Morgunblaðið - 15.11.1991, Page 47

Morgunblaðið - 15.11.1991, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1991 47 KNATTSPYRNA Grétar Steindórsson kemur inn í hópinn gegn Frökkum. Hólmbert búinn að velja HÓLMBERT Friðjónsson, þjálf- ari U-21 árs landsliðsins, hefur valið 16 manna hóp fyrir leikinn gegn Frökkum í Rúðuborg á þriðjudaginn kemur. Hólmbert hefur gert eina breyt- ingu frá síðasta leik gegn Spánverjum, sem íslenska liðið vann 1:0. Grétar Steindórsson úr Breiða- bliki kemur inn fyrir Leif Geir Haf- steinsson úr ÍBV. Eftirtaldir leik- menn skipa hópinn: Markverðir: Kristján Finnbogason, ÍA og Ólafur Pétursson, ÍBK. Varnarmenn: Kristján Halldórs- son, ÍR, Arnaldur Loftsson, Val, Brandur Sigurjónsson, ÍA' og Ind- riði Einarsson, Fylki. Miðvallarleikmenn: Haraldur Ing- ólfsson, ÍA, Anton Björn Markús- son, Fram, Grétar Steindórsson, UBK, Arnar Grétarsson, UBK, Ing- ólfur Ingólfsson, Stjörnunni, Stein- ar Adólfsson, Val og Finnur Kol- beinsson, Fylki. Sóknarmenn: Rúnar Kristinsson, KR, Valdimar Kristófersson, Stjörnunni og Arnar Gunnlaugsson, ÍA. Sigurður Ómarsson úr KR verður fyrsti varamaður ef einhver forföll verða. Þormóður Egilsson úr KR og Ríkharður Daðason úr Fram eru meiddir og Steinar Guðgeirsson og Leifur Geir Hafsteinsson gáfu ekki kost á sér vegna náms. A-landsliðið og U-21 ársliðið spila æfingaleik á sandgrasinu í Kópavogi á morgun, laugardag, kl. 11.30. Frakkland: Jafntefli toppliða Toppliðin í frönsku 1. deild- inni í knattspymu, Mar- seille og Mónakó, mættust í gærkvöldi á heimavelli þess fyrrnefnda. Jafntefli varð, 1:1, þannig að Marseille hefur enn tveggja stiga forskot. Portúgalinn Rui Barros kom Mónakó yfir á 51. mín. en Ghana-búinn Abedi Pele jafnaði fyrir meistarana á 84. mín. FELAGSLIF Uppskeruhátíð Víkings Uppskeruhátíð knattspyrnudeild- ar Víkings, fyrir alla flokka, verður í nýja íþróttahúsinu Víkinni á laug- ardaginn kl. 14.00. Herrakvöld Gróttu Herrakvöld íþróttafélagsins Gróttu verður í kvöld í Sjálfstæðis- húsinu, Austurströnd 3 á Seltjarn- amesi. Húsið opnar kl. 20. Aðal- ræðumaður verður Ólafur Ragnar Grímsson, alþingismaður. Kemur í Ijós í dag hvort Sigurður leikur SIGURÐUR Jónsson, landsliðs- maður í knattspyrnu, hefur ekkert getað æft síðustu vik- una, vegna meiðsla i baki sem hann hlaut á æfingu. í dag gæti komið í Ijós hvort hann sér sér fært að mæta í lands- leikinn gegn Frökkum í París næstkomandi miðvikudag. akmeiðsli hafa htjáð Sigurð mikið undanfarin misseri, en hann hafði fengið sig góðan af þeim þar til þau tóku sig upp að nýju á æfingu. Hann fer í myndatöku í dag, og sagðist, í samtali við Morg- unblaðið í gær, ætla að reyna að mæta á æfingu í dag — tii að sjá hvort hann gæti beitt sér. „Það yrði hrikalega slæmt að missa af ieiknum í Frakklandi. Ég hef ekki æft í viku, en ætia að sjá til hvernig ég verð á morgun [í dag]. Það þýðir ekkort að fara í SUND Amþór á besta tíma íslendings í 50 metra bringusundi Amþór Ragnarsson, sundmaður úr SH, synti 50 metra bringusund á 30,9 sek., á bikarmóti í Brönderslev á Jótlandi um síðustu helgi og sigraði. Keppt var í 50 metra laug og er tími hans sá besti sem Islendingur hefur náð, en SSÍ skráir ekki íslandsmet í þessu sundi. Arnþór æfir með sundfélaginu Holstebro og sendi félagið 12 manna