Morgunblaðið - 12.12.1991, Qupperneq 34
'U
MORGUNBLAÐIÐ FÍMMTUDÁGUR 12. DESEMBER 1991
Dvöl á heilsuhæli NLFÍ
eftir Sólveigu Eggerz
Pétursdóttur
Sumarið 1991 verður í margra
minni eitt hið besta og ljúfasta sem
veðurguðirnir hafa gefið gamla
Fróni. Þrátt fyrir alla þessa maka-
lausu veðurblíðu er margur maður-
inn þreyttur og lasburða. Svo var
um okkur hjónakornin, kvalin af
liðagigt og hinu og þessu sem ekki
verður tíundað hér. Það gaf mér
kjark að eiga von um dvöl á heilsu-
hæli NLFÍ í Hveragerði. Svo rann
dagurinn upp og við renndum í hlað-
ið þar sem allt umhverfið breiddi á
móti okkur faðminn. Vinaleg húsin,
fallegur gróður og vel snyrtar flat-
ir, allt bar vitni um hirðusemi og
alúð.
Þegar inn var komið tók hjúkr-
unarfræðingur á móti okkur og
ræddi við okkur um fyrirkomulag
„Áberandi er hve lækn-
ar, hjúkrunarfólk og
annað starfsfólk er
notalegt við alla, sama
hve mikið það þarf að
leggja á sig.“
dvalarinnar og svaraði öllum spurn-
ingum okkar. Við fengum inni í
notalegu tvíbýli með innbyggðri
snyrtingu. Frammi á ganginum var
þvottavél og þurrkari og aðstaða til
að hita sér vatn. Fyrsti tíminn fór
í að kynna sér húsakynni og heilsa
nokkrum kunningjum sem voru hér
fyrir. Gangamir eru breiðir og bjart-
ir með nokkrum notalegum útskot-
um og aðstöðu til að lesa dagblöðin
sem koma árla morguns með fyrsta
áætlunarbíl frá Reykjavík. Svo eru
sjónvarpstæki á þrem stöðum í hús-
inu, aðstaða fyrir fólk sem teflir eða
spilar og setustofa með píanói til.
afnota fyrir gesti. Þarna er stór
sameiginlegur matsalur.
Hjúkrunarvakt er hér allan sólar-
hringinn. Símavakt er meirihluta
dagsins. Hér er fólk er öllum stétt-
um þjóðfélagsins, frá andlegum ör-
yrkjum til embættismanna í æðstu
stöðum, sumir nokkuð hressir, aðrir
illa farnir á heilsu, andlega og lík-
amlega. Allir áttu eitt sameiginlegt,
að njóta þess örlætis og gagnlegu
hjálpar, sem hér er veitt. Einhvern
tíma var sagt, að Guð hjálpi þeim
sem hjálpar sér sjálfur. Þetta er
gott að hafa í huga hér, því ef þú
ert jákvæður, berð þig eftir því sem
þér er bent á að gera og leggur þig
fram um að gera sjálfur vel, þá mun
árangurinn verða eftir því.
Daginn eftir komuna fórum við í
læknisskoðun. Heimilislæknir eða
annar læknir hefur sent inn umsókn
NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ
Ásgdrjafeobsson
Asgeir Jakobsson
SÖGUR ÚR
TÝNDU LANDI
Ásgeir Jakobsson er landskunnur
fyrir œvisögur sínar um íslenska
athafnamenn. Þessi bók hefur
aö geyma smösögur eftir hann,
sem skrifaöar eru á.góðu og
kjarnyrtu máii. Þetta eru
bráðskemmtilegar sögur, sem
eru hvort tveggja í senn
gamansamar og með alvar-
legum undirtóni.
M.Scott Peck
Leiðin til andlegs
þroska
Öll þurfum við að takast á við
vandamál og erfiöleika. Það er
oft sársaukafullt að vinna bug á
þessum vandamálum, og flest
okkar reyna á einhvern hátt að
forðast að horfast í augu við
þau. í þessari bók sýnir banda-
ríski geðlœknirinn M. Scott Peck
hvernig við getum mœtt erfið-
leikum og vandamálum og
öðlast betri skilning á sjálfum
okkur, og um leið öðlast rósemi
og aukna lífsfyllingu.
pfrruíí
ZOPMONÍASSON
VIKINGS
IÆKJAROTV
Pétur Zophoníasson
VÍKINGSLÆKJARÆTTV <
Fimmta bináið af Víkíngslœkjarœtt,
niðjatali Guðríðar Eyjólfsdóttur og
Bjarna Halldórssonar,. hreopstjó'a
á Víkingslcek. í þessu bindi er fyrsti
hluti h-liðdr œttarinnar, niðjar
Stefáns Bjarnasonar. Efhinu fram
að Guðmundi Brynjólfssyni á
Keldum verður skipt í tvö bindi,
þetta og sjötta bindi, sem kemur
út snemma á nœsta ári (1992).
