Morgunblaðið - 15.11.1991, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1991
23
Stasi í Austur-Þýskalandi:
F ómaiiömbin fá að-
gang að skjölunum
Bonn. Reuter.
NEÐRI deild þýska þingsins samþykkti í gær lög sem kveða á um
að fórnarlömb Stasi, öryggislögreglu kommúnistastjórnarinnar fyrr-
verandi í Austur-Þýskalandi sem var, megi skoða leyniskjöl, sem
fjalla um þau, til að geta komist að því hverjir það voru sem of-
sóttu þau og sviku. Aðgangur lögreglu, leyniþjónustu og fjölmiðla
að skjalasöfnum Stasi er hins vegar takmarkaður.
Búist er við að lögin öðlist gildi
á næsta ári eftir að efri deild þings-
ins hefur afgreitt þau.
Stasi hafði um 85.000 fasta
starfsmenn í þjónustu sinni, auk
110.000 í hlutastarfi, og safnaði
milljónum skjala með ýmsum upp-
lýsingum um íbúa Austur-Þýska-
lands.
Hartmut Búttner, þingmaður
Kristilegra demókrata, sagði að
helsta markmið laganna væri að
vernda fórnarlömbin og einkalíf
þeirra. „Þingið vill stuðla að því að
fólk í austurhluta Þýskalands geti
öðlast innri frið,” sagði hann. „Eitt
af skilyrðum þess að menn geti
sæst á ný er að þeir fái aðgang að
skjölunum um sig, þannig að þeir
viti hveijir það voru sem veittu
upplýsingarnar og geti aftur öðlast
traust á vinum sínum og kunningj-
um.” Hann bætti við að margir
Austur-Þjóðveijar kynnu að verða
miður sín þegar þeir sæju skjölin,
þar sem Stasi hefði sérhæft sig í
að safna upplýsingum um veikleika
fólks sem hægt væri að nota til
beita það Ijárkúgunum. „Vináttu-
bönd eiga eftir að bresta þegar
menn komast að því að nánustu
vinir og vandamenn þeirra sviku
þá í hendur Stasi - í verstu tilvikun-
um var jafnvel um maka að ræða.”
í lögunum er þýsku leyniþjón-
ustunni meinaður aðgangur að
skjölum um einstaklinga sem Stasi
njósnaði um. Hún getur hins vegar
fengið önnur skjöl ef þau fjalla
beint um njósna- og hermdarverka-
starfsemi. í lögunum er einnig
kveðið á um að stofnunin, sem sér
um skjalasafnið, geti meinað
fjölmiðlum aðgang að ákveðnum
skjölum og fólk, sem minnst er á
í þeim, getur einnig komið í veg
fyrir birtingu greina sem byggðar
eru á þeim. Blaðamenn hafa mót-
mælt þessum ákvæðum og sagt að
þau skerði ritfrelsið.
A
Afengisneysla sænskra
kvenna vex stöðugt
_ Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÁFENGISNEYSLA sænskra kvenna eykst stöðugt og er farin að
segja til sín í atvinnulífinu. Göran Tunhammar, framkvæmdastjóri
sænska vinnuveitendasambandsins (SAF), sagði í gær á þingi samtak-
anna í Stokkhólmi, að hefja þyrfti sérstakt forvarnarstarf gegn
áfengis- og vímuefnaneyslu kvenna á vinnustöðum.
Vinnuveitendasambandið fagn-
aði því að nokkur sænsk fyrirtæki
skyldu hafa tekið upp hjá sér eftir-
lit með vímuefnaneyslu starfs-
manna og sérstök próf í því sam-
bandi. Væru prófin fyllilega réttlæt-
anleg, einkum á vinnustöðum þar
sem um áhættusama starfsemi
væri að ræða. í mörgum tilvikum
yrði að meta öryggi á vinnustað
meira en stöðu einstaklingsins.
Tunhammar sagði að fíkniefna-
neysla á vinnustað væri enn sem
komið væri ekki jafn mikið vanda-
mál og áfengisneysla.
Að sögn Tunhammars var hlut-
fall kvenna í hópi þeirra sem ekki
stunduðu vinnu af fullum krafti
vegna áfengismisnotkunar einungis
5% fyrir 30 árum. Nú væri hlutfall-
ið hins vegar komið í nær 25%.
„Við getum átt von á að kvenfylli-
byttunum eigi enn eftir að fjölga,”
sagði Tunhammar.
Tunhammar hélt því fram að
áfengisneysla væri mesta félags-
lega og læknisfræðilega þjóðfélags-
vandamál Svía. Gífurlegirfjármunir
glötuðust vegna minni afkasta og
framleiðslu en ofan á það bættist
gífurlegur kostnaður heilbrigðis-
kerfísins vegna drykkjusýkinnar.
Þess vegna væru fyrirbyggjandi
aðgerðir og áróður á vinnustað
einkar mikilvægar.
Reuter
Blóði drifin klæði fórnarlamba
skotárásarinnar á Austur-Tímor
Mannréttindasamtökin Amnesty International hvöttu til þess í gær
að fram færi óháð alþjóðleg rannsókn á skotárás indónesískra her-
sveita á líkfylgd á eynni Austur-Tímor á þriðjudag. Talsmaður hers-
ins sagði í gær að 19 manns hefðu beðið bana og 91 særst en Xime-
nes Carlos Belo biskup fullyrti að allt að 180 manns hefðu beðið bana
í skotárásinni. Atburðurinn hefur verið fordæmdur víða um heim. Á
myndinni halda unglingar á blóði drifnum klæðum fórnarlamba í
kirkjugarði í höfuðborginni Dili.
