Morgunblaðið - 15.11.1991, Page 30

Morgunblaðið - 15.11.1991, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1991 Hnsegawa Plastmodel VANDAÐARI MODEL LEIKBÆR Hafnarfirði, S: 54430 Mjódd, S: 79111 Kjörgarði, S: 26344 Laugavegi 59 ■ LEIKHÚSIÐ Frú Emilía stendur fyrir leiklestri sem er fastur liður í starfi leikhússins. Lesin verða þijú verk eftir Henrik Ibsen; Hedda Gabler, Afturgöngur og Brúðuheimilið. Áður hefur Frú Emilía staðið fyrir leiklestri verka Antons Tsjekhov og Maxims Gorki og einnig gefið þau út á bók. Eins verður nú háttað með verk Ibsens. Leikritin þijú sem Frú Emiliía hyggst leiklesa skrifaði Ibs- en skömmu fyrir aldamótin eða á árunum 1879 til 1890. Leikendur í fyrsta leiklestrinum verða Guðrún Gísladóttir, Jóhann Sigurðarson, Harpa Arnardóttir, Kristján Franklín, Soffía Jakobsdóttir, Sigríður Ilagalín og Sigurður Skúlason. Leikstjóri er Pétur Ein- arsson. Hedda Gabler verður lesin laugardaginn 16. nóvember og sunnudaginn 17. _ nóvember kl. 14.00 í Listasafni íslands við Frí- kirkjuveg. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn frá kl. 13.00 báða dagana. ■ Á PÚLSINUM föstudaginn 15. og laugardaginn 16. verða Vinir Dóra með blústónleika og hefst þá Fjölmiðlablúsinn að nýju en Rás 2 hefur skorað á Bylgjuna að senda fulltrúa sinn þessa helgi á Púlsinn. Leiðrétting Þau mistök urðu á forsíðu sér- blaðsins Ur verinu sem út kom 13. nóvember sl., að föðumöfn stúlkn- anna sem vom við beitingu á Rifi misrituðust. Rétt er: Edda Bára Sveinbjörnsdóttir, Ema Rós Aðal- steinsdóttir og ErlaJCristín Reynis- dóttir. Morgunblaðið biðst velvirð- ingar á þessu. EFTIRMENNTUN BÍLGREINA NÁMSKEIÐ Rafkerfi IV Námskeiðinu erskipt í tvo hluta. Fyrri hlutinn fjallar um rafeindakveikjuna og er markmið þess hluta að gera þátttakendur hæfa til að greina bilanir í Ijós- stýrðum, spanstýrðum og segulstýrðum rafeinda- kveikjum. í seinni hlutanum er fjallað á bóklegan og verklegan hátt um rafeinda- og tölvutækni í farar- tækjum. Fjallað verður um skynjara, ,,anolog“ rásir, rökrásirog örtölvuna. í lokin eru þessir þættirtengd- irsaman I heildarkerfi. Námskeiðið verðu haldið 21., 22. og 23. nóvem- ber nk. í Verkmenntaskóla Austurlands, Mýrar- götu 10, Neskaupstað. Þátttökugjald fyrir þá, sem greiða í Eftirmenntun- ars. Bílgreina, er kr. 6.500,- fyrir aðra kr. 26.000,- Þátttökutilkynningar berist fyrir 20. nóv. í síma 91-813011 eða 97-71620 (Jóhann Stephensen). Demi Moore Glenne Headly SIMI Listahátíð fyrir börn og unglinga HALDIN verður leiklistarhátíð fyrir börn og unglinga 16.-17. nóvember í menningarmiðstöð- inni Gerðubergi. Einnig tengjast barnasýningar Þjóðleikhúss og Leikfélags Reykjavíkur hátíð- inni. Fyrir hátiðinni standa sam- tök um barna- og unglingaleik- hús á íslandi. I Gerðubergi verða sýndar sjö sýningar atvinnu- og áhugaleik- hópa, m.a. tvær brúðuleikhússýn- ingar. Miðaverð er 200 kr. á sýn- ingu. í Þjóðleikhúsi er sýnd Búkolla og Ævintýrið hjá LR í Borgarleik- húsinu. Aðgangseyrir er samkvæmt miðaverði leikhúsanna. Samtök um barna- og áhugaleik- hús á Islandi voru stofnuð í nóvem- ber 1990 og eiga aðsetur sitt í Gerðubergi. Markmið samtakanna er að efla íslenskt barna- og ungl- ingaleikhús og stuðla að samvinnu þeirra sem við það starfa. Einnig vinna samtökin að kynningu á ís- lensku barna- og unglingaleikhúsi á erlendri grund. 