Morgunblaðið - 15.11.1991, Síða 2

Morgunblaðið - 15.11.1991, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1991 Raforkuútflutningnr ræddur á Orkuþingi: Stofnkostnaður við virlganir og sæstreng 108 milljarðar króna ÁÆTLAÐUR stofnkostnaður virkjana og sæstrengs fyrir orkusölu til Skotlands er um 108 milljarðar króna. Er talið að framleiðsla og lagning slíks sæstrengs geti tekið um 3 ár. Ef strengurinn er lagður til Norður-Englands yrði stofnkostnaðurinn 118 milljarðar, til Suður-Englands 130 milljarðar króna og til Hamborgar í Þýska- landi 138 milljarðar króna. Þetta kom fram í erindi sem Halldór Jónatansson forstjóri Landsvirkjunar flutti á Orkuþingi í gær. „Samkvæmt athugun sem gerð hefur verið virðist umrædd sæstrengslögn geta vel skilað þeirri arðsemi sem hingað til hefur verið krafíst af orkuframkvæmdum hér á landi,” segir Halldór. Af þessari upphæð, 108 milljörðum, er áætlað að virkjanakostnaður sé 61 milljarð- ur og kostnaður við flutningsvirkin 47 milljarðar. Halldór segir að ef um stórfelldan útflutning á orku verði að ræða liggi beinast við að virkja jökulárnar á Norðurlandi, kostnaður við það yrði í lágmarki og hagkvæmni virkjana fengi að njóta sín. Halldór bendir á að athuganir sýna að íslensk raforka borin saman við aðra vaikosti á Bretlandseyjum sé samkeppnisfær í verði næsta áratuginn hvort sem strengurinn er lagður til Skotlands eða til Eng- lands. Jakob Björnsson orkumálastjóri Bæjarstjórn Bolungarvíkur: Jákvæð á hluta- fjárkaup í E.G. BÆJARSTJÓRN Bolungarvíkur er jákvæð gagnvart hlutafjár- kaupum í fyrirtækinu Einari Guðfinsssyni hf. ef það mætti verða til þess að tryggja rekstur fyrirtækisins. Hins vegar hefur ekkert verið ákveðið um hve háa upphæð bæjarstjórn hyggst leggja af mörkum til þessa. Á fundi bæjarstjómar í gær- kvöldi var samþykkt eftirfarandi ályktun: „Bæjarstjórn Bolungar- víkur lýsir yfir jákvæðum vilja sín- um til hlutafjárkaupa hjá Einari Guðfinnssyni hf. enda náist sam- komulag um þau skilyrði sem bæj- arstjóm setur og um upphæð hlut- afjárins.” « ♦ ♦ vék einnig að útflutningi á raforku í erindi sínu á Orkuþingi. Jakob segir að hans mat sé að íslendingar geti flutt út árlega 15 TWh á fyrstu áratugum næstu aldar til viðbótar 20-25 TWh á ári til orkufreks iðnað- ar. Hann gerir þó fyrirvara á hag- kvæmni útflutnings raforku í náinni framtíð því honum fylgdu bæði tæknileg og fjárhagsleg áhætta og óvissa og því betra að bíða og sjá hvort aðstæður breyttust ekki Is- landi í hag. „Að mínu áliti getur útflutningur á raforku frá íslandi orðið fullkomlega raunhæfur mögu- leiki eftir svo sem 10-15 ár,” segir Jakob. Sjá nánar á miðopnu. V estmannaeyjar: Fögnuður á tónleikum Morgunblaðið/Ámi Sæberg Húsfyllir var á tónleikum Sinfóníunljómsveitar Islands í gærkvöldi, þegar Ebony-söngflokkur- inn frá New York og kór íslensku óperunnar fluttu bandarísk lög við undirleik hljómsveitar- innar. Var flytjendum fagnað ákaft í lok tónleikanna. Þeir verða endurfluttir í Háskólabíói á morgun kl. 14,30. Bæj arstj órnin leggur til þriggja mílna landhelgi Helga næg- ir jafntefli Margeir Pétursson sigraði Karl Þorsteins í gær. í úrslitakeppni Skákþings íslands, sem nú stendur yfír á Grundarfírði. Skákin varð 41 leikur. Helgi Ólafsson og Margeir hafa 2 vinninga fyrir 6. og síðustu um- ferð, sem tefld verður í dag. Þá teflir Helgi gegn Karli og nægir Helga jafntefli til að heppa titilinn ' Skákmeistari Islands. Vestmannaeyjum. BÆJARSTJÓRN Vestmannaeyja samþykkti samhljóða á fundi sín- um í gærkvöldi að leggja til að sett verði þriggja mílna landhelgi kringum allar eyjar og sker við Vestmannaeyjar að undanskilinni Surtsey. Jafnframt leggur bæjar- stjórn til að dragnótaveiðar verði bannaðar innan þriggja milna við suðurstönd íslands og spærlings- veiðar verði bannaðar frá Reynis- dýpi vestur fyrir Selvogsbanka. Umræða um landhelgi kringum Eyjar hefur oft blossað upp en sam- staða hefur ekki náðst um að koma henni á. í byrjun október sam- þykkti bæjarstjórn að óska eftir hugmyndum um útfærslu á land- helgi við Eyjar frá Útvegsbændafé- lagi Vestmannaeyja, Vélstjórafélagi Vestmannaeyja, Skipstjóra- og slýrimannafélaginu Verðandi, Sjó- mannafélaginu Jötni, Félagi smá- bátaeigenda í Eyjum og útibúi haf- rannsóknar í Eyjum. Á fundi bæjarstjórnar í gær lágu þessar umsagnir fyrir. Hugmyndir