Morgunblaðið - 12.12.1991, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 12.12.1991, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991 19 SOSSA SÓLSKINSBARN Bókmenntir Sigurður Haukur Guðjónsson Sólskinsbarn. Höfundur: Magnea frá Kleifum. Kápa og myndir: Þóra Sigurðardóttir. Setning: Silja Aðalsteinsdóttir. Umbrot: Mál og menning. Prentverk: Prentsmiðjan Oddi hf. Útgef- andi: Mál og menning. Já, börn geta verið skemmtileg, en fegurst í augum þroskaðrar sál- ar, sem lítur um öxl, lætur eftir sér að svífa á skýi minninganna til fundar við gamla tíð. í hoppdansi svífur barnið um. Umgjörðin hrör- legt kot; þýfður túnbleðill, en samt, ekkert jafnast á við þetta, engin hátimbruð höll, engin grund grænni eða fegurri, því þarna börðust þau pabbi og mamma, afi og amma, og í kringum þau var sólskinið eitt í augum dreymandans. Barnið sjálft var kannski ærslafullur ólátabelgur á þroskabraut til manns, en í minn- ingunni stígur það fram ekki aðeins þannig, heldur líka sem spekingur. Þannig segir Magnea sögu hnát- unnar Sólveigar Guðríðar, Sossu. Kannske er þetta saga skáldkon- unnar sjálfrar, alla vega eru þær nátengdar, Sossa og hún. I fátækt er barnið alið upp í stór- um systkinahópi, þar sem skyldur lífsins eru á allra herðum. Lítilli 6 ára telpu er erfitt að temja sér takt- Magnea frá Kleifum. stig við kröfur alvörugefins föður, gleymir sér við spumir lífsins og gátur, finnur svör, sem samrýmast ekki sannleik hinna fullorðnu, en engu síður speki, sem móðir ein skilur. Fjörugt ímyndunarafl, sem reynt er að smokra á múl raunveru- leikans, sannfærir telpuna um að hún hljóti að vera tvær verur, sól- skinsbarn og tryllingur, Sossa og Setta. Þannig sprangar hún um sviðið með úfið hár og skap. Höf- undur segir sögu telpunnar á fjör- legan og skemmtilegan hátt, frá- sögnin leiftrar af kímni, samúð, aðdáun, svo lesanda fer að þykja vænt um Sossu. Bollaleggingar hennar um lífið em oft bráðfyndn- ar, til dæmis hvers vegna litli bróð- ir má ekki heita Jesús, þó margir séu kenndir við guð sjálfan, eins og Guðmundar og Guðrúnir sanna. Höfundi vex ásmegin eftir því sem á sögu líður. Samskipti fjöl- skyldunnar við kaupmannshrokann gamla frábærlega lýst, ekki síður samtali- Sossu við kaupmannsfrúna dönsku og þjónustu hennar. Þar fer höfundur á kostum, og ég held, að fáir geti varizt hlátri, er lítil hnáta greiðir Baugu, gömlu kúnni, með óþekkri systur. Allt fer vel að lok- um, eins og í ævintýrum lífsins, — oftast. Mál gott og lipurt, svo jafnvel orðskrípið gamla glatarí (81) stakk ekki í augu, enda fínt í munni hér fyrrum. Það læðist að mér, að ekki síður fullorðnir en börn hafi gaman af þessari sögu, hér sé ekki aðeins bók fyrir börn, heldur afa og ömmu líka, þetta er jú þeirra æskuvöllur, þeirra saga. Myndir bráðsnjallar, órabelgnum lýst strax á kápu. Próförk mjög vel unnin, prentverk líka. Skemmtileg bók, þeim er unna heilbrigðum börnum og gamalli tíð. Barnabækur fyrri tíma Bókmenntir Sigrún Klara Hannesdóttir Lesrím 1992 Útg. Lindin hf., 1991 Dreifing: íslensk bókadreifing. Lesrím er almanak fyrir árið 1992 helgað íslenskum barnabók- um. Valin hafa verið sýnishorn af myndum ætluðum íslenskum börn- um frá því fyrsta stafrófskverið kom út í Skálholti árið 1695 og fram að miðri þessari öld að