Morgunblaðið - 01.12.1991, Síða 44
MORGlINBliAÐIÐ SUNNUDAGU-ií/lt-DE8EMBBRH9917
Ub
Áhöfnin á Vestmannaey.
Æskufólk í Vestmannaeyjum I starfskynningu í ísfélaginu.
4
4
VIÐBURÐURIISLENSKRI
FRÆÐIRTTAÚTGÁFU
Lokabindi íslendingasagna komið út.
Petta er vandaðasta heildarútgáfa
íslendingasagna sem gefin hefur verið út.
í þessu nýja bindi eru fjórar íslendingasögur og níu
Islendingaþættir. Islendingasögumar eru:
Harðar saga, Bárðar saga Snæfellsáss,
Þorskfirðinga saga og Flóamanna saga.
í bókinni er ítarlegur formáli Þórhalls
Vilmundarsonar. Þar er og að finna myndir,
kort og ættar- og nafnaskrár.
Útkoma þessa lokabindis í 14 binda útgáfu
Fomritafélagsins á Islendingasögum, er í tvennum
skilningi viðburður í íslenskri fræðiritaútgáfu. Með
því er fullgerð vandaðasta heildarútgáfa
Islendingasagna, s^m hingað til hefur séð dagsins
ljós, og er þá bæði átt við frágang texta, skýringar
og fræðilega umfjöllun um söguraar. I annan stað
er beitt í þessu bindi að nokkra nýjum aðferðum
við könnun sagnanna, með rækilegum
rannsóknum öraefiia og ömefnasagna.
HIÐ ÍSLENZKA BÓKMENNTAFÉLAG , ,
SlÐUM0U2l •PÖSTHÓLF8935« 128REYKJAVlK*S(MI91479060
1816 ar 1991
Metsölublað á hverjum degi!
Sölusambands íslenskra fiskfram-
leiðenda árið 1932 og Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna 1942 og
hefur frá stofnun SH haft framleið-
endamerki H-2, en ísfélagið hóf
ekki beina þáttöku í útgerð fyrr en
1976 þegar það eignaðist hlut
Klakki hf. og síðan tveimur árum
síðar í Bergi-Huginn. Síðan hafa
afskipti félagsins aukist stórlega.S-
amkvæmt upplýsingum Eyjólfs
Martinssonar framkvæmdastjóra er
áætluð heildarvelta um 1,4 milljarð-
ar króna á næsta ári, en þar af er
velta frystihússins um 6 hundruð
milljónir en skipaflotans um 8
hundruð milljónir. ísfélagið á 40%
hlut í Bergi-Huginn sem gerir út
Vestmanney og Bergey og auk þess
gerir félagið út Halkíon, Gideon og
Smáey. Þá hefur Bergur-Huginn
fest kaup á togara frá Grænlandi
sem er nú verið að gera kláran til
veiða en hann á að leysa gömlu
Bergey af hólmi. Samanlagður
kvóti Isfélagsflotans er 6-7 þúsund
þorskígildi og til þess að allir hlutir
gangi upp þarf að halda vel á spöð-
unum, skipuleggja, hagræða, horf-
ast í augu við sífelld veðrabrigði á
vettvangi veiða og vinnslu, en þetta
eru vanir menn og þeirra verklag
er að vinna fast og ákveðið, svo
fremi að forsendunum sé ekki kippt
á braut. En allt um það, forystu-
menn ísfélagsins segja að níræði
unglingurinn stefni á það eitt að
leggja á brattann til bjartrar fram-
tíðar eins og Magnús Kristinsson
stjóraarformaður ísfélags Vest-
mannaeyja komst að orði. í tilefni
90 ára afmælisins hefur ísfélagið
gefið út rit með sögu félagsins, en
það byggist á ritverki Þorsteins Þ.
Víglundssonar um söguna fyrstu
70 árin og Hermanns Einarssonar
frá 1971-1991. Ritið er prýtt mörg-
um myndum úr sögu fyrirtækisins
sem hefur í vinnu um 100 starfs-
menn í landi og um 70 sjómenn.
Stjórn ísfélagsins: Aftari röð frá vinstri: Jóel Andersen, Eyjólfur
Pétursson, Þórarinn Sigurðsson og Ágúst Bergsson. Fremri röð:
Eyjólfur Martinsson, framkvæmdasljóri, Kristinn Sigurðsson og
Magnús Kristinsson, stjórnarformaður.
Hluti af fiskiskipaflota ísfélagsins.
Hörkulið í pökkunarsalnum.