Morgunblaðið - 15.11.1991, Síða 12

Morgunblaðið - 15.11.1991, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1991 Lögreglu- stöð opnuð í Grafarvogi NÝ lögreglustöð var opnuð í Hverafold 1-3 I Grafarvogi í gær að viðstöddum meðal ann- arra Markúsi Erni Antonssyni borgarstjóra. Þrír lögreglu- menn munu hafa þar bækistöð. Stöðin verður opin að degi til og einnig að kvöld- og næturiagi eftir því sem þörf verður talin á. Utan opnunartíma stöðvarinnar verða þó ávallt eftirlitsbílar frá y lögreglu í hverfinu, að sögn Óm- ars Smára Ármannssonar aðstoð- aryfirlögregluþjóns. Morgunblaðið/KGA Viðstaddir opnun lögreglustöðvarinnar í Grafarvogi voru ineðal annarra, talið frá vinstri: Böðvar Bragason, lögreglusíjóri, Jonas Hallsson aðalvarðstjóri, Markús Örn Antonsson, borgarstjóri, Guðmundur Guðjónsson, yfirlögregluþjónn,. Helgi Gunnarsson, lögregluflokkstjóri, Þórhallur Árnason lögreglumaður, Þorsteinn Geirsson ráðuneytisstjóri, Steinþór Einarsson, aðstoðarforstöðu- maður félagsmiðstöðvarinnar Fjörgynjar í Grafarvogi og Árni Þór Sigmundsson rannsóknarlögreglumaður, varðstjóri Iögreglu- stöðvarinnar í Grafarvogi. Lögreglustöðin í Grafarvogi. Leiguvél Flugleiða: Reglur heima- landa gilda UMSAMINN hvíldartími Félags íslenskra atvinnuflugmanna, sem kveðið er á um í samningum við Flugleiði, var ekki virtur gagnvart ítölskum flugmönnum, sem fljúga ítölskum leiguvélum fyrir félagið á flugleiðum til Bandaríkjanna. Að sögn Einars Sigurðssonar blað- afulltrúa Flugleiða, hefur þessu nú verið breytt til samræmis við íslenskar reglur en venjan sé að reglur hcimalanda leiguvélanna gildi þegar áhafnir sinni leigu- flugi. „Eins og venja er þegar vélar eru teknar á leigu til farþegaflugs er þeim flogið í samræmi við þá kjara- samninga, sem flugmenn hafa hjá sínu flugfélagi og eru innan þeirra reglugerðar sem sett er í hveiju landi,” sagði Einar. „Flugmennirnir flugu samkvæmt ítölskum reglum um hvíldartíma sem er ekki sá sami og gildir hér. Hins vegar féllumst við á að leita eftir því við ítalska flug- félagið að reglunum yrði breytt að þessu sinni til samræmis við reglur FÍA og Flugleiða.” Einar sagði að samkvæmt samn- ingi hefði félagið leyfi til að leigja vélar til farþegaflugs að uppfylltum ákveðnum skilyrðum um samráð og var það gert. ffeító© vivq HOVILOH Q Nýir litir, ný mynstur. 2m, 3m og 4m breidd. Má leggja laust. Ver5 sem gerir útsölu óþarfa. xsx» Ekiaran Gótfbúnaður • SlÐUMÚLA 14 • SÍMI (91) 813022 • Undirbúningur að nýju blaði: * Akveðið að kanna hljóm- gTunn í skoðanakönnun Á STJÓRNARFUNDI Nýmælis hf. í gær, undirbúningsfélags að stofn- un nýs dagblaðs, var ákveðið að fela Félagsvísindastofnun að fram- kvæma skoðanakönnun í næstu viku til að kanna hljómgrunn fyrir útgáfunni. Gunnar Steinn Pálsson, einn af forsvarsmönnum félags- ins, kvaðst telja fullvíst að nýtt dagblað kæmi út ekki síðar en 15. febrúar til 1. mars á næsta ári. Hann sagði að