mynd- skreytingar urðu algengar og lit- myndir fóru að ryðja sér til rúms. Ein mynd fylgir hveijum mánuði og þrettánda myndin skreytir káp- una. Elsta myndin er úr stafrófs- kverinu „Eitt lítið stafrófskver fyrir börn og ungmenni", og er af hana sem átti að vekja börnin til umhugs- unar um skyldur sínar. Saga myndskreytinga fyrir börn er rakin óbeint með myndvalinu og þar má sjá myndir úr fyrstu barna- bókinni, Barnaljóðum, sem kom út í Kaupmannahöfn 1780, fyrstu myndabókinni sem kom út 1853 þar sem sjá má ábúðarmikinn „köf- unarmann" í fullum skrúða. Þarna eru gamlir kunningjar eins og litla hvíta hænan sem spókar sig í upp- hlut í viðskiptum sínum við rebba, forsíða Æskunnar eins og hún var 1922, að ógleymdum myndum eftir þá tvo menn sem mest glöddu böm hér á landi með list sinni, Tryggva Magnússon og Halldór Pétursson. í almanakinu er getið um afmælis- daga um 400 rithöfunda og mynd- listarmanna sem hafa unnið fyrir böm. Aðaltilgangur Lesríms er að minna á bamabækur fyrri tíma og hvetja börn og fullorðna til að gleyma ekki menningararfinum. Ollum myndunum fylgir skýring á íslensku og ensku og hentar Lesrím 1992, því sem kynning á íslenskum bamabókum erlendis. Þetta er einn- ig handhægt rit fyrir alia þá sem vinna að hvers konar dagskrárgerð og þurfa að finna eitthvað sem tengist hveijum degi, svo sem fjöl- miðlamenn, kennara eða bókaverði. Lesrím er gamalt íslenskt orð yfir almanak og kemur meðal ann- ars fyrir árið 1817 er Oddur Jóns- son Hjaltalín gaf út bók að nafni „Nýtt lesrím sem kennir að útreikna ársins aðskiljanlegu tíðir, samt tunglkomur og annað héraðlút- andi.“ Lesrím 1992 lætur ekki mikið yfir sér og stingur því nokkuð í stúf við litagleði náttúm-almanak- anna. Allflestar myndirnar em upp- haflega í svart-hvítu og því hefur verið valinn grunnlitur sem hæfir myndefninu vel, kremlitaðir tónar með ofurlítilli rauðri skreytingu. Lesrím 1992 er hannað af Búa Kristjánssyni og prentað hjá Skák- prenti. Á VEGGI, LOFT OG GÓLF TRAUSTARI HUÓÐEINANGRUN, ÞYNGRI OG STEINULL ÞVÍ ÓÞÖRF. A FLOKKUR ELDTRAUSTAR VATNSHELDAR ÖRUGGT NAGLHALD KANTSKURÐUR SEM EGG HOLLENSK GÆÐAVARA Þ.ÞORGRlMSSON&CO ÁRMÚLA29, SÍMI 38640 GLÆSILEGUR FATNAÐUR á dömur og herra Nýkomið t.d.: □ Herraföt □ Herraskyrtur □ Herrapeysur □ Bindi □ Stakir jakkar á herra og dömur □ Stakar buxur □ Stretch buxur □ Blússur □ O.m. fl. OPIÐFRÁKL. 10-18 LAUGARDAG OGFRÁKL. 13-18 SUNNUDAG Mælikvarði 1: 250 000 AUt landlö 9 kort Þórsmörk/ Landmannalaugar. Húsavík/Mývatn Suðvesturíand. SkaftafeU. Hekla. Hornstrandlr. ÞingvelUr. Ferðakort 1: 750 000 Mælikvarði 1: 100 000 Svæðasklpt eða raðskipt. 9 möppur. Verð hverrar möppu: Kr. 5.490.- Kr. 4.400.- Kr. 4.400.- Mælikvarðar 1: 500 000 og 1: 250 000 7 kort. JARÐFRÆÐIKORT Kr. 4.700.- REIÐIJEIÐIR STAÐFRÆÐIKORT á sérstöku tilboðsverði! Vandaðar og nytsamar jóla- og tækifærisgjafir. Fást einungis í kortaverslun Landmælinga íslands, Laugavegi 178. Mælikvarði 1: 250 000 Mið-ísland og Miö-Vesturland. 2 Reiðleiðakort °8 reiðleiðalýsingar. Kr. 5.490.- Mælikvarði 1: 25 000 Reykjanes 9 kort. Suðvesturland 8 kort. Kr. 4.400.- Sendum í póstkröfu um land allt. LANDMÆUNGAR ÍSLANDS i i i og 3-990.- KORTAVERSLUN LANDMÆLINGA ÍSLANDS LAUGAVEGI178 • SIMI680999
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.