Útvegsbændafélagsins gengu skemmst en þeir vildu að sett yrði þriggja mílna landhelgi umhverfís Heimaey. S.s. Verðandi lagði til að 1,5 sjómílur frá ákveðnum grunn- punktum yrði dregin bein lína milli staða. Þessir punktar yrðu Bjarnar- ey, Súlnasker, Geirfuglasker, Eini- drangur, Þrídrangar og Grasleysa. Innan þessa svæðis yrðu veiðar bannaðar. Hinir umsagnaraðilarnir náðu samstöðu um álit. Það álit gerir ráð fyrir að komið verði á þriggja mílna landhelgi umhverfís landhelgi við suðurströnd íslands verði bannaðar og að felldur verði úr gildi sá þáttur fiskveiðilaganna sem heimilar svokallaða fjöruopnun fyrir botnvörpu á svæðinu inn af Vestmannaeyjum á tímabilinu 15. febrúar til 16. apríl ár hvert. Þá er lagt til að spærlingsveiðar verði bannaðar í kringum Vestmannaeyj- ar frá Reynisdýpi vestur fyrir Sel- vogsbanka. Bæjarstjórn segir í tillögu sinni að forsendan fyrir samþykkt þess- ari sé að tillögur hennar skoðist sem ein heild. í framhaldi af samþykktinni um landhelgina samþykkti bæjarstjórn áskorun á þingmenn Suðurlands um að þeir fylgi eftir tillögum bæjar- stjórnar um landhelgi við Eyjar. Samþykkt bæjarstjórnar verður send til sjávarútvegsráðuneytisins sem ákveður framhald málsins. — Grímur eyjar og sker við Vestmannaeyjar að Surtsey undanskilinni en þó verði leyfðar veiðar með fótreipistrolli á ákveðnu svæði vestan við Eyjar frá 1. febrúar til 15. maí. Allir umsagnaraðilar lögðu áherslu á að allar veiðar yrðu bann- aðar innan þriggja mílna við suður- strönd landsins. Á fundi bæjarstjómar í gær var lögð fram tillaga, undirrituð af öll- um bæjarfulltrúum, um landhelgi við Eyjar og var hún samþykkt með níu samhljóða atkvæðum. Tillagan gerir ráð fyrir að komið verði á þriggja mílna landhelgi umhverfis eyjar og sker við Vestmannaeyjar að undanskilinni Surtsey. Innan þess svæðis verði bannaðar allar veiðar með dragnót, botnvörpu og flotvörpu. Þó verði leyfðar veiðar með fótreipistrolli við Drangana frá 1. febrúar til 15. maí. Það svæði á að afmárkast af þriggja mílna lín- unni að utan og að innan verði lína dregin þrjár mílur réttvísandi suður úr Einidrang, lína úr Einidrang í Þrídranga og þaðan í Grasleysu. Bæjarstjóm leggur til að drag- nótaveiðar innan þriggja mílna Steinullarverksmiðjan á Sauðárkróki: Framleiðsla samkvæmt áætlun Sauðárkróki EINAR Einarsson, framkvæmdastjóri Steinullarverksmiðjunnar, seg- ir í samtali við Morgunblaðið að öll framleiðsla verksmiðjunnar sé í takt við þær áætlanir sem settar hafa verið, og enn sem komið er hefur ekki borið á samdrætti í sölu á framleiðsluvörum verksmiðj- unnar innanlands. Að vísu sagði Einar að sala á steinull til útlanda hefði verið nokkru minni en áætlað hefði verið, en þð væri um sÖIúaukningú að ræða mið- að við síðastliðið ár. Hins vegar væri útflutningurinn hliðarbúgrein og reksturinn miðaðist við þarfír ' innflutningsmarkaðar. Þó' msétti 'bú-' ast við samdrætti í framleiðslunni ef verulega harnaði í ári og bygging- ariðnaðurinn drægist eitthvað sam- an. Einar sagði að um aukna sam- keppni væri að ræða á erlendu mörkuðunum og aukið framboð á ' éfrfa'rígriínarefnu iti, éh'hlns vegar virtist eftirspurn hafa dregist sam- an. „Við búumst auðvitað við ein- hveijum samdrætti en það er óþarfí að vera með barlóm, meðan allar áætlanir standast, og við erum ekk- ert farnir að undirbúa flutning á Suðvesturhornið,” sagði Einar Ein- arssön áð lökúm. —'BB Hvalfjörður: Sex bílar laskast SEX bílar löskuðust í árekstr- um rétt norðan við Fossá í Hval- firði um hádegisbil í gær. Skemmdir voru ekki mjög mikl- ar og engin meiðsl á fólki. Atburðarásinn var með þeim hætti að bifreið fór út af veginum en lenti á hjólunum fyrir utan hann. Tvær bifreiðar stöðvuðu við slysstað og var ökumanninum, sem aðeins hafði marist undan bílbeltinu, hjálpað að koma bifreið sinni upp á veginn en skömmu seinna bættist sendiferðarbíll frá Reykjavík í hópinn. Þá kemur flutningabíll að norðan yfír hæð við slysstað og tekst ökumanni ekki að stöðva bílinn sem brýtur spegil af annarri fólksbifreiðinni, fer í hlið hinnar og lokar götunni þegar hann lendir á sendiferðar- bílnum frá Reykjavík. Ekki er sög- unni lokið því yfir hæðina kemur nú bifreið að norðan sem ekki tekst að stöðva í tæka tíð og fer í hlið annarrar stóru bifreiðanna-.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.