vonir stæðu til að ákvarðanir yrðu teknar um næstu mánaðamót. Gunnap Steinn ságði að vinnu við efnistök blaðsins lyki um helgina og í framhaldi af því yrði reiknað út hvað kostaði að gefa út slíkt blað og hvaða aðilar kæmu að hlut- afélagi um útgáfuna. Hann sagði að sér þætti ekki ósennilegt að Friðrik Friðriksson, nýr eigandi Blaðs hf. sem gefur út Pressuna, væri að biðla til Stöðvar 2 og sjónvarpsvísis sjónvarpsstöðv- arinnar með áformum um útgáfu nýs helgarblaðs. „Á meðan ég heyri ekkert frá neinum urn þetta mál, þar með talið fulltrúa Stöðvar 2 sem var á stjórnarfundinum, þá höldum við bara okkar striki,” sagði Gunn- ar Steinn. Hann sagði að hugmyndin væri að helgarblaðið kæmi út á föstu- dagskvöldum og gerði dagskrám útvarps- og beggja sjónvarpsstöðv- anna góð skil. Sjónvarpsvísir Stöðv- ar 2 kæmi áfram út í óbreyttri mynd þar til og ef nýja blaðið kem- ur út. Áskrifendur Stöðvar 2 fá í dag sjónvarpsvísi innifalinn í áskriftargjaldinu. Gunnar Steinn sagði að áskrifendur Stöðvar 2 gætu eins og hveijir aðrir gerst áskrifendur að helgarblaðinu þegar Sjónvarpsvísir yrði lagður niður og yrði það vissulega skoðað hvort áskrifendum Stöðvar 2 yrðu boðin sérkjör. Þá væri einnig verið að skoða útgáfu á mánudagsmorgn- um. _ „Ég geri fastlega ráð fyrir því að stór hluti starfsfólks Alþýðu- blaðsins, Tímans og Þjóðviljans fái tilboð um að vinna á þessu blaði, þött ekki sé ég viss um að það verði í lykilstöðum,” sagði Gunnar Steinn. Fiskimjölsverksmiðjan í Örfirsey: Misskilningur og órök- studdar fullyrðingar - segja forsvarsmenn Faxamjöls um mótmæli íbúa í Vesturbæ FORSVARSMENN Faxamjöls hf. sem hyggst koma á fót fiskimjöls- verksmiðju í Orfirisey segja að í mótmælum ibúasamtaka í Vesturbæ gegn verksmiðjunni gæti misskilnings og órökstuddra fuilyrðinga varðandi Iyktarmengun frá verksmiðjunni. Hafi staðreyndir jafnvel lotið í Iægra haldi í málflutningi íbúa gegn verksmiðjunni. Forsvarsmennirnir vilja af þessu tilefni vekja athygli á þeim stað- reyndum að heilbrigðisnefnd Reykjavíkur hafi fyrir sitt leyti sam- þykkt staðsetningu verksmiðjunnar að uppfylltum ströngum skilyrðum um mengunarvarnir. Hafnarstjórn Reykjavíkur hafi einnig samþykkt staðsetninguna og hafnarstjórinn í Reykjavík telji að hvergi sé hag- kvæmari staður fyrir hana en í Orfirsey. I upplýsingabæklingi sem Faxa- mjöl hf. hefur sent Morgunblaðinu kemur m.a. fram að verksmiðjan verði búin fullkomnum mengunar- vörnum og lyktarefnum verður brennt. Til þess verður notaður sambærilegur útbúnaður og nú er í Krossanesverksmiðjunni á Akur- eyri. Eftir að sá útbúnaður var sett- ur upp þar hafa íbúar í nágrenni þeirrar verksmiðju ekki séð ástæðu til umkvartana. Og með staðsetn- ingu verksmiðjunnar í Örfírsey muni akstur þungaflutningabíla um borgina minnka þar sem mest af hráefninu fellur til á athafnasvæð- inu í grennd verksmiðjunnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.