Morgunblaðið - 12.12.1991, Side 53
Handbók
fyrir
hestamenn
ÚT ER komin ly'á Erni og Örlygi
Handbók íslenskra hestamanna
eftir Albert Jóhannsson í Skóg-
um. Formála ritar Kári Arnórs-
son, formaður Landssambands
hestamanna. í kynningu útgef-
anda segir m.a.:
„í handbókinni er í upphafi fjall-
að um uppruna og eiginleika ís-
lenska hestsins en því næst er vikið
að því sem byijandi í hestamennsku
þarf helst að gæta að í upphafi
ferils síns. Þá er því lýst sem helst
þarf að huga að þegar hestur er
valinn. Höfundur lýsir því hvernig
sumir menn gátu ráðið í eiginleika
hrossa af augum þeirra, svipfari,
hreyfmgum og öðrum líkamsein-
kennum. Lesandi er m.a. upplýstur
um það hvernig ráða megi aldur
hrossa af tönnunum.
Gangtegundum er lýst og fjallað
er um vilja hjá hestum og hvaða
ráð séu til að vekja hann hjá reið-
hestum sem ekki búa yfir honum í
nægilega ríkum mæli. Höfundur
rýnir í eðli hrossa og lýsir ýmsum
skapgerðareiginleikum þeirra, bæði
kostum og brestum, og fjallar jafn-
framt um þær eigindir sem hesta-
maður þarf að vera búinn. Enn-
fremur er að finna upplýsingar um
ásetu og taumhald, járningar, reið-
cygi og beislabúnað, hirðingu og
fóðrun og sjúkdóma og meiðsli, svo
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991
53
Slysavarnadeildin Eldey í Höfnum 60 ára
SL Y S A V ARN ARDEILDIN Eldey
í Höfnum varð 60 ára 6. desem-
ber síðastliðinn. Var afmælisins
minnst í hófi í samkomuhúsinu í
Höfnum laugardaginn, 7. des-
ember. Þá var einnig vígð ný
björgunarstöð, sem deildin hefur
eignast.
I afmælishófínu var saga Slysa-
varnardeildarinnar rakin, segir í
fréttatilkynningu frá deildinni. Þrír
stofnfundarmenn eru enn á lífí, þau
Vilhjálmur Magnússon, Brautar-
hóli, Ketill Ólafsson, Kalmans-
tungu, og Eva Ólafsdóttir, Óslandi.
Frá upphafi hafa formenn deildar-
innar verið sex, og lengst af Jón
Borgarson, Jaðri, eða í 25 ár. Nú-
verandi formaður er Jóhann Sigur-
bergsson, Grund. Formaður Björg-
unarsveitar Eldeyjar er Hlynur
Kristjánsson.
Síðastliðinn laugardag tók Eldey
í notkun nýtt slysavarnahús eða
björgunarstöð, sem hýsir bíla og
tæki. Séra Jóna Kristín Þorvalds-
dóttir vígði húsið og kirkjukórinn
söng. Tveir forystumenn Eldeyjar
voru heiðraðir sérstaklega, þeir Vil-
hjálmur Magnússon og Jón Borgar-
son.
Albert Jóhannsson
aðeins það helsta sé nefnt. Til frek-
ari glöggvunar hefur höfundur víða
dregið upp skýringarteikningar af
því sem um er ijallað hveiju sinni.
Undir lokin eru gefín góð ráð um
nafngiftir á hestum og síðast en
ekki síst eru hestalitum gerð ítarleg
skil.“
Bókin er 232 blaðsíður.
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
I.O.O.F. 5 = 17312128'A=E.K.
I.O.O.F. 11=17312128'A=J.V.
St.St.599112127VIII
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLOUGÖTU3 & 11796 19533
Dagsferðir sunnud.
15. desember kl. 11.00
1. Selvatn-Nátthagavatn
Stutt ganga með heimkomu
kl. 14-14.30.
2. Reykjaborg-Úlfarsfell
Auðveldar fjallgöngur með heim-
komu kl. 16.00.
Nánar auglýst fyrir helgina.
Verið með!
Ferðafélag íslands.
Skipholti 50b, 2. hæð.
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Allir hjartanlega velkomn-
ir. Ath. bókamarkaður alla virka
daga frá kl. 10.00-12.00.
V
7
KFUNI
V
AD KFUM
Fundur í kvöld kl. 20.30 á Holta-
vegi. Aðventukvöld með ýmsu
efni tengt komu jólanna í umsjá
Guðmundar Jóhannssonar og
Karls S. Benediktssonar. Hug-
leiðing séra Valgeir Ástráðsson.
Kaffi eftir fund. Allir velkomnir.
Samkoma verður í kapellunni í
Hlaðgerðarkoti í kvöld kl. 20.30.
