5 milljónir. Meðallán- in liggja nú á bilinu 3-3,6 milljónir króna og greiðsluerfiðleikalánin eru að meðaltali um 2,9 milljónir. Skiptar skoðanir eru um hvort húsbréfakerfið hafi verið þolandi eða gerandi í þeirrí 2% raunvaxta- hækkun sem orðið hefur á fjár- magnsmarkaði hérlendis frá því í fyrrasumar er kerfið var opnað fyrir öllum. Sigurbjörn Gunnars- son, deildarstjóri Landsbréfa, segir ljóst að markaðurinn hafi ekki þolað þá holskeflu húsbréfa sem þá reið yfir. Sigurður B. Stefáns- son, framkvæmdastjóri VIB, telur hins vegar að raunvaxtahækkunin hefði orðið hvort sem húsbréf hefðu verið til staðar eða ekki. Sjá nánar á bls. 10-11.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.