Morgunblaðið - 15.11.1991, Page 29

Morgunblaðið - 15.11.1991, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1991 2S Súlnafellið gert út frá Hrísey enn um siirn: Muniim eflaust tapa markaði í Bretlandi verði útgerð hætt - segir Sigmar Halldórsson yfirverk- stjóri Fiskvinnslustöðvarinnar FISKVINNSLUSTÖÐ KEA í Hrísey hefur framleitt hátt á annað hundrað tonn af fiski í smápakkninguni sem seld eru á Bretlands- markað. Um 95% af hráefninu koma af Súlnafellinu EA, sem gert er út frá eynni. Yfirverkstjóri Fiskvinnslustöðvarinnar telur nær víst að húsið tapi þessum markaði, sem er afar kröfuharður bæði hvað varðar gæði og afhendingar, verði útgerð frá eynni hætt. Uppsagnir yfirmanna á Súlnafellinu hafa verið dregnar til baka, en þeim var sagt upp störfum vegna áforma um að leggja skipinu um næstu áramót. Akveðið hefur verið að gera Súlnafellið út áfram enn um sinn. Smári Thorarenssen oddviti í Hrísey sagði að íbúar eyjarinnar hafi aldrei staðið jafn þétt saman og í þessu máli, mikill einhugur hefði ríkt um að halda útgerð áfram í eynni, en vera ekki upp á aðra kornin með hráefni. Bent hefur verið á að kvóti KEA-skipanna þriggja nægi ekki til að halda þeim að veiðum allt næsta ár, en Smári sagði að þeir Hríseyingar hefðu bent á ýmsar leiðir, svo sem eins og að gera Björgvin EA frá Dalvík út á út- hafskarfa hluta úr árinu og eins væri skipið búið til rækjufrysting- ar. „Stóra málið í þessu er, að við viljum ekki láta skammta okkur hráefni úr hnefa og höfum bent á að það getur haft afdrifaríkar af- leiðingar í för með sér eins og tapaða markaði,” sagði Smári. Sigmar Halldórsson yfirverk- stjóri í Fiskvinnslustöð KEA í Hrís- ey sagðist telja nær fullvíst að fyrirtækið myndi tapa markaði sínum á Bretlandi yrði útgerð frá eynni hætt. Frystihúsið hefur í auknum mæli framleitt vöru í smápakkningum, meðal annars til Marks og Spencer og á þessu ári hefur verið framleitt hátt á annað hundrað tonn af slíkri vöru, en Súlnafellið hefur aflað um 95% af því hráefni. Sigmar sagði að miklar kröfur væru gerðar, bæði hvað varðar gæði og eins afhendingar, en báð- ir þessir þættir gætu raskast veru- lega ef engin útgerð er í eynni og þá væri ekki spuming að við- skiptavinir fyrirtækisins myndu snúa sér annað. Jóhannes Sigvaldason formaður stjómar Kaupfélags Eyfirðinga sagði að ákveðið hefði verið að gera Súlnafellið út frá Hrísey enn um sinn, en hversu lengi væri ógerlegt að segja á þessari stundu. Útgerð kaupfélagsins yrði til endurskoðunar, það væri nauðsyn- legt bæði fyrirtækinu og eins krefðust aðstæður í þjóðfélaginu þess. „Menn vita ekki hvort sá kvóti sem úthlutaður verður á næsta ári verði enn minni en nú, en ef svo verður þarf enn að fara í saumana á þessum málum. í kjölfar þeirrar ákvörðunar að aft- urkalla uppsagnimar verður um- ræða í stjórn félagsins um fram- hald útgerðarinnar,” sagði Jó- hannes. Töfraflaut- an sýpd tvisv- ar í Ýdölum TÖFRAFLAUTAN eftir Mozart í flutningi Islensku óperunnar verður flutt í Ýdölum í Aðaldal sunnudag- inn 24. nóvember næstkom- andi. íslenska óperan varð við beiðni Menningarsamtaka Norðlendinga og félagsheim- ilisins Ýdala um að sýna þetta verk, Töfraflautuna eftir Moz- art, norðan heiða, en sýning- arnar verða alls tvær, báðar sunnudaginn 24. nóvember, hin fyrri kl. 15 bg sú síðari kl. 20.30. Er þetta mikið ánægjuefni fyrir ópem- og söngunnendur á Norðausturlandi, en nú þeg- ar er mikill áhugi meðal fólks vegna sýningarinnar, en miða- sala og pantanir verða auglýst sérstaklega. Þá má nefna að áhugafólk á Norðurlandi vestra vinnur nú að því að fá íslensku óper- una einnig í heimsókn til sín. (Fréttatilkynning) J Ó L i N 1 » » I J 0t 1 N »991 A K U H í V « | A K U 0 6 V ft s J Ö t I N 19 9» A k u « e v n i Jólamerki Framtíðarinnar. Jólaraerki Framtíðarinnar KVENFÉLAGIÐ Framtíðin á Akureyri hefur gefið út hið árlega jólamerki sitt. Merkið gerði myndlistarkonan Halla Haraldsdóttir og segir hún að það sýni braut stjarna og himintungla, rauður litur sólseturs og norðurljós á bláum himni. Merkið er prentað í Prentverki Reykjavík. Auk þess sjá félagskon- Odds Björnssonar og er til sölu á ur um sölu á Akureyri og vona að Pósthúsinu á Akureyri, Frímerkja- sem flestir kaupi merkið og styrki húsinu og Frímerkjamiástöðinrii í Elliheimilissjóð félagsins. Morgunblaðið/Rúnar Þór Flutningabíll mokaður upp í Oxnadal Hópur manna fór í gærdag upp í Öxnadal til að moka upp flutningabíl sem valt þar í vonskuveðri á þriðju- dag. Bíllinn var á leið frá Akureyri með um 12 tonn af varningi til Siglu- fjarðar. Hafist var handa við að losa bílinn, en einnig var mikið verk að moka hann upp þar sem snjóað hafði yfir hann. Ekki var í gær vitað um skemmdir, hvorki á bílnum sjálfum né varningi, en meðal þess sem verið var að flytja til Siglufjarðar var mjólk og mjólkurvörur. Hlutabréfasjóður Norðurlands stofnaður: 7 2 skráðu sig fyrir hlutafé á 3 dögum Róbert B. Agnarsson kjörinn formaður HLUTABRÉFASJÓÐUR Norðurlands hf. var stofnaður í gær og eru hluthafar 72 talsins, en hlutafé er um 6,2 milljónir króna. Róbert B. Agnarsson viðskiptafræðingur og framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar í Mývatnssveit var kjörinn formaður stjórnar á stjórnarfundi sem haldinn var að loknum stofnfundi. í stjórn voni auk Róberts kosn- ir þeir Halldór Jónsson, viðskipta- fræðingur og bæjarstjóri á Ákur- eyri og Ingi Björnsson, hagfræð- ingur og framkvæmdastjóri Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri. Til vara voru kosin Lilja Steinþórs- dóttir, löggiltur endurskoðandi, Kári Arnór Kárason, hagfræðing- ur og Árni Magnússon, viðskipta- fræðingur. Björgólfur Jóhannsson var kjörinn endurskoðandi Hluta- bréfasjóðs Norðurlands. Félagið mun sækja um sam- þykki ríkisskattstjóra um að kaup á hlutabréfum félagsins verði frá- dráttarbær frá tekjuskattsstofni einstaklinga, en tilgángurinn með stofnun sjóðsins er að gefa ein- KG-BOLSTRUN Fjölnisgötu 4I\I Nýsmíði - viögeröir vs. 96-26123, hs. 96-26146. staklingum kost á að kaupa hluta- bréf í áhættudreifðum sjóði og njóta jafnframt skattaafsláttar vegna kaupanna. Fyrirhugað er að bjóða öðrum aðilum að kaupa hlutabréf í félaginu, svo sem sveit- arfélögum, fyrirtækjum og lífeyr- issjóðum. Fjárfestingastefna félagsins er að kaupa fyrir sem mest af eignum þess hlutabréf og skuldabréf fyrir- tækja sem starfa á Norðurlandi. Félagið mun þó eingöngu kaupa hlutabréf félaga sem nú eru skráð á hlutabréfamarkaði, eða stjórn félagins telur líklegt að muni á næstu árum fást þar skráð. Reiknað er með að almenn sala bréfanna hefjist þriðjudaginn 27. nóvember næstkomandi, en Kaup- þing og Kaupþing Norðurlands munu sjá um sölu þeirra auk þess sem á döfinni er að bjóða öðrum bönkum og fjármálastofnunum acjgf taka þátt í sölunni. Viðbrögð við stofnun sjóðsins voru afar góð, að sögn Jóns Halls Péturssonar hjá Kaupþingi Norð- urlands, sem ásamt félaginu Úrbót stóð að stofnun hans. Markmiðið var að safna 25 stofnfélögum, en á þremur dögum skráðu 72 aðilar sig sem hluthafa, einkum frá Ak- ureyri. Læknafélag Akureyrar boðar til fundar fyrir almenning um HEILABILUN eiiiglöp (Alzheimerssjúkdóm) í samkomusal Dvalarheimilisins Hlíðar laugardaginn 16. nóvemberkl. 14.00. Halldór Halldórsson talar um heilabilun og sýnir mynd um sambýli fólks meó heilabilun. Al|i.r.bÍQrtgnlega.yeJkQmnir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.