Umsjón: Ágúst Ólason.
Samhjálp.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustrxti 2
Ljósvaka
í umsjá unga fólksins í kvöld kl.
20.30. Veitingar. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan,
Völvufelli 11
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Carl Johnson frá Bandaríkjunum
predikar.
Allir hjartanlega velkomnir.
A TVINNUAUGL ÝSINGAR ]
Húsvörður
Samtök aldraðra auglýsa laust til umsóknar
starf húsvarðar í þjónustuíbúðum við
Sléttuveg 11 og 13.
Umsóknir sendist Samtökum aldraðra,
Hafnarstræti 20, Reykjavík (pósthólf 1662)
fyrir 1. janúar nk. (sími 26410).
Samtök aldraðra.
Ritari eftir hádegi
Lítið innflutningsfyrirtæki í austurborginni
óskar að ráða góðan ritara til starfa strax.
Starfsreynsla ásamt tölvukunnáttu er skil-
yrði. Vinnutími frá kl. 13.00 til kl. 17.00.
Umsóknir, merktar: „R - 1243“, sendist aug-
lýsingadeild Mbl. fyrir kl. 16.00 föstudaginn
13. desember nk.
Til leigu
Til leigu með innbúi lítið einbýlishús í miðbæ
Reykjavíkur.
Leigutími 3 mánuðir, janúar-mars 1992.
Upplýsinga í síma 32943 á kvöldin.
Auglýsing frá Veiðifélagi
Minni-Vallarlækjar
Óskum eftir tilboðum í veiðiréttindi í Minni-
Vallarlæk í Landmannahreppi. Veiðitíminn
er frá 10. júní til 15. september 1992. Vatna-
svæðið er 12-13 km. Stangafjöldi á dag er
fjórar nema alla þriðjudaga, en þá hafa
landeigendur veiðiréttinn.
Tilboð sendist til formanns Veiðifélags
Minni-Vallarlækjar, Guðna Kristinssonar,
Skarði, Landmannahreppi, 851 Hellu.
Til sölu íÁrmúla 7,
við hliðina á Hótel íslandi,
rekstur söluturns, grillstaðar og bjórstofu.
Söluturninn og gillstaðurinn, sem reknir eru
á neðri hæð hússins, hafa leyfi til nætursölu
og því samrekstur bjórstofunnar á efri hæð
heppilegur kostur. Öruggt leiguhúsnæði.
Afhending samkomulag.
Frekari upplýsingar veita:
Lögmenn,
Borgartúni 33, Reykjavík,
sími 91-29888
hafnamAlastofnun
RiKISlNS
Útboð
Höfnin Keflavík - Njarðvík, óskar eftir tilboð-
um í gerð smábátahafnar í Grófinni, Keflavík.
Helstu magntölur:
Losun efnis og uppmokstur 39.000 rm.
Grjótgarðar og fláavörn 32.200 rm.
Steypa 41.0 rm.
Útboðsgögn verða afhent hjá Hafnamála-
stofnun ríkisins, Vesturvör 2, Kópavogi, og
Höfninni Keflavík - Njarðvík, Víkurbraut 11,
Keflavík, frá og með fimmtudeginum
12. desember 1991 gegn 5.000 kr. óaftur-
kræfu gjaldi.
Tilboð verða opnuð á hafnarskrifstofunni,
Víkurbraut 11, Keflavík, mánudaginn 30.
desember kl. 11.00 að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þess óska.
Höfnin Keflavík - Njarðvík.
TIL SOLU
Bflskúrtil sölu
í Vesturbæ. Er í toppstandi, með rafmagni,
hita og heitu og köldu vatni.
Upplýsingar í síma 675452.
BRU -
Félag áhugamanna um þróunarlöndin
Fundarboð
Almennur félagsfundur verður haldinn í dag,
fimmtudaginn 12. desember 1991, í fundar-
sölum ríkisins í Borgartúni 6.
Fundurinn hefst klukkan 20.30.
Dagskrá:
1. Fræðsluerindi:
Stefán Jón Hafstein, útvarpsmaður, segir frá
störfum sínum í Súdan og Eþíópíu og les
upp úr nýútkominni bók sinni, „Guðirnir eru
geggjaðir".
Vilhjálmur Þorsteinsson, fiskifræðingur,
segir frá störfum sínum við Karibavatn í
Zambíu og Zimbabwe.
2. Starf Brúar:
Almennar umræður um starfsemi félagsins.
Hvert stefnum við og hvert viljum við stefna?
Allir velkomnir.
Stjórnin
f°STA\
ílnF}
y- J
FLO^
T réskurðarnámskeið
Fáein pláss laus eftir áramót.
Hannes Flosason, sími 40123.