Morgunblaðið - 12.12.1991, Side 52
52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991
ÞJÓÐMÁL
STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Langlífur „tíma-
bundinn“ skattur
Sérstakur skattur á skrifstofu- og verzlunarhúsnæði
Sú skoðun er ríkjandi í hugxim lýðræðislega sinnaðs fólks, að all-
ir eigi að vera jafnir fyrir landslögum; atvinnuvegir sem einstakling-
ar. Atvinnugreinar eiga að hafa jafnstöðu gagnvart lögum, meðal
annars skattalögum. Þessi meginregla var brotin með sérstökum
skatti á verzlunar- og skrifstofuhúsnæði 1979, til viðbótar hefðbundn-
um eignarskatti.
I - Opinber stýring
fjárfestingar
Svipmynd úr Hafnarstræti í Reykjavík.
Á 100. löggjafarþingi Íslendinga,
haustið 1978, leggur fjánnálaráð-
herra í „vinstri stjórn“ Ólafs Jó-
hannessonar fram stjórnarfrum-
varp um nýja skattheimtu, „sér-
stakan skatt á skrifstofu- og verzl-
unarhúsnæði". í athugasemdum
með frumvarpinu segir:
„Með frumvarpi þessu er lagt til
- að á árinu 1979 verði lagður á sér-
stakur skattur á skrifstofu- og
verzlunarhúsnæði er nemi 1,4% af
fasteignamati þessa húsnæðis. Er
áætlað að tekjur ríkissjóðs af þess-
um sérstaka eignarskatti nemi 550
m.kr.
í athugasemdum við frumvarp
um tímabundnar ráðstafanir til
viðnáms gegn verðbólgu var frá því
greint að breytingar í fjárfestingar-
málum væru í undirbúningi og „gert
væri ráð fyrir því að fjárfestingu
, yrði beint frá verzlunar- og skrif-
"stofubyggingum. Frumvarpið sem
hér er flutt er einn liður í fram-
kvæmd þessarar stefnu."
Þessi tímabundni skattur, sem
lögin kváðu á um að lagður skuli á
atvinnuhúsnæði tiltekinnar starfs-
greinar „á árinu 1979“, lifír enn í
frumvarpi „hægri stjómar“ er nú
situr annó 1991, að vísu ögninni
hærri en í upphafi, eða 1,5% af
skattstofni.
II - Skatturinn hefur lifað
nokkrar ríkisstjórnir
Rökin fyrir þessari skattheimtu
vóra innbyggð í „nauðsyn“ þess að
miðstýra fjárfestingu í landinu.
Gagnrökin, sem sjálfstæðismenn
stóðu einkum fyrir, vóru reist á
meginreglu jafnstöðu atvinnugrein-
anna gagnvart landslögum og til
starfs í þjóðarbúskapnum.
Ríkisstjórnir hafa komið og farið
síðan skattur þessi varð til, reyndar
speglað allt litrófið í íslenzkum
stjórnmálum. Sá tímábundni hefur
lifað þær allar. Hann skrapp að
vísu lítillega saman um tíma. Á
haustþingi 1983, þegar Alþingi
vann hið mesta að fjárlagagerð fyr-
ir árið 1984, fékk Albert Guð-
mundsson, þá fjármálaráðherra,
skattinn lækkaðan úr 1,4% í 1,1%
af skattstofni. Rökstuðningur var
m.a. sá að „vegna minnkandi verð-
bólgu er það gert [áð lækka skatt-
inn] til að koma í veg fyrir að skatt-
byrði aukizt milli ára“.
Og ekki stóð á viðbrögðum Al-
þýðubandalagsins. Svavar Gestsson
og fjórir aðrir þingmenn sama
flokks fluttu breytingartillögu við
framvarp til fjárlaga 1984, þess
efnis, að tekjupósturinn „skattur á
skrifstofu- og verzlunarhúsnæði"
hækki um helming, þ.e. úr 65 m.kr.
í 130 m.kr. samtals!
III - Kemur verst við
strjálbýlisverzlun
Það er rétt, áður en lengra er
haldið, að rifja upp ummæli Alberts
Guðmundssonar (S-Rvk), Friðriks
Sophussonar (S-Rvk) og Halldórs
Blöndal (S-Ne) gegn skattinum á
þingunum 1979, 1980 og 1990, þar
sem þau spegla viðhorf Sjálfstæðis-
flokksins á þeim tíma. Albert sagði
m.a.:
„Sá sérstaki skattur á verzlunar-
og skrifstofuhúsnæði, sem greiða
skal til ríkissjóðs, samkvæmt fram-
varpi þessu, er að mínu viti afar
ranglátur... Ég vil benda á þá stað-
reynd að fyrirtæki eiga almennt í
í miklum rekstrarerfiðleikum og
íþyngjandi skattur af því tagi sem
hér um ræðir er gjaldþoli flestra,
sem skattinn eiga að greiða um
megn ... Menn verða að gefa atvinn-
ulífinu nokkra möguleika til bjarg-
ar. Það verður ekki gert með því
að draga eigið fé fyrirtækja í æ
ríkari mæli úr arðbærum rekstri inn
í ríkishítina.“
Friðrik Sophusson sagði m.a.:
„Við sjálfstæðismenn höfum ætíð
verið andsnúnir slíkum sérstökum
skatti sem mismunar atvinnuvegum
og hefur verið á komið á fölskum
forsendum. Við áttum þær vonir að
í lið með okkur hefðu gengið hv.
