Morgunblaðið - 13.10.1991, Side 17
MORGtJNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1991
17
heimili mínu og ég þekkti aðstæðurn-
ar sem sýndar voru í sjónvarpinu. A
öðrum degi sá maður að það var eitt-
hvað bogið við þetta allt saman og
að þetta myndi fara út um þúfur.
Ég gerði mér ennfremur strax grein
fyrir því að valdaræningjarnir yrðu
að sýna Gorbatsjov, hvort sem hann
væri á sjúkrahúsi eða ekki. Væri
hann veikur þá væri hér um stjórn-
skipulega réttar aðgerðir að ræða,
ella ekki.” Karpov segist þekkja pers-
ónulega marga af þeim mönnum sem
komu við sögu í valdaráninu, bæði
úr neyðarnefndinni og þó einkum úr
herbúðum Jeltsíns. „Ég þekki
Janajev fyrrverandi varaforseta frá
því hann starfaði í Komsomol en þá
sat ég í miðstjórn sovéska æskulýðs-
sambandsins. Honum þótti gott í
staupinu þannig að mér finnst ekki
fjarstæðukennt að hann hafí verið
drukkinn mest allan tímann eins og
haldið hefur verið fram. Ég er nokk-
uð viss um að Janajev hefur ekki
verið foringi valdaránsins. Það hlýtur
að hafa verið einhver annar, en ég
veit ekki hver, sennilega ekki Jazov
varnarmálaráðherra og varla
Krjútsjkov heldur, hann var ekki jafn
öflugur yfirmaður KGB og margir
forvera hans og hafði auk þess ekki
verið lengi í embætti.”
Karpov segist hafa nokkra trú á
Jeltsín sem framtíðarleiðtoga
þótt draga megi í efa að ákvarðanir
hans eftir valdaránið hafi allar verið
lýðræðinu til' framdráttar. Þegar
hann er spurður hvort ástæða sé til
að óttast rússneska þjóðernisstefnu
svarar hann: „Ég óttast hvers kyns
þjóðemisstefnu hvar sem hún birtist.
Nú eru að minnsta kosti fimmtán
slíkar í Sovétríkjunum. Frá blautu
barnsbeini hef ég verið mótfallinn
hvers kyns þjóðemisstefnu.” Karpov
vildi þó alls ekki fella dóm yfír þeim
þjóðum sem nú leitast við að öðlast
sjálfstæði frá Sovétríkjunum, það
yrði að koma í ljós hvort hin nýju
ríki virtu mannréttindi, það væri
meginatriðið.
Umboðsmenn óskast
Risol er eitt stærsta fyrirtæki sinnar tegundar f Englandi.
Það hefur sérhæft sig í góðum og sérlega ódýrum vörum.
80 síðna litprentaður vörulisti sem inniheldur t.d.
Yfirleitt er hægt að fá flestar vörur í listanum með mjög stuttum fyrirvara.
Umboðsmenn óskast á eftirtöldum stöðum:
♦ Akureyrí ♦ Húsavík ♦ Akranesi ♦ Vestmannaeyjum ♦ ísafirði ♦ Keflavík ♦ Sauðárkrók
♦ Borgarnesi ♦ Blönduós ♦ Hornafirði ♦ Neskaupstað ♦ Selfossi
Þeir sem hafa áhuga á dreifingu og sölu þurfa ekki endilega að vera með verslun.
Dæmi um verð í smásölu
□ Regnfatasett frá kr. 1.990,- □ Wax úlpur frá kr. 6.900,-
□ Kuldaúlpur frá kr. 4.900,- □ Vinnugallar frá kr. 2.790,-
□ Skyrtur frá kr. 1.190,- □ Gallabuxur frá kr. 2.900,-
Einkaumboð, heildsöludreifing:
RGMANN
RGMANN hf.
Nýbýlavegi 4, 202 Kópavogi, sími 91-45800
B
„Sem þingmaður hef ég reynt að varðveita sjálfstæði mitt. Ég hef
ekki bundið trúss mitt við ákveðna þingflokka því ég kæri mig ekki
um að lúta flokksaga þegar ég greiði atkvæði.”
„Undanfarin tvö tU þrjú ár hafa íslensku stórmeistararnir staðnað.
