Morgunblaðið - 12.12.1991, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ PIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991
37
kostnað sem hlýst af lántöku allra
þeirra tuga milljarða sem þarf til
að fjármagna þessi herlegheit. Að
svo stöddu eru spár Landsvirkjunar
lítið meir en „skot út í loftið“ en
fái þær staðist, þá er þessi kostnað-
arauki vegna línuflutningsins að-
eins brot af heildarkostnaði Fljóts-
dalsvirkjunar og þar að auki allt
að því hlægilegur í samanburði við
þann vaxtakostnað sem fyrirtæk-
inu — eða þjóðinni réttara sagt —
verður gert að greiða.
Kapp í kinnum
Umrætt fyrirhyggjuleysi Lands-
virkjunar birtist einkum í því að
hafa ekki kannað til hlítar aðrar
línuleiðir en þá stystu. Mikið skort-
ir enn á, að fyrir liggi nákvæmar
upplýsingar um kostnað, umhverf-
isskaða og öryggismál á hvorri
línuleið fyrir sig. „Framkvæmda-
gleðin“ var slík að fyrirtækið vildi
rjúka til við undirbúning línulagnar
á Þríhyrningsleið áður en tilskilið
leyfi fyrir þessari leið hafði fengist
frá Skipulagi ríkisins. Þetta var í
lok sumars en síðan hefur ýmislegt
gérst til að kæfa þá gleði, a.m.k.
um stundarsakir.
í júlí sl. var unnið svokallað „um-
hverfislegt frummat" á Fljótsdals-
línu 1 á vegum Skipulags ríkisins
en niðurstaða þess var svohljóð-
andi: „Ef ekki næst samkomulag
um nauðsynlegar aðgerðir og eftir-
lit á viðkvæmum svæðum verður
að fara fram fullnaðarmat á um-
hverfislegum áhrifum ef tryggja á
að ekki getið orðið ótbætanlegt
umhverfistjón." Ekkert slíkt mat
hefur enn farið fram. Þrátt fyrri
þetta fór Landsvirkjun fram á það
við Skipulagið að Þríhyrningsleiðin
yrði auglýst og var það gert fyrir
röskum mánuði.
Á tímum hrapandi álverðs ...
Byggingu nýs álvers á Keilisnesi
hefur nú verið frestað um ótiltekinn
tíma. Framkvæmdum við Fljóts-
dalsvirkjun hefur sömuleiðis verið
frestað þar til skriður kemst á stór-
iðjumálin á ný. Sem stendur er
engin leið að segja til um það, hven-
ær eða hvort af þessum fram-
kvæmdum verður. Álverð er nú
kpmið niður fyrir 1.100 dali átonn-
ið og litlar líkur á að það hækki á
næstunni. Þjóðin má því í raun
prísa sig sæla með það að ekki var
ráðist í byggingu álvers á þessu
hausti, eins og til stóð.
Það er engin ástæða til að rasa
um ráð fram í þessum efnum —
orkan í fallvötnum landsins hleypur
ekki frá okkur. Nýting þessarar
orku er brýnt hagsmunamál fyrir
þjóðina en það er ekki sama hvern-
ig að þeirri nýtingu er staðið. Lagn-
ing háspennulínu milli Herðubreið-
ar og Öskju áður en fullkomið
umhverfismat liggur fyrir er dæmi
um það hvernig ekki á að standa
að þessum málum.
OCITIZEN
Gæði og glæsileiki
Glæsileg úr með festi
verð frá ŒmJEJ
l^fmeba(
ÚR OQ SKARTQRIPIR • KRINQLUNNI
Bók um lífsviðhorf
fólks frá Iðunni
Landsvirkjun á sér marga
drauma og stóra um virkjanir á
hálendinu. Þannig hafa t.d. um all-
langt skeið verið uppi hugmyndir
um að flytja Jökulsá á Fjöllum og
Jökulsá á Brú austur á Eyjabakka
og nýta orku þessara stórfljóta í
tengslum við Fljótsdalsvirkjun.
Virkjun Dettifoss hefur sömuleiðis
lengi verið til umræðu. Heldur hef-
ur farið hljótt um þessi áform og
önnur á almennum vettvangi, svo
hljótt að undarlegt verður að telj-
ast. Við þessa skipan mála verður
ekki lengur unað. Náttúra íslands
er auðlind sem á sér mörg
birtingarform og er orka fallvatna
aðeins eitt þeirra. Auðlind þessi,
orkan þar með talin, er sameiginleg
eign allra landsmanna. Það eru
draumar Landsvirkjunar hins vegar
ekki.
