Morgunblaðið - 15.11.1991, Page 22

Morgunblaðið - 15.11.1991, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1991 Kambódía: I Sihanouk eygja lands- menn nýja von um frið Phnom Penh, Peking. Reuter. MIKILL mannfjöldi, nokkur hundruð þúsunda manna, fagnaði Noro- dom Sihanouk prinsi þegar hann sneri aftur heim til Kambódíu í gær úr 13 ára útlegð. „Lengi lifi prinsinn,” hrópaði fólkið, sem fyllti breiðstræti höfuðborgarinnar, Phnom Penh, þar sem Sihanouk var áður konungur í einn tíma en fangi í annan. í honum eygja Kambódíumenn von um, að hörmungum þjóðarinnar fari að linna. Sihanouk kom til Phnom Penh með kínverskri flugvél frá Peking og það voru Kínveijar, sem fluttu hann þaðan snemma árs 1979 þeg- ■ BELFAST - Lögregla á Norður-írlandi jók viðbúnað sinn í gær eftir blóðugustu nótt í héraðinu á þessu ári. Hryðjuverkasamtökin írski lýðveldisherinn (IRA) myrti aðfaranótt fímmtudags fjóra mót- mælendur og svöruðu menn úr röðum hinna síðarnefndu með því að ráðast með skothríð á kaþólskan mann sem var að aka barni sínu í skóla og særðist hann. Ráðherra málefna N-írlands í bresku ríkis- stjórninni, Peter Brooke, sagði að fjölgað yrði um fjögur hundruð manns í norður-írsku lögreglunni, alls yrðu þá yfir 13.000 manns í liðinu. Biskup mótmælenda, Samuel Poyntz, var svartsýnn er hann ræddi um morðin sem IRA hafði skipuiagt vandlega. „Það lítur út fyrir að Belfast sé að verða blóðvöll- ur Evrópu,” sagði hann. ar Víetnamar réðust inn í Kambód- íu til að steypa af stóli stjórn Rauðra khmera. í Peking hefur hann svo búið lengst af í þessi 13 ár,' sem borgarastyijöldin hefur staðið milli stjórnarinnar, sem naut stuðnings Víetnama, og skæruliðafylking- anna. Var Sihanouk formaður þeirra en Rauðu khmerarnir voru valdamestir og fóru sínu fram. Sihanouk er formaður Þjóðar- ráðsins, sem á að vinna að sáttum milli stríðandi fylkinga í Kambódíu og er skipað 12 mönnum, sex frá núverandi stjórn og tveimur frá hverri skæruliðahreyfinganna þriggja. Þótt það sé ekki eiginlegt stjórnvald er litið á það sem fulltrúa fullvalda Kambódíu þar til efnt verður til fijálsra kosninga í landinu undir eftirliti Sameinuðu þjóðanna í apríl 1993. Mun fulltrúi ráðsins taka sæti Kambódíu hjá SÞ en sam- tökin hafa aldrei viðurkennt stjórn- ina í Phnom Penh. Sihanouk var krýndur konungur í Kambódíu fyrír 50 árum, á dögum frönsku nýlenduherranna, og þá var Phnom Penh orðlögð fyrir fagrar byggingar og glæsileika. Nú er þar flest í niðurníðslu en í tilefni af komu prinsins voru helstu strætin hvítskúruð í fyrsta sinn í langan tíma. Borgarbúar hafa ekki verið því óvanir undir stjórn kommúnista að vera skipað út á götur til að fagna einhveiju en að þessu sinni gerðu þeir það af fúsum og fijálsum vilja. „Hann mun færa okkur frið,” sagði ungur maður í Phnom Penh og í þeirri ósk felast allar aðrar óskir þjóðarinnar. Við brottförina frá Peking sagði Sihanouk, að Sameinuðu þjóðirnar myndu koma í veg fyrir, að Rauðir khmerar ógnuðu friðinum á nýjan leik og myndi þjóðin sjálf aldrei líða nýtt „Pol Pot-tímabil”. Þá átti hann við valdatíma Rauðra khmera og Pol Pots, leiðtoga þeirra, sem myrtu meira en milljón manns á þremur og hálfu ári. Sihanouk hafði sagt af sér konungdómi og var forssetis- ráðherra 1970 þegar herinn undir stjórn Lon Nols hrakti hann frá völdum en þegar Rauðir khmerar náðu þeim í sínar hendur 1975 vildu þeir notast við hann sem þjóðhöfð- ingja. Það gekk þó ekki lengi og hann var í stofufangelsi þegar hann flýði til Kína. 9 j 0 j # Reuter Japamr solgnir 1 nektma Sala hófst á nýrri bók með nektarmyndum af átján ára japanskri leikkonu, Rie Miyazawa, í bókaverslunum í Tókýó í gær. Bókin var gefin út í 100.000 eintökum og seldist strax upp fyrsta daginn en útgefendurnir leggja nú kapp á að prenta fleiri bækur til mæta eftir- spurninni. Á myndinni virða skólastúlkur fyrir sérmynd af leikkonunni í glugga einnar af verslununum. VIÐ GERUM EKKI UPPÁMILLI ÍSLENDINGA ! 