Morgunblaðið - 12.12.1991, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 12.12.1991, Qupperneq 47
MORGÚXBI.AÐÍÐ I'IMMTUÍ)AGUR 12. DESEMBER 1991 Onnur umræða um frumvarp til fjárlaga 1992; Breytingartillögnr um 969,4 milljóna kr. lækkun útgjalda FJÁRLAGAFRUMVARPIÐ fyrir árið 1992 var til annarrar umræðu í gær. Karl Steinar Guðnason (A-Rn) formaður fjárlaganefndar segir það hafa verið erfitt verk og lítt til vinsælda fallið að standa gegn þrýstingi um auknar fjárveitingar. En það hefði haft skelfilegar afleið- ingar að láta undan, það hefði ekki verið gert og menn lagt sig fram við að skera niður útgjöld. Stjórnarandstæðingum finnst hnífnum oft beitt þar sem síst skyldi. Það sé sérstaklega gagnrýnisvert að ráðherr- um eða ráðuneytum sé fært í hendur fjárveitingarvald Alþingis í fram- kvæmd á boðuðum niðurskurði í ríkiskerfinu. Karl Steinar Guðnason (A-Rn) formaður fjárlaganefndar mælti fyrir áliti meirihluta nefndarinnar. Fram- sögumaður fór nokkrum orðum um stöðu ríkisfjánnáia, gagnrýndi við- varandi halla í rekstri ríkissjóðs sem mætt hefði verið með lántökum. Væri nú svo komið að ríkissjóður greiddi árlega um 10 milljarða króna í vaxtakostnað. Fyrir helming þess- arar upphæðar væri hægt að byggja tvenn Vestfjarðagöng og eina Reykjanesbraut til viðbótar. Karl Steinar hvatti til uppstokkun- ar í ríkisfjármálunum, gagnrýndi m.a. hinar opnu heimildir fjármála- ráðherra sem venja er að veita fjár- málaráðherra samkvæmt 6. gr. Þær hefðu iðulega kostað ríkissjóð millj- arða króna viðbótarútgjöld. Ræðumaður rakti nokkuð þau harðindi sem gengið hafa í efnahags- málum landsmanna og fyrirsjáanleg- ar blikur á lofti. Fjárlaganefndin hefði orðið leggja sig fram um að skera niður útgjöld. Láta ekki undan þrýstingi og kröfum um hærri fjár- veitingar. Erfitt verk og ekki til vin- sælda fallið. En hefði allt verið látið reka á reiðanum hefði það haft skelfi- legar afleiðingar. Það hefði enn frek- ar hækkað vexti og útilokað skyn- samlega kjarasamninga. Karl Steinar dró enga dul á þá skoðun sína að hann teldi mikla ring- ulreið ríkja í kjaramálum óþinberra starfsmanna og reyndar víðar. Það taxtakerfi sem nú gilti væri gjörsam- lega úr sér gengið. Það virtist aðeins notað fyrir þá sem gætu litlum vörn- um við komið. Fyrir þá sem fengu lægstu laun. Hann sagði að í ríkk skerfinu tíðkaðist mismunun og klíkuskapur, t.a.m. væri víða væri samið um óunna yfirvinnu til að „koma til móts við markaðinn". Óbreytt markmið Karl Steinar ítrekaði að megin- markmið Ijárlagafrumvarpsins fyrir árið 1992 væru: Að lánsfjárþörf opin- berra aðila verði minni en 24 milljarð- ar króna. Að lánsfjárþörf ríkissjóðs verði minni en milljarður króna. Að rekstrarhalli ríkissjóðs verði um 4 milljarðar króna. Og að þessu markmiði yrði náð án þess að hækka skatta. Síðan íjárlagafrumvarpið var lagt fram í bytjun október hefði ástandið í efnahagsmálum enn versnað m.a. vegna frestunar á byggingu álvers. Ríkisstjórnin hefði brugðist við þeim vanda með tillögugerð, hvar markm- iðið væri að rekstrarhalli ríkissjóðs lækki niður í 3,5 milljarða króna. Formaður og talsmaður