Morgunblaðið - 12.12.1991, Qupperneq 40
4Q
‘MORGÖNBÍÍÁÐIÐ FIMMTÖÐAGtJR'12í ÐESEMBER 1991
Tímamótasamningur leiðtoga EB um nánara samstarf;
Líklegt að undanþág-
ur Breta verði túlkað-
ar á mismunandi hátt
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter.
ÞOTT samkomulag hafi náðst í grundvallaratriðum á leiðtogafundi
Evrópubandalagsins í Maastricht um efnahags-, gjaldmiðils- og póli-
tíska einingu er enn mikil vinna eftir við endanlegan frágang breyting-
anna á sáttmálum bandalagsins. Stefnt er að þvi að undirrita hinn
nýja sáttmála í byrjun febrúar á næsta ári en samkvæmt heimildum
í Brussel eru mörg atriði óljós og augljóst virðist að aðildarríkin túlka
niðurstöðurnar á misjafnan hátt, sérstaklega hvað varðar undanþágur
Breta vegna sameiginlegs gjaldmiðils og félagslegra réttinda. Nokkur
aðildarríki hafa lýst yfir áhyggjum sínum vegna þeirrar sérstöðu sem
Bretar hafa skapað vinnumarkaði sínum með síðarnefndu undanþág-
unni. Einnig hafa menn látið í ljósi áhyggjur af því fordæmi sem
skapast við það að eitt aðildarríki fær leyfi til að sitja hjá.
Samningur leiðtoga Evrópu-
bandalagsríkja um efnahagslega,
gjaldmiðils- og stjórnmálalega ein-
ingu er að stofni til í fjórum hlutum.
í inngangi segir að samstarf Evrópu-
bandalagsríkjanna miði að „æ nán-
ari einingu meðal þjóða Evrópu“ og
er þar vitnað í Rómarsáttmálann frá
1957, grundvallarlög Evrópubanda-
lagsins. Lengi var um það deilt hvort
þarna ætti að fastsetja að markmið-
ið væri sambandsríki. Fyrir tilstilli
Breta var svo ekki gert.
Nýtt Evrópubandalag
Ýmsar breytingar eru gerðar á
Rómarsáttmálanum. Evrópubanda-
lagið fær þar aukið vægi í
umhverfismálum, menntamálum,
neytendavernd, heilbrigðismálum og
hvað varðar samgönguæðar, ijar-
skiptanet og orkuveitur.
Evrópuþingið fær aukin völd og
er því heimilað að beita neitunar-
valdi gagnvart sumum tegundum
lagasetningar. Hingað til hefur ein-
ungis verið skylt að leita til þess um
samráð og samvinnu við setningu
laga af hálfu ráðherraráðsins. Þjóð-
veijar fengu ekki framgengt kröfu
sinni um að þeir fengju aukinn fjölda
þingmanna vegna sameiningar
Þýskalands.
Samkomulag náðist um efnahags-
og mynteiningu. Þar er kveðið á um
sameiginlegan gjaldmiðil EB, Ecu, í
síðasta lagi árið 1999. Þýskir ráða--
menn segja að strangir skilmálar í
samningnum tryggi að nýi gjaldmið-
illinn verði jafn stöðugur og þýska
markið er nú. Skilmálar þessir varða
verðbólgu, fjárlagahalla, skuldasöfn-
un og vexti í aðildarríkjunum. Evr-
ópskur seðlabanki mun verða settur
á fót og er þýski seðlabankinn fyrir-
myndin.
Utanríkis- og varnarmál
Samkomulagið um utanríkis- og
varnarmál verður ekki hluti af Róm-
arsáttmálanum. Samkvæmt því ætla
aðildarríkin að auka samstarf í utan-
ríkis- o g varnarmálum Flestar
ákvarðanir á þessu sviði verða tekn-
ar samhljóða en þó getur ráðherra-
ráð Evrópubandalagsins ákveðið síð-
ar að ákvarðanir um útfærsluatriði
og framkvæmd utanríkisstefnu verði
teknar með meirihlutaregluna að
leiðarljósi.
Ákveðið er að Vestur-Evrópusam-
bandið (VES) verði varnarmálaarm-
ur Evrópubandalagsins. Skýrt er
kveðið á um að ákvarðanir þess verði
að vera í samræmi við stefnu
Atlantshafsbandalagsins (NATO).
Höfuðstöðvar VES verða fluttar frá
London til Brussel. VES fær herlið
, til umráða til að framfylgja ákvörð-
unum EB á hernaðarsviðinu í sam-
ræmi við stefnu NATO. Ekki er Ijóst
hvaðan hermennirnir munu koma,
og hvort þeir verða e.t.v. fengnir að
láni hjá NATO.
