Morgunblaðið - 15.11.1991, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1991
Ævintýri í skóginum
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Regnboginn:
Fuglastríð í Lumbruskógi
Teiknimynd með isienskri tal-
setningu. Danmörk 1991.
Það skal tekið fram í upphafi
að þessi litla og ljúfa teiknimynd
er ætluð yngstu áhorfendunum
og það ánægjulegasta við sýningu
hennar er tvímælalaust hlátras-
köll smáfólksins sem skemmti sér
konunglega. Þá er tilganginum
náð.
Fuglastríðið er ákaflega stutt
mynd, röskur klukkutími - sem
er ábyggilega heppileg lengd fyrir
börnin. Sagan er ofur einföld, svo
ekki sé kveðið fastara að orði.
Dýrin í Lumbruskógi lifa í sátt
og samlyndi, aðeins einn skuggi
fellur á þessa paradís, það er ár-
ans hrægammurinn hann Hroði.
Hann eirir engu og er sísvangur:
Þykir gott fuglaket og músasteik-
ur. Við fylgjumst einkum með
tveim smáfuglum sem hafa ein-
sett sér það göfuga markmið að
kála hrægammsskömminni er þeir
stækka. Þeir bjástra við þetta
daglangt en á nóttunni heldur
fóstri þeirra, uglan, í ”ræsið” -
miður félegan selskap við drykk-
felldan máf, sem jafnframt er
afburða jazzleikari, gjálífa söng-
konu af hænsnfuglaættum og svo
frameftir götunum.
Teikningarnar eru einfaldar þar
sem myndinni er ætlað að
skemmta yngstu kynslóðinni fyrst
og fremst. Því er ekki mikið lagt
uppúr bakgrunninum heldur
sögupersónunum og það hefur
tekist mætavel, þetta er vinalegur
og kúnstugur hópur. Danskur
Atriði úr Fuglastríðinu.
húmor er jafnan skammt undan,
seint sæum við drykkfelldar sögu-
hetjur í Disneymynd! Af þeim ber
uglan og Hroði kallinn er býsna
góður líka. Myndin er ákaflega
vel talsett á íslensku, það fer ekk-
ert framhjá áhorfendunum. í
stuttu máli sagt er sú vinna öllum
til sóma - tæknimönnum, leikur-
um og ekki síst söngvurunum
okkar góðu. Teiknivinnan er ein-
föld með þarfir smáfólksins í
huga, hrein og bein og ánægju-
legt að sjá nafn landa okkar á
meðal listamannanna, Ásta Sig-
urðardóttir teiknar eina aðalfígúr-
una og tekst það vel.Fuglastríðið
er vönduð og góð mynd og ég vil
hvetja foreldra til að fara með
rýjurnar sínar á þessa ágætu og
hoilu skemmtun.
A TVINNUAUGL ÝSINGAR
Frá Menntaskólanum
á ísafirði
Frá og með 1. janúar 1992 er laus staða
kennara í stærðfræði, heilt starf, við Mennta-
skólann á ísafirði.
Umsóknir skulu sendar fyrir 5. desember nk.
til undirritaðs, sem einnig veitir nánari upp-
lýsingar í síma 94-4540 eða 94-4119.
Skólameistari.
KENNSLA
Gítarkennsla
Nú getur þú lært á gítar í gegnum bréfa-
skóla. Bæði fyrir byrjendur og lengra komna.
Námskeið í rokk og blús hefjast í hverri viku.
Upplýsingar í síma 91-629234.
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA.
Félag íslenskra gítarleikara.
NAUÐUNGARUPPBOÐ
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á eigninni Egilsbraut 20, e.h., Þorlákshöfn, þingl.
eigandi Sigrún Björg Grímsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri, mánudag-
inn 18. nóvember ’91 kl. 11.00.
Uppboðsbeiðendur eru Ævar Guðmundsson, hdl., Byggingasjóður
ríkisins, Ásgeir Magnússon, hdl., Eggert B. Ólafsson, hdl. og Sigríð-
ur Thoralcius, hdl.
Sýslumaðurinn i Árnessýslu.
Bæjarfógetinn á Selfossi.
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum eignum fer fram í skrif-
stofu embættisins, Hörðuvöllum 1,
þriðjudaginn 19. nóv. ’91 kl. 10.00:
Austurvegi 56, Selfossi, þingl. eigandi Stefnir hf.
Uppboðsbeiðendureru Byggðastofnun.'Hróbjartur Jónatansson, hrl.,
Jakob J. Havsteen, hdl. og Sigríður Thorlacius, hdl.
Eyrargötu 8b, Eyrarbakka, þingl. eigandi Sveinn Guðmundsson.
Uppþoðsbeiðandi er íslandsbanki hf., lögfræðid.’
Grashaga 6, Selfossi, þingl. eigandi Valdimar Bragason og Hafdis
Marvinsd.
Uppboðsbeiðendur eru Fjárheimtan hf., Jón Ólafsson, hrl., Bygginga-
sjóður ríkisins og Ævar Guðmundsson, hdl.
Annað og síðara
miðvikudaginn 20. nóv. ’91 kl. 10.00:
Bakka 2, (leigul. m./m.) Ölfushr., þingl. eigandi þrb. Bakkalax hf.
Uppboðsbeiðendur eru Jón Magnússon, hrl., Sigríður Thorlacius,
hdl., Jón Kr. Sólnes, hrl. og Guðjón Árm. Jónsson, hdl.
Eyrarbraut 20, (Óseyri) Stokkseyri, þingl. eigandi Gunnar Einarsson.