meirihluta ijárlaganefndar greindi nú nokkuð frá þeim breytingutn sem gerðar hefðu verið á frumvarpinu í meðför- um nefndarinnar. Þegar nefndin hefði lokið afgreiðslu flestra þeirra erinda sem til hennar hefðu borist hefði legið fyrir breytingar sem nefndin hefði sameiginlega unnið að til hækkunar á útgjöldum sem nærni 220,2 milljónum. Nefndin hefði feng- ið til umljöllunar tillögur ríkisstjórn- arinnar frá 9. desember sem eins og alkunna væri stefndu flestar að sparnaði á útgjöldum ríkisins, þótt nokkrar þeirra fælu í sér aukin út- gjöld. Aðrar tillögur vörðuðu tekju- hlið frumvarpsins. Meirihluti nefnd- arinnar flytti verulegan hluta þessara tillagna við 2. umræðu og næmi sparnaður samkvæmt þeim 957,6 milljónum króna að meðtöldum al- mennum sparnaðartillögum ríkis- stjórnarinnar varðandi launa- og rekstrargjöld. Aðrar af þessum til- lögum biðu 3. umræðu. En auk þessa leggði meirihluti nefndarinnar fram tillögur um frekari lækkun útgjalda sem samtals næmi 232 milljónum króna. I heild gerðu breytingartillögur meirihluta fjárlaganefndar við þessa umræðu ráð fyrir 969,4 milljónum króna lækkun útgjalda. Framsögu- maður greindi frá því að nefndin hefði en ekki lokið afgreiðslu nok- kurra mála og biðu þau 3. umræðu. Mætti þar nefna málefni sjúkrahúsa á höfuðborgarsvæðinu, vegamál og nokkur önnur smærri mál. Einnig biði ákvörðun um skólagjöld til 3. urnræðu. Ennfremur biði, samkvæmt venju, tekjuhlið frumvarpsins, B- hluti og heimildaákvæði til fjármála- ráðherra samkvæmt 6. grein af- greiðslu nefndarinnar við 3. umræðu. Auk þessa legði meirihluti nefndar- innar fram við þessa umræðu tillögur um frekari lækkaun útgjalda sem næmi um 232 milljónum króna. Framsögumaður meirihluta fjár- laganefndar fór nú í gegnum einstak- ar breytingatillögur m.a. að framlag til Byggðastofnunar lækkar um 20 milljónir vegna samdráttar í starf- semi. Fjárveitingtil Listasafns Sigur- jóns Ólafssonar hækkar um 2,5 millj- ónir króna. Gerð er tillaga um að fjárveiting til rekstrar Þjóðleikshúss- ins hækki um 27,5 milljónir króna og er til þess ætlast að leikhúsið endurskipuleggi reksturinn. Jafn- framt er lagt til að ekkert framlag verði til endurbóta á Þjóðleikhúsinu á fjárlögum ársins 1992. Gert er ráð fyrir því að beinar greiðslur til bænda vegna afurða lækki um 295 milljónir á næsta ári vegna þess að gert væri ráð fyrir því að greiðslum verði dreift á 12 mánuði, frá 1. mars 1992 til 1. febrúar, en ekki allar inntar af hendi á næsta ári. Formaður fjár- laganefndar taldi þessa breytingu í samræmi við ákvæði búvörusamning og búvörulaga. Gerð er tillaga um að framlag til Atvinnuleysistrygg- ingasjóðs hækki um 150 milljónir króna þar eð sýnt þykir að atvinnu- leysi muni á næsta ár verða meira en upphaflegar forsendur fjárlaga- frumvarpsins gerðu ráð fyrir. Gerð væri tillaga um að niðurgreiðslur á mjólkurdufti lækki um 100 milljónir króna en settir verði jöfnunartollar á innflutt sælgæti til þess að jafna samkeppnisaðstöðu innlends iðnaðar. Síðasta tillaga meirihluta nefndar- innar snýr að almennum sparnaði í rekstri ríkisins. Með almennu aðhaldi á rekstrarkostnaður