Morgunblaðið - 13.10.1991, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1991
EINAR ODDUR KRISTJÁNSSON FORMAÐUR YSÍ
SEGIR RAUNVERULEIKANN NÓGU SÓTSVARTAN - YSÍ ÞURFI
EKKI AÐ MÁLA NEINN SKRATTA Á VEGGINN
eftir Agnesi Bragadóttur
Ljósmynd/Ragnar Axelsson
Á SÖMU stundu og íslenska landsliðið okk-
ar í brids sest niður í Yokohama í Japan,
og hefur áttundu lotuna í úrslitaleiknum
gegn Pólverjum í heimsmeistaramótinu í
brids, sest Einar Oddur Kristjánsson for-
maður VSÍ niður með blaðamanni Morgun-
blaðsins á einni af efri hæðum Morgun-
blaðshússins við Aðalstræti, í höfuðstöðvum
S.H. og upphefur raust sína um rústir ís-
lensks efnahagslífs. Einar Oddur sér í
mesta lagi ljóstýru framundan í ísiensku
efnahagslífi og sú ljóstýra er æði skilyrt,
og nær aldrei að glæðast að hans mati,
nema til komi samstillt átak launþega,
vinnuveitenda, stjórnvalda, lífeyrissjóða og
banka. Þessi sjónarmið sín ræðir formaður
Vinnuveitendasambandsins hér á eftir í
samtali við Morgunblaðið á þann kjarnyrta
hátt sem bjargvætturinn að vestan er fyrir
löngu orðinn þjóðkunnur fyrir.
VSI
hrópar núna „Úlfur! Úlfur!”
í gríð og erg. Samningar
eru lausir, og það hlýtur
að þjóna hagsmunum
Vinnuveitendasambandsins
að mála skrattann á vegginn og
hræða þjóðina til þess að semja
um minna en ekki neitt. Er ekki
hætt við að þjóðin líti á þessa svart-
nættismessu ykkar, sem ótrúverð-
ugt áróðursbragð, í því skyni að
knýja fram samninga sem fela
enga kjarabót í sér?
Einar Oddur hallar undir flatt
eins og honum einum er lagið, otar
fingri í átt til mín og hvessir á
mig augum. Segir svo: „Við þurf-
um ekkert á því að halda að mála
neinn skratta á vegginn vegna
kjarasamninga. Við skulum líta á
þessa svörtu spá okkar og aðra
svarta spá - spá Þjóðhagsstofnunar
fyrir næsta ár. Það er nú ekki all-
ur munurinn á þessum tveimur
spám. í spá Þjóðhagsstofnunar
geta menn lesið að mjög ósennilegt
er talið að framkvæmdir vegna nýs
álvers hefjist hér á næsta ári. Þeir
segja að áætluninni verði breytt,
þegar það er endanlega ljóst að
engar framkvæmdir verði. Við,
aftur á móti, segjum að við reikn-
um ekki með álveri á næsta ári.
Hið góða skaðar ekki. Við skulum
breyta okkar áætlun ef í ljós kem-
ur að framkvæmdir hefjast á næsta
ári.”
- Ætlar VSÍ þá að stökkva fram
og bjóða kjarabætur, ef fram-
kvæmdir við nýtt álver hefjast á
næsta sumri?
Einar Oddur hvessir sig: „Ekki
grípa fram í fyrir _ mér!”
Heldur svo áfram: „í öðru
lagi gera okkar spár ráð fyrir því
að bæði álið og kísilj áynið fari nið-
ur um þijá milljarða í útflutnings-
tekjum á næsta ári, og það mat
byggjum við bara aNþví sem hefur
Líf og dauði; „Við skulum reyna að 'fækka gjaldþrotunum eins og við getum, nógu skelfilega mörg verða þau samt. Það er
upp á líf og dauða fyrir okkur að festast ekki í svartsýninni. Við verðum að reyna að sjá eitthvert ljós - þó það sé ekki
nema ljóstýra. En slíkt gerist ekki nema með nýrri atvinnustarfsemi. Það vex engin jurt upp af ís og klaka.”