386ST - 20MHz 52 MB harður diskur 1 7 ms (64 KB Cache skyndiminni) 2 MB vinnsluminni stækkanlegt í 8 MB á móður borði 1,2 MB 5,25" disklingadrif og rými fyrir 1,44 MB 3,5" Super VGA-iitaskjár (1024X768) Super VGA-skjákort 512 KB stækkanlegt í 1 MB Windows 3.0 og mús Vió afgreióum af lager! LATTU EKKI ÞVINGA ÞIG MEÐ RÍKISSAMNINGI ! Umboðsmenn um land allt. MTÆKNIVAL Fax 91-680664 Forseti Búlgaríu: Vomr um frið og fram- farir bundnar náiíari tengslum við NATO Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. ZHELYU Zhelev, forseti Búlgaríu, ávarpaði Atlantshafsráðið í höfuð- stöðvum Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Brussel í gær. Zhelev er þnðji leiðtogi fyrrverandi stöðvar NATO í framhaldi af boði inn var í London á síðasta ári. I ávarpi sínu lagði Zhelev áherslu á mikilvægi ákvarðana leiðtoga- fundar NATO í Róm á dögunum sem staðfestu að sem fyrr yrði bandalagið hélsta trygging Evrópu- ríkja fyrir friði og jafnvægi í álf- unni. Zhelev tlkynnti að utanríkis- ráðherra Búlgaríu myndi sækja samráðsfund NATO með ríkjum Mið- og Austur-Evrópu auk Eystra- saltsríkjanna sem verður haldinn í Brussel 20. desember n.k. Hann sagði að Varsjárbandalagsríkjunum fyrrverandi væri nauðsynlegt að leita nánar samskipta við NATO sem væri eini lífvænlegi vettvangur sameiginlegs öryggis og varna í Evrópu. Búlgaría væri þar engin undantekning. Forseti Búlgaríu sagði að nánari samskipti við Evrópubandalagið íkis sem heimsækir höfuð- leiðtogafundar NATO sem hald- væri forgangsverkefni búlgarskra stjórnvalda sem hefðu fullan hug á þátttöku í uppbyggingu nýrrar Evr- ópu. Zhelev lagði áherslu á bætt samskipti Búlgaríu við grannríkin í NATO, Grikkland og Tyrkland. Hann kvað Búlgari reiðubúna til að veita eftirlitsmönnum EB í Júgó- slavíu alla þá aðstoð og aðstöðu sem þyrfti. Mikilvægt væri að koma í veg fyrir að styijöldin í Júgóslavíu breiddist út en forsetinn kvaðst ít- rekað hafa varað við þeirri hættu. Hann sagðist jafnframt telja vel koma til greina að NATO sendi hersveitir inn í Júgóslavíu í samráði við Öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna til að stilla til friðar. í raun- inni væri NATO eini aðilinn sem hefði bolmagn til slíks. Brazilía: 400.000 konur deyja eftir fósturevðinffu Brasilíu. Reutcr. •' 4—7 MEIRA en 400.000 brazilískar konur deyja árlega eftir að hafa undirgengist fóstureyðingu og ótölulegur fjöldi fer í ófrjósemis- aðgerð til að eiga auðveldara með að fá vinnu. Er þetta haft eftir talsmanni kvennasamtaka í Brazilíu. Á ráðstefnu, sem brazilíska þing- ið gekkst fyrir, um réttindi kvenna var því haldið fram, að í landinu væri fjórum milljónum fóstra eytt á ári hverju og oft við mjög frum- stæðar aðstæður. Þá kom það fram hjá Rede Mujer, kvennasamtökum í Sao Paulo, að 44% kvenna á barn- eignaraldri létu gera sig ófijó eða taka sig úr sambandi eins og sagt er. „Það er aigengt í Brazilíu, að konur, giftar eða einhleypar, verði að leggja fram ófijósemisvottorð þegar þær sækja um vinnu,” sagði Luiza Viera, læknir í Sao Paulo, og hjá öðrum kom fram, að þótt fæðingarstyrkur hefði verið aukinn fyrir þremur árum hefði ófrjósemis- aðgerðunum íjölgjað stöðugt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.