lið á bikarmótið í Bronderslev. Amþór sigraði í 100 og 200 m bringu- sund fyrir félag sitt. Hann synti 100 m á 1.09,4 mín. og 200 m á 2.34,8 mínútum. íParís landsleikinn nema maður sé alveg orðinn góður," sagði Sigurður í gær. „Það hefur verið mikið um leiki hjá mér að undanförnu, tveir til þrír á viku. Álagið hefur því verið mikið og ég stífnaði upp í bakinu.” Sigurður hefur ætíð verið einn besti maður íslands í þeim lands- leikjum sem hann hefur tekið þátt í, þannig að það yrði skarð fyrir skildi ef hann yrði ekki með í þess- um síðasta Evrópuleik að þessu sinni. Þessi leikur gæti einnig orðið mikilvægur fyrir Sigurð sjálfan sem atvinnumann. Hann hefur nánast ekkert fengið að spreyta sig með aðalliði Arsenal, viil fara frá félag- inu og hefur lýst yfir áhuga á að leika í Frakklandi. Þetta yrði því tilvalið tækifæri fyrir hann að sýna hvað í honum býr. Sigurður Jónsson er enn einu sinni meiddur í baki. Það kemur í ljós í dag hvort hann verður með landsliðinu í Frakklandi á miðvikudaginn kemur. HANDKNATTLEIKUR HSÍferí hart við lið Júlíusar Vill láta reyna á samninga leikmanna HANDKNATTLEIKSSAMBAND íslands hefur sent mótmæla- bréf til Bidasoa og IHF vegna þess að spænska liðið vildi ekki gefa Júlíus Jónasson lausan í landsleikina í Ungverj- alandi, eins og um var samið. að var um það samið fyrir löngu síðan að við fengjum að nota Júlíus í þessa leiki og við eigum það til skriflegt. Við ætlum því að fara í hart og láta reyna á það hvort þessir samningar, sem HSÍ hefur gert við erlendu félögin, standist- Það ,er kominni tími til þess að við fáum að vita það,” sagði Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðs- þjálfari. Enn ekkert formlegt Eins og komið hefur fram fékk Júlíus ekki leyfi frá félagi sínu Bid- asoa til að leik með landsiiðinu í Ungverjalandi. „HSÍ hefur enn ekki fengið formlega tilkynningu frá Bidasoa um að Júlíus fái ekki leyfi tii að leika í þessu móti. Þetta eru vinnubrögð sem við getum ekki sætt okkur við. Ef þessir samningar eru ekki marktækir getum við alveg eins kastað þeim strax í ruslaföt- uúa,” sagði Þorbergur. Þorbergur Aðalsteinsson lands- liðsþjálfari er bjartsýnn fyrir mótið, en ekki ánægður'itieð fraiúkomu for- ráðamanna Bidasoa á Spáni. Þorbergur um mótið: Leggst velímig ÍSLENSKA landsliðið í hand- knattleik leikur gegn Austurríki í dag á fjögurra þjóða móti í Györ í Ungverjalandi. „Þetta mót leggst vel í mig þó svo að ég hafði kosið að vera með okkar sterkasta lið," sagði Þor- bergur Aðalsteinsson, lands- liðsþjálfari, í samtali við Morg- unbiaðið í gækvöldi. W Íslenska liðið kom til Györ á mið- vikudag, nema Geir Sveinsson, Gunnar Gunnarsson, Sigurður Sveinsson og Sigurpáll Árni Aðal- steinsson sem komu til Ungveija- lands í gær. Liðið tók tvær æfingar í gær og sagði Þorbergur að öll aðstaða væri til fyrirmyndar og ekkert yfir neinu að kvarta. Hann sagðist ekki vita mikið um austurríska liðið. „Ég veit bara að þeir hafa undirbúið sig vel þar sem þeir eru gestgjafar í B-keppninni og ætla að standa sig vel þar. Við þekktum þó einn fyrrum pólskan landsliðsmann í liði Austurríkis er við hittum þá á æfíngu í gær og það gætu þess vegna verið fleiri innflytjendur *í* iiðinu,"” sagði- Þor- bergur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.