Morgunblaðið - 15.11.1991, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 15.11.1991, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1991 31 Leikendur leikritsins Börn mán- ans. ■ LEIKRIT Leikfélags Versl- unarskóla íslands verður frumsýnt í kvöld, föstudaginn 15. nóvember. Leikritið heitir Börn mánans og er eftir bandaríska leikritaskáldið Michael Weller í þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar. Leikstjóri er Þorsteinn Bachmann. Börn mán- ans er gamanleikur með dramatísku ívafi og íjallar um daglegt líf 8 ungmenna á háskólastigi. Leikritið gerist á blómatímabilinu, Víetnam- stríðið er í algleymingi, nýjar og róttækar hugsjónir eru að brjótast fram á sjónarsviðið. Staðurinn er lítil íbúð í bandarískri stórborg. Verkið gerir tímabilinu góð skil og leiðir fólk í skilning um hugarástand þeirra tíma. Sýningar verða eins og hér segir: Frumsýning föstud. 15. nóv., 2. sýning sunnud. 17. nóv., 3. sýning þriðjud. 18. nóv. og 4. sýning föstud. 22. nóv. Sýning- arnar hefjast allar kl. 20.30 og verða í hátíðarsal Verslunarskóla Islands. ■ STJARNVÍSINDAFÉLAG fs- lands mun í vetur gangast fyrir röð erinda um ýmis áhugverð efni úr heimi stjarnvísindanna. Erindin eru einkum ætluð leikmönnum og verða þau sérstaklega miðuð við þarfir þeirra sem litla þekkingu hafa á stjömufræði. Fyririesarar verða úr röðum íslenskra stjörnufræðinga og stjarneðlisfræðinga og munu þeir leggja áherslu á að fjalla um við- fangsefni sín á einfaldan og að- gengilegan hátt þannig að sem flestir geti notið góðs af. Fyrsta erindið verður haldið laugardaginn 16. nóvember 1991 í stofu 101 í Odda og hefst það kl. 14.00. Fyrir- lesari er Einar H. Guðmundsson, dósent í stjarneðlisfræði við Há- skóla íslands og nefnir hann erindi sitt Hvers vegna er myrkur á nóttinni? í fyrirlestrinum verður fjallað um þessa mikilvægu spurn- ingu og sýnt fram á hvernig hún tengist spurningum um stærð og gerð alheimsins, upphaf hans og þróun. ■ CASABLANCA heldur tísku- kvöld í kvöld, föstudaginn 15. nóv- ember, þar sem fram fer útnefning á best klæddu stelpu og strák ársins 1991. 14 aðilar voru valdir af dómnefnd en 6 af þeim komast áfram til útnefningar og verða úr- slit kunngerð í kvöld. Vegleg verð- laun verða í boði fyrir sigurvegar- ana, s.s. fataúttekt, hársnyrting, snyrtivörur o.fl. Icelandic Models sýna föt frá versluninni Centrum í Kringlunni. Húsið verður opnað kl. 21 fyrir boðsgesti en kl. 23.30 fyrir aðra gesti. Uppskriftakort fylgja hverri pakkningu Matargerd er list og undirstaðan er úrvals hráefni SMJÖRLlKISGERÐ Banvænir þankar Bönnuð innan 16 ára

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.