Morgunblaðið - 15.11.1991, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 15.11.1991, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1991 21 „Erró og vinir hans” í Nýhöfn „ERRO og vinir hans” er sýning sem opnuð verður í listasalnum Nýhöfn, Hafnarstræti 18, föstudaginn 15. nóvember og verður hún opin frá kl. 17-19. A sýningunni eru grafíkmyndir eftir Erró og listamenn sem komið hafa við sögu á ferli hans, aðallega í París. Ný ljóðabók eftir Hannes Sigfússon Uppistaða sýningarinnar eru verk listamanna sem kenndir hafa verið við „figuration narrative” eða „fígúratífa frásögn” en sú stefna var ofarlega á baugi í frönsku listalífi upp úr miðjum sjöunda áratugnum og fram á þann áttunda. Þetta er í fyrsta sinn sem verk Errós eru sýnd í því_ samhengi hér á landi. í formála Aðalsteins Ingólfsson- ar í sýningarskrá segir: „Frá- sagnarmenn höfðu tilhneigingu til að hnýsast fyrir um sjálf aðföngin (myndmál íjölmiðlunarþjóðfélas- ins), taka þau til rannssoknar, í því skyni að svipta hulunni af raunverulegri merkingu þeirra í samtímanum, listrænni, félags- fræðilegri og pólitískri. Þær að- gerðir beina skrumskælingu þess, sem gerði aftur talsverðar kröfur til áhorfandans. Án þess að ein- falda hlutina allt of mikið má segja að verk amerísku popparanna, með nokkrum undantekningum (t.d. Indiana, Ruscha) hafi látið allt uppi um innihald sitt í einni sjónhendingu. Verk „frásagnar- manna” voru gjarnan margbrotin, lágu ekki ljós fyrir, fyrr en áhorf- andinn var búinn að tengja mynd- brotin saman í huganum. Því- urðu þau óhjákvæmilega undir í baráttunni um vinsældir. Friónæmi ogf friókvef: 6-7% með frjónæmi einhvern tíma á ævi DAVIÐ Gíslason, læknir og sér- fræðingur i ofnæmislækningum, gerir ráð fyrir að um 6-7% þjóðar- innar fái frjónæmi einhvern tím- ann á ævinni í grein um frjónæmi og frjókvef í tímaritinu Heilbrigð- ismál. Fram kemur að frjónæmi sé sennilega algengara í þéttbýli en dreifbýli og að tíðni sjúkdóms- ins virðist vera nokkuð lægri hér en í nágrannalöndunum. Greinarhöfundur segir að nýlega hafi verið gerð ítarleg athugun á tíðni fijónæmis í Sviss og niðurstöðurnar bornar saman við eldri rannsóknir. Samanburðurinn leiddi í ljós að tíðn- in hefði tífaldast á sex áratugum. Árið 1926 höfðu innan við 1% sjúk- dóminn. Hann var miklu algengari í borgum en sveitum og líka algengari meðal þeirra sem unnu huglæg störf en líkamleg. Síðasta áratuginn höfðu hins vegar 10-15% Svisslendinga fijónæmi og bendir Davíð á að tíðnin virðist svipuð meðal annarra þjóða. Þó virðist tíðnin vera nokkuð lægri hér en í nágrannalöndunum og bygg- ist það líklega á minni og einhæfari gróðri hér á landi. Eina nákvæma könnunin sem gerðu hefur verið á tíðni frjónæmis hér á landi er að sögn Davíðs bænda- könnun 1983. í þeirri könnun höfðu 17,8% sveitafólks á aldrinum 6-50 ára jákvæð húðpróf en aðeins 4% voru með jákvæð húðpróf fyrir grasfijóum. Hann gerir ráð fyrir að um 6-7% þjóðarinnar fái fijónæmi einhvern tíma á ævinni (með fyrir- vara um að ekki er um handahófs- kennt úrtak að ræða) og því senni- legt að fijónæmi sé algengara í þétt- býli en dreifbýli hér á landi. Davíð segir að í könnun sem hann hafi gert á sjúklingum með ofnæ- miskvef hafi um 60% fengið ofnæmi fyrir 15 ára aldur og 99% fyrir fer- tugt. Ofnæmiskvef sé því sjúkdómur ungs fólks. Meðan franskir fjölmiðlar ginu við einföldu myndmáli amerísku popp- aranna, máttu margir franskir „frásagnarmenn” bíða mörg ár eftir viðurkenningu.” Það er franski sendiherrann á íslandi, Jacques Mer, sem opnar sýninguna að listamanninum Erró viðstöddum. Þess má geta að sama dag og opnunin verður kemur út hjá Máli og menningu ævisaga Errós eftir Aðalstein Ingólfsson. Erró Sýningin sem er sölusýning er opin virka daga frá kl. 10-18 og frá kl. 14-18 um helgar. Lokað er á mánudögum. Henni lýkur 4. desember. (Fréttatilkynning) ÞAU mistök urðu í Morgunblaðinu í gær, að meginmál fréttar um nýja ljóðabók Hannesar Sigfús- sonar féll niður og biðst Morgun- blaðið afsökunar á því. Þessi bók er sjöunda ljóðabók Hannesar og heitir Jarðmunir. Mál og menning gefur bókina út og kynnir hana svo: „Hér eru bæði frumsamin ljóð og þýdd. 48 ljóð eru ný„. viðfangsefnin fjölbreytileg og efnistökin nýstárleg, 27 ljóð eru þýdd og birtast flestar þýðingarnar nú í fyrsta sinn. Höfundarnir sem Hannes þýðir eru frá 18 löndum, úrvalið nær frá Finnlandi til Fílabeinsstrandar- innar.” Bókin er 118 blaðsíður. Sigurborg Stefánsdóttir gerði kápumynd. Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði. Hannes Sigfússon MITSUBISHI - L3 00 SENDIBILARNIR ERU ÞBKKlIR FYRIR: I LÁGA BILANATÍÐNL LÍTINN REKSTURSKOSTNAÐ ■ MIKLA ENDINGU, HÁTT ENDURSÖLUVERÐ ■ MIKIÐ NÝTANLEGT RÝMI, AUÐVELDA HLEÐSLU ■ GÓÐA AKSTURSEIGINLEIKA, ÖRYGGI 1300 m^ð eindrif * BensínhreyfiU 35 gíra ^ndskipting Stgr.verð m/vsk. kr• I 076.160 Vsk. = kr. Stgr.verð án vsk. kr. 864.372 L30° »eð aldrlf (4v ® Bensin-eða DieselhrÉ gIra Bar,dskipting Stgr.v. m/vsk. frá kr. 1.4 ---——, Stgr.verð án UÍTTlTTl Góð vinnuaðstaða ■ Hleðsludyr á báðum hliðum og gafli ■ Mikil burðargeta ■ Feikilegt hleðslurými A MITSUBISHI MOTORS HEKIA LAUGAVEGI 174 SÍMI 695500

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.