ráðherrar Framsóknarflokksins, en
nú kemur í ljós, eins og stundum
áður, að það er ekki þeirra stefna
sem ræður í skattamálum, það er
stefna hins skattaglaða fjármála-
ráðherra.“
Halldór Blöndal sagði í þingræðu
haustið 1990:
„Hér er sem sagt um enn einn
skattinn að ræða sem bitnar þyngra
á landsbyggðinni en höfuðborgar-
svæðinu vegna minni veltu þar,
vegna þess að verzlunar- og skrif-
stofuhúsnæði er víða um land byggt
við vöxt og vegna þess að velta þar
hefur dregizt saman. Ég vek at-
hygli á þessu um leið og ég minni
á að verzlun í dreifbýli á mjög und-
ir högg að sækja. Gjaldþrot hafa
verið tíð, ekki einungis hjá einkafyr-
irtækjum heldur einnig hjá kaupfé-
lögum víða vegar um landið þannig
að sums staðar er svo komið að
verzlun hefur með öllu lagst niður
á smærri stöðum...“
IV - Erum á móti
en mælum með
Framsögur fyrir framlengingu
þessa skatts hafa oftar en ekki
verið fullar af semingi.
Albert Guðmundsson, þá fjár-
málaráðherra, mælir fyrir skattin-
um haustið 1984:
„Ég hefi margoft lýst því yfir
að mér sé í nöp við skattheimtu af
þessu tagi. En staða ríkissjóðs er
nú þannig að hann má alls ekki við
því að afsala sér frekari tekjum. í
ljósi þessa þykir ekki verða hjá því
komizt enn einu sinni að innheimta
sérstakan skatt á skrifstofu- og
verzlunarhúsnæði."
Þorsteinn Pálsson, fjármálaráð-
herra 1985, komst svo að orði:
„í umræðum um fjárlagafrum-
varp fyrir næsta ár hefur komið
fram að nauðsynlegt er, með tilliti
ti! þess vanda sem við blasir í efna-
hagsmálum þjóðarinnar, að seinka
a.m.k. ýmsum fyrri áformum um
lækkun skatta þar sem svigrúm til
slíks er ekki fyrir hendi við þessar
aðstæður. Með hliðsjón af þessu,
svo og í samræmi við fyrri forsend-
ur fjárlagafrumvarpsins, verður
ekki hjá því komizt að leggja ti! að
framhald verði á sérstakri skatt-
lagningu á verzlunar- og skrifstofu-
húsnæði.“
Jón Baldvin Hannibalsson, fjár-
málaráðherra 1987, mælti á þessa
leið:^
„I framvarpi til fjárlaga fyrir
árið 1988 er, eins og áður segir,
gert ráð fyrir að framhald verði á
skattlagningu þessari. Af þeim sök-
um er í frumvarpinu lagt til...“ að
skatturinn verði enn á lagður.
IV - Sá sérstaki tvöfaldaður
en lækkaður snarlega aftur
Ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar, sem settist að í Stjórn-
arráðinu haustið 1988 - með Al-
þýðubandalagið innanborðs - fór
mikinn í skattheimtu. Hún hækkaði
sérstakan skatt á verzlunarhúsnæði
með lögum nr. 100/1988 um helm-
ing, úr 1,1% í 2,2% af skattstofni.
Þessi lögákvörðun var á hinn
bóginn ekki framkvæmd. Með lög-
um nr. 51/1989 dregur ríkisstjómin
í land og lækkar skattinn í 1,5% í
skjóli sérstakra laga um ráðstafanir
í kjaramálum.
Síðan hefur sú skattprósenta
staðið óbreytt.
VI - Síðasta lífár mið-
stýringarskatts?
Það var síðan 7. nóvember síðast-
liðinn - á sjálfu byltingarafmælinu
- sem Friðrik Sophusson fjármála-
ráðherra Sjálfstæðisflokksins mælir
fyrir „árvissu" frumvarpi um sér-
stakan skatt á skrifstofu- og verzl-
unarhúsnæði“. - „Það sem helzt
hann varast vann, varð þó að ganga
yfir hann.“
Ráðherrann lofar hins vegar sög-
ulokum skattsins:
„Ég tel að þessi skattlagning sé
þess eðlis að frá henni beri að víkja.
Ekki gafst ráðrúm til þess að gera
það við fjárlagagerðina fyrir næsta
ár en að því er stefnt eins og ég
hef rækilega tíundað og tekið fram,
að þessi skattur falli niður frá árinu
1993 enda verði þá búið að gera
þær breytingar á lögum sem nauð-
synlegt er að gera til þess að sam-
ræma eignarskatta og eignartekju-
skatta."
Sögulok skattsins tímabundna
eru í sjónmáli, segir fjármálaráð-
herra. Megi þau orð standa.
AMERISKAR HÁGÆÐATÖLVUR FRÁ:
Silicon Valley Computers
J(jarni hf.
Smiðjuvegi 42 D
Sími 91-79444
Ó.T. Tölvuþjónusta
Gránufélagsgötu 4
Sími 96-11766
Akureyri
Hraðvirkasta
80386 SX
tölva á
íslandi.
Verð frá kr.
111.600,-
Þú færð hvergi
hraðvirkari
hágæðatölvur
fyrir lægra
verð.
Kynntu þér
verðin á
386/33 og
486/33
tölvunum frá
okkur.