Morgunblaðið - 15.11.1991, Síða 45

Morgunblaðið - 15.11.1991, Síða 45
 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1991 45 ISRAEL - HVERS VEGNA? FORLAGIÐ Slmi 689000 því að drepa börn. Margir spyrja: Hversvegna þetta endalausa hat- ur? Hvaða andi er þar að baki? Pjöldi kristinna manna hafa þó á síðari tímum vaknað til ábyrgðar þessari fámennu þjóð í mjög litlu landi sem best fyrir tilverurétti sínum. Þeir eiga við ógnir milljóna herskárra araba sem hafa aðeins eitt í huga að útrýma ísrael, landi og þjóð. Að taka landið sem gyð- ingar hafa gefið líf á þeim fáu árum sem þeir hafa haft sjálf- stæði (43 ár). Þessir hópar kris- tinna manna vilja vera sem „varð- menn við múra Jerúsalem”. Fyrir stuttu var í Kastljósi Sjónvarpsins viðtal við ísraelska konu sem hefur verið hér í heimsókn undanfarið. I útsendingu lýsti hún því hatri sem börnin á „vesturbakkanum” bera til ísraelskra hermanna, og hvers vegna. Það fór óhugur um marga þegar þeir skildu tilgang þáttarins, en það virtist vera að sá tortryggni og hatri á ísrael. Þessi sjónvarpsútsending var því verri þar sem þetta var flutt á sama tíma og ísraelar ásamt öðr- um arabaþjóðum voru í Madrid til friðaryiðræðna. Hver er tilgangur- inn? Ég vil taka það fram að ísra- elskir hermenn eru ekki árásarher heldur varnarlið. Við skulum minnast 1967 og 1973. Fleirum en mér finnst einnig að fréttaflutningur Ríkisútvarps- ins og Sjónvarpsins hafi verið í langan tíma rnjög andgyðinglegur og neikvæður i garð Israels. Mér finnst mikið ójafnvægi gilda þar. Hvers vegna er ekki haft samband við þá menn og konur sem þekkja „hina hliðina”. Hér á landi er félag sem kennir sig við Zion og í eru vinir ísraels. Þeir eru sannfærðir um tilkall gyðinga til alls landsins, en þrátt fyrir það styðja þeir og styrkja skólastarf meðal palest- ínskra/araba barna á hinunr svo- kallaða vesturbakka, öllum við- komandi til mikillar blessunar. Er þetta ekki jákvætt fréttaefni? Þar er hvorki verið að sá hatri né tor- tryggni, heldur kærleika og friði í anda þess friðarhöfðingja og konungs sem fæddist í Betlehem, landi gyðinga, sjálfur gyðingur af gyðingamóður, og við í hinum svo- kallaða kristna heimi minnumst á svo sérstakan og fallegan hátt í næsta mánuði á hátíð jólanna. Megi sá friður og blessun sem við höfum þegið frá Betlehem gefa okkur meiri kærleika til lands og þjóðar fyrirheitanna ... Eretz- Israel. Með Shalom-kveðju, Ólafur Jóhannsson Oll Lionsdagatöl eru merkt. Þeim fylgir jólasveinslímmiði og tannkremstúpa. Allur hagnaÖur rennur óskiptur til líknarmála. tHVÍ 'jV : ikWf tiif-jbll Ekkert lát virðist vera á gyð- ingahatri meðal þjóða heims, og hefur aukningin orðið síðustu ár bæði í austri og vestri. Fyrir síð- ustu heimsstyijöld gekk sá áróður mjög meðal nasista í Þýskalandi að allir erfiðleikar þjóðarinnar á efnahagssviðinu og meðal sam- skipta fólks væru gyðingum að kenna. Á miðöldum sáðu þekktir kennimenn kirkjunnar fræum tor- tryggni og haturs á gyðingum í guðsþjónustum sínum. Marteinn Lúter, sem íslenska þjóðkirkjan kennir sig við, ritaði m.a. bækur sem voru fullar af andúð og hatri á gyðingum. Ótrúlegt en satt. Bækur hans og rit voru sem rétt- læting á hinni hroðalegu útrým- ingarhelför gyðinga í síðustu heimsstyrjöld. Fyrir nokkru heyrðust raddir úr austri, þar sem fullyrt var að allt það böl sem kommúnisminn hefur valdið í heiminum sé gyðing- um að kenna vegna þess að Karl Marx var gyðingur. Ekki fyrir löngu síðan heyrði ég þekktan kristinn kennimann halda því fram að gyðingaofsóknir og hatur sé réttlætanlegt, þar sem gyðingar hefðu drepið Jesú, og um leið kallað „blóð hans yfir sig og eftirkomendur”, þar að auki væru þeir illgjarnir menn sem gerðu í Verðlaunamatseðill á Holiday Inn Sunnudaginn 17. nóvemberkl. 19.00 Vatnakrabbasúpa með geddurúllum ivmé Salat með gröfnu lambi og balsamískri vínediksósu • • Ond að hætti Reykjavíkur, borinfram með sveppaúrvali og rósmarínilmandi sósu Epla „Bavarian“ með ananassósu og bláberjum I'' maí 1991 héldu sjö íslenskir matreiðslu- meistarar til Chicago til að taka þátt í einni stærstu alþjóðlegu matreiðslukeppni sem hald- in er í heiminum, American Culinary Classic. íslendingarnir unnu bæði silfur- og bronsverð- laun í keppninni og nú kynna þeir matseðilinn sem vann til silfurorðunnar. T ekið er við borða- pöntunum í síma 689000. Verðið er aðeins kr. 3.300. Einnig kynna meistararnir nýja og óvenju glæsi- lega matreiðslubók, Villibráð og veisluföng úr náttúru íslands, sem út kemur hjá Forlaginu. I bókinni eru uppskriftir sjömenninganna að ljúffengum réttum sem matreiddir eru úr íslenskri villibráð og bragðbættir með íslensk- um jurtum. og veisluföng úr náttúru Islands M lueiti kepfHiislik tslarskra malrciðslumeistara_ FORLAGID UONS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.