Morgunblaðið - 12.12.1991, Síða 58

Morgunblaðið - 12.12.1991, Síða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991 EFTIR VERÐLAUNAÐAN OG MARGFALDAN METSÖLUHÖFUND EÐVARÐ INGÓLFSSON Gegnum bernskumúrinn er spennandi unglingabók sem fjallar um Birgi 15 ára. Móöir hans á við drykkjuvandamál að stríða og hann tekur það nærri sér. Hann þorir aldrei að bjóða félögum sínum heim af ótta við að upp komist. Inn í söguna fléttast ástamál, samskipti við skólafélagana— gleði þeirra og vonbrigði með tilveruna. Eðvarð er höfundur metsölu- bókanna Fimmtán ára á föstu, Sextán ára í sambúð, Haltu mér — slepptu mér! svo að einhverjar séu nefndar. Eðvarð hlaut verðlaun Skóla- málaráðs Reykjavíkur fyrir bestu frumsömdu barna- og unglingabókina 1988, Meiri- háttar stefnumót. k<-< ’-j GEGNUM BERNSKUMURINN ER POTTÞÉTT UNGLINGABÓK Gísli T. Guðmunds- son — Minning Fæddur 22. mars 1915 Dáinn 30. nóvember 1991 Góður drengur og traustur vin- ur hefur kvatt þennan heim. Giftu- drjúgu dagsverki er lokið. Leiðir skiljast. Kynni okkar Gísla urðu fyrst með þeim hætti að dóttir hans og sonur minn felldu hugi saman og stofnuðu til hjúskapar. Síðan er nú liðinn röskur fjórðungur aldar. Samfylgd okkar alla þessa tíð hef- ur verið slík að hvergi ber skugga á. Það má því ekki minna vera en ég þakki Gísla samfylgdina og kveðji hann að leiðarlokum með þessum línum. Gísli Tómas fæddist í Reykjavík 22. mars 1915. Foreldrar hans voru Áslaug Friðjónsdóttir frá Sandi í Aðaldal og Guðmundur Pétursson nuddlæknir. Gísli var ekki fæddur í hjónabandi og átti móðir hans við veikindi að stríða um það bil er hann fæddist. Sigur- jón, bróðir Áslaugar, bóndi og skáld á Litlu-Laugum og kona hans, Kristín Jónsdóttir, tóku drenginn í fóstur strax á fyrsta ári og ólst hann upp hjá þeim til fullorðinsaldurs. Þau Litlu-Lauga- hjón áttu reyndar tíu böm fyrir, en létu sig ekki muna um að bæta þessum litla dreng í hópinn. Fósturforeldrar Gísla ólu hann upp sem væri hann þeirra eigin sonur og gerðu í engu verr til hans en sinna eigin bama. Það var heldur að Kristínu fyndist stundum hún þyrfti að gera hlut fóstursonarins ívið betri en sinna barna. Gísli varð líka snemma elskur að fóstur- móður sinni. Svo var hún honum kær, að hann hafði heitið því með sjálfum sér, að ætti það fyrir hon- um að liggja að eignast dóttur, skyldi hún engu nafni heita öðru en Kristín. Af ýmsu má ráða, að á heimil- inu á Litlu-Laugum hafi Gísla ver- ið búin skilyrði til vaxtar og þroska eins og þau gerðust einna best í byggðum landsins um þær mund- ir. Þar fór saman þjálfun huga og handar. Gísli naut síðan fræðslu í bamaskóla, eins og lög gerðu ráð fyrir, og lauk síðar námi við hér- aðsskólann að Laugum. Lengri varð skólaganga hans ekki en reyndist honum notadijúg eins og síðar kom á daginn. Á uppvaxtarárum sínum á Litlu-Laugum vandist Gísli flest- um sveitastörfum eins og þau gerðust á þeim tíma. Má víst telja að þar hafi munað um mannslið, sem hann var, eftir að hann náði fullum þroska. Trúlega hefur hann þá reynst fær um að gjalda fóstur- launin að einhverju leyti. Á Litlu-Laugum var Gísli heimilisfastur í rúman aldarfjórð- ung. Tuttugu og sex ára að aldri hélt hann svo út í heiminn að spila upp á eigin spýtur. Leiðin lá til Reykjavíkur. Þar var atvinnu von Ilmur fagurkerans á þeim árum. Þar