Morgunblaðið - 12.12.1991, Page 16

Morgunblaðið - 12.12.1991, Page 16
16 MORGUNBLÁÐIÐ FIMMTUDAGUR í'z! 'DÉSEMBER '1^91 HOFUM OPNAÐ nýjan og afar hlýlegan veitingasal LINDINA, að Rauðarárstíg 18. Á aðventunni bjóðum við upp á glæsilegt íslenskt jólahlaðborð með þjóðlegum réttum Verðkr. 1490,- Taktu þér frí frá jólaönnunum og njóttu frábærrar máltíðar í hádeginu eða að kvöldinu í glæsilegum, skreyttum veitingasal Lindarinnar. Við tökum vel á móti gestum okkar með ilmandi/ heimalagaðri glögg og piparkökum Starfsmannafélög og hópar, munið að panta tímanlega. Verið velkomin RAUÐARÁRSTÍG 18, SIMI: 62 33 50 Hugur og hönd List og hönnun Bragi Asgeirsson Á dögunum barst mér í hendur tíma- ritið Hugur og hönd, sem kemur út ár hvert er líða fer að jólum og er á sinn hátt jafn kærkomið og far- fuglarnir er boða vorkomuna. Samlíkingin er ekki út í hött því að hann er dijúgur ylurinn af ís- lenzkri handmennt sem streymir frá síðunum til lesendans. Að útgáfunni stendur kunnáttu- fólk um íslenzka handmennt, sem vinnur að hinum fjölbreyttustu hlut- um í mjúkt sem hart efni, - ull og tog sem grjót og harða málma. Að þessu sinni greinir Áslaug Sverrisdóttir frá þeirri iðju Kristínar Schmidhauser Jónsdóttur að knipla úr togi, en hún hélt eftirminnilega sýningu á þeirri listrænu handiðn í Stöðlakoti snemmsumars. Þá vekur Stefán Snæbjörnsson athygli á því í næsta pistli, að fag- legt kynningarstarf er undirstaða nýbreytni og jákvæðrar þróunar á hönnunarsviðinu. Sigríður Halldórsdóttir segir frá margskeftum líndúkum frá 17. og 18. öld og hermir þarnæst frá ráð- stefnunni „Ull er gull“. Rúna Gísladóttir kynnir athafna- semi Marlínar Örlygsdóttur verzl- unarkonu og pijónahönnuðar í grein sem nefnist „lesið í pijónles“ og kemur víða við, segir m.a. frá banda- rískum pijónahönnuði að nafni Kaffe Fassett, sem hefur hingað komið og miðlað af hugmyndabrunni sínum, en pijónauppskriftir hans eru vin- sælar um allan hinn vestræan heim. Það er meira en líklegt í ljósi mynda af framleiðslu hans, sem fylgja greininni. Greininni fylgir svo upp- skrift að fljótpijónaðri peysu með laskermum sem Malín hannaði. Hér má vekja athygli á því að pijón, knippling og hvers konar vinna úr ull er víða mikilvæg kennsl- ugrein í listaskólum, þótt menn hafi ekki ennþá áttað sig nógu vel á því í ullarlandinu mikla, þar sem menn virðast leggja lífið að veði til að lyfta undir skammsýnina eins og til að tapið verði sem mest. íslendingar þurfa að líta sér nær og ráðast gegn þeim landlæga hugsunarhætti sem lýsir sér svo vel í ummælum konunnar í útlandinu, sem sagði: „Hvers vegna í ósköpun- um eru menn að drepa fallegu fisk- ana í sjónum, þegar hægt er að kaupa þá í dósum í næsta stórmark- aði“! Það mætti nefnilega álíta að land- inn upp til hópa álíti að hlutirnir verði til af sjálfu sér og fyrirhafn- arlaust í útlandinu og bara sé að kaupa þá út úr búð! Nei, það er ekki magn innvigtaðr- ar ullar, né annarrar framleiðsluvöru á vettvangi handiðnaðar sem er aðal- atriðið, vinnslan ér mikilvægari, og lífræn skapandi hönnun skiptir svo sköpum. Þorbjörg Þórðardóttir textíllista- maður segir frá litunaraðferð með lueiiK ög itei Zenitullarlitum, en litun ullar hefur fýlgt manninum í þúsundir ára og kemur húm mjög víða við í stuttri grein. Ber svo sérstaklega að nefna greinar um nokkra list- og fjölhaga eins og Ófeig Björnsson gullsmið (Þórir Sigurðsson), Ágústu Péturs- dóttur Snæland (Rúna Gísladóttir) og Níels Hafstein (Áslaug Sverris- dóttir). Þá eru greinar um Ull og pijón í Færeyjum (Nicolina Jensen) og perlusaumuð spariföt og fleira grænlenzkt (Rúna Gísladóttir). Það fer minna fyrir uppskriftum og leiðbeiningum í þessu hefti en oft áður, en hér er þó sagt frá ömmu- hosum (sigríður Halldórsdóttir) og leiðbeiningar eru um hreinsun gam- alla textíla (Margrét Gísladóttir). Vilji einhveijir fá upplýsingar um ástarhnútinn finnast þær á einni síð- unni með myndum eftir Rut Hall- grímsdóttur en texta eftir Níels Hafstein. Ýmsar upplýsingar eru svo í ritinu t.d. um 40 ára afmæli Heimilisiðnað- arfélags Islands, ein síðan er helguð bókatíðindum og loks ber sérstak- lega að geta sérprentaðs efnisyfirlits sem spannar tímabilið 1966-1991, sem hlýtur að vera hvalreki fyri alla þá sem við listiðnað fást. Af þessari upptalningu má ljós- lega ráða hve mikinn og merkilegan fróðleik má finna í ritinu, sem hlýtur að vera ómissandi fyrir alla þá sem unna lifandi handverki og lífrænni sköpun. Minnumst þess svo á tímum mál- verndar, að án þess að tekið sé fullt tillit til þessara mikilvægu þátta í þjóðlegri mennt rýrnar málkennd, því að tungumálið er sprottið af þörf mannsins til tjáningar. Því það er eins og að kenna því snjalla vísu utanbókar án skilnings á innihaldi hennar, fegurðinni í hrynjandinum og blæbrigðum máls. Það er heildin í algjörleika sínum sem skiptir máli, og þannig má líkja tungumáli við fagurt tré með öllum sínum laufblöðum, krónum og ann- arri unaðslegri sjónrænni virkt, sem er borið upp af stofni er vex upp af djúpum rótum fijórrar gróður- moldar. Matargerð er list og undirstaðan er úrvals hráefni KJOTIÐNAÐARSTOÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.