Upboðsbeiðendur eru Ásgeir Magnússon, hdl. og Byggingasjóður
ríkisins.
Hveramörk 8, Hveragerði, þingl. eigandi Kristján S. Wium.
Uppboðsbeiöendur eru Ari isberg, hdl., Byggingasjóður ríkisins,
Landsbanki islands, lögfræðingad., Ingólfur Friðjónsson, hdl. og
Tryggvi Agnarsson, hdl.
Tryggvagötu 14, n.h., Selfossi, þingl. eigandi Linda Jóhannesdóttir.
Uppboðsbeiðendur eru Byggingasjóður ríkisins og Kristján Þorbergs-
son, hdl.
Sýslumaðurinn i Árnessýslu.
Bæjarfógetinn á Selfossi.
Stangaveiðimenn ath!!
Nýtt flugukastnámskeið hefst næstkomandi
sunnudag kl. 10.20 árdegis í Laugardalshöll-
inni. Nýtið ykkur tækifærið.
Kennt verður 17. og 24. nóvember og svo
8. og 15. desember.
K.K.R. og kastnefndirnar.
FUNDIR - MANNFA GNAÐUR
Aðalfundur - Mosfellsbær
Aðalfundur fulltrúa-
ráðs sjálfstæðisfé-
laganna i Mosfells-
bæ verður haldinn í
Sjálfstæðishúsinu,
Urðarholti 4, þriðju-
daginn 19. nóvem-
ber kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Stofnun nýs full-
trúaráðs.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Gestir fundarins verða Árni Mathiesen og Sigríður Þórðardóttir.
4. Önnur mál.
5. Kaffiveitingar.
Stjórnin.
Halldór Blöndal,
samgöngu-
ráðherra
Almennur fundur með sam-
gönguráðherra í Dalabúð,
Búðardal, laugardaginn 16.
nóvember nk. kl. 18.00.
Samgönguráðuneytið.
Kópavogsbúar athugið!
Laugardaginn
16. nóvember mun
Arnór Pálsson, bæj-
arfulltrúi og meiri-
hlutamaður í félags-
málaráði, og Kristín
Lyngdal, varabæjar-
fulltrúiæg formaður
lista- og menning-
arráðs, vera til við-
tals í Hamraborg 1,
3. hæð. Opið er frá kl. 10.00-12.00 og
Það veröur heitt á könnunni.
eru allir velkomnir.
Sjálfstæðisfélögin.
Aðalfundur
Félags einstæðra foreldra
verður haldinn í Skeljahelli, Skeljanesi 6,
Reykjavík, mánudagskvöldið 18. nóvember
kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
3. Rósa Ingólfsdóttir syngur og leikur við
hvern sinn fingur.
4. Jón Guðbergsson flytur erindi um for-
eldrasamtökin Vímulaus æska.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Félag hjartasjúklinga
á Reykjavíkursvæðinu
boðar til almenns félagsfundar laugardaginn
16. nóvember kl. 14.00 í sal á fyrstu hæð
Hótels Esju.
Fjölbreytt dagskrá.
Stjórnin.
FÉLAGSSTARF
Aðalfundur
kjördæmisráðs sjálfstæðisfélag-
anna á Vesturlandi
verður haldinn í Dalabúð laugardaginn 16. nóvember og hefst stund-
víslega kl. 13.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Á fundinn mæta þingmenn Sjálfstæðisflokksins á Vesturlandi og
Halldór Blöndal landbúnaðar- og samgönguráðherra.
Stjórnin.
Aðalfundur Félags
sjálfstæðismanna í
Skóga- og Seljahverfi
verður haldinn.þriðjudaginn 19. nóvember
kl. 20.00 í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Gestur fundarins verður Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, borgarfulltrúi.
Allir félagsmenn velkomnir.
Stjórnin.
/ /
FELAGSLIF
I.O.O.F. 12=17311158A=SP
I.O.O.F. 1 = 17311158'/2 =Sp.
ÚTIVIST
HALLVEIGARSTÍG 1 • SÍM114606
Dagsferð sunnudaginn
17. nóvember
Kl. 10.30: Póstgangan
23. áfangi
Kirkjuferja - Torfeyri.
Aðventuferð í Bása
22.-24. nóv.
Muniö að sækja pantanir fyrir
kl. 18 i dag, eftir helgi verða þær
seldar öðrum.
Skrifstofan, Hallveigarstíg 1, er
opin frá kl. 12-18.
Sjáumst!
Útivist.
NY-UNG
KFU M & KFU.i
Samvera fyrir fólk á öllum aldri
í kvöld í Suðurhólum 35.
Bænastund kl. 20.05.
Samveran hefst kl. 20.30.
Hverni nota ég náðargjafirnar?
Séra Örn Bárður Jónsson talar.
Ungt fólk á öllum aldri
er velkomið.
Frá Guðspeki-
félaginu
Ingólfsstræti 22.
Áskriftarsfmi
Ganglera er
39573.
I kvöld kl. 21.00 ræðir Gunnlaug-
ur Guðmundsson um stjörnu-
speki i húsi félagsins, Ingólfs-
stræti 22.
Á morgun, laugardag, er opið
hús frá kl. 15.00 til kl. 17.00 með
stuttri fræðslu og umræðum kl.
15.30. Allir eru velkomnir og
aðgangur ókeypis.
Skrifstofa felagsins er opln á
fimmtudögum kl. 15.00 til 17.30,
en þá hefst hálftima hijóð stund,
sem er öllum opin.