ríkisins að lækka um 1.500 milljónir króna. Ráðuneytum og stofnunum verði gert að ná fram 2.455 milljóna króna sparnaði með 5% lækkun rekstrar- kostnaðar sem skiptist þannig að laun lækki um 6,7% eða um 2.255 milljónir króna, og rekstrargjöld lækki um 1,3% eða um 200 milljónir króna. Til móts við þennan niður- skurð verði 955 milljónum króna ráðstafað til yfirstjórnar ráðuneyt- anna. Gert væri ráð fyrir að einstak- ar stofnanir útfæri þennan sparnað með viðeigandi hætti. Vanda vísað til sveitar Guðmundur Bjarnason (F-Ne) gerði grein fyrir áliti minnihluta fjár- laganefndar. Þar kemur m.a. fram að þessi önnur umræða hafí dregist úr hömlu en samkvæmt starfsáætlun þingsins hefði hún átt að fara fram 3. desember. Hér væri fyrst og fremst við ríkisstjórnina og hennar vinnubrögð að sakast; í byijun mán- aðarins hefði hún tilkynnt uppskurð á bæði tekju- og gjaldahlið frum- varpsins. Guðmundur gagnrýndi að alla nánari útfærslu vantaði á því hvern- ig ætti að ná fram þeim almenna sparnaði í rekstri ríkisins sem síðasta tillaga meirihlutans gerir ráð fyrir. Til mótvægis við niðurskurðinn, sam- tals 2.455 milljónum króna, skyldi varið til yfirstjórnar ráðuneytanna 955 milljónum króna til þess að greiða fyrir framkvæmd niðurskurð- aráformanna. Það væri ljóst að með þessu verklagi væri ráðstöfunarfé ráðuneyta aukið og fjárveitingavald- ið tekið af Aþingi sem þessu næmi. Guðmundi var engin launung á því að hart væri í ári í þjóðarbúinu og ríkisbúskapurinn erfiður. En í ræðu Guðmundar kom fram að hann teldi ríkisstjórnina ekki leysa þann vanda sem að steðjaði heldur vísa honum á annað; segja hann til sveit- ar, þ.e.a.s. sveitarfélaganna. Guð- mundi reiknaðist svo til að ríkis- stjórnin væri að færa þangað útgjöld sem slöguðu hátt í milljarð króna. í frumvarpi um efnahagsráðstafanir 1992 hefðu þeirra byrðar verið aukn- ar um 200 milljónir, þessu til viðbót- ar væri þeim núna ætlað að standa undir 400 milljóna króna útgjöldum vegna málefna fatlaðra og þær 300 milljónir sem Áfengis- og tó'oaks- verslun ríkisins greiddi í landsútsvar sem runnið hefði í Jöfnunarsjóð sveit- arfélaga, ætti nú að fara í ríkissjóð. Fleira gagnrýndi Guðmundur, ríkisstjórnin ætlaði sér að vega sér- staklega að tveimur stéttum, sjó- mönnum og bændum. Fresta beinum greiðslum til bænda fram yfir ármót- in 1992/93 og að eigin sögn „skerpa reglur" um sjómannaafsláttinn. Um þessar ráðstafanir hefði ekkert sam- ráð verið haft við þá sem fyrir ættu að verða. Beiðni minnihluta nefndar- innar um að fá til viðtals fulltrúa þeirra aðila sem þessi mál vörðuðu hefði verið hafnað. Framsögumaður minnihlutans sagði Ijóst að minnihlutinn hefði enga aðstöðu til þess haft að fá heildaryfir- sýn fyrir fjárlagagerðina, eða gera Rúðu-úði Sf&>4 Nýr frábær FIX Rúðu-úöi á allt gler. Sápugerdin . 