Myndir eru rúmur helmingur
þessa bindis.
Hnnhogi C»uðuiund«.son
Gamansemi
Nakkur valin dæmi
53& ^ Ást, morö og dulrænir hæíileikar
Pétur Eggerz
ÁST, MORÐ OG
DULRÆNIR HÆFILEIKAR
Þessiskáldsaga er sjöunda bók
Péturs Eggerz, i henni er meðal
annars sagt frá ummœlum
fluggáfaðs íslensks lœknis, sem
taldi sig fara sálförum að
nœturlagi og eiga tal við fram-
liðna menn, Þetta er forvitnileg
frásögn, sem fjallar um marg-
breytilegt eðli mannsins og
tilfinningar.
Finnbogi
Guðmundsson
GAMANSEMI
SNORRA STURLUSONAR
23. september voru liðin 750 ár
síðan Árni beiskur veifti Snorra,
Sturlusyní banasár í Reykholti. í
þessari bók er minnst
gleðimannsins Snorra og rifjaðir
upp ýmsir gamanþœttir í verkum
hans. Myndirí bókina gerðu
Aðalbjörg Þórðardóttir og
Gunnar Eyþórsson.
Auöunn Bragi
Sveinsson
SITTHVAÐ KRINGUM
PRESTA
í þessari bók greinir Auðunn Bragi
frá kynnum sínum af rúmlega
sextíu íslenskum prestum, sem
hann hefur hitt á lífsleiðinni.
Prestar þeir, sem Auðunn segir
frá, eru bœði lífs og liðnir og kynni
hans af hverjum og einum mjög
mismikil; við suma löng en aðra
vart meira en einn fundur.
SKUGGSJÁ
Bókabúð Olivers Steins sf
NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ
Solveig Eggerz Pétursdóttir
um dvölina og þar með sent umsögn
um þörf og ástand dvalargests.
Hælislæknir hefur þá kynnt sér
þessa umsögn fyrir læknisskoðun.
Þrír læknar eru nú starfandi á hæl-
inu. Að skoðun lokinni er ákveðið
hvaða meðferð hentar best. Áber-
andi er hve Jæknar, hjúkrunarfólk
og annað starfsfólk er notalegt við
alla, sama hve mikið það þarf að
leggja á sig.
Hér er boðið upp á gufuböð, sund
og vatnsleikfími í góðri sundlaug
með ágætis aðstöðu í heitum nudd-
pöttum. Þeir sem vanir eru að lúra
frameftir á morgnana eru nú komn-
ir í sundfötin fyrir allar aldir og
verða hressari að bragði. Flestir
halda þaðan í einhvers konar með-
ferð, svo sem nudd, heilsuböð, leir-
böð, stuttbylgjur, sjúkraþjálfun og
svo framvegis.
Morgunmatur er kl. hálfníu til
tíu. Auðvitað er heilsufæði í öll mál
enda er það besta leiðin til að
hreinsa líkamann og stuðla að betri
líðan. Flestir hugsa vel um bílinn
sinn en gleyma því að líkaminn þarf
engu síður á góðri umhirðu að halda.
Þeir sem njóta þess að borða full
mikið hluta ársins geta nú bæt.t úr
því meðan á dvölinni stendur. Ég
var nú ein af þeim sem þurfti að
léttast og ég byijaði allar máltíðir
með því að líta á disk sem lagður
er fram til leiðbeiningar og sýnir
hámarks skammt fyrir þann sem
vill leggja af. Þá var um að gera
að vera fljótur að taka á diskinn
hið leyfílega og líta fram hjá lúnum
kræsingunum. Erfitt var það en vel
þess virði. Blóðþrýstingurinn varð
fínn og ég fann að ég var að mjókka
í mitti og sat ekki lengur með bum-
buna á lærunum.
Leikfimi fengum við daglega og
æfíngar í tækjasal, sem er allgóður,
en oft var þröngt setinn Svarfað-
ardalur. Gönguferðir voru farnar
hvem virkan dag undir leiðsögn
þjálfara. í sumar nutum við góða
skapsins og hressandi framkomu
Helgu Haraldsdóttur, sem einu sinni
var vel þekkt sunddrottning og nú
allsheijar þjálfari. Ég er sannfærð
um, að þau lóð sem hún lagði á
vogarskálar heilsubótarbaráttunn-
ar, voru ómetanleg. í fyrstu göngu-
ferðunum var ég dauðþreytt af að
þramma áfram og sá aðeins tærnar
á skónum mínum, en svo léttist leið-
in dag hvern og umhverfið fór að
verða lifandi og ánægjulegt. Heilsu-
hælið, Ölfusborgir, Garðyrkjuskóli
ríkisins og Hveragerðisbær hafa
sameiriast um mikla tijárækt í hlíð-
inni ofan við bæinn. Þetta er orðið
hið fegursta gróðurlendi með heil-
brigðum tijám og mörgum
skemmtilegum gönguleiðum.