Að lokum vil ég fagna því að
Landsvirkjun hafi nú fengið sér
upplýsingafulltrúa. Almenningur á
skýlausan rétt á því að fá vitneskju
um það hvernig fyrirtækið hefur
hugsað sér að nýta þessa sameigin-
legu auðlind okkar — og fá að segja
skoðun sína á því. Fulltrúans nýja
bíður mikið starf að bæta úr þeim
misbresti sem hingað til hefur við-
gengist í þessu máli. Vænti ég
þess að hann í framtíðinni reyni
að standa betur undir hafni.
Höfundur er líffræðhigur og
landvörður.
IÐUNN hefur gefið út bókina
Lífsviðhorf mitt, sem Garðar
Sverrisson ritstýrði.
I kynningu útgefanda segir: „í
bókinni sýna átta þekktir íslending-
ar okkur í hugskot sitt, segja frá
reynslu sinni, skoðunum og áhrifa-
völdum. Hér staldrar þetta fólk við,
lítur um öxl, rekur og grundar þau
spor sem það hefur stigið og þann
arf sem það hlaut í veganesti."
Guðjón Arngrímsson skrifar um
Guðlaug Þorvaldsson; Jóhanna
Kristjónsdóttir um Guðrúnu Agn-
arsdóttur; Jónína Michaelsdóttir um
Hörð Sigurgestsson; Sigmundur
Ernir Rúnarsson um Jónas Krist-
jánsson; Helgi Már Athúrsson um
Markús Örn Antonsson; Atli Magn-
ússon um Steingrím Hermannsson;
Einar Kárason um Thor Vilhjálms-
son; Illugi Jökulsson um Ögmund
Jónasson. Bókin er prentuð í Prent-
bæ hf.
VEL ,
UPPLYST
VERSLUN
í rúmgóðri verslun okkar bjóðum við eitt mesta
úrval úti- og inniljósa sem völ er á. Hvort sem þú
ert að leita að heildarlausn eða stökum Ijósum
átt þú erindi til okkar. Smáljós,stofuljós, lesljós,
tískuljós , útiljós, hjá okkur snýst allt um Ijós og lýsingu.
Við bjóðum umfram allt vönduð og örugg Ijós.
ZEFYR
RIMGERSTAR BREAK
FOXTROT
HALOSTAR
MACHO
lecker.
$//x-
I
Se»4UT -
■■
Raykfavfk og nágrannl:
Borgarljós, Skeifunnl 8.
Byko, Kringlunnl.
Glóey, Armúla 19.
ós og Raftæki, Sfrandgötu 39 Hfj.
ósbaer, Faxafenl 14.
afbúöin, Álfaskelöl 31 Hfj.
Rafglit, Blönduhliö 2.
Rafvörur, Langholtsvegl 130.
Kringluljós, Borgarkringlunnl.
Vasturland:
Blómsturvelllr, Hellissandl.
Elnar Stefánsson, Búöardal.
Guöni Hallgrfmsson, Grundarfiröl.
Húsiö, Stykkishólmi.
Lúx, Borgamesi.
Rafþjónusta Slgurdórs, Akranesl.
Vastflrölr:
Jónas Þór, P^treksfiröl.
Straumur hf, Isafiröi.
Rafsjá hf, Bolungarvlk.
Noröurland:
Aöalbúöln, Slglufiröl.
KVH, Hvammstanga.
Ósbær, Blönduósi.
Radlóvlnnustofan, Akureyrl.
Rafsjá, Sauöárkróki.
Torgiö, Slglufiröi.
Öryggl, Husavlk.
Austuríand:
Kaupfélag Vopnfirölnga.
Sveinn Guömundsson, Egilsstööum.
Sveinn Ó. Ellasson, Neskaupstaö.
Suöurland:
Arvírkinn, Selfossi.
Neisti, Vestmannaeyjum,
Kaupfélag Rangælnga, Arnesinga
Hvolsvelli.
Suöurnes:
R.Ó. Rafbúö, Keflavfk.
Rafborg, Grlndavfk.
Rás, Þorlákshöfn.
LYSIR PER LEIÐ...
SKEIFUNNI 8 108 REYKJAVÍK S 812660