19 atvinnu- og áhugaleikhópar, leikhús auk fjöldi einstaklinga eru félagar samtak- anna í dag. Dagskrá hátíðarinnar er sem hér segir: Laugardaginn 16. nóvember: Kl. 11.00: Sögusvuntan - Sagan af músinni Rústnu f. 2-6 ára, 60 mín. Kl. 14.00: Möguleikhúsið - Fríða fitubolla f. 3-10 ára, 30 mín. Kl. 15.30: Kaþarsis-leiksmiðjan - Litli prinsinn f. 3-6 ára, 40 mín. Sunnudagur 17. nóvember: Kl. 11.00: Dúkkukerran - Bangsi f. 3-7 ára, 60 mín. Kl. 13.00: Þjóðleikhús- ið - Næturgalinn f. 6-15 ára, 45 mín. Kl. 15.00: Möguleikhúsið - Grímur og Galdramaðurinn. Ólöf Sverrisdóttir - Tatarastelpan f. 3-8 ára, 30 mín. Kl. 16.00: Gamanleik- húsið - Grænjaxlar f. 10-15 ára, 15 mín. kynning. (Úr Frcttatilkynningu) Atriði úr leikriti Sögusvuntunn- ar, Rústnu. Indverskar smámyndir sýndar á Mokka-kaffi SÝNING á indverskum smá- myndum verður opnuð £ Mokka- kaffi á Skólavörðustíg 3A í dag, föstudag. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi tegund myndlistar er kynnt hér á landi en indversk smámyndagerð á sér meira en þúsund ára langa sögu og hefur tekið tiltölulega litlum breyting- um í aldanna rás. Allar myndirn- ar á sýningunni, 33 talsins, eru til sölu. Verkin á sýningunni eru ættuð frá Rajasthan á norðvestur Indlandi og voru gerð laust fyrir síðustu aldamót. Þau tileyra myndlistarhefð sem rekja má aftur til 16. aldar og stunduð var við tvær ólíkar hirðir, annars vegar Mughal-hirðina, sem laut stjórn herskárra islama, og hins vegar Rajput-hirðina undir for- ystu hindúa. Indverskar smámyndir fjalla um Ein af indversku smámyndunum sem sýndar eru á Mokka-kaffi flest milli himins og jarðar og er verkunum skipt í fimm flokka: Hirð- myndir, trúarmyndir, samfara- myndir, veiðimyndir og ástarmynd- ir. _ Á sýningunni liggur frammi tíu blaðsíðna sýningarskrá sem nefnist „Nokkrir punktar um indverska smámyndagerð,” rituð af Hannesi Sigurðssyni listfræðingi. (Fréttatilkynning) Síðustu sýn- ingar á Dúfna- veislunni AÐEINS tvær sýningar eru eftir þjá Leikfélagi Reykjavíkur á Dúfnaveislunni eftir Halldór Laxness, en það hefur nú verið sýnt sextán sinnum á Stóra sviði Borgarleikhússins. Dúfnaveislan var frumsýnd snemma í haust. Það var Halldór E. Laxness sem setti leikinn á svið og Siguijón Jóhannsson gerði leik- mynd. Tvær síðustu sýningar verks- ins eru næstkomandi laugardag, 16. nóvember, og laugardaginn 23. nóvember. Einnig eru fáar sýningar eftir á Þéttingu eftir Sveinbjöm I. Bald- vinsson. Það var frumsýnt á Litla Sviði Borgarleikhússins í október síðastliðinn. Leikstjóri er Hallmar Sigurðsson og leikmynd gerði Jón Þórisson. Þétting verður sýnt nú um helgina, bæði föstudags- og laugardagskvöld. 16 500 mortal thoughts Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. 4 í i i I < 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.