sá hann líka móður sína í fýrsta sinn, svo að hann gæti munað. Ekki er annað vitað en að vel færi á með þeim mæðginum, og reyndar munu þau hafa notið nokkurs styrks hvort af öðru, er svo bar undir. Áslaug mun lengst hafa búið við þröngan kost þó að hún ynni hörðum hönd- um. Eigi að síður hafði hún leitast við að sýna syni sínum ræktar- semi, að minnsta kosti á meðan hann var á barnsaldri, með því að senda honum einhvem glaðning þegar færi gafst. Enn urðu þáttaskil á ævi Gísla þegar hann kvæntist, 6. nóvember 1943. Kristínu S. Björnsdóttur, kennara. Þau áttu heimili í Reykja- vík öll sín hjúskaparár og varð þeim þriggja barna auðið. Þau eru: Kristín, verslunarmaður, f. 1944. Hún er gift Jakob Líndal Kristinssyni, lyfjafræðingi, dósent við Háskóla íslands. Þau eiga þijú börn. Örn, viðskiptafræðingur, f. 1945. Hann er kvæntur Guðrúnu Áskelsdóttur, hjúkrunarfræðingi, og eiga þau einn son. Björn, slökkviliðsmaður, f. 1955. Hann er kvæntur Karólínu Gunnarsdóttur, skrifstofumanni. Þau eiga tvær dætur. Þau systkin- in búa öll í Reykjavík. Hér syðra stundaði Gísli al- menna verkamannavinnu lengi fyrst, en fertugur að aldri réðst hann til starfa hjá Pósthúsinu í Reykjavík. Upp frá því gegndi hann ýmsum störfum hjá þeirri stofnun allt til starfsloka. „Hvað má höndin ein og ein?“ Gísli var maður félagslyndur að eðlisfari. Á æskudögum gerðist hann liðsmaður ungmennafélags- hreyfingarinnar í heimabyggð sinni. Síðar meir gekk hann í verkamannafélagið Dagsbrún og loks starfaði hann í Póstmanna- félaginu um þriggja áratuga skeið. Hvarvetna reyndist hann hinn nýt- asti liðsmaður. Gísli treysti því, að með samtök- um fjöldans, væru þau nógu sterk, mætti ráða bót á því misrétti í þjóðfélaginu, sem blasti honum við augum. Því gekk hann snemma til liðs við stjórnmálahreyfingu sósíalista í Sameiningarflokki al- þýðu og síðar í Alþýðubandalag- inu. Þar hafa þau hjónin verið samtaka að verki frá fyrstu tíð. Gísli var ritfær maður í besta lagi og hafði gaman af að skrifa. Oft var til hans leitað ef skrifa þurfti afmæliskveðju til starfsfé- laga eða minnast látins samferða- manns. Brást hann þá einatt vel við. Um nokkurt skeið skrifaði hann stuttar greinar, einkum um hagi alþýðufólks og lífsbaráttu þess. Birtust þær í Þjóðviljanum. Enn má geta þess að Gísli skrifaði eina skáldsögu þegar hann var hættur að vinna launuð störf og fékk hana gefna út. í henni má glöggt greina að uppvaxtarárin í þingeyskri sveit hafa orðið honum hugleikin. I umgengni var Gísli maður hógvær og hæglátur, hafði sig ekki mjög í frammi. Hann var þægilegur í viðmóti, viðræðugóður og átti til létta kímni. Hann hafði ákveðnar skoðanir um ýmis efni og dró ekki dul á þær, ef svo bar undir, og talaði þá ekki tæpi- tungu. Að hinu leytinu var hann líklega nokkuð dulur í skapi, tal- aði ekki margt um sína eigin pers- ónu eða fjölskýlduhagi. Hitt duld- ist varla þeim, er dável þekktu til, að þar fór umhyggjusamur fjöl- skyldufaðir sem hann var, og sam- band þeirra hjóna virtist mér ein- kennast af hlýhug og nærgætni af beggja hálfu. Það lýsir kannski nokkuð hug Gísla til konu sinnar að 6. nóvembér síðastliðinn, á 48. brúðkaupsdegi þeirra, færði hann henni undurfagran blómvönd. Þau voru þó ekki vön að minnast þessa
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.