Morgunblaðið - 15.11.1991, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1991
17
Páll Magnússon
greind og jafnvel þar yfir. Algengt
er að fólk tengi einhverfu við sérg-
áfu af einhveiju tagi svo sem fram
kom í kvikmyndinni um Regnmann-
inn. í rauninni er þetta þó tiltölufega
fátítt. Alitið er að um tíundi hver
einhverfur einstaklingur hafí óvenju-
lega hæfileika á einhveiju sviði.
Einhverfír hafa skerta getu til að
vinna úr áreitum sem fela í sér
félagslegar og tilfinningalegar upp-
lýsingar. Þetta leiðir af sér að þeim
reynist erfítt að setja sig í spor ann-
arra, gera sér hugmyndir um líðan
þeirra, hugsanir og fyrirætlanir, en
einmitt sá hæfileiki er ein helsta
undirstaða mannlegra samskipta.
Sem dæmi má nefna ungu stúlkuna
sem lýst var í inngangi máls. Hún
gerir sér litla grein fyrir því að
ávarpsorð hennar muni vekja furðu
miðaldra hjóna á kvöldgöngu. Erfíð-
leikar einhverfra í samspili og tjá-
skiptum felast einmitt í þessari
skertu hæfni.
Framvinda
Sem fyrr segir kemur einhverfa
venjulega í ljós á fyrstu þremur
æviárunum. Einkennin eru oft mest
áberandi um 4-5 ára aldurinn. Eftir
þann tíma batna oft tengsl bamsins
við þá sem því eru nánastir en eftir
situr skert geta til félagslegra sam-
skipta. Á unglingsárunum kemur oft
12utcuzcv
Heílsuvörur
nútímafólks
FLEXON
VESTUR-ÞÝSKUR
HÁGÆÐA
DRIFBÚNAÐUR
FLUTNINGSKEÐJUR
Allar stœrðir
Hagstœtt verð
Við veltum þér
allar tœknllegar
upplýsingar
r
LANDSSMIÐJAN HF
Verslun: Sölvhólsgötu 13
SlMI (91) 20680« FAX (91)19199
fram löngun til að eiga meiri sam-
skipti við aðra, eignast vini og félaga
eins og annað fólk. Hins vegar skort-
ir á kunnáttuna í að stofna til slíkra
tengsla og tilraunir í þá átt verða
oft fremur klaufalegar.
Framfarahorfur eru mjög mis-
munandi frá einum einstaklingi til
annars og ráðast einkum af greind-
arfari; því meiri greind þeim mun
betri horfur. Rannsóknir benda til
að einn af hveijum fimm einhverfum
taki nægum framförum til að geta
lifað tiltölulega sjálfstæðu lífí á full-
orðinsárum. Þekkt eru einstök dæmi
um einhverfa sem lokið hafa háskóla-
prófí og standa framarlega á sínu
fræðasviði. Jafnvel þeir sem mestum
framförum taka sitja þó uppi með
einhvern hluta einkenna sinna. Hinir
sem lakari horfur hafa þurfa yfírleitt
mikinn stuðning og aðhlynningu alla
ævi. Af þjónustuúrræðum sem til
þarf má nefna meðferðarheimili,
sambýli og atvinnutækifæri á
vernduðum vinnustöðum. Sérhæfð
kennsla og þjálfun hefur reynst
árangursríkasta leiðin til að bæta
aðlögun einhverfra og auka færni
þeirra.
Gefandi samskipti
Ekki má hjá líða að geta þess að
lokum hve einhverfír eru oft á tíðum
einstaklega skemmtilegt og merki-
legt fólk á sinn sérstaka hátt. Þeir
sem vegna fötlunar sinnar læra aldr-
ei að segja ósatt varðveita barnið í
sjálfum sér lengur en flestir aðrir
og hjálpa okkur hinum til að finna
barnið í okkur sjálfum. Umgengni
við einhverfa getur þannig verið þro-
skandi og mannbætandi. Umsjónar-
félag einhverfra er félag aðstand-
enda einhverfra og annarra er áhuga
hafa á velferð þeirra. Þeim sem vilja
kynna sér nánar málefni einhverfra
skal bent á að setja sig í samband
við Umsjónarfélagið, Laufásvegi 4,
101 Reykjavík.
Höfundur er sálfræðingur við
Barnu- og unglingageðdeild
Landspítalans íReykjavík.
Ljóðabók
eftir Sjón
UT ER komin hjá Máli og menn-
ingu ljóðabókin ég man ekki eitt-
hvað um skýin eftir Sjón (Sigur-
jón B. Sigurðsson).
Bókin er 43 blaðsíður að stærð
og geymir 27 Ijóð, sum örstutt,
önnur lengri, og mynda þau sam-
felldan ljóðabálk þegar að er gáð.
Hér er vísað jöfnum höndum í Jón-
as Hallgrímsson og súrrealismann,
og leikur að hinu óvænta er sem
fyrr aðalsmerki höfundar. Sjón
hefur að undanfömu fengist bæði
við leikritun og sagnagerð en ég
man ekki eitthvað um skýin er hins
vegar fyrsta ljóðabók hans frá því
safnið Drengurinn með röntgen-
augun kom út árið 1985.
Sjón
Kápu gerði höfundur í samvinnu
við Kela kalda. Bókin er unnin í
Prentsmiðjunni Odda hf.
VAKA-HELGAFELL
1981-1991
VN«M^PeU'
Stórbrotin og hrífandi
saga um mannlega
reynslu og mikil átök.
Ást og hatur; glæpur
og refsing, líf og dauði.
- Tímamótaverk!