Lögreglu- og dómsmál
Leiðtogarnir samþykktu aukið
samstarf hvað varðar innflytjendur
og veitingu hælis til flóttamanna,
gripið verður til hertra aðgerða gegn
skipulögðum glæpum og eiturlyfja-
smygli. í þessu augnamiði verður
stofnuð ný alþjóðleg lögregla,
Europol.
Bretar hafna sameiginlegri
félagsmálalöggjöf
Bretar neituðu að fallast á þann
hluta samningsins sem kveður á um
sameiginlega félagsmálalöggjöf.
Niðurstaðan varð sú að leiðtogarnir
samþykktu viðbót við samninginn
þar sem segir að hin ríkin ellefu
muni samræma löggjöf sína á þessu
sviði. Bretum er einnig heimilað að
vera fyrir utan myntbandalag Evr-
ópubandalagsins. Dönum er heimilað
að halda á næsta ári þjóðaratkvæða-
greiðslu um þátttöku sína í mynt-
samrunanum.
Ennfremur var samþykkt að auka
á næsta ári fjárframlög til fátækari
ríkja EB, sem eru Spánn, Portúgal,
Grikkland og írland. Dönum er veitt
varanleg heimild til að takmarka
kaup útlendinga á sumarbústöðum
Reuter
John Major, forsætisráðherra Bretlands, og Douglas Hurd utanríkis-
ráðherra lyfta glasi til að fagna niðurstöðu leiðtogafundarins í Ma-
astricht á þriðjudag.
og sumarbústaðalóðum. Loks má
nefna að leiðtogarnir lögðu blessun
sína yfír stjórnarskrárákvæði íra um
bann við fóstureyðingum.
í lokaályktun leiðtoga ríkja Evr-
ópubandalagsins er ítrekað það
ákvæði Rómarsáttmálans sem kveð-
ur á um rétt allra lýðræðisríkja í
Evrópu til aðildar að bandalaginu.
Lögð er áhersla á að samningar við
ríki sem sótt hafa um aðild og fram-
kvæmdastjórnin hefur mælt með
samningum við geti ekki hafist fyrr
en lokið er viðræðum innan EB um
endurnýjun innri sjóða bandalagsins
með sérstakri áherslu á byggðasjóði
og lífskjarajöfnunarsjóði. John Maj-
or, forsætisráðherra Bretlands,
sagði við blaðamenn í Maastricht
að viðræður víð ný aðildarríki hæf-
ust sennilega í forsetatíð Breta, þ.e.
seinni hluta næsta árs. Samkvæmt
heimildum í Brussel er reiknað með
því að þau Evrópuríki sem vilja verða
fullgildir aðilkr að EB fyrir 1996
verði að sækja um aðild innan
þriggja mánaða.
Fridtjof bjargar skip-
reika Grænlendingum
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunbladsins.
ÞÝSKA rannsóknarskipið Fridtjof bjargaði 10 Grænlendingum á mánu-
dag eftir að flutningaskip Grænlandsverslunarinnar, Einar Mikkelsen,
hafði festst í hafís við austurströnd Grænlands.
Flutningaskipið var á leið frá Ku-
ummiut til Angmagsalik og um borð
voru 10 menn, sex manna áhöfn og
fjórir farþegar, þegar það festist í
ís. Oljóst er hvers vegna skipveijar
yfírgáfu skip sitt en þeir fóru í
gúmmíbjörgunarbát og var bjargað
síðar um daginn um borð í Fridtjof.
Ekki var talið að flutningaskipið
væri sokkið í gær.
Slæmt veður hefur verið á þeim
slóðum sem atvikið átti sér stað og
tilraunir Fridtjofs til að sigla til Ang-
magsalik hafa reynst árangurslausar
og ekki hefur veður gefíst til þyrlu-
flugs. í gær tók rannsóknarskipið
stefnuna út á opið haf til móts við
danska eftirlitsskipið Hvidbjornen
sem taka mun við Grænlendingunum
en ekki er gert ráð fyrir að þau
mætist fyrr en á morgun, föstudag
BILASTÆÐIFYRIR ALMENNINGIMIÐBORCINNI
Laugardaqana í desember er ókeypis í alla
stö&umæia, bílastæ&i og bílastæ&ahús á
vegum Reykjavíkurborgar. Þá er rétt a&
minna á,ao virka daga er ókeypis í
stöðumæla eftir kl. 16.00.
A VESTURGATA
B BERGSTAÐASTRÆTI
C KOLAPORTookab laugardaga)
F BENSINSTOÐ OLIS, VESTUR
G INGÓLFSGARÐUR
H LÓÐ EIMSKIPS
Bílastæðasjóður Reykjavíkur
Lögreqlan í Reykjavík
Umferoarnefnd Reykjavíkur