Víkingaskálinn sem ráðgert er að reisa að Hleiðru í Danmörku.
Yíkingaskáli reistur
að Hleiðru í Danmörku
Kaupmannahöfn. Fra Sigrunu Daviösdottur, frettaritara Morgunblaðsins.
ÁRIÐ 1986 fundust ummerki á akri skammt frá Lejre (Hleiðru) á
Sjálandi um heljarstórt mannvirki frá tímabilinu 600-1000 e.Kr. sem
er síð-járnöld frarn á víkingaöld. Nú hefur verið ákveðið að reisa
hús, eins og fornleifafræðingar álíta að þetta mannvirki hafi litið
út. Húsið eða skálinn öllu heldur, verður reistur við Tilraunamiðstöð
í fornleifafræði, „Arkeologisk forsogscentcr” í Lejre, sem er nokk-
urs konar steinaldarbær, þar sem fólk getur komið og fengið nasa-
sjón af því hvernig var að vera uppi þegar korn var malað með
steinum, eldur var kveiktur með því að núa viðarteinungum saman
og fleira í þeim dúr.
Ástæðan fyrir að ekki verður
byggt á fundarstaðnum er að þar
geta enn verið ófundnar leifar, svo
ekki verður hróflað við honum, fyrr
en hægt verður að stunda þar frek-
ari fornleifagröft.
Ummerkin sem fundust á akrin-
um eru aðeins holur eftir sperrurn-
ar sem hafa haldið húsinu uppi.
Skálinn hefur verið um 45 m á
lengd og 11 m á breidd og af því
þykjast fornleifafræðingar sjá að
hann hafi verið um 11 m á hæð.
íslendingar byggðu sér sinn þjóð-
veldisbæ á Stöng. Nú ætla Danir
að reisa sér víkingaskála, en ætlun-
in er ekki að byggja hús eins og
nú er gert, heldur á í öllu að fara
að eins og gert var á þeim tíma,
þegar hinn raunverulegi skáli var
reistur. Efnið verður urfhið eins,
öll verkfæri verða með fornu sniði
og aðferðirnar eins og gleggst er
vitað. Það er því ekki aðeins að
skálinn verði forvitnilegur, þegar
hann er fullreistur, heldur verður
það vel þess virði að heimsækja
hann, meðan hann er í byggingu.
Aðstandendur framkvæmdanna
álíta að sjálf byggingin sé kærkom-
ið tækifæri til að öðlast innsæi í
tæknikunnáttu forfeðranna. Bygg-
ingin tekur nokkur ár og áætlaður
kostnaður er um 100 milljónir ISK.
Að framkvæmdunum standa Til-
raunastöðin í Lejre, Þjóðminjasafn-
ið danska og Víkingaskipaskálinn
í Hróarskeldu. Féð verður að mestu
sótt í sjóði og til einkaaðila, sem
búist er að að greiði fúslega, því
ljóst er að framkvæmdin mun hafa
mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn,
því engin sambærileg bygging er
til.
Skálafundurinn hefur hleypt
ímyndunaraflinu af stað. í Knýtl-
ingasögu er sagt frá dönsku kon-
ungsættinni Skjöldungum, sem
bjuggu í Hleiðru, sem er gamla
nafnið á Lejre, án þess að víst sé
að Lejre sé sá staður, sem Skjöld-
ungar bjuggu á, því tilvist þeirra
er óljós. Ymsir leikmenn álitu að
þarna væri skáli Skjöldunganna
fundinn, þar sem Bjarkamál voru
flutt og þama hefðu þá auðvitað
konungar eins og Hrólfur kraki og
Haraldur hilditönn búið. Sagnfræð-
ingar vilja tæplega skrifa undir
það, því Skjöldungar eru taldir
bókmenntaættar, fremur en
mannaættar. Fornleifafræðingar
benda á að þó skálinn sé líklega
höfðingjahíbýli og þeir geti gert sér
grein fyrir útliti hans, þá fylgi hon-
um ekkert nafnspjald, svo um íbú-
ana sé allt á huldu. Varkárni fræði-
manna heldur þó vart aftur af
ímyndunarafli leikmanna og það
er enginn efi á að þegar skálinn
ei' risinn, verður saga Skjöldunga
einnig rifjuð upp fyrir þeim, sem
ganga í skálann.
Sfjörnudagar
5 daga lykill,
mánudagur til föstudags
Innifalið: 5 dagar 4 nætur,
morgunverður,
3ja rétta kvöldverður.
Fyrir manninn í 2ja manna herb.
12.900,-
Síórkosílfdijí
Heigariyk...
föstudagur, laugardagur, sunnudagur
lnnifalið: 3 dagar 2 nætur,
morgunverður,
3ja rétta kvöldverður.
Fyrir manninn í 2ja manna herb.
10.900,-
JIJD00
Lykill að Hótel Örk 1992,
seldur á sérstöku tilboði til 7. desember
í Jólagjafahúsi Hótel Arkar 1 Kringlunni.
Hvunndagsþrenna
3ja daga lykill,
mánudagur til miðvikudags
miðvikudagur til föstudags
Innifalið: 3 dagar 2 nætur,
morgunverður,
3ja rétta kvöldverður
Fyrir manninn í 2ja manna herb.
6.900,-
V________________y
SÍMI: 98-34700-FAX: 98-34775