Margt er hér í boði, sem skiptir
miklu máii fyrir dvalargesti. Hér er
hið ágætasta bókasafn með bókum
við allra hæfí. Rúmgóður samkomu-
salur er notaður til skemmtanahalds
og fyrir kvöldvökur. Inn af og í
tengslum við samkomusalinn er
kapella og er hægt að loka þessum
vígða hluta af með fortjaldi. Hér
messar sóknarpresturinn. Einnig er
hér lítið herbergi þar sem presturinn
getur sinnt þeim sem óska eftir að
tala við hann einslega. Hver og einn
getur líka farið þangað inn til hug-
leiðslu en gæta verður þess, að al-
gjör þögn ríki þar á meðan. í
hringlaga útbyggingu er svo at-
hvarf fyrir þá sem vilja reykja og
er sá hluti byggingarinnar nefndur
„syndin“. Út frá einum ganginum
er smá verslun þar sem gestir geta
náð sér í ýmsar nauðsynjar, ætar
og óætar.
Fólk er fljótt að kynnast hér og
greinilegt er, að margur eldri borg-
arinn fær hér félagsskap við hæfí
og vinátta skapast, sem endist leng-
ur en dvölin á heilsuhælinu.
Út um herbergisgluggann minn
fylgist ég með hópi af ungu og föng-
ulegu fólki, sem er í leikfimi og
boltaleik á grænni flötinni. Þetta er
SÁÁ-hópur í endurhæfingu. Þetta
fólk lítur út fyrir að geta orðið þjóð-
inni verðmætt. Mannlífið er okkar
dýrmætasti þjóðarauður, gullnám-
um betri. Við veitum því athygli,
að þessi hópur sér til þess, að aldrað-
ir og lasburða gangi alltaf fyrir við
matborðið og hann er ætíð glaðvær
og prúður í framkomu.
Ofurlítið er um það, að fólk fari
heim til sín um helgar, en sé þess
ekki þörf, þá nýtist tíminn betur
með því að vera um kyrrt. Þeir sem
eru með bílinn sinn geta aiveg eins
skroppið í smá ferðir um nágrennið.
Hér er hver ferðin annarri skemmti-
legri og náttúrufegurð víða mikil.
Hestaleiga er hér á næstu grösum.
Sumir lita einnig við í Eden og skoða
blóm og málverkasýningar, sem þar
eru settar upp hálfsmánaðarlega.
Ég heyrði líka minnst á, ,að á
veitingastaðnum „Húsinu á slétt-
unni“ væru vikulegar tískusýningar.
Hvar sem maður býr, er hægt
að stunda gönguferðir sér til hress-
ingar og allir eru sammála um ágæti
þess að hreyfa sig, en einhvern veg-
inn vill það detta upp fýrir hjá flest-
um. Hér á staðnum eru farnar tvær
sameiginlegar göngur sem báðar
eru ómetanlegar. Önnur er fyrir þá
sem vilja fara styttra og hægar en
hin fyrir þá sem vilja hreyfa sig
meira og hraðar. Endurminningin
um þessar góðu stundir hefur hvatt
okkur hjónin dyggilega eftir að við
komum aftur heim og oft drifum
við okkur út í gönguskónum í stað
þess að sitja sem fastast inni.
Ég minnist þess hve böm starfs-
1 fólksins voru prúð og virtust vera
ánægð. Þau voru augnayndi á að
horfa eins og fuglamir og blómin.
Þessar fáu línur era smá kveðja
frá okkur hjónunum með þakklæti
fyrir ómetanlega dvöl á heilsuhæl-
inu. Um leið vii ég segja sambor^ir-
um mínum nokkuð frá þessum góða
stað.
Höfundur er listmálari.
------» ♦ ♦-----
Dansar
við úlfa
DANSAR við úlfa, skáldsaga Mic-
haels Blake, er komin út hjá
Fjölvaútgáfunni í þýðingu Þor-
steins Thorarensen.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„Kvikmyndin sem gerð var eftir
bókinni með Kevin Kostner í aðal-
hlutverki varð margföld Óskars-
verðlaunamynd.
Kvikmyndin var mest orðvana
umhverfis- og kenndalýsing, meðan
skáldsagan auðvitað geymir sjálfan
beinmerginn í orðkynngi, atburða-
spennu og tilfínningalýsingu í orð-
um.
í bókinni eru fljúgandi lýsingar á
öllu því sem fram kemur í kvik-
myndinni eins og björgun konunnar
Stendur með hnefa, vísundaveiðin
mikla og næturárás Kíóvanna, en
hér koma auðvitað líka ótal mörg
fleiri atriði utan kvikmyndarinnar.
Má þar sérstaklega nefna umræður
á ráðstefnum Indíánanna undir for-
sæti Tíu bjarna og Sparkandi fugls,
sem lýsa vel mannviti og göfgi hinn-
ar framstæðu þjóðar."
Dansar við úlfa er um 300 blað-
síður. Hún er unnin hjá Prentstofu
G. Ben.