Morgunblaðið - 15.11.1991, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1991
Sauðárkrókur:
I kvold opnum við
NYJAN
UNGLINGA-
STAÐ í gamía Þörs-
v*. ‘ * ' • ' ' ‘ * V*1'*
kaffi fyrir þá sem
fæddir eru 1976 eða
fyrr-
STÓRDANSLEIKUR
’ - * • - ?' ' , , *.
frá kí. 21.00 - 00.30.
Verð kr. 700
I
Verður Oxnadalsheið-
in oftar fær en áður?
Sauðárkróki.
MARGA þá sem oft þurfa að leggja leið sína t.il eða frá Akureyri
yfir Oxnadalsheiði fýsir eflaust að vita hvernig nýju kaflar leiðarinn-
ar yfir Oxnadalsheiði reynast, þa sem þessi hluti vegarins var oftar
en ekki sá sem hvað örðugast reyndist að halda opnum í snjóatíð.
b r o u I o r I) o I I í í
( ó d i r M r i h o f f i )
Verulegar breytingar voru gerð-
ar á vegarstæðinu vestan heiðarinn-
ar í haust og það flutt ofan úr hlíð-
inni á alllöngum kafla niður á eyr-
arnar meðfram Norðuránni. Hafa
Giljareitirnir og Klifíð löngum verið
sá hluti leiðarinnar sem hvað þung-
færastur hefur verið vegna snjóa
og mörgum þótt glæfralegt að aka
þessa leið í hálku eða ófærð.
Þegar leitað var upplýsinga um
þessi mál í gær hjá Vegagerð ríkis-
ins á Sauðárkróki kom í ljós að
ekki hafði reynst unnt að kanna
færðina á þessum stað vegna illviðr-
is og sagði Jónas Snæbjörnsson
umdæmisverkfræðingur að gerð
hefði verið tilraun til þess að kom-
ast fram á heiðina, en menn orðið
frá að hverfa vegna veðurs.
Hefðu vegagerðarmenn farið
bæði frá Akureyri óg Sauðárkróki
en í Oxnadal hættu menn mokstri
fyrir miðjan dag og biðu betra veð-
urs og vestan megin varð komist
fram fyrir Fremri-Kot en þar látið
staðar numið.
Sagði Jónas að samkvæmt frétt-
um frá ökumönnum sem yfir heið-
ina hefðu farið á þriðjudaginn hefði
failið snjófljóð við eða á nýja hlut-
ann, en hann sagði ekki unnt að
greina neitt nánar frá þessu fyrr
en náðst hefði að skoða verksum-
merki frekar.
- BB
Málþing um
kirlgulist og trú
MÁLÞING um menningu, kirkjulist og trú verður haldið í Safnað-
arheimili Dómkirkjunnar, Lækjargötu 14a, laugardaginn 16. nóv-
ember kl. 13.30-18.00. Listvinafélag Hallgrímskirkju efnir til þessarar
umræðu m.a. í ljósi viðleitni safnaða á þessu sviði og reynslu af kirkj-
ulistahátíðum.
Dr. Hjalti Hugason formaður List-
vinafélagsins setur málþingið en síð-
an flytur biskup Islands, herra Ólaf-
ur Skúlason, ávarp. Séra Kristján
Valur Ingólfsson sóknarprestur á
Grenjaðarstað talar um kirkju, list
og trú og tekur sérstaklega fyrir
tengsl kirkjulistar og kennimann-
legrar guðfræði. Heimir Steinsson
útvarpsstjóri íjallar um tengsl kirkj-
ulegrar menningarstarfsemi við aðra
menningarviðleitni í landinu. Hörður
Áskelsson organisti ræðir um það
Háskólabíó
endursýnir
stuö- og
gleðimyndina
„Meö allt á
hreinu'
Ein vinsælasta
mynti sem
sýnd heíur
verið á
íslandi
hvaða forsendur séu fyrir hendi til
þess að kirkjan geti sinnt hlutverki
í listalífi.
Að loknu kaffíhléi verða pall-
borðsumræður og fyrirspumir undir
stjórn Einars _ Karls Haraldssonar
blaðamanns: Á hvað ber kirkjunni
að leggja áherslu í menningar- og
listastarfsemi? Þátttakendur ásamt
frummælendum eru Guðrún Ás-
mundsdóttir leikkona, séra Jakob
Ágúst Hjálmarsson dómkirkjuprest-
ur, Magnús Kjartansson myndlistar-
maður auk fulltrúa kirkjulistar-
nefndar. Að lokum verða aimennar
umræður.
Gert er ráð fyrir að sjálfu mál-
þinginu ljúki kl. 17.45 og þá verði
gengið til aftansöngs í Dómkirkj-
unm.
♦ ♦ ♦
annars Iðgin:
% ö n
Ný verslun á
Neskaupstað
Ncskaupstað.
NÝ VERSLUN, Víkurmarkaður,
var nýlega opnaður hér á staðn-
um.
Verslunin er rekin með svo-
nefndu bónussniði svo að segja má
að verðstríðið sem geisar á höfuð-
borgarsvæðinu teygi anga sína
hingað austur á land, vonandi neyt-
endum til hagsbótar. Verslunin mun
ekki verða með mjólkur- eða kjöt-
vörur en leggja áherslu á allar al-
mennar nýlenduvörur.
Eigendur Víkurmarkaðar eru
hjónin Jóhanna Gísladóttir og Vig-
fús Vigfússon.
Ágúst.-
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Myndin er tekin í nýju verslun-
inni. F.v. er Jóhanna Gísladóttir
annar eigandi og María Kjartans-
dóttir starfsmaður.