3----- ^ FRIGG ’Wtexl aUt ú tiwetMU sér grein. fyrir áhrifum breytinga hvorki á tekju- né gjaldahlið. Þessi umræða væri því nú ótímabær og myndi minnihiutinn af þessum orsök- um ekki standa að breytingaitillög- um meirihlutans, né lieldur flytja breytingaitillögur við 2. umræðu heldur sitja hjá við afgreiðslu málsins við þessa umræðu. Guðmundur boð- aði að minnihluti nefndarinnar myndi gefa út framhaldsnefndarálit fyrir 3. umræðu og áskildi sér rétt til þess að flytja þá breytingartillögur. Guðmundur Bjarnason sagði að vissulega yrði að leita allra leiða til sparnaðar og hagræðingar og einnig að huga að tekjuöflun. Framsóknar- menn og aðrir stjórnarandstæðingar hefðu t.a.m. bent á skatt af fjár- magnstekjum og skoða yrði tvö skattþrep eða hátekjuskatt. Ríkis- stjórnin þættist hafna skattahækk- unum. En hún legði á nýja skatta; „feluskatta" í fomii margvíslegra svonefndra „þjónustugjalda" sem legðust á þá sem síst skyldi: Sjúka og skólanemendur og/eða foreldra þeirra. Guðmundur sagði að ríkisstjórnin hefði í stað þess að huga að vitræn- um kerfisbreytingum, t.d. varðandi innflutning, dreifingu og verðlagn- ingu lyfja, væri sjúklingum sendur reikningurinn. Einnig væri ráðist í „flatan niðurskurð" sem oftast skil- aði minna en ætlað væri. Guðmundur kvaðst tala hér af eigin reynslu sem heilbrigðisráðherra. Þessu til viðbót- ar benti hann á að boðuð fækkun ríkisstarfmanna leiddi til atvinnu- leysis sem leiddi til aukinna útgjalda vegna atvinnuleysisbóta. Ræðumaður fór í gegnum nokkrar af breytingartillögum nefndarinnar. Skerðing á framlagi til Byggðastofn- unar; „enn ein árásin“. Áð draga úr niðurgreiðslum á mjólkurdufti. „Sumir segja það í lagi að sælgæti hækki,“ en Guðmundi þótti sá mögu- leiki ólystugur að samkeppnisstaða innlendra sælgætisframleiðenda vernsaði’og saknaði upplýsinga um hvernig jöfnunargjöld gætu úr bætt. Fjárveitingavaldið fært frá Alþingi Margrét Frímannsdóttir (Ab-S) sagði í upphafi ræðu sinnar að á sama tíma og gífurlegir erfiðleikar blöstu við í atvinnulífi landsmanna og atvinnuleysi færðist í aukana boð- aði ríkisstjórnin að hún ætli að senda stóran hóp ríkisstarfsmanna í flokk atvinnulausra. „Ekki er þar einungis um að ræða þessi 600 störf eða 300 ársverk, sem á að leggja af hjá rík- inu, hejdur á einnig að draga úr' ýmsum framkvæmdum á vegum rík- isins,“ sagði þingmaðurinn. Taldi hún að ákvörðun ríkisstjórnarinnar að flýtja mörg og stór verkefni yfir á sveitarfélögin leiddi af sér aukna fjárþörf sveitarfélaganna og myndi þrengja lánamarkaðinn, sem gengi gegn fyrirætlun ríkisstjórnarinnar að. draga úr lánsfjárþörf. „Gert er ráð fyrir að fiskafli minnki á næsta ári, en það þýðir óhjákvæmilega, að störfum fækkar í þeim sveitarfélögum sem byggja á útgerð og fiskvinnslu. Og færri störf hafa í för með sér minnkandi tekjur fyrir viðkomandi sveitarfélög, minni tekjur til þess að takast á við aukin verkefni,“ sagði Margrét. „Kröfurnar um þjónustu sem sveitarfélögin eiga að veita minnka ekki, þær eru þvert á móti auknar stórlega á sama tíma og tekjur sveitarfélaga eru skertar með lagaboði frá Alþingi að skipun ríkisstjórnarinnar," sagði hún. Fleiri lóku til máls og verður gerð grein fyrir ræðum þeirra síðar. GLÆSILEG GJOF É í* '-n x f ÍiSm, ?i r rÉ&SíSi* h jÉ' Marqar qeróir °9 Kf|r Verd fró kr. 8.990,- fil 13.340,- HHHHœlX UTIUF Glæsibæ, sími 812922. H
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.