En e.t.v. er þetta millibilsástand sem þeir nota til að safna reynslu
og kröftum til frekari afreka.”
Karpov var félagi í Kommúnista-
flokki Sovétríkjanna og gegndi
trúnaðarstörfum í Komsomol, æsku-
lýðsfylkingu flokksins. Hann var
spurður hvetjar væru tilfinningar
hans nú þegar flokkurinn hefði verið
bannaður. „Ég harma það. Ekki
vegna þess að ég telji að kommúni-
staflokkurinn hafi gert landinu gott
heldur vegna þess að þetta er full-
komlega á skjön við stjórnarskrá
landsins. Einungis hæstiréttur lands-
ins hefði getað tekið slíka ákvörðun.
En þar að auki er ákvörðunin röng
vegna þess að þótt tveir ritarar
flokksins hafi átt sæti í neyðarnefnd-
inni þýðir það ekki flokkurinn hafi
verið glæpsamlegur. Milljónir flokks-
manna höfðu ekkert með valdaránið
að gera og studdu það ekki.' Lýðræð-
ið á enn langt í land hjá okkur. Þetta
er einræðisleg ákvörðun sem ég get
ekki stutt.”
- En fái flokkurinn að starfa á
ný munt þú styðja hann áfram?
„Ég hafði verið að bíða eftir
flokksþingi þar sem ákveðið yrði
hver yrði framtíðarstefna flokksins.
Síðan ætlaði ég að gera upp hug
minn til þeirrar stefnuskrár. Nú veit
ég ekki hvernig stjórnmál landsins
þróast. Sem þingmaður hef ég reynt
að varðveita sjálfstæði mitt. Ég hef
ekki bundið trúss mitt við ákveðna
þingflokka því ég kæri mig ekki um
„Fyrir fimm eða sex árum keypti ég gott íslenskt safn í Sovétríkjun-
um og hef verið að bæta við það síðan. Núna á ég næstum öll ís-
lensku frímerkin en mig vantar enn nokkrar gamlar yfirprentanir.”
„Kasparov er sterkari persónuleiki og getur þvingað fólk til að leggja
allt í sölurnar en það get ég ekki.”
þegar fréttirnar af valdaráninu bár-
ust? „Fyrstu stundimar reyndi ég að
ná sambandi við fjölskyldu niína í
Moskvu og Leníngrad og síðan við
samtökin sem ég starfa fyrir. Það
gekk vel að hringja þannig að ég
hugsaði með mér: Þetta er nú ekki
eins alvarlegt og það gæti verið. En
vissulega var ég kvíðinn þegar ég
sá skriðdrekana á götum Moskvu.
Ég bý nærri rússneska þinghúsinu
þannig að allt þetta gerðist nærri
hefur hann aðrar fyrirætlanir, hver
veit,” segir Karpov og vill ekki fara
nánar út í þá sálma. Hann segir að
líklega verði Rússar með sterkustu
skáksveitina en sveit Úkraínu verði
einnig mjög öflug þar sem eru
ívantsjúk, Beljavskíj og Túkmakov.
Karpov segist hafa teflt við flesta
íslensku stórmeistarana. „Undanfar-
in tvö til þrjú ár hafa ungu stórmeist-
ararnir staðnað. En e.t.v. er þetta
millibilsástand sem þeir nota til að
safna reynslu og kröftum til frekari
afreka. Ég vona að það verði raunin.
Ég hef fylgst með þeim tefla á
Ólympíumótum og hreifst af góðum
liðsanda þeirra.”
Sú spurning vaknar hvort maður
sem varið hefur mestum hluta ævi
sinnar til skákiðkunar verði aldrei
leiður á tafli. „Það kemur fyrir. En
eftir viku eða tíu daga hvíld fyllist
ég sama áhuga og þegar ég var
barn.” En er ástæða til að mæla með
skákiðkun fyrir börn? „Já, tvímæla-
laust,” svarar Karpov. Hefur hann
kennt syni sínum að tefla? „Nei, það
gerði afi hans en strákurinn hefur
ekki nógu mikla þolinmæði.”
að lúta flokksaga þegar ég greiði
atkvæði.”
Þegar valdaránið var framið var
Karpov staddur í Brussel þar sem
hann tefldi áskorendaeinvígi við Ind-
vetjann Anand. Hvernig leið honum